Dagur - 28.11.1992, Page 24
Akureyri, laugardagur 28. nóvember 1992
Þing Alþýðusambandsins:
„Mótmælir ómerkilegum
dylgjum forsætisráðherra<
Þingi Alþýðusambands íslands
lauk á Akureyri í gærdag með
umfjöllun um kjara-, atvinnu-
og efnahagsmál. í gærmorgun
brugðust þingfulltrúar skjótt
við og ályktuðu strax um þær
fullyrðingar forsvarsmanna
ríkisstjórnarinnar að þær til-
lögur sem verkalýðshreyfingin
hafi sett fram um efnahags-
aðgerðir hafí falið í sér meiri
álögur á láglaunafólk en raun
verði með aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar.
Pétur Sigurðsson, forseti
Alþýðusambands Vestfjarða, bar
fram ályktunina við upphaf þing-
fundar í gærmorgun og var hún
samþykkt með lófaklappi. Hún
er svohljóðandi.
„37. þing A.S.Í. mótmælir
harðlega þeim ómerkilegu dylgj-
um forsætisráðherra, Davíðs
Oddssonar, og fullyrðingum um
að í tillögum Alþýðusambandsins
hefðu falist meiri álögur á launa-
fólk en fram kemur í hinum ill-
ræmdu ráðstöfunum stjórnvalda
Óheyrilega hátt verð á rjúpu:
„Fólk hefiir ekki
efini á að snæða
ijúpur á jólum“
- segir Hrafn Hrafnsson
„Við leggjum enga áherslu á
að hafa rjúpur til sölu í kjöt-
borðinu fyrir þessi jól. Ég hef
heyrt af veiðimönnum sem
vilja fá 800 krónur fyrir fuglinn
og slíkt gengur ekki. Á þeim
krepputímum sem við lifum
hefur fólk ekki efni á að veita
sér þann munað að snæða
rjúpur á aðfangadagskvö!d,“
segir Hrafn Hrafnsson, kaup-
maður í Matvörumarkaðinum
á Akureyri.
Hrafn segir að verslunin hafi
náð að kaupa nokkra fugla á 500
krónur stykkið og það verð sé
algjört hámarksverð til veiði-
mannsins. „Þeir sem vilja fá
hærra verð geta sparað sér sporin
til mín“.
í Hagkaupi á Akureyri var
svipuð svör að fá og í Matvöru-
markaðinum. Þórhalla Þórhalls-
dóttir, verslunarstjóri, sagði að
engar rjúpur væru til sölu í versl-
uninni og engin áhersla yrði lögð
á að svo verði fyrir jólin. „Fólk
kaupir ekki rjúpur á því verði
sem nú er í boði og velur því
annað,“ sagði verslunarstjórinn.
„Þeim fækkar með hverju ári
íslendingunum, sem hafa rjúpur
á jólum. Verðið er orðið óheyri-
lega hátt. Við hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga höfum þó náð að gera
nokkuð hagkvæm innkaup að
undanförnu. Þannig er útsölu-
verðið hjá okkur 750 krónur, sem
er 50 krónum lægra, en það verð
sem veiðimenn bjóða almennt.
Verkaður kostar hver fugl 850
krónur hér í Kjörbúðinni að
Hrísalundi," sagði Guðjón
Ármannsson, útibússtjóri. ój
Árskógsströnd:
Rækjuverksiniðjmmi
Árveri lokað 1. des.
Rækjuvinnslu lýkur hjá rækju-
verksmiðjunni Árveri hf. á
Árskógsströnd á mánudags-
kvöld, en þá rennur-út leigu-
samningur Söltunarfélags Dal-
víkur á verksmiðjunni. Að
sögn skiptastjóra, Árnars Sig-
fússonar, hefur leigataki ekki
sýnt áhuga á framlengingu
samnings og því verður málið
O HELGARVEÐRIÐ
Bjart verður um allt Norður-
land í dag, mest verður frostið
til dála 8 stig. Á morgun verður
hvöss sunnanátt með hlýind-
um um allt land.
tekið fyrir hjá sýslumanni 4.
desember nk. og þar verður
ákveðin dagsetning á sölu, sem
líklega verður skömmu fyrir
jól eða fljótlega á nýju árí.
Endanleg sala verður þá vænt-
anlega í lok janúarmánaðar og
eru allar líkur á að einhver af
stærstu veðhöfunum leysi þrota-
búið til sín, en stærstu kröfu-
hafarnir eru Landsbankinn og
Byggðastofnun. Einnig á Fisk-
veiðasjóður m.a. veð í 1. veðrétti
og þess vegna eru litlar líkur á að
hann reyni að leysa fyrirtækið til
sín.
Flestir starfsmenn verksmiðj-
unnar eru heimamenn og við lok-
un verksmiðjunnar mun um 5%
af vinnufæru fólki í Árskógs-
hreppi verða atvinnulaust. GG
sem nú liggja fyrir.
Hér er um hin mestu öfugmæli
að ræða. Tillögur Alþýðusam-
bands íslands hefðu skilað lág-
Iaunafólki bættum kaupmætti en
ráðstafanir ríkisstjórnarinnar
rýra kaupmátt allra og rjúfa þá
sátt sem hingað til hefur ríkt í
þjóðfélaginu.
Ríkisstjórnin ein ber alla
ábyrgð á afleiðingum þessara
afglapa sinna.“
Ásmundur Stefánsson, fyrrver-
andi forseti ASÍ, sagði verulegan
mun á þeirri niðurstöðu sem
ríkisstjórnin hafi komist að og
þeim hugmyndum sem verkalýðs-
hreyfingin hafi lagt fram. „Mun-
urinn á aðgerðinni er fyrst og
fremst sá að það er fellt gengi.
Sex prósenta gengisfelling er í
grófum dráttum 5-6 milljarða
álögur á almenning. Það er sorg-
legt ef ráðherrar skilja ekki sjálfir
hvað er verið að gera með þeim
aðgerðum sem þeir grípa til,“
sagði Ásmundur. JÓH
Glaðbeittar Lissýar-konur með nýju plötuna
Mynd: Robyn
Kvennakór á plötu
Kvennakórinn Lissý í Suður
Þingeyjarsýslu gefur út fyrir
jólin geisladisk og plötu með
lögum sem kórinn syngur. í
kórnum eru um 60 konur úr
sveitunum frá Eyjafírði aust-
ur í Mývatnssveit. Stjórnandi
er Margrét Bóasdóttir.
„Geisladiskurinn og platan
ber yfirskriftina „Láttu rætast
draum“. Lögin eru íslensk og
erlend. Erlendu lögin eru nán-
ast öll með íslenskum texta.
Fólk ætti að þekkja flest lag-
anna, en þó bregður fyrir lögum
eftir yngri höfunda. Kvenna-
kórinn Lissý hefur um langt
skeið verið undir stjórn Mar-
grétar Bóasdóttur. Áður var
Hólmfríður Benediktsdóttir
stjórnandi. Nú hefur Margrét
látið af kórstjórn þar sem hún
er flutt suður í Skálholt. Á þess-
um tímamótum þótti okkur vel
til fundið að fara í útgáfu-
starfsemi. Upptöku annaðist
Sigurður Rúnar fyrir hönd
Stemmu hf. Upptakan fór fram
að Breiðumýri. Myndverk á
umslagi er eftir Hólmfríði
Bjartmarsdóttur frá Sandi í
Aðaldal,“ segir Gunnfríður
Hreiðarsdóttir, ein kórfélaga.
ój
WWWWV HVAÐ ÆTLAR
ÁFENGISVARNARÁÐ
^BLINADARBANKI (SLANDS
LANDSSAMBANDIÐ
GEGN
ÁFENGISBÖLINU
RAUÐI KROSSINN
UMDÆMISSTÚKA
SUÐURLANDS NR. 1
VINABÆR
ÞINGSTÚKA
REYKJAVlKUR
AÐ GERA?
- Veist þú að með tilkomu bjórsins jókst heildarneysla
13-19 ára stúlkna á áfengum drykkjum um 6%?
- Veist þú að með tilkomu bjórsins jókst heildarneysla
13 -19 ára drengja á áfengum drykkjum um 63%?
- Veist þú að með tilkomu bjórsins hefur upphafsaldur
áfengisneyslu lækkað með ógnvænlegum hraða?
- Veist þú að þriðja hver fjölskylda á um sárt að binda
af völdum áfengisneyslu einhvers eða einhverra í
fjölskyldunni?
- Er ekki tímabært að staldra við á Bindindisdegi
fjölskyldunnar og spyrja sig: Hvaða framtíð kýs ég
börnum mínum? Hver er framtíð fjölskyldunnar?
Árleg söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar hefst á
Bindindisdegi fjölskyldunnar.
Hvernig væri að halda upp á daginn með því að
gefa andvirði einnar bjórkippu í söfnunina?
Bindindisdagur fjölskyldunnar - ekki bara í dag!
I. O. G. T.
STÓRSTÚKA ÍSLANDS
<StT
HJALPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR
UNGMENNAFÉLAG
ÍSLANDS
11