Dagur - 26.08.1992, Side 1
75. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 26. ágúst 1992
160. tölublað
Vel klæddur
í fötum frá
BERNHARDT
Thc Tail«)r l .«H>k
Loðnan komin 70-80 mílur norður af landinu:
Stór og falleg loðna en
erfitt að kasta á hana
Duoin
HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
55
44
segir skipstjórinn á Bergi VE-44
„Loðnan hefur stanslaust
gengið hér suður um undan-
farna daga og var kominn inn
fyrir Iínuna sem við máttum
fara að á loðnunni en svo var
hún færð 15 mílum sunnar og
loðnan er nú komin að henni
en hún er nú bæði stór og
falleg. Til Raufarhafnar eru nú
75 mílur og er orðið 140 mílum
styttra en var þegar við byrjuð-
um á þessum veiðum 11. ágúst
síðastliðinn,“ sagði skip-
stjórinn á Bergi VE-44 sem var
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf.:
Mikil uppgrip í
rækjuviimslumii
- unnið allan sólarhringinn
Mikil uppgrip hafa verið í
rækjuvinnslunni hjá Fiskiðju-
samlagi Húsavíkur hf., svo
mikil að sumum hefur jafnvel
þótt nóg um. Unnið hefur ver-
ið á þrískiptum vöktum allan
sólarhringinn frá því um miðj-
an apríl og sá háttur verður
hafður á eitthvað áfram.
Starfsfólk er því orðið býsna
þreytt en senn hverfur skóla-
fólk í nám og fastráðið starfs-
fólk skilar sér úr sumarleyfi.
Milli 30 og 40 manns vinna við
rækjuvinnsluna.
Hilmar ívarsson hjá rækju-
vinnslu Fiskiðjusamlags Húsa-
víkur sagði að ekki væri nóg með
það að keyrt hefði verið á þrí-
skiptum vöktum í allt sumar
heldur hefði verið unnið flesta
laugardaga og nokkra sunnu-
daga. Hann sagði að þótt svona
mikil vinna væri vissulega lýjandi
væru þetta kærkomin uppgrip
fyrir suma, svo sem skólakrakka.
Rækjuvinnslan hefur tekið á
móti yfir 2.500 tonnum af rækju
það sem af er árinu en á sama
tíma í fyrra var aflinn kominn í
um 1.500 tonn og á öllu síðasta
ári var framleitt úr samtals 2.484
tonnum af rækju. Parna hefur
því orðið veruleg aukning og
helgast m.a. af því að fleiri bátar
leggja upp hjá rækjuvinnslu
Fiskiðjusamlagsins.
Þrír stórir bátar, Björg Jóns-
dóttir, Sigþór og Kristbjörg, hafa
lagt upp hjá Fiskiðjusamlaginu
svo og fimrn minni bátar. Þá hef-
ur verið keypt frosin rækja af
tveimur frystiskipum.
Hilmar sagði að aflabrögðin
hefðu verið frekar dauf á tímabili
en vegna þess hve margir bátar
væru í viðskiptum hefði hráefnið
aukist. Rækjuvinnslan er heldur
ekki stór í sniðum og aðeins tvær
vélar notaðar við vinnsluna með-
an stærri verksmiðjur eru með
allt upp í sex vélar.
Aðspurður um gæði rækjunnar
sagði Hilmar að þetta hefði verið
mjög þokkaleg rækja framan af
en heldur lakari það sem af er
ágústmánuði. SS
á leið frá Raufarhöfn á miðin í
gærmorgun eftir löndun þar.
Þeir bátar sem hafa landað á
Raufarhöfn og Þórshöfn eru 7 til
8 tíma á miðin og hefur veiðin
verið að glæðast en á miðunum
hefur verið norðaustanátt og
loðnan að ganga suður og því
hefur verið vissum vandkvæðum
bundið að kasta á hana og sam-
kvæmt veðurspá verður eitthvað
framhald á norðaustanáttinni og
brælunni.
í gær landaði Bergur 530 tonn-
um á Raufarhöfn og Sjávarborg
630 tonnum en enginn hafði
meldað sig seinni hluta dags í gær
en Árni Sörensson verksmiðju-
stjóri bjóst við að heyra frá ein-
hverjum þegar kvöldaði. Um sl.
helgi landaði Háberg 570 tonnum
og Hilmir 270 tonnum sem hann
gat ekki landað á Neskaupstað
þar sem löndunartækin þar bil-
uðu.
Súlan og Guðmundur Ólafur
lönduðu í lok síðustu viku sam-
tals um 970 tonnum í Krossanes-
verksmiðjuna og Súlan landaði
svo um hádegið í gær 470
tonnum.
Á Þórshöfn lönduðu í gær og
fyrradag Þórshamar 400 tonnum,
Gullberg rúmum 200 tonnum og
Svanur 600 tonnum en um helg-
ina landaði Björg Jónsdóttir 500
tonnum, Þórshamar 250 tonnum
og Gullbergið 560 tonnum.
Loðnan sem berst að landi er
mjög feit en er mjög fljót að
brotna niður í bátunum og er því
orðin eins og súpa þegar henni er
landað en vel gengur að vinna
hana. Afkastageta verksmiðj-
unnar á Þórshöfn er um 550 tonn
á sólarhring.
Eilítið hefur borið á ókyn-
þroska smáloðnu á miðunum, 5-6
cm langri, en ekki í umtalsverðu
magni. Haldist veður skaplegt á
miðunum má reikna með auknu
magni til löndunar og þá verði
farið að landa í aðrar verksmiðj-
ur sem lengra eru frá miðunum,
eins og t.d. á Siglufirði. GG
Súlan landaði í gær 470 tonnum af stórri og fallegri loðnu
Mynd:''Golli
Matvöruverslanir opnar á sunnudögum:
Nettó fetar í fótspor Hagkaups
Matvöruverslanir á Akureyri
keppast sem aldrei fyrr við að
ná til viðskiptavina. Skemmst
er að minnast „skiltastríðsins“
svokallaða milli Hagkaups og
KEA-Nettó en nú er vettvang-
ur samkeppninnar að færast
yfir á afgreiðslutímann og
nýjasta trompið er að hafa
matvöruverslanir opnar á
sunnudögum. Reyndar er það
ekki ný bóla en hún breiðist
ört út.
Hagkaup auglýsti nýjan
afgreiðslutíma frá 24. ágúst.
Verslun Hagkaups á Akureyri er
nú opin kl. 10-16 á laugardögum
og 13-17 á sunnudögum. Virka
daga er opið frá kl. 9 á morgnana
til 18.30 á kvöldin og reyndar til
19.30 á föstudögum.
KEA-Nettó verslunin hefur til
- samkeppnin fer harðnandi um helgar
þessa verið opin virka daga frá
kl. 12-18.30 og kl. 10-14 á laugar-
dögum. Frá og með næstu helgi
breytist afgreiðslutíminn. Versl-
unin verður opin frá kl. 10-16 á
laugardögum og 13-17 á sunnu-
dögum, eða nákvæmlega jafn
lengi og Hagkaup um helgar.
„Ef að þetta er þróunin þá
verðum við auðvitað að fylgja
henni,“ sagði Júlíus Guðmunds-
son, verslunarstjóri í Nettó, í
samtali við Dag. „Við höfum líka
orðið vör við aukna umferð til
Akureyrar um helgar, bæði aust-
an og vestan að, og við stefnum
að því að vera með ýmis tilboð og
uppákomur um helgar,“ bætti
hann við.
Sumir hafa áhyggjur af því að
lengri afgreiðslutími geri versiun-
unum erfiðara um vik að halda
Norðausturland:
Vegurinn um Brekkna-
heiði byggður upp
Brekknaheiði liggur á milli
Þórshafnar og Bakkafjarðar
og tengir Þórshöfn við Aust-
firðina. Þetta hefur verið
mikilvæg en torfær samgöngu-
æð en nú er byrjað á endurbót-
um á veginum.
Að sögn Reinhards Reynisson-
ar, sveitarstjóra á Þórshöfn, er
byrjað að byggja upp veginn við
sýslumörkin og haldið verður
áfram suður eftir. Vegagerðar-
menn hafa lagt að baki nokkur
hundruð metra.
„Það er að vísu lítið sem á að
gera á þessu ári en þetta er þó
byrjunin á langþráðu verki. Við
vonumst til að fjárveitingar til
verksins verði skikkanlegar á
næsta ári,“ sagði Reinhard. SS
vöruverði niðri en það á sjálfsagt
eftir að koma í Ijós hvaða áhrif
þessi þróun hefur.
Eins og fyrr segir er það ekki
ný bóla að hafa matvöruverslanir
á Akureyri opnar um helgar en
þetta er þróun sem hefur verið að
gerjast. Matvörumarkaðurinn er
opinn frá kl. 9-22 virka daga og
10-22 bæði laugardaga og sunnu-
daga. Verslun KEA í Byggðavegi
er opin til kl. 20 alla daga, líka
um helgar, og afgreiðslutíminn í
Sunnuhlíð hefur verið sá sami
nema þar er lokað á sunnudög-
um. í Hrísalundi hefur hins vegar
verið skemmri afgreiðslutími og
aðeins opið frá kl. 10-14 á laugar-
dögum. SS
Félag verzlunar- og skrifstofufólks:
„Iist afskaplega
illa á þessa þróun“
segir Jóna Steinbergsdóttir, formaður
„Okkur líst afskaplega illa á
þessa þróun og höfum lýst því
yfir áður að það sé ekki í anda
félagsins að hafa opið á sunnu-
dögum. Þetta er óæskilegt og
jafnframt ónauðsynlegt að
mínu mati en þetta er hlutur
sem við ráðum ekki við,“ sagði
Jóna Steinbergsdóttir, formað-
ur Félags verzlunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri, um
þróunina í afgreiðslutíma mat-
vöruvcrslana.
Lögum um afgreiðslutíma
verslana var breytt fyrir fáeinum
árum og hann gefinn frjáls. Stétt-
arfélagið getur því ekki spornað
við þessari þróun en félagsmenn
hafa þó fullan rétt á því að neita
helgarvinnu. Það eina sem Félag
verzlunar- og skrifstofufólks get-
ur gert í þessu sambandi er að
fylgjast með að samningsbundin
ákvæði um hvíldartíma og frí-
daga séu virt.
Jóna sagði að þótt starfsfólk í
verslunum þyrfti ekki að vinna
um helgar væri það hrætt við að
neita vinnu því atvinnuleysi væri
mikið í stéttinni. Um 5%
félagsmanna eru á atvinnuleysis-
skrá og hefur ástandið verið svip-
að síðastliðin þrjú ár.
„Ég held að það sé hreint ekki
nauðsynlegt að hafa matvöru-
verslanir opnar á sunnudögum.
Fólk getur birgt sig upp fyrir
helgar og síðan eru margar
smærri verslanir opnar ef á þarf
að halda,“ sagði Jóna. SS