Dagur - 26.08.1992, Side 7

Dagur - 26.08.1992, Side 7
Miðvikudagur 26. ágúst 1992 - DAGUR - 7 Kaupfélagshúsið gainla, illa farið en þó fallegt. Myndir: sþ í trogum og auðvitað boðið brennivín með hákarlinum. Þetta er fremur sýning en máltíð, þar sem gestir fá þó að smakka á sýn- ingargripunum. Stúlkur klæddar í íslenskan búning sjá um fram- reiðsluna. Á kvöldvökunum er meira haft við, þá er boðið upp á söng og skemmtiatriði. Þessar uppákomur þarf að panta fyrir- fram og hefur notið mikilla vin- sælda. Sérstaklega eru það íslendingar sem í þetta sækja og áhugi þeirra kom Valgeiri á óvart. Húsið Baldurshagi var eitt sinn skreiðargeymsla, byggt um alda- mótin 1900. Það hús er í einka- eign. Hafist var handa um endur- byggingu í febrúar s.l., strax og viðgerð á pakkhúsinu var lokið. Byggður var kjallari undir húsið, scm var ákaflega vandasamt verk og þar verður salernisaðstaða fyr- ir ferðamenn. Á efri hæð hússins er íbúð eiganda en á neðri hæð- inni er rekin veitingastofan Sólvík. Þar er boðið upp á kaffi, heitt súkkulaði og ýmislegt með- læti og einnig er þar minjagripa- sala. Aðsókn hefur verið mikil í sumar og vaxandi. Ferðaskrif- stofur eru farnar að koma viku- lega með hópa og segir Valgeir að ferðamenn sumarsins séu á þriðja þúsund, sem sé miklu meira en menn þorðu að vona. Gamla Kaupfélagshúsið er hin- um megin við Hofsána, niðri í fjöruborðinu. Það stendur þar eitt sér og illa farið, en þó er yfir því virðuleikablær. Húsið er í eigu 14 einstaklinga og Valgeir hefur komist að samkomulagi við þá alla um endurbyggingu hússins. Húsið var byggt upp úr aldamótum. Búið er að setja vinnupalla utan á húsið og nú á að skipta um þak og útibyrgja húsið fyrir veturinn. Á næstunni mun Valgeir funda með eigend- um um framtíðarnýtingu hússins, en hans hugmyndir eru að á efri hæð verði íbúðarhúsnæði og á þeirri neðri verði verslun með sama sniði og var um 1920. Inn- réttingar og munir verði sem mest sniðið að þeirri mynd. Valgeir hefur fengið góðar undir- tektir bæði á Þjóðminjasafni og víðar um að fá muni að láni. Þetta yrði lifandi safn. Að lokum var Valgeir spurður hvernig samgöngum milli húsa yrði háttað. Það er stuttur spölur frá Sólvík að Kaupfélagshúsinu, en yfir fremur hrörlega brú yfir Hofsá að fara. Hún er lokuð bílaumferð. Nú hefur fengist lof- orð um fjármagn til viðgerðar á brúnni hjá Vegagerðinni. Hug- mynd Valgeirs er að hafa hest og kerru í förum milli húsa, eins- konar „leigubíl". Valgeir sagði að það mætti gera upp fleiri hús í gamla kjarn- anum og hefur á því fullan hug. Hann sagðist ekki vita hvort allir væru ánægðir með aukna umferð ferðamanna, en sjálfur telur hann þetta mikla lyftistöng fyrir Hofsós. Valgeir vill ferðaþjón- ustu með þjóðlegum blæ og legg- ur mikið upp úr þjóðlegu hliðinni án allra öfga. Hann sagðist leggja áherslu á þrennt, íslenskan mat, íslenska Súninginn og fánann. Þess má geta að veitingar með kaffinu í Sólvík eru dæmigerðar fyrir íslenskt kaffibrauð, pönnu- kökur og flatbrauð m.a. I sumar hefur það sannað sig að ferða- menn hafa áhuga á þessari stefnu í ferðaþjónustu, bæði erlendir og innlendir. Það er vonandi að bjartir dagar séu framundan á Hofsósi. sþ RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfar- andi: RARIK 92006 6,3 MVA aflspennir. Opnunardagur: Þriöjudagur 6. október 1992 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun- artíma og veröa þau opnuö á sama stað að viö- stöddum þeim bjóöendum sem þess óska. Útboösgögn veröa seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og meö fimmtudegi 27. ágúst 1992 og kosta kr. 1.000 hvert eintak. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS, Laugavegi 118, 105 Reykjavík. Vegna 130 ára afmœlis Akureyrarbœjar, laugar- daginn 29. ágúst, mun Dagurtileinka blaðið þann dag afmœlinu. Þeir sem vilja senda afmœlisbarninu kveðjur á sfðum Dags, vinsam- legast hafið samband sem fyrst. auglýsingadeild, sími 24222. Opið virka daga frá kl. 8-17 nema föstudaga frá kl. 8-16. Ath! Opið í hádeginu. -------------------------— N AKUREYRARB/ÍR FRÁ GRUNNSKÓLUM AKUREYRAR Kennarafundir veröa í öllum grunnskólum bæjar- ins þriöjudaginn 1. september n.k. kl. 10 f.h. Haustþing kennara í Noröurlandsumdæmi eystra veröur dagana 2. og 3. september. Nemendur komi í skólana mánudaginn 7. sept- ember. Didda á Bakka sýnir viðskiptavinum flatkökurnar sínar. Mynd: sþ t.d. fyrir veislur o.fl. og selur gestum og gangandi. Hún segir sveitafólkið kaupa mikið, einnig sumarbústaðafólk. Stundum bak- ar Didda allt að 700 flatkökur á dag og hún bakar 30 kg. af rúg- brauði fyrir togara í hvert skipti. Didda sagðist ekki bragða á bakkelsinu sjálf, hún væri orðin leið á því, nema helst rúgbrauð- inu. Það er ekki hægt að taka mikil frí frá slíkum önnum. Didda vinnur langan vinnudag, frá morgni til kvölds og fer aldrei í langferðir. í sumar hefur hún tekið frí frá bakstri í eina þrjá daga. Fjölskyldan hjálpar oft til við baksturinn, bæði eiginmaður- inn og sonurinn. Sonur Diddu, Sveinn er vanur matargerðinni, því hann hóf nám í matreiðslu og vann um tíma á Hótel Sögu. Þeg- ar blaðamaður kvaddi voru komnir gestir til að kaupa flat- brauð. sþ í Gagnfræðaskóla Akureyrar komi nemendur sem hér segir: 8. bekkur (13 ára nemendur) kl. 09.00. 9. bekkur (14 ára nemendur) kl. 11.00. 10. bekkur (15 ára nemendur) kl. 13.00. í öörum skólum komi nemendur sem hér segir: 8.-10. bekkur (13-15 ára nemendur) kl. 09.00. 5.-7. bekkur (10-12 ára nemendur) kl. 11.00. 2.-4. bekkur (7-9 ára nemendur) kl. 13.00. Skólahverfin verða óbreytt miðað við síðasta skólaár. Haft veröur samband viö heimili þeirra barna sem eiga aö fara í 1. bekk og þau og aðstandendur þeirra boöuö til viðtals í skólunum. Innritun þeirra barna sem flust hafa í bæinn, eöa milli skólasvæöa, í sumar fer fram í skólunum fimmtudaginn 27. ágúst kl. 09.00-12.00. Á sama tíma skal ganga frá innritun eða staðfest- ingu á óskum um gæslu 6-8 ára barna næsta skólaár. Skólastjórarnir.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.