Dagur - 11.12.1992, Blaðsíða 3
Föstudagur 11. desember 1992 - DAGUR - 3
Fréttir________________________________________
Þorvaldur Gylfason á fundi á Akureyri:
Erlendar skuldir verða um 200%
af þjóðarframleiðslu árið 2040
- olía á fiskiskipaflotann kostar eins og rekstur Háskóla íslands
Ef um sömu þróun verður að
ræða í efnahagsmálum íslend-
inga næstu áratugina og verið
hefur að undanförnu munu
skuldir þjóðarbúsins verða
200% af þjóðarframleiðslu árið
2040 og vextir og afborganir
erlendra lána um 100% af út-
flutningverðmætum á sama
tíma. Þetta kom fram í erindi
Þorvaldar Gylfasonar, próf-
essors á hádegisfundi Félags
viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga á Akureyri. Þorvald-
ur rakti meðal annars þróun
erlendra skulda Islendinga síð-
ustu tvo áratugina og að hlut-
fall þeirra af þjóðarframleiðslu
hefði aukist úr 25% á árinu
1970 í 51% árið 1990. Á yfir-
standandi ári sé gert ráð fyrir
að þetta hlutfall verði um
53%. Á sama tíma hefur hlut-
fall vaxta og afborgana
erlendra lána vaxið úr 11% í
25% og gert er ráð fyrir að
vaxta- og afborganagreiðslur
verði allt að 30% af útflutn-
ingsveðmætum á næsta ári.
Þorvaldur nefndi dæmi um ríki
Suður-Ameríku þar sem hlutfall
erlendra skulda af þjóðarfram-
leiðslu væri mjög hátt; hefði auk-
ist úr48% í 120% af þjóðarfram-
leiðslu í Argentínu á síðasta ára-
tug, úr 45% í 143% í Brasilíu frá
1980 til 1985 en hefði nú lækkað í
70% vegna efnahagsaðgerða. í
Perú hefði aukningin orðið úr
45% í 89% þjóðarframleiðslu á
fyrri hluta áratugarins en fari nú
lækkandi.
Þorvaldur greindi frá fjórum
þáttum í íslensku efnahagslífi er
nýta megi til að snúa frá þeirri
þróun er nú eigi sér stað. í fyrsta
lagi ræddi hann um Evrópska
efnahagsvæðið þar sem ávinning-
ar myndu nást með því að opna
landamæri ríkja Evrópu fyrir
gagnkvæmum viðskiptum. í öðru
lagi ræddi hann um sjávarútveg-
inn og sagði að fiskiskipaflotinn
væri að minnsta kosti um 40% of
stór. Hann sagði að olíukostnað-
ur þessa flota væri viðlíka og all-
ur rekstur Háskóla íslands.
Kvótakerfið í sjávarútvegi nái
ekki að stýra því að hæfilegur
fjöldi skipa sé notaður til að
veiða það magn sem óhætt sé tal-
ið að taka. Með fækkun veiði-
skipa sparaðist kostnaður er stað-
ið geti undir veiðileyfagjaldi og
myndi skila ríkissjóði umtals-
verðum tekjum. Hann nefndi
sem dæmi að slíkt gæti samsvarað
öllum tekjuskatti einstaklinga og
fyrirtækja. í þriðja lagi nefndi
Þorvaldur að landbúnaðurinn
skili aðeins 3% af þjóðarfram-
leiðslu en á sama tíma sé um 5%
hennar varið til styrktar honum.
Hann sagði að öll þjóðin nyti
landbúnaðarins og hann væri
styrktur í flestum löndum. Því
ætti að styrkja hann áfram en
ekki umfram það sem hann afli
þjóðarbúinu í tekjur á hverjum
tíma. í fjórða lagi ræddi Þorvald-
Næstkomandi mánudag renn-
ur út skilafrestur í samkeppni,
sem Linda hf. og Dagur gang-
ast fyrir, um besta, heima-
gerða konfektið.
Öllum er heimil þátttaka í
samkeppninni, sem hlotið hefur
nafnið „Konfektmeistarinn“.
Þátttakendur þurfa að skila inn
15 heimagerðum konfektmolum,
sem síðan verða bragðprófaðir af
5 manna dómnefnd. Dómnefndin
mun taka sér viku til að ljúka
störfum en úrslit verða kunngerð
eigi síðar en þriðjudaginn 22.
desember nk.
Til mikils er að vinna því
ur um verkalýðshreyfinguna og
kvað brýnt að taka skipulag henn-
ar til endurskoðunar og draga úr
miðstýringu innan verkalýðs-
félaga. Hann sagði að koma ætti
á sérsamningum við starfsfólk á
hverjum vinnustað líkt og við-
gengist í Japan og í Sviss. Slíkt
gæti að sjálfsögðu aukið
launamun eitthvað en gæfi mögu-
leika á að greiða góðum starfs-
mönnum hærri laun. í þeirri
stöðu sem nú ríki sé nauðsynlegt
að auka framleiðslu og verðmæti
útflutnings án þess að aukinn inn-
flutningur komi þar á móti. Nán-
ar verður fjallað um erindi Þor-
valdar Gylfasonar í blaðinu á
næstunni. ÞI
höfundar 10 bestu konfektgerð-
anna, að mati dómnefndar, fá
hver um sig að launum kassa með
úrvali af framleiðsluvörum Lindu
hf. Hver kassi er að verðmæti
rúmlega 10 þúsund krónur. Þá
mun höfundur þess konfekts,
sem dómnefnd telur best, hljóta
enn vænni skerf af góðgæti frá
Lindu hf., ársáskrift af Degi og
ýmsan annan glaðning. Loks má
geta þess að forráðamenn Lindu
hf. munu hugsanlega vilja kaupa
uppskrift, eina eða fleiri, og
framleiðslurétt að konfekti sem
sent verður inn í keppnina.
Ástæða er til að hvetja þá, sem
hafa áhuga á að vera með í
keppninni en hafa ekki enn sent
inn „framleiðslu" sína, að láta
hendur standa fram úr ermum
um helgina og koma afurðinni til
skila á mánudag. Senda á kon-
fektið til Dags, Strandgötu 31,
600 Akureyri, merkt „Konfekt-
meistarinn“. Framleiðslan skal
merkt dulnefni en með fylgi rétt
nafn, heimilsfang og símanúmer
höfundar í lokuðu umslagi, auð-
kenndu dulnefninu. BB.
Dagur og Linda hf.:
Leitinni að Konfekt-
meistaranum að ljúka
- skilafrestur rennur út á mánudaginn
skyr með rjoma
ijómapönnukökur
kaffi með ijóma
ijómasósur
ávextir með ijóma
ijómatertur
vöfflur með xjóma
xjómaís
kakó með xjóma
ijómakökur
bláber með xjóma
xjóma.....
uhmm!
• *
qominn
gerir
gæða-
muninn
- líka á jólunum
Mjólkursamlag KEA
Bílasala • Bílaskipti
Subaru Legacy Sedan irg. 90 Eldnn 45.000.
Vcrð 1.170.000 stgr.
MMC Pajero árg. 84.
Ekinn 100.000. Verð 850.000 stgr.
Suzuld Fox upph. irg. 88.
Ekinn 62.000. Verð 680.000 stgr.
Subaru Sedan 4x4 1800 DL árg. 88.
Ekinn 35.000. Verð 700.000 stgr.
Isuzu sendill disel árg. 86.
Ekinn 95.000. VSK-blll. Verð 550.000 stgr.
MMC Galant 1600 árg. 87.
Ekinn 65.000. Verð 530.000 stgr.
Nú cr
vélsleða-
tíminn
Nissan Prairie 4x4 árg.88.
Eldnn 100.000. Verð 800.000 stgr.
Vélsleðar á staðnum:
PolaHs 650 irg. 91. Verð 550.000 stgr.
Polaris 650 árg. 90. Verð 500.000 stgr.
Polaris 440 GT kmg irg. 91. Verð 400.000 stgr.
Polaris 500 EFI irg. 91 Verð 550.000 stgr.
Polaris Indy Trall irg. 88. Verð 300.000 stgr.
Polaris Sprint árg. 87. Verð 200.000 stgr.
Yamaha Phaser irg. 89. Verð 420.000 stgr.
Artie Cat Wild Cat 700 irg. 91. Verð 550.000
BÍIASAtfflW
Möldur hf.
BÍLASALA
við Hvannavelli
Símar 24119 og 24170