Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 21

Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 21
Skattframtöl einstaklinga og fyrirtækja. Alhliða bókhaldsþjónusta, launa- vinnsla, vsk. uppgjör, ársuppgjör, tölvuþjónusta, aðstoð við bókhald og tölvuvinnslu, hugbúnaðargerö. Rolf Hannén, Norðurbyggð 15, sími 27721. Bókhald - Skattframtöl. VSK-uppgjör - Launavinnsla. Rekstrar- og tölvuráðgjöf. Jónas Reynir Helgason, iðnrekstrarfræðingur. Símar 26313 og 41175. Skattframtöl. Skattframtöl einstaklinga og fyrir- tækja. Almenn bókhaldsþjónusta. Kjarni hf., Tryggvabraut 1, Akureyri. Sími 27297. BORGARBÍÓ Salur A Laugardagur Kl. 9.00 Unlawful Entry Kl. 11.00 A League of their own Sunnudagur Kl. 3.00 Tommi og Jenni (ísl. tal) Kl. 9.00 Unlawful Entry Kl. 11.00 A League of their own Mánudagur Kl. 9.00 Unlawful Entry Þriðjudagur Kl. 9.00 Unlawful Entry Salur B Laugardagur Kl. 9.00 Boomerang Kl. 11.00 Stay tuned Sunnudagur Kl. 3.00 Nemo litli (ísl. tal) Kl. 9.00 Boomerang Kl. 11.00 Stay tuned Mánudagur Kl. 9.00 Boomerang Þriðjudagur Kl. 9.00 Boomerang BORGARBÍÓ ® 23500 Leikfélae Akureyrar Útlendingurinn gamanleikur eftir Larry Shue Næstu sýningar: Lau. 6. feb. kl. 20.30. Su. 7. feb. kl. 17.00. Fö. 12. feb. kl. 20.30. Lau. 13. feb. kl. 20.30. Miðasala er í Samkomuhúsinu, Hafnarstræti 57, alla virka daga nema mánudaga kl. 14 til 18 og sýningardaga fram að sýningu. Símsvari fyrir miðapantanir allan sólarhringinn. Greiðslukortaþjónusta. Sími í miðasölu: (96) 24073. I.O.O.F. 15 = 174 298'/2 = FL. □ RÚN 5993287 = 9 Fundarboð. Fimmti félagsfundur Jun- ior Chamber Akureyri verður haldinn mánu- dagskvöldið 8. febrúar 1993 nk. kl. 20.00 stundvíslega, í félagsheimili JC Akureyrar að Eiðs- vallagötu 6 n.h. Kynningarfundur á starfi JC Akur- eyrar og JC-hreyfingarinnar verður á sama stað fimmtudagskvöldið 11. febrúar nk. kl. 20.30. Báðir þessir fundir eru opnir öllum sem áhuga hafa á að kynna sér starf- semi JC-hreyfingarinnar. Junior Chamber Akureyri. Laufássprestakall. íjV\ Fyrirbænastund í Greni- );j víkurkirkju sunnudags- V kvöldið 7. febrúar kl. 21.00. Sóknarprestur. Akureyrarprestakall: Sunnudagaskóli Akur- eyrarkirkju verður nk. sunnudag 7. febrúar kl. 11. Foreldrum er bent á að kynna ferðir kirkjubílanna .fyrir börnunum. Aksturinn er þeim að kostnaðarlausu. Leið 1 fer frá Minjasafnskirkjunni kl. 10.30 og ekur um Aðalstræti, Drottningarbraut, Strandgötu og Norðurgötu að Oddeyrarskóla og fer síðan Tryggvabraut, Þórunnar- stræti og Þingvallastræti að kirkj- unm. Leið 2 fer frá Kaupangi kl. 10.30, fyrst að Lundarskóla og þaðan um Þingvallastræti, Skógarlund, Mýrar- veg, Hrafnagilsstræti og Eyrar- landsveg að kirkjunni. Öll börn eru velkomin ásamt fylgd- arfólki. Messað verður í Akureyrarkirkju nk. sunnudag 7. febr. kl. 14. Kvennakór Akureyrarkirkju syngur einn í fyrsta sinn í athöfninni og leiðir almennan safnaðarsöng. Stjórnandi og organisti: Björn Steinar Sólbergsson. Kvenfélags- konur fjölmenna. Altarisganga. Sálmar: 2, 120, 47, 237 og 543. Þ.H. „Kirkjukaffí“ á vegum Kvenfélags Akureyrarkirkju verður í Safnaðar- heimilinu (stóra sal) eftir messu. Bræðrafélagsfundur verður í Safn- aðarheimilinu (litla sal) eftir messu. Meðal fundarefnis verður miðstöð fyrir atvinnulausa, sem opnuð hefur verið á miðvikudögum. Nýir félagar alltaf velkomnir. Æskulýðsfélagið heldur fund f kap- ellunni nk. sunnudag kl. 5 e.h. Allir æskulýðsfélagar hvattir til þátttöku. Rætt um ferð á æskulýðsmót síðar í mánuðinum. Mætið vel og stundvís- lega. Biblíulestur verður í Safnaðarheim- ilinu nk. mánudagskvöld kl. 8.30. Akureyrarkirkja. Glerárkirkja. Laugardagur: Biblíulestur og bæna- stund verður í kirkjunni kl. 13.00. Sunnudagur: Barnasamkoma kl. 11.00. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum. Guðsþjónusta kl. 14.00. Vöfflukaffi kvenfélagsins verður að athöfn lok- inni. Æskulýðsfundur verður kl. 17.30. Sóknarprestur. Konur í Kvenfélagi Akureyrar- kirkju. Fjölmennum í kirkjuna sunnudaginn 7. febrúar. Stjórnin. Laugardagur 6. febrúar 1993 - DAGUR - 21 Manns gaman á þorra „Þó að drungalegt sé yfir norðurbyggð- um í skammdegi vetrarins, þegar stór- hríðar geisa dægrum saman og allt er hulið fönn og gaddi, þá er þó aldrei svo, að ekki brenni eldur á arni hús- freyjunnar og reykinn leggi upp um strompinn á þekjunni. Þegar hríðinni slotar, sjást undrafljótt spor í snjónum, slóðir mílli bæjanna, troðnar af mönnum, sem leita hver annars, því að hvort sem þeir unnast eða hatast getur enginn án annarra verið.“ Svo segir Davíð Stefánsson í upphafskafla Sólon Islandus og trúlega hafa þessar setningar rifjast upp fyrir mörgum síð- ustu vikurnar þegar þeir hafa klofað skaflana í nýju kuldagöllunum, sem - guði sé lof — eru komnir í tísku. Þó bylting hafi orðið í samgöngumál- um á þeim áratugum sem liðnir eru síðan Sölvi Helgason flakkaði milli bæja er þó ekki af það sem áður, að maður sé manns gaman. Mér hefur verið ofarlega í huga undanfarna daga hve fólk í hinum dreifðari byggðum leggur mikið á sig til að koma saman og starfa að félags- og menningarmálum. Það er unnið að uppsetningu á leikverki, svo til í hverri sveit, og mikið í lagt víða. Þorrablót er haldið í hverri sveit, þó samkomuhús séu jafnvel það lítil að fólk þurfi að sitja í röðum klofvega á bekkjum meðfram borðunum og mata sig með annarri hendi til að nýta húsrýmið sem best. Það er víða mikið á síg lagt við undir- búning þorrablótanna, annálar samdir og fleira efni, jafnt í bundnu máli sem óbundnu. Og fólkið mætir á æfingar og fundi, jafnt á skíðum og traktorum og vill trauðla láta veöur og vinda hefta sína för. Það er gaman að koma út í hinar dreifðari byggðir, ekki sist á veturna. Það er eins og fólkið þar hafi alltaf tíma til að fagna gesti og spjalla við hann. Réttara sagt að fólk gefi sér tíma til. Ég á ekki við að fólkið hafi almennt minna að starfa en fólk í þéttbýli nema að síð- ur sé, heldur að það kunni að meta nauðsyn mannlegra samskipta og leggi þyngri áherslu á þau en vídeó- og sjónvarpsgláp. Og sögurnar sem fólkið kann að segja, þær eru því yndislegri sem lengra dregur frá þéttbýlinu. Eða hafið þið heyrt um gamla bóndann sem þurfti að slátra hrútnum í spilinu? Karl skaut hrútinn kvölds og morgna í nokkra daga, stöðugt með stærri byss- um og öflugri skotfærum. Alltaf stóð hrúturinn, þar til í Ijós kom að hann var löngu dauður, en spilið var svo þröngt að hann gat ekki dottið. HVÍTASUWIUHIRKJAtl wskmdshUd Laugardagur 6. febrúar kl. 14.00 aðalfundur Hvítasunnukirkjunnar. Sama dag kl. 21.00 samkoma fyrir ungt fólk. Sunnudagur 7. febrúar kl. 11 barna- kirkjan, allir krakkar velkomnir. Samadagkl. 15.30 vitnisburðarsam- koma, stjórnandi Rúnar Guðnason. Samskot tekin til kirkjubyggingar. Barnapössun meðan á samkomu stendur. Allir eru hjartanlega vel- komnir. ^uiurraimMiKiiane- ____i—1 , | a— laei Akureyrar. ■ 1 / íris Hall miðill starfar hjá félaginu dagana 18.-26. ™ febrúar. Tímapantanir á einkafundi fara fram laugardaginn 13. febrúar frá kl. 14-16.30 í símum 12147 og 27677. Stjórnin. Minningarspjöld Minningarsjóðs Kvenfélagsins Hlífar fást í Bókabúð Jónasar, Möppudýrinu Sunnuhlíð, Blómabúðinni Akri og símaafgreiðslu F.S.A. KFUM og KFUK, ISunnuhlíð. Sunnudaginn 7. febrúar: Almenn samkoma kl. 20.30. Ræðumaðursr. Hulda Hrönn Helgadóttir. Tekið á móti gjöfum í hússjóð. Allir velkomnir. SJÓNARHÆÐ HAFNARSTRÆTI 63 Laugardagur 6. feb.: Laugardags- fundur á Sjónarhæð kl. 13.30. (Fyrir 6-12 ára.) Unglingafundur á Sjónarhæð kl. 20. Allir unglingar velkomnir. Sunnudagur 7. feb.: Sunnudagur 7. feb.: Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl. 13.30. Samkoma á Sjónarhæð kl. 17. Kaffi og meðlæti á eftir. Allir eru hjartan- lega velkomnir. Hjálpræðisherinn. ^Sunnud. 7. feb. kl. 11: lelgunarsamkoma. Kl. 13.30: unnudagaskóli. Kl. 19.30: Bæn. 11. 20.00: Almenn samkoma. lánud. 8. feb. kl. 16: Heimilasam- and. liðvikud. 10. feb. kl. 17: Fundur yrir 7-9 ára. ininitud. 11. feb. kl. 20: Biblía og iæn. Allir hjartanlega velkomnir. Minningarspjöld Minningarsjóðs Jakobs Jakobssonar fást í Bókabúð Jónasar og í Bókvali. Minningarspjöld Slysavarnafélags íslands fást á eftirtöldum stöðum: Bókabúð Jónasar, Bókvali, Blóma- búðinni Akri og Happdrætti DAS Strandgötu 17. Styrkið Slysavarnafélagið í starfi. Minningarspjöld Kvenfélagsins Framtíðar fást í: Bókabúð Jónasar, Blómabúðinni Akri, Dvalarheimil- inu Hlíð, Dvalarheimilinu Skjaldar- vík og hjá Margréti Kröyer Helga- magrastræti 9. Minningarkort Landssamtaka hjartasjúklinga fást í öllum bóka- búðum á Akureyri. Minningarkort Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna fást í Bókabúð Jónasar. Minningarkort Hjálparsveitar skáta Akureyri, fást í Bókvali, Bókabúð Jónasar og Blómabúðinni Akri, Kaupangi. Minningarkort Minningarsjóðs Jóns Júl. Þorsteinssonar kennara fást á eftirtöldum stöðum: Bókabúð Jón- asar Akureyri, Versl. Valberg Ólafs- firði og Kirkjuhúsinu Klapparstíg 25 Reykjavík. Tilgangur sjóðsins er að kosta út- gáfu á kennslugögnum fyrir hljóð- lestrar-, tal- og söngkennslu. Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 8. febrúar 1993 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Heimir Ingimarsson og Jakob Björnsson tii viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 21000. Smáauglýsingar Dags Ódýrar og áhrifaríkar auglýsingar ® 96-24222

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.