Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 6

Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 6. febrúar 1993 Hvemig skipuleggur þú fjármál þín?: Tveggja kvölda námskeið VIB um fjármál einstaklinga - kjörið tækifæri fynr fjölskyldur og einstaklinga Þeir eru ekki margir sem fá stóra vmumginu í lottó- haDPdrættum eða verða ríkir i einm and einhvers óvænts sem ber að hondum. l*ott mu yegna hnoiir rnanna standi ef til vill til slíkra ævintýra verð- ur fólk í langflestum tUfellum að beita þolinmæði og skipuleggja fjármal sm af værfærn . Taka eitt og eitt skref í einu til aukinna eina- vinna sie áfram á þann hátt er nauðsynlegt að hafa Tóða sýn yfir Sl Qármál. Sýn sem ekki fæst án goðr- ar skipulagningarog skráningar allra tekna og gjalda íslandsbanka, sem ber heitið „Fjármálahandbók VÍB“ í framhaldi af útkomu bókarmnar hefur venð Tfíí til nSkeiða þar sem fólki er kennt að skipu- leggiafjármálsúnmei|^paiinaöogi^ndun^na^yn^ gefsurikistur á a» sækja þessi námskeið, þar sem bau verða haldin á Akureyri um miðjan þennan mánuð. Námskeiðin verða finrðu hæð í Skipagötu 14 - husi IslandspanKa. ívu tveg&Íakvölda námskeiö hafa veriö ákve»i„ og ver»- „r a^na» dagana 15. og 17. tebrto en httt 16. og 18. sama mánaðar. Námskeiðm Mjttt k* kvöld og eru allar nánari íslandsbanka. Frá l'ræðslufundi í Reykjavík. Fjármál heimilisins: Fimm megin markmið til lengri og skemmri tíma Og 20.00 hvert upplýsingar veittar í Hver eru þau markmið sem fólk setur sér með fjármálum heimilisins? Þau geta verið margvísleg eftir áhugamálum viðkomandi einstaklinga. En þó eru nokkur markmið sem mörgum hljóta að vera sameig- inleg og er þeirra getið í Fjármálahandbók VlB og fjall- að er um þau á námskeiðun- um, sem efnt hefur verið til eftir útkomu bókarinnar. Fyrsta markmið: Fjárhagslegt Greiösluáætlanir og heimilisbókhald - mikilvægt tæki til að ná tökum á eigin prmálum Margir þekkja að tekjurnar duga illa fyrir útgjöldum heimilisins. Lítið eða ekkert verður eftir þegar heimilis- reikningarnir hafa verið greiddir. Jafnvel eru sumir reikningarnir enn ógreiddir þeg- ar mánaðarlaunin eru búin. Við slíkar aðstæður verður fyrsta hugsunin oft sú að ef tekjurnar væru aðeins meiri - þá væri unnt að greiða öll útgjöldin og jafnvel leggja eitthvað fyrir að því loknu. En fyrir mörgum er sparnaðurinn aðeins draumsýn. Endarnir nást aldrei almennilega saman og enginn tekjuauki er í sjón- máli. í Fjármálahandbók VÍB er bent á að útgjöldin skipti mun meira máli þegar komi að rekstri heimilanna en hvort tekjur eru háar eða lágar. Pví sé nauðsyn- legt að skipuleggja fjármálin og hafa góða yfirsýn yfir bæði útgjöld og tekjur til að geta sett sér markmið um hvað fjölskyldan vilji eignast eða geta veitt sér. Af þeim ástæðum er heimilis- bókhald og gerð greiðsluáætlana einn mikilvægasti hlutinn af dagskrá námskeiða VÍB og einnig af Fjármálahandbókinni. I bókinni er að finna eyðublöð til þess að vinna áætlanir og heimil- isbókhald eftir mánuð fyrir mánuð. Þá er einnig bent á að nauðsynlegt sé að gera ákveðinn samanburð á áætlunum og raun- verulegum niðurstöðum heimilis- bókhalds, bæði fyrir hvern mán- uð og einnig fyrir hvert ár í heild. í bókinni er að finna eyðu- blöð vegna þessa samanburðar og er þá mismunur raunverulegra tekna og gjalda færður í aftasta dálk eyðublaðsins. í>ar með kem- ur fram hvort viðkomandi fjöl- skyldu hefur borið af markaðri leið. Ef útgjöld hafa orðið meiri en gert var ráð fyrir er nauðsyn- legt að fara vel yfir í hverju þau liggja svo unnt sé að grípa til nauðynlegra ráðstafana og finna leiðir til að minnka útgjöld í sam- ræmi við áður gerð markmið um ráðstöfun tekna heimilisins. ÞI Námskeiðin eiga að auðvelda fólki að ná betri tökum á fjármálum - segir Guðjón Steindórsson, útibússtjóri fslandsbanka öryggi á eftirlaunaárum, lífeyris- réttindi og eftirlaunasjóður. Þótt fáir hugsi um eftirlaunamál fram- an af starfsævi sinni kemur að því hjá fólki og vegur þetta markmið sérstaklega þungt í umfjöllun á námskeiðunum. í Fjármálahand- bók VÍB er bent á þá viðmiðun að við skipulagningu fjármála megi hafa hliðsjón af því að hrein eign hjóna við upphaf eftirlauna- tímabils þurfi að vera um 25 milljónir króna þegar þau verð- mæti sem standa að baki lífeyris- réttindum eru talin með. í bók- inni er gert ráð fyrir að lífeyris- verðmæti geti verið um 10 millj- ónir króna, aðrar tíu milljónir séu bundnar í fasteign og um fimm milljónir bundnar í bifreið og sparifjármunum. Annað markmið: Öryggissjóð- ur til að grípa til við óvæntar , aðstæður. Bent er á að öryggis- sjóður sé nauðsynlegur ef óvænt- ar aðstæður koma upp eða í nauðir rekur. Nefnt er dæmi um upphæð á bilinu 100 til 400 þús- und þar sem sú fjárhæð sé ekki það há að hún setji fjárhagsáætl- anir heimilisins úr skorðum og best sé að ávaxta þessa upphæð á innlánsreikningi, sem beri góða vexti en gæta þess að féið sé laust til ráðstöfunar án mikils kostnað- ar. Þriðja markmið: Að eignast íbúð eða hús því ein af stærstu fjármálaákvörðunum hverrar fjölskyldu er ákvörðunin um byggingu eða kaup á húsnæði. í Fjármálahandbók VÍB er farið vandlega yfir á hvern hátt undir- búa þurfi íbúðarkaup eða skipti. Meta verði vandlega hversu dýr fjárfestingin geti orðið, hvað mikið eigið fé þurfi að vera fyrir hendi þegar ráðist sé í kaupin, hvað greiðslubyrði verði mikil, hversu mikill hlutur eigna verði bundinn í fasteign, hvað eigin húsaleiga verði mikil í saman- burði við minni íbúð og hversu kostnaðarsamur rekstur hins nýja húsnæðis muni verða. Markmið fjögur: Að minnka skuldir heimilisins. Bent er á að á undanförnum árum hafi einstakl- ingar aukið skuldir sínar hlut- fallslega meira en hið opinbera eða atvinnufyrirtæki landsins. Þá sé umtalsverður hluti þessarar skuldaaukningar til kominn vegna húsnæðislána og þar sé greiðslubyrði vegna skammtíma- lána oft þung. Því verði meðal annars að gæta þess vel að skammtíma- og raðgreiðslulán verði ekki of mörg á sama tíma og kostnaði vegna þeirra haldið í lágmarki. Markmið fimm: Að vera nægi- lega vel tryggður fyrir áhættu í fjármálum er eitt mikilvægasta markmiðið í fjármálum heimilis- ins. í Fjármálahandbók VÍB og á námskeiðunum er sérstaklega fjallað um þær tryggingar sem einstaklingar og fjölskyldur geta keypt. Þar er bent á að ungt fólk, sem sé að hefja störf og búskap hafi oft stofnað til mikilla skuld- bindinga, meðal annars vegna húsnæðiskaupa og/eða stofnunar atvinnureksturs. Því sé líftrygg- ing með því nauðsynlegra þar sem hún standi á móti skuldum þannig að óvænt fráfall valdi ekki óbærilegri röskun á fjármálum fjölskyldunnar. Þá er bent á að æskilegt sé að fara vel yfir allar tryggingar heimilisins með reglu- bundnum hætti að minnsta kosti einu sinni á ári til að fylgjast með því að tryggingafjárhæðir séu í samræmi við áætlað verðmæti hins tryggða. Pl „Mikil aðsókn hefur verið að þessum námskeiðum fyrir sunnan og við höfum lagt mikla áherslu á að fá þau hingað og geta boðið Akureyringum og nærsveitamönnum þessa þjónustu,“ sagði Guðjón Steindórsson, útibússtjóri íslandsbanka á Akureyri, í samtali við Dag. „Á námskeið- unuin gefst fólki, sem þarf og vill endurskipuleggja fjármál sín, tækifæri til að fá upplýs- ingar um hvernig það geti farið að. Námskeiðin fela enga töfralausn í sér því hún er ekki til en sú þekking og tækni sem fólki er kynnt getur auðveldað því að ná betri tökum á eigin málum. Guðjón sagði að á námskeið- Guðjón Stcindórsson. unum væri sjónum fólks einkum beint að því á hvern hátt það geti dregið úr útgjöldum því leiðir til tekjuauka séu í mörgum tilfellum ekki fyrir hendi. Þá sé skýrt út fyrir fólki á hvern hátt það geti sparað og ávaxtað þá fjármuni er sparnaðurinn skili. Þótt getu fólks til sparnaðar séu oft mikil takmörk sett þá sé grundvöllur þess að geta dregið úr útgjöldum sá að fólk fylgist reglulega vel með öllum tekjum og gjöldum. Því sé miklum tíma námskeið- anna varið til þess að kenna fólki að færa bókhald yfir rekstur heimilis og lesa út úr því upplýs- ingar um hvernig eyðslu þess sé varið. Guðjón sagði tilvalið fyrir hjón að koma saman á námskeið- in því það geti auðveldað þeim að takast sameiginlega á við fjármálavanda heimilanna og finna nýjar leiðir til bættra lífs- skilyrða. ÞI Úr Fjármála- handbók VIB Aö skipuleggja fjármálin vel merkir: aö hafa góða yfirsýn um fjármálin, að setja sér markmið í fjármálum, bæði til skemmri og lengri tíma, að búa sér til stefnu í fjármálum til langs tínia um að ná þeini markmiðum, að ávaxta peninga á skynsamlegan hátt, að fylgjast vandlega með hvort ávöxtun er í samræmi við markmið, að bregðast við ef áætlanir ganga ekki eftir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.