Dagur - 15.10.1992, Page 9
8 - DAGUR - Fimmtudagur 15. október 1992
Fimmtudagur 15. október 1992 - DAGUR - 9
Spurning VIKUNNAR
Finnst þér vera komin
_______kreppa?______
Almar Björnsson:
„Já, það finnst mér. Launin eru
minni en við getum ekki talað
um atvinnuleysi meðan vinnur
erlent verkafólk á landinu."
Lovísa B. Kristjánsdóttir:
„Já, er það ekki? Að minnsta
kosti finnst mér ástandið vera
þannig hér á Akureyri, lítið um
byggingar og fólk virðist eiga
erfitt. Samt furða ég mig á
þessum utanlandsferöum en
kannski lítur fólk á þær sem
sparnað en ég held að það sé
hæpið þegar upp er staðið."
Ágúst Þorleifsson:
„Nei, það finnst mér ekki. Þessi
barlómur og vesöld er komin út
í öfgar og það þarf endilega að
fara að fá eitthvað jákvætt. Ég
er hættur að hlusta á fréttir
vegna þess að mér ofbýður. Við
verðum að taka okkur tak og
hugsa jákvætt."
Gísli Ólafsson:
„Nei, mér finnst það ekki.
Ástandið hefur oft verið erfiðara
en það er núna. Að vísu er
þröngt fyrir dyrum margra en
það er ekki beinlínis kreppa."
Jón Þorsteinsson:
„Já, heldur betur. Okkur sjó-
mönnum er verið að boða lækk-
un skiptaprósentu og talað um
gengisfellingu. Þaö á greinilega
ein stétt að halda öllu uppi.“
Frá Borgarrétt í Eyjaijarðarsveit:
Allir á réttri leið í ræktunarstarfinu!
Um langt árabil hafa kynbóta-
og keppnishross úr Eyjafírði
vakið athygli. Því gætti til-
hlökkunar hjá undirrituðum
þegar hann hélt til Borgarrétt-
ar um síðustu helgi. Nær fímm
hundruð hross voru rekin til
réttar þennan laugardagsmorg-
un. Já, hrossaeign bænda úr
Saurbæjarhreppnum gamla er
mikil.
Magni bóndi í Árgerði stendur
vígreifur og styðst við staf þar
sem hann stjórnaði sínum mönn-
um við réttarstörfin. Tryggvi
gamli frá Sandhólum er mættur
sem fyrr. Ungu mennirnir eru
þarna einnig. Ármann í Litla-
Garði á margt hrossa og þau bera
yfirsvip þess ágæta stóðhests
Garðs sem er hestagull. Jónas
sveitarstjóri í Hrísey og bóndi í
Litla-Dal hefur í mörgu að snúast
ásamt Kristínu konu sinni. Haus-
arnir eru margir og í hópnum frá
Litla-Dal má sjá margt hestefnið.
Hestamenn frá Akureyri og
Reykjavík spá mikið í hópinn.
Stórknapi úr Reykjavík muldrar
með sjálfum sér: „Hver veit
nema annar ísak leynist í
hópnum?“ Og menn gjóa einnig
augum hrossin þeirra Adda og
Bínu frá Gerði. Hver kannast
ekki við Náttfara frá Ytra-Dals-
gerði og allan þann ættboga?
Addi og Bína eiga blóðið og allt-
af er þess von að annar höfðingi
sem Náttfari komi frá Ytra-Dals-
gerði. Hrossin frá Ytra-Dalsgerði
hafa allavega ekki svikið mig.
Klúbbur gamli hefur veitt margar
unaðsstundir og ekki verður
Vöttur síðri, sonur Krumma frá
Ytra-Dalsgerði.
Matthías bóndi að Brún við
Akureyri er mættur með sitt fólk.
Brúnarbóndinn rekur hrossastóð
sitt upp frá Hvassafelli. Ræktun-
arstörf Matthíasar hafa borið
ríkulegan ávöxt á síðari árum.
Trúlega eru þeir fáir bændurnir
sem eiga annað eins val stóðhesta
og hryssurnar í Brúnarstóðinu
eru afbragð.
Kristinn Hugason og Hugi
gamli eiga hross á Djúpárdal
hvert sumar. Hrossin eru gjörvu-
leg en um hæfileikana veit ég
ekki. - Já, hverjum finnst sinn
fugl fagur og það má heyra í
Borgarrétt að allir eru á réttri
leið í ræktunarstarfinu.
Texti: Óli G. Jóhannsson
Myndir: Örn Ólason