Dagur - 26.08.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 26. ágúst 1992
Fréttir
Vistheimfli fyrir fótluð böm verði á Sauðárkróki
- sérdeildir við grunnskólana á Sauðárkróki og Húnavöllum
Nú í vor var vistheimili fyrir
fötiuð böm að Egilsá í Akra-
hreppi lagt niður. Skipuð var
nefnd til að athuga þessi mál
og gera tillögur, komst hún að
þeirri niðurstöðu að vistheimili
þyrftu að vera tvö til að anna
þörfínni, annað í Skagafírði og
hitt í Húnavatnssýslu. Fjárveit-
ing fékkst hins vegar aðeins
fyrir einu vistheimili og voru
skiptar skoðanir um hvar það
skyldi vera. í Ijós kom að fleiri
fötluð börn sem þurfa á slíkri
Skrifstofiitæknl
,JVÁM SEM NÝTIST‘
Innritun og upplýsingar í síma 27899 til kl.
22.00.
Tölvufræðslan Akureyri
FuruvöUimi 5, II. hæð,
Akureyrl. Síml 27899.
FLUGMÁLASTJÓRN
Til leigu
í flugstöð á Húsavíkurflugvelli
aðstaða fyrir söluturn
Upplýsingar veitir umdæmisstjóri Flugmálastjórnar í
síma 96-23011 eöa flugvallarvörður í síma 96-
41253.
Auglýsing
Laus til umsóknar eru störf hjá fjármálaráðu-
neytinu. Um er að ræða störf við tolla- og
skattamál og önnur tekjumál.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun í lög-
fræði eða viðskiptafræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 11. september
n.k.
Fjármálaráðuneytlð, 21. ágúst 1992.
RARIK
RAFMAGNSVEiTUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK 92005 22 kV rofabúnaður.
Opnunardagur: Föstudagur 2. október 1992 kl.
14.00.
Tilboðum skal skiia á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun-
artíma og verða þau opnuð á sama stað að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
fimmtudegi 27. ágúst 1992 og kosta kr. 1.000 hvert
eintak.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Laugavegi 118, 105 Reykjavík.
vistun að halda eru á Skaga-
fjarðarsvæðinu og því varð úr
að vistheimilið verði á Sauðár-
króki.
Að sögn Sveins Allans Morth-
ens framkvæmdastjóra Svæðis-
stjórnar um málefni fatlaðra á
Norðurlandi vestra var ákveðið
að settar yrðu sérdeildir við
grunnskólana á Sauðárkróki og
Húnavöllum og að vistheimilið
yrði þá á öðrum staðnum, en
ekki báðum eins og nefndin lagði
til. Þegar farið hefði verið í
saumana á málinu hefði komið í
ljós að mun fleiri fötluð börn sem
þurfa á vistun að halda væru í
Skagafirði og Siglufirði en í
Húnavatnssýslum og í ljósi þess
hefði verið ákveðið að staðsetja
heimilið á Sauðárkróki. Foreldr-
ar þeirra barna sem vistuð voru á
Egilsá vildu ekki að vistheimilið
yrði staðsett á Húnavöllum og
beittu sér gegn því.
Ástæður þess að vistheimilið
að Egilsá var lagt niður voru m.a.
að það þótti of langt frá skóla og
þéttbýli. Sveinn Allan sagði að
tvö tilboð hefðu fengist um hús-
næði fyrir vistheimilið á Sauðár-
króki. Verið væri að ganga frá
húsnæðismálum og ráðningum.
sþ
Aðalfundur sauðflárbænda:
Hugmyndir um beinar greiðslur
án framleiðslustjómunar
- komu fram í erindi Valdimars Einarssonar, ráðunauts
„Sauðféð sér fyrir um helmingi
af kjötneyslu þjóðarinnar. Það
leggur þeim er það rækta
skyldur á herðar gagnvart
neytendum. En þrátt fyrir það
hafa sauðfjárbændur þó fyrst
og fremst skyldur gagnvart
sjálfum sér og sínum stéttar-
bræðrum. Þær skyldur ber
okkur að rækja með því að
leyta eftir sanngjörnum kjör-
um og aðstöðu, hyggja að auk-
inni hagkvæmni við rekstur
búanna og sinna markaðs-
færslu afurðanna eins og best
verður á kosið. AUt þetta vinn-
um við best með samræmdum
átökum. Okkur eru lagðar
miklar skyldur á herðar. Hætta
er á að við munum kikna und-
an þeim eitt og eitt, en samein-
uð er von til að við getum stað-
ið þær af okkur og byrjað sókn
til betri tíma.“
Þetta voru lokaorð Arnórs
Karlssonar, formanns Lands-
sambands sauðfjárbænda, er
hann flutti skýrslu sína á aðal-
fundi samtakanna sem haldinn
var á Flúðum í gær og fyrradag.
Arnór kom víða við í skýrslu
sinni og benti meðal annars á að
eitt veigamesta mál sauðfjár-
bænda um þessar mundir væri
framkvæmd nýgerðs búvöru-
samnings og hugsanlegra breyt-
inga á honum. Hann sagði að enn
væri beðið eftir tillögum sjö-
mannanefndar um hagræðingu
og endurskipulagningu á vinnslu-
og sölustigi sem átt hafi að liggja
fyrir í ágúst fyrir einu ári. Þá
gerði Arnór útflutningsmálin að
umræðuefni og minnti á að allt
frá því farið var að tala um gerð
þess búvörusamnings er taka á
gildi nú um mánaðamótin hafi
verið ljóst að sauðfjárframleiðsl-
an yrði löguð eftir innanlands-
markaði. Hins vegar hefði gengið
illa að fá þau verð erlendis er
skiluðu einhverju til framleið-
enda án útflutningsbóta.
Þrátt fyrir það hefði orðið vart
áhuga til að íeita nýrra markaða
og síðan rakti Arnór tilraunir
Erlendar Garðarsonar hjá Kaup-
sýslunni og Guðmundar Hall-
dórssonar á Húsavík, sem sett
hefur sér það markmið að selja
nokkurt magn af kindakjöti og
öðrum afurðum til Færeyja á
hærra verði en gilt hefur á þeim
markaði að undanförnu. Arnór
sagði lýkur á að Færeyjamarkað-
urinn væri sá besti, sem nú sé
fáanlegur fyrir lambakjöt erlend-
is og sennilega muni kjör þar
batna vegna skattbreytinga sem
eiga sér stað um næstu áramót.
Þá greindi Arnór T^arlsson frá
því að á síðastliðnum vetri hefði
verið stofnað fagráð í sauðfjár-
rækt sem hafi það markmið að
efla rannsókna- og þróunarstarf í
sauðfjárræktinni og greindi frá
því að nú þegar hefðu borist 27
umsóknir og ábendingar um
verkefni. Arnór sagði að mikill
áhugi væri á framþróun í sauð-
fjárrækt sem komi fram í góðum
viðbrögðum við auglýsingu eftir
styrkjum tengdum starfsemi fag-
ráðsins.
ÞI
Búfræðingarnir sem útskrifuðust frá Hólum fyrir 50 árum. Frá vinstri: Jón R. Hjálmarsson, Ragnar Benediktsson,
Sæmundur Jónsson, Konráð Gíslason, Friðbjörn Þórhalisson, Gísli Pálsson, Hróar B. Laufdal, Jens Jónsson,
Björn Gunnlaugsson, Friðgeir Ágústsson, Helgi Jónasson og Olafur Kr. Þórðarson.
50 ár frá útskrift á Hólum
- hópurinn hafði forgöngu um uppsetningu vegaskiltis
Nú um helgina kom saman
hópur manna á Hólum í
Hjaltadal af því tilefni að 50 ár
voru liðin frá því að þeir út-
skrifuðust sem búfræðingar frá
bændaskólanum. í tilefni þess-
ara tímamóta höfðu þeir for-
gang um uppsetningu skiltis
við veginn inn í Hjaltadal.
Upphaflegi hópurinn sem út-
skrifaðist frá skólanum voru 22
og þar af eru þrír látnir. Síðast-
liðinn laugardag hittust 12 menn
úr þessum hópi við nýja vega-
skiltið, en á því er kort og upplýs-
ingar um Hjaltadal. Höfðu bú-
fræðingarnir forgöngu um upp-
setningu þess og gáfu það að
hluta. Hópurinn gisti á Hólum og
haldin var veisla á laugardags-
kvöldið. Að sögn ætluðu þeir að
skemmta sér saman og rifja upp
gamlar minningar og ef til vill
taka lagið og vonuðust til að
skólaskáldið Jens Jónsson myndi
varpa fram nokkrum stökum.
Þess má geta að af þessum hópi
eru þrír enn starfandi við búskap.
sþ