Dagur - 28.11.1992, Qupperneq 11
Laugardagur 28. nóvember 1992 - DAGUR - 11
Tónlist
Djass með Paul Weeden
Djassgítaristinn Paul Weeden er
Norðlendingum af góðu kunnur
til margra ára. Hann hefur haldið
mörg námskeið í djassleik hér á
landi og var með námskeið á Ak-
ureyri fyrir ekki löngu. Því lauk
með tónleikum í Alþýðuhúsinu,
þar sem hann sjálfur kom fram
með kvartett, sem, vegna veik-
inda, var ekki að fullu skipaður
föstu liði sínu.
Kvartettinn, rétt skipaður, hélt
tónleika í Tjarnarborg á Ólafs-
firði laugardaginn 21. nóvember.
Hljóðfæraleikarar, auk Pauls
Weedens, voru Sigurður Flosa-
son á altsaxafón, Tómas R. Ein-
arsson á kontrabassa og Guð-
mundur R. Einarsson á tromm-
ur. Allt eru þetta þungavigtar-
menn í íslensku djasslífi, svo að
hér var um verulega athyglisverð-
an tónlistaratburð að ræða fyrir
þá, sem hafa áhuga á og gaman af
sveiflu og djassi.
Því miður var bragur umhverf-
isins í Tjarnarborg ekki sá, sem
æskilegur hefði verið. Salurinn
var kaldur og áhorfendur sátu í
stólaröðum. Miklu betur hefði
farið á því að halda þessa tón-
leika í minni og hlýlegri salar-
kynnum, svo sem á hótelinu.
Þrátt fyrir umhverfið, voru
djassistarnir á sviðinu í góðu
formi. Paul Weeden leiddi tón-
leikana sem kynnir. Hann er lip-
ur í því hlutverki ekki síður en á
gítarinn, sem hann lék á af snilld.
Þar var hann greinilega á heima-
velli. Hljómaraðir ultu fram
ásamt með léttum og hárréttum
brotnum hljómum, skölum og
fallegum spuna, sem iðulega var
fallega unninn úr smástefjum,
sem til urðu í hita leiksins.
Sigurður Flosason tók hverja
sólóna annarri glæsilegri jafnt
hvað snerti tæknilega getu og
hugmyndaauðgi í spuna og úr-
vinnslu. Ekki síst kom geta hans
Hjálpræðisherinn á Akureyri:
„Leið tfl lausnar“
heimahús og veita aðstoð fólki,
sem vegna aldurs, sjúkleika eða
fötlunar á erfitt með að fram-
kvæma hluti, sem öðrum veitist
auðvelt að framkvæma.
Aðstoðin getur verið fólgin í
t.d. að tala við fólk, lesa fyrir
sjóndapra, fara í sendiferðir,
inna af hendi smá lagfæringar
o.fl. Fyrst um sinn verður síma-
tími á fimmtudögum kl. 10-12. Á
öðrum tímum tekur símsvari við
skilaboðum. Símanr. þjónust-
unnar „Leið til lausnar" er
11299.“ (Fréttatilkynning)
Styrkur með
jólafund
„Hjálpræðisherinn vill minna á
þjónustutilboð fyrir aldraða og
öryrkja í heimahúsum. Þessi
þjónusta er fólgin í, að aðilar á
vegum Hjálpræðishersins fara í
Nemendatónleikar
Tórnnenntaskólans
Fyrstu nemendatónleikar Tón-
menntaskólans á Akureyri á
þessu starfsári verða haldnir í
Hljómborg að Óseyri 6 á Akur-
eyri á morgun, sunnudaginn 29.
nóvember. Eldri og yngri
nemendur skólans flytja fjöl-
breytta efnisskrá. Nýstofnuð
hljómsveit yngri nemenda skól-
ans mun koma fram í fyrsta
skipti. Einnig mun Hornaflokkur
Tónmenntaskólans leika. Að
tónleikunum loknum verður
haldinn jólamarkaður (basar) til
ágóða fyrir hljóðfærasjóð Tón-
menntaskólans. Á boðstólum
verður fjölbreytt úrval fallegra
muna. (Fréttatilkynning)
Nýjar bækur
í Lóni
Styrkur, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandendur
þeirra, heldur jólafund í Lóni á
morgun, sunnudaginn 29. nóv-
ember, kl. 16. Boðið verður upp
á kaffi, glens og gaman.
Spurninga-
keppnin okkar
Út er komin bókin Spurninga-
keppnin okkar, eftir Guðjón Inga
Eiríksson og Jón Sigurjónsson.
Þetta er framhald bókarinnar
Spurningakeppnin þín, sem kom út
í fyrra.
„f nýju bókinni eru 600 skemmti-
legar og fræðandi spurningar og gát-
ur sem enginn fróðleiksfús keppnis-
maður ætti að láta fram hjá sér fara.
Þær eru samdar þannig að vel hent-
ar að leggja þær fyrir tvö lið eða tvo
einstaklinga sem keppa - því að
jafnan eru tvær í senn um áþekk
efni og álíka léttar eða þungar...“,
segir m.a. í frétt frá útgefanda.
Bókin er 127 blaðsíður að stærð.
Útgefandi er Æskan.
Zombí
Út er komin ljóðabókin Zombí eftir
Sigfús Bjartmarsson. Sigfús hefur
áður meðal annars gefið út ljóða-
bækurnar, Hlýja skuggana og Án
fjaðra, smásagnasafnið Mýrarengl-
arnir falla og þýðingar á verkum
Borgesar.
f frétt frá útgefanda segir m.a.: „í
þessu ljóðasafni stillir Sigfús sér upp
á móti goðsögninni um Zombí, hin-
um vorkunnarverða uppvakningi
sem í gegnum tíðina hefur 'öðlast
ólíkar merkingar í hugum fólks og
gengið í önnur hlutverk en það að
vera einungis skynlaus þræll þess
sem vekur hann upp. Þegar skáld-
skapur Sigfúsar er lesinn er eins og
maður standi með fæturna í hrjúfum
og nöktum jarðvegi, þar sem hvorki
er að finna íslenskan fjalldrapa eða
erlendan grátvið og yfir manni vaki
heiður og óendanlegur himinn."
í heimavist
Bókaútgáfan Æskan hefur sent frá
sér bókina / heimavist. Bókin er
sjálfstætt framhald af bókini, Dýrið
gengur laust, eftir barna- og ungl-
ingabókahöfundinn Hrafnhildi Val-
garðsdóttur.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Þetta er hröð og spennandi ungl-
ingasaga um 15 ára krakka sem fara
í heimavistarskóla - og lífið breytir
um svip. Vinirnir Gústi, Þröstur og
Jónas hafa allir alist upp í litlu sjáv-
arþorpi og það er því alveg ný
reynsla fyrir þá að vera í fjölmennum
skóla þar sem félagslífið er fjörugt.
Það gengur á ýmsu og þeir kynnast
lífinu í sinni grimmustu mynd en
einnig ástinni sem aldrei er langt
undan. Þessi vetur í heimavistar-
skólanum verður afdrifaríkur fyrir
þá vinina - hvern á sinn hátt.“
/ heimavist er fimmta unglinga-
bók Hrafnhildar en einnig hafa
komið út eftir hana tvær barnabæk-
ur og eitt smásagnasafn.
skemmtilega í Ijós í laginu Soph-
isticated Lady, sem hljómsveitin
var beðin um að leika, en hafði
ekki á eiginlegu prógrammi sínu.
Sigurður tók þar sóló beint af
augum og gerði vel.
Tómas R. Einarsson sýndi, að
hann er vissulega í fremstu röð
eða fremstur íslenskra djass-
kontrabassaleikara. Bassalína
hans var fjölbreytt og lifandi og
sóló hans fallega útfærð og meló-
dísk. Á fáeinum stöðum var tón-
tak ekki alveg rétt í hita leiksins,
^einkum í intrói og sólóum í lag-
'inu Don’t Get Around Much
Any More, en í sama lagi nýtti
Tómas hins vegar rennsli afar
skemmtilega.
Guðmundur R. Einarsson sló
skinnin af færni og natni jafnt í
undirleik sem vel útfærðum sóló-
um. Hann beitti trommunum á
fjölbreyttan og líflegan hátt
þannig að leikur hans var ekki
bara taktur, heldur beinlínis
samofinn þáttur í leik annarra
hljómsveitarmeðlima og jók
áherslur þeirra og flutning. Þann-
ig á djasstrommuleikur að vera.
Reyndar kom fyrir af og til, að
ásláttur varð heldur sterkur, en
það var ekki oft.
Tónleikar Kvartetts Pauls
Weedens voru í tengslum við
stofnfund Listvinafélags við utan-
verðan Eyjafjörð, en hann var
haldinn í Tjarnarborg þennan
sama dag. Markmið félagsins er
að reyna að tryggja aðsókn á
listaviðburði, en ekki enn sem
komið er að standa fyrir þeim.
Þetta er merkilegt framtak og
verður forvitnilegt að fylgjast
með framgangi þess.
Haukur Ágústsson.
Frostrásin FM 98,7
Útvarp á Norðurlandi með aðsetur á Akureyri.
Erum komnir í loftið!
Frostrásin FM 98
Sími 27687 ★ Útvarp með
,7 ||T
s sái #£
Fyrir aðventuna
Tilbúnar aðventuskreytingar
Aðventuskreytíngaefiil:
Greni, kúlur, könglar, hringir, skálar o.fl.
Jólastjömur í lírvali
ySlóntöíxóin^S
AKUR
KAUPANGIV/ MYRARVEG 602 AKUREYRI
SÍMAR 24800 & 24830 PÓSTHÓLF 498
:
Hvar
er
konfekt-
meistarinn?
Linda hf. og dagblaðið Dagur
hafa ákveðið að efna til samkeppni
um besta, heimagerða konfektið
Keppnin hefur hlotið nafnið Konfektmeistarinn
og leitin að þeim ágæta meistara er hafin!
Öllum er heimil þátttaka (samkeppninni, eina
skilyrðið er að konfektið sé heimatilbúið og að
„framleiðendur" hafi uppskriftina og aðferða-
fræðina til reiðu, ef eftir því er óskað.
►Þátttakendur þurfa að skila inn 15 konfekt-
molum fyrir 14. desember nk. en þá rennur
skilafrestur út. Senda á konfektið til Dags,
Strandgötu 31, 600 Akureyri, merkt
„Konfektmeistarinn".
^•Framleiðslan skal merkt dulnefni en með fylgi
rétt nafn, heimilsfang og slmanúmer höfundar í
lokuðu umslagi, auðkenndu dulnefninu.
^•Höfundar 10 bestu konfektgerðanna, að mati
dómnefndar, fá hver um sig að launum kassa
með úrvali af framleiðsluvörum Lindu hf. Hver
kassi er að verðmæti rúmlega 10 þúsund
krónur.
^•Höfundur þess konfekts, sem dómnefnd telur
best, hlýtur enn vænni skerf af góðgæti frá
Lindu hf., ársáskrift að Degi og ýmsan annan
glaðning.
^•Forráðamenn Lindu hf. munu hugsanlega
kaupa uppskrift/ir og framleiðslurétt að konfekti
sem sent verður inn I keppnina.
^•Úrslit samkeppninnar verða kunngerð eigi slðar
en þriðjudaginn 22. desember nk.
m$m Linda