Dagur - 22.08.1992, Side 20

Dagur - 22.08.1992, Side 20
Akureyri senn 130 ára: Stefiit að fjörugu bæjar- lffi og hæfilegri léttúð Bæjaryfirvöld á Akureyri munu standa fyrir hátíðarhöld- um laugardaginn 29. ágúst í tilefni af 130 ára kaupstaðar- afmæli bæjarins. Ráðhústorg verður miðpunktur hátíðarinn- ar og verður spilað á þá mögu- leika sem breytingarnar á torg- inu hafa gefíð. Ekki verður stefnt að stórhátíðardagskrá heldur einungis fjörugu bæjar- lífí, eins og segir í tilkynningu frá undirbúningsnefnd. Fjölmörg atriði hafa verið sett á dagskrá og tímasett en vonast er til að sem flestir sjái sér fært að skemmta sjálfum sér og öðrum. Sæversdómurinn: / Afrvjun höndum lögmanns Bæjarráð Ólafsfjarðar fjallaði á fundi sínum í fyrrakvöld um dómsúrskurð Hérðasdóms Norðurlands eystra í vikunni þar sem bæjarsjóður var dæmd- ur til að greiða 7,3 milljónir króna vegna ábyrgða á afurða- lánum Sævers hf. Sem fyrr má telja iíklegt af dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Bæjarráð samþykkti á fundin- um að fela bæjarstjóra og lög- manni bæjarins að taka ákvörðun um áfrýjun og má búast við að innan tíðar liggi fyrir hvort sú leið verður farin eða ekki. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins hef- ur innan Búnaðarbankans ekki verið rætt um áfrýjun á dómnum en upphafleg krafa bankans var að bærinn greiddi rúmar 16 millj- ónir króna. JÓH Verslunareigendur hafa verið hvattir til að hafa verslanir í mið- bænum opnar þennan laugardag og jafnframt skorað á veitinga- húsaeigendur að gera bæjarbúum afmælistilboð. Flestir ættu að geta gert sér eitthvað til skemmtunar á afmælisdaginn. í boði verða íþróttir, útivist, listviðburðir, tónleikar, skoðunarferðir og sýn- ingar af ýmsu tagi. Boðið verður upp á skoðunar- ferðir í Lystigarðinn, söfn bæjar- ins, Glerárgil, Listagilið og sér- staka söguskoðunarferð. Lúðra- sveit, rokkhljómsveit, blásara- sveit, kirkjukór og harmoniku- leikarar troða upp. Jóhann árelíuz og fleiri listamenn verða með dagskrá í 1929 og af íþróttum má nefna júdósýningu, sund og badmintonkeppni. Fyrir börnin verður boðið upp á kassabíla- keppni og hlaupakeppni. „Það mundi gleðja bæði Friðrik sáluga sjöunda og bystyrelsen, ef Akureyringar og margir vel- komnir gestir annars staðar frá skemmtu sér dátt þennan dag, með hæfilegri léttúð og ónota- laust út í allt og alla,“ segir í til- kynningunni frá undirbúnings- nefnd en Dagur mun fjalla nánar um afmælið er nær dregur. SS Laxinn gengur enn í gildrur og vonir standa til að alls náist að fanga 10.000 laxa. Mynd: Golli Laxós hf. í Ólafsfirði: 7800 laxar komnír á land - vonir standa til að þeir verði 10.000 í lok vertíðar fyrirtækisins, Þorsteinn Asgeirsson, segir að vonir standi til að þeir Laxóssmenn nái að fanga 10.000 laxa. „í fyrra gengu 4700 laxar til í á í sumar hafa starfsmenn Lax- óss hf. í Ólafsfírði heimt um 7800 laxa úr hafbeit, sem er mun betri árangur en náðst hefur fram að þessu. Lax geng- ur enn í gildrur og talsmaður stöðvarinnar. I ár hefur gengið Súlan EA með loðnufarm til verksmiðjunnar í Krossanesi: Kaldaskítur oglitlar fréttir af miðunum - hráefni til þriggja sólahringa á Raufarhöfn Súlan EA kom til löndunar í Krossanesi á fímmtudagskvöld- Slippstöðin: Starfsmenn í Noregi Þessa dagana eru starfsmenn frá Slippstöðinni á Akureyri í Noregi þar sem þeir eru að Ijúka uppsetningu á vinnslu- búnaði sem stöðin smíðaði í nýjan frystitogara Ögurvíkur hf. Knútur Karlsson segist reikna með að mennirnir þrír verði næstu tvær vikur að ljúka verkinu ytra. Slippstöðin er einnig að smíða vinnslubúnað að hluta til fyrir nýjan togara Samherja hf. © HELCARVEÐRIÐ Um 150 km suðsuðaustur af Vestmannaeyjum er 986 milli- bara víðáttumikil en heldur minnkandi lægð sem þokast norðnorðvestur. Heldur mun kólna í veðri. Búast má við nokkuð hvassri austan og norðaustanátt með rigningu í fyrstu, einkum austan og norðanlands. Þegar líður á morguninn gengur vindur til suðaustan og sunnanáttar og lægir mjög, einkum austan og sunnanlands. Áfram verða skúrir eða rigning um mestallt land, hiti verður 6-13 stig. sem einnig er í smíðum í Noregi. Síðar í haust fará skrokkhlutar í fyrra Malavískipið áleiðis til Afríku en í því tilfelli munu heimamenn sjá um að setja skip- ið saman þegar það verður komið að Malavívatni. Einn starfsmað- ur frá Slippstöðinni mun þó fara og hafa eftirlit með verkinu. JÓH ið. Aflinn, loðna, var 700 tonn, sem er fyrsti verulegi farmurinn sem berst verk- smiðjunni á þessari vertíð. Áður hafði Guðmundur Ólaf- ur ÓF landað slatta þar sem skipið þurfti að koma inn vegna bilunar. í nótt sem leið var kaldaskítur á loðnumiðunum. Skipin eru dreifð um stórt svæði norður af Sléttu. Loðnutorfurnar hafa ver- ið smáar á svæði frá 110 mílum út að 180 mílum. Bjarni Bjarnason, skipstjóri á Súlunni, segir að nú fari loðnan að síga upp að land- inu upp í kantinn og þá megi búast við betri veiði ef veður verði skaplegt. „Háberg GK og Svanur RE lönduðu hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á Raufarhöfn á fimmtu- dag. Hvort skip var með 650 tonn. Svanur liggur enn við bryggju, en Háberg er farið til veiða. Litlar fréttir hafa borist af miðunum aðrar en þær að Norð- mennirnir hafa fengið afla fyrir norðan 70 gráðurnar og Gullberg VE er á leið til Þórshafnar með dágóðan afla. Við hér á Raufar- höfn eigum hráefni til næstu þriggja sólahringa og unnið er dag og nótt,“ sagði Árni Sörens- son, verksmiðjustjóri. ój Veiðiheimildargjald til smábátaeigenda hækkar um 105,17%: „Upphafleg markmið gleymast fljótt þegar rfldsvaldið á í hlut“ - segir Haraldur Sigurðsson frá Núpskötlu Sjávarútvegsráðuneytið úthlut- aði nýverið veiðiheimildum til smábátaeigenda með gjald- töku. Veiðiheimildargjaldið er krónur 11.900 og hefur hækk- að um 105,17% milli ára. „í þrjú ár hefur hið háa sjávar- útvegsráðuneyti úthlutað veiði- heimildum til smábáta með gjald- töku. Látið var í veðri vaka þegar lögin voru samþykkt að gjaldtak- an yrði hófleg, sem hún var í upphafi. Þrjú þúsund og þrjú hundruð krónur voru teknar fyrir tímabilið frá 1. janúar til 31. ágúst 1991. Fyrir veiðiárið frá 1. september 1991 til 31. ágúst 1992 var gjaldið 5.800 krónur, sem var hækkun um 75,76%. Nú eru þeir búnir að senda glaðninginn fyrir fiskveiðiárið frá 1. september 1992 til 31. ágúst 1993. Gjaldið er 11.900 krónur og hefur hækkað um 105,17% milli ára. Þar sem ríkisvaldið nær að taka gjöld er þróunin þessi og upphafleg mark- mið gleymast fljótt,“ segir Har- aldur Sigurðsson frá Núpskötlu í Öxarfirði, sem er í forsvari fyrir smábátaeigendur þar um sveitir. ój betur og 7800 laxar er besti árangur fram að þessu. Laxinn gekk í sumar jafnt og þétt í gildr- urnar, en nú hefur dregið úr. Þegar brimar hér útifyrir koma gusur þannig að við væntum þess að ná 10.000 löxum, sem er forsenda þess að við náum end- um saman. Laxinn er á bilinu 4 til 6 pund og er seldur frystur til Þýskalands og Bretlands. í fyrra slepptum við 290.000 seiðum og svo var einnig í sumar. Fastir starfsmenn Laxóss hf. eru tveir, en yfir sumartímann eru starfs- mennirnir fleiri, sem gefur að skilja," sagði Þorsteinn Ásgeirs- son. ój Norðurland: Þorskuriiui brást í júlímánuði Aflabrögö á Norðurlandi í júlí- mánuði voru ekki upp á marga físka ef loðnan er undanskilin. Heildaraflinn var reyndar meiri en í sama mánuði í fyrra, 23.414 tonn á móti 18.942 tonnum, en þær tölur segja ekki alla söguna. Þorskaflinn hefur dregist veru- lega saman. Samtals veiddu norðlensk skip 6.913 tonn af þeim gula í júlí, samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands, á móti 11.759 tonnum í júlí 1991. Hins vegar veiddist meira af ýsu, 1.015 tonn á móti 482. Af ufsa veiddust 2.044 tonn í júlí á móti 2.344 í sama mánuði í fyrra en karfaveiðar gengu betur, 1.839 tonn á móti 1.241. Þá varð veruleg aukning í grálúðu, 1.044 tonn á móti 249. Norðlendingar fengu enga loðnu í júlí 1991 en 7.735 tonn í júlímánuði síðastliðnum. Þá veiddust 2.876 tonn af rækju á móti 2.383 í fyrra. SS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.