Dagur - 15.10.1992, Page 3
Fimmtudagur 15. október 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Einar Njálsson, bæjarstjóri, Hrefna Jónsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Suður-Þingeyinga, Guðrún Karlsdóttir
og Sigurður Gunnarsson, gefendur bókasafnsins og Þórir Friðgeirsson, fyrrverandi forstöðumaður safnsins.
Gjafir til Safnahússins á Húsavík:
Bókasafn Sigurðar Gunnarssonar
- og upphlutur frú Guðrúnar Karlsdóttur
Norður- og Austurland:
Búnaður til að bregðast
við olíumengun á leiðinni
- verður á ijórum höfnum norðan-
og austanlands
Sigurðarstofa í Bókasafni Suð-
ur-Þingeyinga var formlega
opnuð sl. laugardag á áttræðis-
afmæli Sigurðar Gunnarsson-
ar, fyrrverandi skólastjóra, en
þá afhenti hann og kona hans
safninu bókasafn sitt til eignar,
uppsetningar og varðveislu.
Um er að ræða 3665 bækur
sem vega samtals 4,3 tonn, þar af
eru 2381 bók handbundin af
Sigurði sjálfum. Bókunum hefur
verið komið fyrir í sérstakri stofu
á safninu.
Guðrún Karlsdóttir, kona
Sigurðar, afhenti Safnahúsinu til
eignar upphlut sinn, en hann er
prýddur silfurvíravirki smíðuðu af
Kristjáni Benediktssyni gullsmið,
Sauðfjárslátrun hjá Fjalla-
lambi hf. á Kópaskeri lýkur í
Dansleikurínn
á Kópaskerí
- athugasemd
Undirritaðar sóttu sláturhúsball á
Kópaskeri laugardagskvöldið 10.
október sl. Urðum við mjög
undrandi er við rákum svo augun
í umsögn Húsavíkurlögreglu um
umræddan dansleik í Degi
þriðjudaginn 13. október. Þar
segir: „Þetta var ógeðslegt ball“.
Og: „Fór dansleikurinn illa fram
og var róstursamur".
Þetta eru mjög hörð ummæli
og vart við hæfi, þar sem umrædd
lögregla sást aldrei inni á dans-
leiknum.
Við vorum mjög ánægðar með
dansleikinn og höfum sjaldan
skemmt okkur eins vel. Matur,
skemmtiatriði og dansleikur;
hvert öðru betra.
Undirritaðar hafa sótt dans-
leiki víða í sýslunni og verðum að
segja að við höfum oft séð það
svartara.
Sólveig Tryggvadóttir.
Guðbjörg Inga Guömunds-
dóttir.
sem á árum áður starfaði á Húsa-
vík.
Borgarhólsskóli fékk safn
Sigurðar af barna- og unglinga-
bókum, ásamt kennslubókum og
var það formlega afhent í kaffi-
Ráðstefna um ferðaþjónustu
fatlaðra verður haldin nk.
fimmtudag, 15. október, í ráð-
stefnusal Hótels Holiday Inn.
Að ráðstefnunni standa Sam-
band íslenskra sveitarfélaga,
Landssamtökin Þroskahjálp,
dag og hefur þá verið lógað
23.000 dilkum og 2700 af full-
orðnu fé. Þetta er ívið fleira fé
en í fyrra og fleira en gert var
ráð fyrir á áætlun frá því í
ágúst. Slátrun hefur gengið
ágætlega að sögn Garðars
Eggertssonar, framkvæmda-
stjóra.
„Ballið var gott og menn
skemmtu sér skínandi vel. Ég
kannast ekki við nein ógeðsleg-
heit en það voru margir talsvert í
öli. Að vísu voru tveir ekki sáttir
við að fara heim að loknum dans-
leik og þá var kallað í lögreglu.
Það voru einu afskiptin sem lög-
reglan hafði í húsinu," sagði
Garðar og var ekki sammála
lýsingum sem fram hafa komið í
Degi um sláturhúsballið á Kópa-
skeri sl. laugardag. Hann sagði
að maðurinn sem kærði líkams-
árás hefði fengið eitt hnefahögg í
andlitið. Lýsingin af dansleiknum
væri ótrúlega mikið fjarri því sem
fólkið á ballinu hefði upplifað.
„Ég er ekki að mæla bót mikilli
drykkju, en miðað við það að
húsið var yfirfullt var ástandið
ekkert verra en við var að búast,“
sagði Garðar. IM
boði sem Bókasafnið hélt Sigurði
og Guðrúnu til heiðurs. Dagur
mun síðar fjalla nánar um hinar
myndarlegu gjafir er fyrrverandi
skólastjórahjón færðu Þingeying-
um. IM
Öryrkjabandalag íslands og
Blindrafélagið. A ráðstefnunni
verða innlegg frá fulltrúum
stjórnvalda, sveitarfélaga, bíl-
stjóra, notendum þjónustunn-
ar, tæknimönnum og fleirum
er málið varðar.
„Með nýjum lögum um
málefni fatlaðra eru lagðar mikl-
ar og auknar skyldur á sveitarfé-
lögin vegna ferðaþjónustu fatl-
aðra. Því þótti framkvæmdaaðil-
um nú réttur tími til að fólk kæmi
saman til að ræða þessi mál. Auk
þess er 15. október alþjóðlegur
dagur hvíta stafsins. Því viljum
við einnig benda á málefni
blindra sérstaklega; m.a. aðgeng-
ismál," segir Helgi Hróðmars-
son, starfsmaður Landssamtak-
anna Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalags íslands. Dagskrá
ráðstefnu um ferðaþjónustu fatl-
aðra hefst að morgni þess 15.
október með setningu kl. 9,00.
Ráðstefnuna setur Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Fjölmörg erindi verða flutt. Full-
trúar Reykjavíkur, Kópavogs og
Akureyri fjalla um stöðu ferða-
þjónustu og framtíðarstefnu í
sinni heimabyggð. Valgarður
Hilmarsson, stjórnarmaður í
Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga, og Sveinn Allan Mortens,
framkvæmdastjóri Svæðisskrif-
stofu málefni fatlaðra Norður-
landi vestra, fjalla um stöðu
ferðaþjónustu á landsbyggðinni
(í smærri byggðarlögum) og
framtíðarhugmyndir. Skólaakst-
ur, aðgengi hreyfihamlaðra að
strætisvögnum, öryggi ökutækja
fyrir hreyfihamlaða, akstur
hreyfihamlaðra á einkabílum og
fl. fær umfjöllun á ráðstefnunni.
Ráðstefnustjórar verða Ásta B.
Þorsteinsdóttir, formaður Lands-
samtakanna Þroskahjálpar og
Arnþór Helgason, formaður Ör-
yrkjabandalags íslands. ój
Nýlega fóru rúmir 2000 lítrar
af gasolíu í höfnina á Sauðár-
króki, eins og fram kom í
fréttum. Ekki er Iangt síðan
svipaður atburður gerðist á
Akureyri. Enginn búnaður er
til við hafnir á Norðurlandi til
að dreifa eða ná olíu úr sjó, en
Akureyrarhöfn hafði slíkan
búnað í láni frá Siglingamála-
stofnun. Nú stendur til að bæta
úr þessu ástandi, að sögn
Eyjólfs Magnússonar hjá
Mengunarvarnadeild Siglinga-
málastofnunar.
Að sögn Eyjólfs er talsvert um
það að olía fari í sjóinn, ekki síst
þegar verið er að dæla á skipin og
ekki alltaf að þeir á Siglingamála-
stofnun frétti af slíkum atburð-
um. Oft gerast slíkir atburðir
vegna þess að menn fylgjast ekki
nógu vel með dælingunni, eða
annars konar mannleg mistök
eiga sér stað. Á Sauðárkróki fóru
rúmir 2000 lítrar af gasolíu í
höfnina þegar verið var að dæla
úr Stapafelli. Það er auðvitað
alvarlegt mál þegar slíkir atburð-
ir gerast, ekki síst þegar enginn
búnaður er til sem nota má til
varnar. Að sögn Eyjólfs er ann-
ars vegar um dreifibúnað að
ræða, þ.e. sem sprautað er á
olíuna til að dreifa henni og
hraða þannig niðurbroti og hins
vegar flotgirðingar ásamt bún-
aði til að dæla olíunni upp.
Hann taldi að atburðurinn á
Sauðárkróki hefði þó gerst á
heppilegum tíma hvað varðar
lífríki fjörunnar og afleiðingar
fari alltaf nokkuð eftir aðstæð-
um, t.d. veðurskilyrðum.
Nú stendur til að bætt verði úr
Bjórhátið Víking-Brugg verk-
smiðjunnar á Akureyri hófst í
Sjallanum sl. föstudagskvöld
og var þar margt um manninn,
og ríkti þar almenn ánægja
með þessa tilbreytingu. Mjög
margir komu einnig á hátíðina
á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi
sem var mjög góð kynning á
norðlenskri bjórframleiðslu.
Sl. fimmtudag var Viking-
Brugg veitt viðurkenning frá
þessari vöntun á búnaði á Norð-
ur- og Austurlandi. Segist Eyjólf-
ur vera að vinna í málinu og verði
búnaður pantaður á næstu vikum.
Um er að ræða flotgirðingar á
fjórar hafnir, Akureyri, Þórs-
höfn, Sauðárkrók og Siglufjörð
og búnað til dælingar sem geymd-
ur verður á Akureyri til að þjóna
hinum höfnunum. Umhverfis-
málaráðuneytið hefur veitt 15
milljónum til þessa verkefnis, en
þeim 5 milljónum sem eftir
standa verður dreift á allar hafnir
á Norður- og Austurlandi. sþ
Akureyri:
Ekkertinflúensu-
tílfellií
mánuðinum
Skýrsla Heilsugæslustöðvar-
innar á Akureyri yfir smitsjúk-
dóma fyrir septembermánuð
er komin út. Athygli vekur að
ekkert inflúensutilfelli greind-
ist í mánuðinum.
Flestir leituðu til heilsugæslu-
stöðvarinnar vegna kvefs og háls-
bólgu. Á skrá eru 446 og tíu
reyndust með lungnabólgu. Eitt
hundrað og fjórir greindust með
magaveiki, einn með hlaupabólu,
einn með rauða hunda og einn
með hettusótt. Kláðamaurs varð
vart sem fyrr. Fimm þurftu að
leita lækninga við þeim ófögnuði.
ój
Löwenbrau verksmiðjunum í
Munchen í Þýskalandi fyrir
stöðug gæði á framleiðslu bjórs-
ins allt frá þvf að framleiðslan
hófst á þessari tegund hérlendis.
Það var Erich Lindner sem
afhenti viðurkenninguna sem er
starfsmönnum verksmiðjunnar
mikil hvatning því segja má að
viðurkennningar frá Þjóðverjum
til handa útlendingum vegna
bjórgæða liggi ekki á lausu. GG
Fjallalamb hf. á Kópaskeri:
Slátrun lýkur í dag
- „ sláturhúsb allið var gott,“ segir sláturhússtj óri
Ráðstefna um ferðaþjónustu fatlaðra:
Auknar skyldur á sveitarfélögin
Erich Lindner afhendir Magnúsi Þorsteinssyni framkvæmdastjóra Víking-
Brugg gæðaviðurkenninguna. Mynd: Robyn
Víking-Brugg hlaut gæðaviðurkenningu:
Stöðug gæði að mati Löwenbráu-
verksmiðjunnar í Miinchen