Dagur - 26.08.1992, Qupperneq 3
Miðvikudagur 26. ágúst 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Gunnar Rafn Einarsson, fyrrverandi skattstjóri, hjá yfirskattanefnd:
Vanhæfur til umQöllunar um eigin verk
- úrskurðar ekki um ágreiningsmál úr Norðurlandsumdæmi eystra
Þegar Gunnar Rafn Einarsson
lét af störfum sem skattstjóri
Noröurlandsumdæmis eystra
var hann skipaður í yfirskatta-
nefnd sem sér um að úrskurða
í ágreiningsmálum varðandi
skattskyldu og skattfjárhæð.
Að sögn Ólafs Ólafssonar, for-
manns yfirskattanefndar, er
Gunnar Rafn Einarsson van-
hæfur til að úrskurða í málum
úr Norðurlandsumdæmi eystra
sem verið hafa til meðferðar í
skattstjóratíð hans. „Það er
skýrt í lögum að menn eru van-
hæfir til umfjöllunar um eigin
verk,“ sagði Ólafur Ólafsson í
samtali við Dag.
Yfirskattanefnd sem kemur í
stað ríkisskattanefndar er skipuð
sex mönnum sem skiptast í tvo
hluta þannig að þrír nafngreindir
nefndarmenn úrskurða yfirleitt í
hverju máli að sögn Braga
Guðmundssonar hjá Fjármála-
ráðuneytinu. Tveir nefndarmanna
eru í hlutastarfi en fjórir eru í
Heysalan til Svíþjóðar:
Svíarnir ánægðir með íslenska heyið
- vilja bíða fram yfir seinni slátt
með frekari viðræður um heykaup
Sænski aðilinn sem hefur verið
í sambandi við Búnaðarsam-
band Eyjafjarðar vegna mögu-
legra kaupa á heyi frá íslandi
hefur tilkynnt að í lok sept-
ember liggi Ijóst fyrir hvort
óskað verði eftir kaupum á
heyi. Síðari hluta sumars hefur
nokkuð ræst úr veðráttunni
fyrir sænskum bændum og eru
þeir nú að slá seinni slátt. Að
honum loknum verður staðan
metin.
Fyrir nokkrum vikum sendi
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
sýni af þurrheyi til Svíþjóðar en
viðbrögð komu ekki fyrr en á
mánudag. Guðmundur Stein-
dórsson, ráðunautur hjá Búnað-
arsambandinu, segir að Svíarnir
telji íslenska heyið í háum gæða-
flokki en tilkynni jafnframt að á
meðan seinni sláttur standi yfir sé
ekki hægt að segja til um hvort af
viðskiptum verði.
Þurrkar í Skandinavíu fyrri
hluta sumars stefndu heyskap
bænda í Noregi og Svíþjóð í
hættu og þá komu fyrirspurnir
um heykaup frá fslandi. Minna
hefur farið fyrir áhuga kaupend-
anna upp á síðkastið vegna hag-
stæðara tíðarfars sem hleypti
sprettu af stað. JOH
Blönduós:
„Hér vantar krá og kráarstemimihigu“
- segir Jónas Skaftason eigandi gamla Pósthússins
Jónas Skaftason keypti gamla
Póst- og símahúsið á Blönduósi
og hefur rekið þar svefnpoka-
gistingu undanfarin tvö sumur.
Nýting hefur verið góð og Jón-
as er með íleiri hugmyndir í
pokahorninu.
Húsið er stórt, tvær hæðir, ris
og kjallari. Er jarðhæðin nýtt
sem gistipláss. Nú er pláss fyrir
10-15 manns í svefnpokagistingu
í herbergjum. Jónas sér að mestu
leyti sjálfur um reksturinn. Gest-
irnir hafa aðgang að baði, setu-
stofu og eldhúsi. Þetta hefur
gengið vel að sögn Jónasar og eru
það ekki síst íslendingar sem not-
færa sér þennan gistimöguleika.
Hann kvaðst hafa hug á að bjóða
upp á styttri skoðunarferðir í
framtíðinni, t.d. fyrir Skaga.
Jónas hefur einnig fleiri áætl-
anir á prjónunum, enda nóg
húspláss. Hann hefur sótt um
leyfi fyrir rekstri ölkrár og er það
mál í athugun. Það er enginn
slíkur staður á Blönduósi og telur
Jónas fulla ástæðu til að bæta þar
úr og skapa kráarstemmningu á
Blönduósi. sþ
Svarfaðardalur:
Biskup íslands endurvígir
Tjamarkirkju eftir endurbætur
- hátíðarmessa í tilefni aldarafmælis kirkjunnar
Biskup íslands, Ólafur Skúla-
son, mun endurvígja Tjarnar-
kirkju í Svarfaðardal næst-
komandi sunnudag en viða-
miklar endurbætur hafa farið
fram á kirkjunni í sumar. Jafn-
framt er þess minnst að 100 ár
eru liðin frá því að Tjarnar-
kirkja var vígð.
Eftir lagfæringarnar á kirkj-
unni er hún að mörgu leyti betra
hús en hún hefur nokkurn tím-
ann verið. Þar sem skipt var um
alla burðarbita kirkjunnar verður
hún endurvígð en að lokinni
vígslu og hátíðarmessu á sunnu-
dag verður gestum boðið að
þiggja hátíðarkaffi í Húsabakka-
skóla.
í tilefni af aldarafmælinu verð-
ur gefinn út bæklingur prýddur
fjölda mynda. í honum verður
m.a. ávarp biskups íslands og
greinar um sögu kirkju og staðar,
upplýsingar um þá presta sem
þjónað hafa kirkjunni síðustu
aldir og byggingu Tjarnarkirkju
og þær endurbætur sem gerðar
voru á henni í sumar. Andvirði
þessa bæklings veðrur notað til
að greiða niður þær miklu skuldir
sem hvíla á söfnuðinum vegna
framkvæmdanna.
Allir eru velkomnir að Tjörn í
Svarfaðardal á sunnudag, 30.
ágúst, til aö taka þátt í hátíðar-
messunni og þiggja hátíðarkaffi.
Þeir sem ekki komast inn í
kirkjuna geta hlustað á messuna
utan við kirkjuna eða í rútum
sem komið verður fyrir hjá kirkj-
unni.
Hátíðarmessan hefst kl. 14.
JÓH
fullu starfi og er Gunnar Rafn
Einarsson meðal þeirra.
Dagur hefur orðið var við
áhyggjur skattgreiðenda í
Norðurlandsumdæmi eystra um
að sami maðurinn leggi sama mat
á fyrri ágreining en þær áhyggjur
eru ástæðulausar því í 16. grein
laga nr. 30 frá 1992 um yfirskatta-
nefnd segir m.a.: „Þá er nefndar-
manni óheimilt að sitja í nefnd-
inni til úrskurðar um kærumál
skattaðila sem hann hefur haft
afskipti af í fyrri störfum sínum
og varðar skattákvörðun viðkom-
andi.“
Auk þess geta tengsl nefndar-
manns við skattaðila - vinsamleg
eða óvinsamleg - haft áhrif á hæfi
hans til úrskurðar eða „ef fyrir
hendi eru önnur atvik eða
aðstæður sem eru fallnar til þess
að draga óhlutdrægni hans með
réttu í efa.“ Þess má geta að
Hæstiréttur hefur skýrt sambæri-
legt ákvæði þannig að mjög lítið
þarf til að nefndarmaður sé talinn
vanhæfur vegna möguleika á
hlutdrægni.
Norðurlandsumdæmi eystra er
þriðja stærsta skattumdæmi
landsins á eftir Reykjavík og
Reykjanesi. Því er líklegt að
Gunnar Rafn Einarsson sé van-
hæfur til að úrskurða í nokkrum
fjölda mála á meðan ágrein-
ingsmál úr skattstjóratíð hans
bíða úrskurðar yfirskattanefnd-
ar. Að sögn Ólafs Ólafssonar,
formanns yfirskattanefndar, eru
slík mál ekki hlutfallslega fleiri í
Norðurlandsumdæmi eystra en
öðrum umdæmum. GT
Bæjakeppni
Funa
verður á Melgerðismelum laugardaginn 29.
ágúst og hefst kl. 13.00.
Keppt verður í fimm flokkum:
13 ára og yngri, 14-16 ára, kvennaflokki, karlaflokki
og opnum flokki, sem ætlaður er utanfélagsmönnum
á öllum aldri.
Skráningar eru hjá hópstjórum fram á miðvikudág 26.
ágúst og á Melgerðismelum kl. 12-12.30 29. ágúst.
Hestamannafélagið Funi.
tr Já X. s ^
JE—LLF . «1^^ ^ —m * - W ^
.7 9 5===3 3 3
Hvemig ætiar þú að eyða
Mstundunum í vetur?
Viltu læra að spila uppáhaldslögin þín
á hljómborð, skemmtara, orgel eða píanó?
Námskeið fyrir börn og fullorðna,
byrjendur og lengra komna.
Innritun hefst miðvikudaginn 26. ágúst
frá kl. 13-19.
Orgelskóli Gígju,
símar 24769 og 23181.
Auglýsendur
takið eftir!
Skilafrestur auglýsinga í helgarblöðin
okkar er kl. 14.00 á fimmtudögum.
auglýsingadeild, sími 24222
Opið frá kl. 8-17 virka daga, nema föstu-
daga frá kl. 8-16. Ath! Opið í hádeginu.