Dagur - 22.08.1992, Qupperneq 7
Laugardagur 22. ágúst 1992 - DAGUR - 7
Fréttir
Verslunarstaðurinn að Gásum:
„Engin hætta á ferðum
- segja Guðmundur Ólafsson fornminjavörður og
Halldór Pétursson jarðfræðingur
u
„Ég fór norður í síðustu viku
vegna staðhæfinga um að rúst-
irnar að Gásum væru í hættu
vegna sjávarstöðuhækkunar;
ég kannaði staðinn og sem bet-
ur fer virðast þetta vera stað-
hæfulausar fullyrðingar sem
Margrét Hermanns-Auðar-
dóttir hefur haft í frammi,“
sagði Guðmundur Ólafsson
fornminjavörður í samtali við
Dag. „Eg vísa líka algerlega á
bug að Þjóðminjasafnið hafi
hindrað rannsóknir Margrét-
ar,“ sagði Guðmundur Ólafs-
son.
Halldór Pétursson, jarðfræð-
ingur á Náttúrufræðistofnun
Norðurlands, sagði að engin
gögn lægju fyrir um sjávarstöðu-
hækkun eða landsig á Norður-
landi. „Það er hins vegar engin
afsökun fyrir að rannsaka ekki
rústirnar," sagði Halldór Péturs-
son, aðspurður um hvort hætta
væri á að rústirnar að Gásum
færu undir vatn.
„Gásir eru ekki í neinni bráðri
hættu; ef eitthvert landsig er fyrir
hendi gæti það numið broti úr
millimetra á ári. Við værum fljót-
ir að taka eftir landsigi hér á eyr-
inni en það flæðir ekkert meira
inn í kjallarana hér en í byrjun
aldarinnar," sagði Halldór Pét-
ursson og bætti við að Hörgá
myndi fyrr verða til að eyðileggja
rústirnar en að Gásir sykkju í sæ
við landsig.
„Hvað fornleifafræðilegar for-
sendur varðar þá fór starfsmaður
minjasafnsins á Akureyri með
okkur á staðinn og við gátum alls
ekki séð að þarna væri neitt í
hættu; þvert á móti virðist gamla
lónið frekar vera að gróa upp en
að eyðast,“ sagði Guðmundur
Ólafsson í samtali við Dag.
„Ég talaði við ábúendur á Gás-
um og þeir gátu ekki séð að
þarna hefðu átt sér stað neinar
breytingar á undanförnum árum
annað en að þarna er mikil sina
núna,“ sagði Guðmundur Ólafs-
son.
„Rannsóknir á vegum Þjóð-
minjasafns eru ekki fyrirhugaðar
að Gásum því við höfum hvorki
mannskap né fjárveitingu til að
stunda slíkt. Margrét hefur gert
einhverjar kannanir og fékk leyfi
til þess á sínum tíma; nú þarf
leyfi fornleifanefndar," sagði
Guðmundur Ólafsson, aðspurður
um möguleika á framtíðarrann-
Hlutabréfasala:
60% hlutaflár í
Jarðborunum hf. selt
Kaupþing hf. hóf í gær sölu á
60% hlutabréfa í Jarðborunum
hf. Heildarsöluverð bréfanna
er 264,8 milljónir króna. Eig-
cndur Jarðborana eru Reykja-
víkurborg og ríkissjóður en
sala bréfanna er liður í einka-
væðingaráformum þessara
aðila. Hvor eignaraðili um sig
selur 30% en ríkissjóður stefn-
ir að því að selja á næstu árum
þann hluta sem eftir verður í
fyrirtækinu.
Petta er í fyrsta sinn sem bréf í
fyrirtæki í eigu ríkisins eða
Reykjavíkurborgar eru boðin til
sölu. Starfsmönnum sem unnið
hafa hjá Jarðborunum í þrjá
mánuði eða lengur verður gefin
kostur á að kaupa hlutabréf fyrir
allt að 450 þúsund krónur og
greiða með jöfnun, vaxtalausum
afborgunum í þrjú ár.
Aðalsöluaðilar hlutabréfanna
verða Kaupþing hf. í Reykjavík
og Kaupþing Norðurlands hf. á
Akureyri. JÓH
Útibú KÞ auglýst til leigu
- fáeinir
Fyrir stuttu auglýsti Kaupfélag
Þingeyinga rekstur tveggja úti-
búa sinna til leigu og rann
umsóknafrestur út 20. ágúst.
Um er að ræða rekstur útibú-
anna að Laugum í Reykdæla-
hreppi og Gljúfrabú við Laxár-
sóttu um
virkjun í Aðaldælahreppi. Að
sögn Hreiðars Karlssonar kaup-
félagsstjóra KP sóttu fáeinir aðil-
ar um og væntalega verður tekin
ákvörðun í næstu viku um hverjir
koma til með að leigja rekstur-
inn. KR
EST er verslun er nýverið var opnuð að Glerárgötu 30 á Akureyri. Um er að
ræða sölu- og þjónustufyrirtæki fyrir skrifstofubúnað. Að versluninni standa
fyrirtækin Bókaverslunin Edda, Skriftækni-Copyviðgerðir og Tölvuþjónust-
an. Á inyndinni eru frá vinstri þeir sem standa að rekstri EST; Jón Georgs-
son, Erlingur Harðarson, framkvæmdastjóri, Þorsteinn Thorlacíus og Þor-
gils Guðmundsson, stjórnarformaður. Mynd: Goiii
sóknum á hinum forna verslun-
arstað. Aðspurður um hvort slíkt
leyfi væri ekki auðfengið sagði
Guðmundur: „Það fer eftir mati
fornleifanefndar á umsókn
hverju sinni.“
„Ég get ekki séð að þarna sé
meiri hætta á ferðum en víðast
annars staðar en gamlar tóftir
samlagast moldinni auðvitað
smám saman,“ sagði Guðmundur
Ólafsson fornminjavörður að
lokum. GT
AKUREYRARB/tR
Byggingalóðir
Bygginganefnd Akureyrar auglýsir eftir áhuga-
aðilum sem hefðu hug á að hefja fljótlega bygg-
ingarframkvæmdir á íbúðarhúsa-, iðnaðar- og
verslunarlóðum í þegar byggðum hverfum bæjar-
ins, sem ýmist eru lausar nú þegar eða um það bil
að falla á byggingarfresti.
Skrá yfir þessar lóðir liggur frammi hjá bygginga-
fulltrúa Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 1. september 1992.
Akureyri 18. ágúst 1992.
Bygginganefnd Akureyrar.