Dagur - 26.08.1992, Page 12
wmm
Akureyri, miðvikudagur 26. ágúst 1992
Aðalfundur Landssambands sauðprbænda:
„Sameinuð getum við byijað
sókn tíl betri tíma“
Kjörorð okkar = Góð þjónusta
Opiö virka daga frí kl. 11.30-22.30 - Um helgar frá kl. 12.00-24.00
Nsturheímsending til kl. 01.00
09 laugardagskvöld
VEITINGAHUSIÐ
Glerárgötu 20 • ® 26690
- segir Arnór Karlsson, formaður í
skýrslu sinni
Framleiðslustjórnun án beinna
greiðslna, framleiðslustjórnun
með beinum greiðslum og
beinar greiðslur án fram-
leiðslustjórnunar eru á meðal
þeirra leiða sem Valdimar Ein-
arsson, ráðunautur hjá Búnað-
arsambandi Vesturlands, fjall-
aði um í erindi um ófram-
leiðslutengda ríkisstyrki til
sauðfjárræktarinnar á aðal-
fundi Landssambands sauð-
íjárbænda. Valdimar sagði að
nú virðist vera talið sjálfsagt að
sá framleiðslustyrkur sem ríkið
greiðir beint til bænda krefjist
framleiðslustjórnunar sem sé í
raun ekki allskostar rétt.
Valdimar benti á að fram-
leiðslustjórnun án beinna
greiðslna hafi verið framkvæmd
frá þvf framleiðslustjórnun í
sauðfjárrækt var tekin upp hér á
landi. Búvörusamningurinn sem
Gengi hlutabréfa:
Hækkun hjá ÚA
en lækkun hjá
Skagstrendingi
Gengi hlutabréfa í Útgerðar-
félagi Akureyringa hækkaði
lítillega í fyrradag þegar seld
voru bréf í félaginu hjá
Landsbréfum fyrir 1,4 milljón-
ir króna. Þessi sala hækkar
jafnframt vísitölu hlutabréfa í
sjávarútvegi í 89,13 stig.
Gengi bréfa í ÚA hækkaði við
þetta úr 3,1 í 3,2 stig. Einnig varð
hækkun á gengi bréfa í Flugleið-
um sama dag úr 1,51 í 1,68 og
gengi bréfa í Granda hækkaði úr
2,50 í 2,55.
Hins vegar Iækkaði gengi í
Olíufélaginu úr 4,60 í 4,50 og í
Skagstrendingi á Skagaströnd úr
3,8 í 3,5.
Landsvísitala hlutabréfa er
nú 101,8 miðað við 100 stig 1. júlí
síðastliðinn. Hækkunin frá þeim
tíma er því 1,8 stig en hafa verð-
ur í huga að á þessum tíma varð
talsverð lækkun en sala í bréfum
hefur verið að glæðast að undan-
förnu. JÓH
VEÐRIÐ
Um 600 km suðsuðaustur af
landinu er 993 millibara lægð
sem þokast austnorðaustur.
Yfir Grænlandi er 1025 milli-
bara hæð. Veður fer heldur
kólnandi - einkum norðan-
lands. Norðaustankaldi verður
í dag og skýjað með köflum til
landsins og sumsstaðar skúrir
ytra. Súld eða rigning verður
austantil á Norðurlandi í kvöld.
Áfram verður vætusamt
norðanlands og hiti aðeins 4-6
stig á Celsíus.
taki gildi nú 1. september byggist
á framleiðslustjórnun með bein-
um greiðslum. Þriðji valkostur-
inn sé síðan sá að að nota beinar
greiðslur án framleiðslustjórnun-
ar og hafi hann ekki hlotið nægj-
anlega umfjöllun. Valdimar sagði
að í reynd gæti skipulagning og
framkvæmd slíks kerfis átt sér
stað með óverulegum breyting-
um á búvörusamningnum.
Valdimar sagði að ef farið yrði
út í það kerfi myndi heildar-
greiðslumark verða óbreytt og
taka mið af sölu á innanlands-
markaði og helming af fram-
leiðslukostnaði. Þannig yrði bein
greiðsla til bænda háð fram-
leiðslu hvers greiðslumarkshafa
upp að neðri mörkum. Hver
framleiðandi fengi þannig sömu
heildarupphæð í beinar greiðslur
er leiddi til hærri greiðslu á hvert
kíló sem framleitt væri upp að
neðri mörkum greiðslumarksins.
Framleiðsla og verðlagning
myndi þannig mótast af markaðs-
ástandi á hverjum tíma. Neðri
mörk væri síðan hægt að lækka
þannig að einungis framleiðend-
ur með lágan framleiðslukostnað
sægju sér hag í að halda óbreyttu
framleiðslumagni. Þannig væri
unnt að draga úr framleiðslu og
beina greiðslan ásamt neðri
mörkum væri mótandi fyrir hag-
kvæmni framleiðsluaukningar og
á þann hátt ráðandi framleiðslu-
stýring í stað þeirra magntak-
markana er nú ráða ferðinni. Í>I
IJnnið er að kostnaðartölum um hvað kosta muni að sprengja botninn í Húsavíkurhöfn sem er ógræfur.
Húsavíkurhöfn:
Ákveðið að sprengja
meðfram norðurgarðmum
„Við erum búnir að ákveða að
fara í að sprengja 25 metra
breiða rennu meðfram norður-
garðinum og svolítið lengra til
suðurs í innsiglinguna næst
garðinum. Meðfram þessari
rennu verður síðan grafíð upp
Iaust efni og það er þegar byrj-
að á því,“ sagði Einar Njálsson,
bæjarstjóri á Húsavík, um fram-.
hald dýpkunarframkvæmda í
Húsavíkurhöfn.
Eins og Dagur hefur greint frá
kom í ljós að botninn reyndist
ógræfur að stórum hluta og ekk-
ert annað til ráða en að sprengja
hann. Þessar upplýsingar komu
mjög á óvart og settu strik í
reikninginn, enda ekki hægt að
nota þau tæki sem átti að nota við
verkið þar sem botninn reyndist
of harður.
í framhaldi af fundum og við-
ræðum, m.a. við starfsmenn
Vita- og hafnamálastofnunar,
voru bæjaryfirvöld á Húsavík
ákveðin í því að halda fyrri mark-
miðum til streitu en það kostar
breytingar á núgildandi verk-
samningi og frekari athuganir.
Stefnt er að því að hefja spreng-
ingar þannig að hægt verði að
nota hafnargarðinn sem verið er
að byggja.
Einar sagði að verktakinn væri
að vinna kostnaðartölur í sam-
bandi við fyrirhugaðar sprenging-
ar og skoða hvaða tæki væri hægt
að nota og hvenær framkvæmdir
gætu hafist. SS
Rifós hf. í Kelduhverfi:
Búið að selja hlutafé fyrir 23 milljónir
- reiknað með að slátra 40-60 tonnum í haust
Nú hafa safnast 23 milljónir
króna í hlutafé í Rifós hf. sem
keypti eignir þrotabús ísno í
Kelduhverfí og tók yfír rekstur
fískeldisstöðvarinnar. Eigend-
ur Rifóss eru mjög ánægðir
með þessi viðbrögð en hluta-
bréf fyrir 2 milljónir króna eru
enn til sölu því heimilt var að
safna 25 milljónum. Það hluta-
fé sem nú hefur safnast er þó
yfír eignum félagsins.
Ólafur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Rifóss hf., sagði að rekstur-
inn hefði gengið ágætlega til
þessa þótt vissulega væri brekkan
nokkuð brött. Stöðin keypti fisk
til að ala upp í sláturstærð og það
kostaði auðvitað sitt að fóðra
hann þangað til. Einnig þyrfti að
borga af fasteignum og lausafé og
þá upphæð væri Rifós gert að
greiða upp á einu ári.
„Við reiknum með að slátra
einhverju í haust, kannski 40-60
tonnum. Það væri best að sleppa
með að slátra ekki meiru því með
því að láta fiskinn vaxa fæst
meira fyrir hann því það er tölu-
verður verðmunur milli stærðar-
flokka. Það er dýrt að vera fátæk-
ur og þurfa að slátra honum of
snemma en því miður er afstaða
sumra lánastofnana til fiskeldis
mjög neikvæð," sagði Ólafur.
Rifós tók um 50 tonn af fiski í
vistun frá Svarthamri á Húsavík
og fylgdi sú kvöð að fóðra hann
og slátra honum. Það hefur nú
verið gert en ekki hefur fengist
greiðsla frá Svarthamri og brekk-
an því meiri en ella, að sögn
Ólafs.
Um 6-10 starfsmenn vinna hjá
Rifósi. Fyrirtækið keypti kvíar
frá Vestmannaeyjum og komu 8
gámar af járni, bryggjum og flot-
um og starfsmenn eru nú að púsla
kvíunum saman, koma þeim út
og færa fisk á milli.
Ólafur sagði að verð á eldis-
fiski væri greinilega á uppleið og
ef þetta væri raunhæft og til
lengri tíma þá væri engin ástæða
til svartsýni í þessari grein. SS
Framkvæmdastjóraskipti hjá Kaldbaki hf. á Grenivík:
Ásgeir Amgrímsson ráðinn til Fisk-
miðlimar Norðurlands hf. á DaJvík
Ásgeir Arngrímsson hefur ver-
ið ráðinn til Fiskmiðlunar
Norðurlands hf. á Dalvík og
mun hefja starf þar strax og
tekist hefur að ráða eftirmann
hans á Grenivík, þó eigi síðar
en upp úr næstu mánaðamót-
um. Ásgeir er framkvæmda-
stjóri frystihússins Kaldbaks hf.
á Grenivík.
Aðspurður hvers vegna hann
skipti nú um starf og færi til Fisk-
miðlunar Norðurlands hf. á Dal-
vík sagði Ásgeir: „Mér bauðst
þetta starf og þegar ég fór að
skoða málið leist mér mjög vel á
það og fannst það mjög spenn-
andi. Ég hef farið gegnum
vinnsluferilinn í fiskvinnslunni og
átti kannski eftir lokapunktinn
sem er sölumennska og markaðs-
setning með sjávarafurðir. Mér
finnst þetta of gott tækifæri til
þess að ég geti sleppt því.“
Ásgeir segir að rekstur Kald-
baks sé frekar erfiður enda sé
minnkandi afli um allt land og
mjög erfitt að ná í fisk til vinnslu
og því sé fyrirsjáanlegt eitthvert
fiskleysi á næstunni á Grenivík
og víðar eins og t.d. á Húsavík,
og því verði einhver hluti starfs-
fólksins að vera heima og það
þyngi reksturinn vissulega þvi
fyrirtækin verði að greiða því
kaup eftir sem áður. Þar á ofan
bætist lækkandi afurðaverð og
ekki sé hægt að búast við sú þró-
un breytist nema efnahagsástand
í viðskiptalöndum okkar fari
batnandi og eins og er séu engin
teikn á lofti um það. GG