Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 10

Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 6. febrúar 1993 DÝRARÍKI ÍSLANDS Fuglar 16. þáttur Sr. Sigurður Ægisson STUITNEFJA (Uria lomvia) Stuttnefja er, eins og m.a. lang- vían, stórfrænka hennar, af ætt- bálki fjörunga eða strandfugla, en af ætt svartfugla. Hún er á stærð við langvíu og í flestu öðru tilliti lík henni einnig. Nefið er þó styttra og jafnframt þykkara, og ljós rák á því (einkum á vaiptíma), er nær inn í munnvikin. Hún er kolsvört á baki, þar sem langvían er meira dökkkaffibrún, og auk þess er stuttnefjan laus við síðu- kámur þær, er einkenna langvíur. Stuttnefjan er annars 39-43 sm á lengd, um 1 kg á þyngd, og með 65-73 sm vænghaf. Goggur er mjósleginn, svartur og oddhvass. Augu svört og grunnlitur fóta einnig, en framanverð rist og kögglar táa að ofan gulgræn. Eggert Ólafsson, sem ásamt Bjama Pálssyni ferðaðist um Is- land á árunum 1752-1757, hélt, að stuttnefja og langvía væru ein og sama tegundin, þ.e. að stuttnefjan væri kvenfuglinn, en langvían karlinn. En þrátt fyrir nábýli þess- ara mjög svo líku tegunda, er ekki vitað til að þær hafi parað sig inn- byrðis eða eignast afkvæmi sam- an. Við nána athugun kemur líka fram ýmis munur á þessum tveim- ur fuglategundum. Stuttnefjan er t.d. miklu norðlægari fugl en langvían, og er auk þess talin heldur meiri úthafsfugl. Fræðimenn skipa henni í nokkrar deilitegundir, eins og langvíunni. U. I. lomvia er nyrst, þ.e.a.s. frá A-Kanada, um Græn- land, Island, Jan Mayen, Bjamar- ey, Svalbarða, að Frans Jósefs- landi og Nóvaja Semlja. Þá tekur við U. I. eleonorae frá austurhluta Taímýrskaga að Nýju Síberíueyj- um. Því næst kemur U. I. heckeri, á Wrangels- og Heraldseyjum og norðurhluta Chukotskskaga. Og loks U. I. arra á N-Kyrrahafi. Norðlægustu fuglamir verða að hörfa undan rekísnum; stofnamir við Barentshaf hafa t.d. vetrarsetu út af SV-Grænlandi og fljúga norður um ísland. Stuttnefjan er áberandi fáséð við Bretlandseyjar, en sést nokkuð oftar við Færeyjar, og þá á öllum árstímum. Hún er, ásamt langvíu, víðs- vegar kringum Island, meira þó fyrir norðan. Hlutfall milli tegund- anna í Vestmannaeyjum á eggja- tíma er 99% langvíunni í vil, en snýst við í Drangey á Skagafirði, þar sem einungis 1% varpfugl- anna eru langvíur. í Hombjargi er talið að séu 1.2 milljón stuttnefjur og 720 þúsund langvíur, í Hælavíkurbjargi 1.6 milljón stuttnefjur og 800 þúsund langvíur, og því næst kemur Látrabjarg með 800 þúsund stutt- nefjur og 1.2 milljón langvíur. I öðrum helstu sjófuglabjörgum landsins, eins og t.d. í Vestmanna- eyjum, Ingólfshöfða, Reynisfjalli, Dyrhólaey, Krísuvíkurbjargi, Eld- ey, Svörtuloftum, Drangey, Grímsey, Skoruvíkurbjargi, Langanesi, Skrúð og Papey, em þessar tölur miklu lægri. Nokkur munur kemur fram á staðarvali tegundanna í björgun- um yfir varptímann. Stuttnefjan er nær undantekningarlaust efst í bjarginu, á meðan langvían er mestan partinn í neðstu 2/3 hlut- um þess. Hvorug tegundin verpir þó uppi á brúninni, en þar em hins vegar fýll, álka, lundi, og hvít- mávur. Þær frænkur, stuttnefja, langvía og áika, koma nokkum veginn samtímis í fuglabjörgin, oftast í lok mars eða byrjun apríl, stutt- nefjan þó kannski aðeins síðar en langvía, ef eitthvað er, og mætir því afgangi, svo að varpstaðir eru oft þrengri. Hjúskapur stuttnefju er ein- kvæni, eins og hjá öðrum svart- fuglategundum. Makamir eiga ör- lítið varpsetur á þröngum syllum bjargsins, og verja það. Hreiður- gerð er engin. Stuttnefjan verpir aðeins einu eggi, sem oftast er ljósblágrænt, skreytt marglituðum yrjum, sjaldan þó rauðum. Eggið klekst út miili útþaninna fitja stuttnefj- unnar og varpbletts á bringu henn- ar. Utungun tekur 4-5 vikur og sjá báðir foreldrar um þá hlið máls- ins, sem og fæðuöflun handa ósjálfbjarga unganum, er þar að kemur. Síðan ganga hlutimir áfram fyrir sig á líkan máta og hjá lang- víunni, þ.e.a.s. að unginn er feng- inn, eftir um 3 vikur, til þess að stökkva ófleygur af bjarginu í sjó- inn, með ákveðnu látbragi. Stutt- nefjukarlinn elur svo önn fyrir honum um skeið eftir þetta, fer með hann þangað, sem fæðan er; að öðrum kosti er talið að foreldr- amir gætu ekki haldið í unganum lífinu, enda langt að sækja matinn frá varpstað. Stuttnefjan étur álíka fæðu og langvía, þ.e.a.s. smáfisk, krabba- dýr, skeldýr og orma. Sandsíli er hér við land einhver mikilvægasta fæðan á sumrin, að öðmm ólöst- uðum, og reyndar undirstöðufæða margra annarra sjófugla líka. Á vetuma tekur loðnan svo við því hlutverki. Hlutfall smáfiskjarins í fæð- unni er annars á eggjatíma 90- 95%, en minna er vitað um fæðu- val stuttnefjunnar á vetuma, en talið að krabbadýr hafi þar veg- legri sess en ella, a.m.k. á nyrstu slóðum. Stuttnefjur, merktar hér á landi, hafa aldrei komið fram aftur. Liggur það sumpart í því, að ein- ungis fáar hafa verið merktar, enda nokkrum erfiðleikum bundið að ná þeim til slíks, þrátt fyrir alla hina gífurlegu mergð. Varpstað- imir eru nefnilega mjög óaðgengi- legir, og stuttnefjur verpa auk þess einkum á örmjóum syllum í þver- hníptum björgunum, og þar á ofan yfirleitt tiltölulega fáar saman, ólíkt því sem er hjá lang- víunni, er kann best við sig á bekkjum eða uppi í stökkum. Sem dæmi má nefna, að mesti þéttleiki stuttnefju í varpi hefur mælst 37 fuglar á m2, en hins veg- ar 70 á m2 hjá langvíu. Stuttnefjur finnast hér við land á vetuma, en hvort það eru ís- lenskir fuglar eða ekki, er enn á huldu. Má vera að ættemi þeirra megi rekja til Svalbarða, N-Nor- egs og Rússlands, og þær fylgi ís- röndinni í hafinu fyrir norðan ís- land og komi þá ekki að jafnaði upp að landinu, heldur einungis ef áðumefnd skilyrði eru fyrir hendi. Islenski stuttnefjustofninn er talinn vera um 2 milljónir varp- para. Um alheimsstofninn er ekki vitað. Eflaust ná stuttnefjur álfka há- um aldri og langvíur, þ.e.a.s. um 30 ámm, er best lætur. Ekki er þó til staðfest dæmi um eldri fugl en 22 ára og 8 mánaða. Stuttnefja í varpi, með unga sinn. (Alan Richards: Seabirds of the northern hemisphere. Limpsfield 1990). Matarkrókurinn Fyllt hom og fleira góðgæti - Arndís Heiða Magnúsdóttir með girnilegar uppskriftir Arndís Heiða í eldhúsinu heima í Múlasíðunni. Hún var búin að sann- prófa uppskriftirnar þegar Ijósmyndara Dags bar að garði. Mynd: Robyn Arndís Heiða Magnúsdóttir, fóstra á Akureyri, töfrar fram uppskriftir handa lesendum Dags í dag. Dísa er heima- vinnandi um þessar mundir og hefur því nœgan tíma til að sýsla í eldhúsinu. Hún segist hafa gaman af eldhúsverkun- um, sérstaklega að prófa nýj- ar uppskriftir og maðurinn hennar er víst líka spenntur fyrir slíkum tilraunum. Uppskrifir Dísu eru fremur óvenjulegar og mjög girnilegar. Þau hjónin mæla eindregið með þessum réttum og væntanlega munu framtakssamir heimilis- kokkar víða um land bera fram Olluhorn, spergilkálsböku og sjávarpasta um helgina. Fyllt Olluhorn 5 dl hveiti 1 dl hveitiklíð V2 dl olía 1 tsk. salt 1 tsk. sykur 35-50 g þurrger 2 dl volgt vatn V4-V2 dl sólblómafrœ Fylling I: Hvítlauksostur Skinka (skorin í ræmur) Fylling II: 150 g skinka (skorin í smátt) 1 dós smurostur (góðostur) 1 msk. sýrður rjómi V2 lítill laukur V2-I paprika (grœn) 1 tsk. sinnep (Öllu blandað saman og sett inn í hornin) Öllu blandað saman, hnoðað og látið hefast í 40 mín. Deiginu er skipt í tvo hluta og flatt út í hringlaga kökur. Hvor kaka er síðan skorin í 8 þríhyrninga. Fylling er sett á breiðari endann (ca 1 tsk.) og rúllað upp. Horn- in eru látin hefast í ca 30 mín. Að lokum eru þau pensluð með eggi og sett birki eða sesamfræ ofan á. Bakast við 200-220 gráð- ur í 20 mín. Úr uppskriftinni fást 16 horn. Hornin eru best volg. Spergilkálsbaka 300 g smjördeig (fæst í bakaríum og verslunum) V2 kg spergilkál (snöggsoðið í saltvatni) 100 g skinka (skorin í bita) Sósan: 1-2 msk. smjör V2 msk. hveiti 2 dl rjómi 1 dl soðið af kálinu 1 ten. hœnsnakraftur 3 msk. rifinn ostur 2 eggjarauður Smjördeigið er flatt út og sett í eldfast mót. Kálinu og skink- unni er blandað saman og sett í mótið. Því næst er bakaður upp jafningur með smjörinu og hveitinu og þynnt út með rjóm- anum og spergilkálssoðinu. Síð- an er bætt í sósuna teningnum og ostinum. Sósan tekin af hit- anum og eggjarauðunum bætt út í. Þessu eru að lokum hellt yfir mótið. Bakað í 25 mín. við 175 gráður. Það má skreyta bökuna með afganginum af smjördeiginu eða grænmeti. Sjávarpasta 500 g soðið pasta, t.d. skeljar 200 g rækjur 300 g humar Sósan: 2V2 msk. ólífuolía 1 glas hvítvín 2V2 dl rjómi 80 g rjómaostur V2 teningur fiskikraftur Örlítið salt Svartur pipar (Pessu er öllu blandað saman og látið malla í 10 mín.) Humarinn settur í kalt vatn ásamt Vi tsk. af salti og 1 tsk. af sykri. Suðan látin koma upp. Potturinn færður af hitanum og látið bíða í 5 mín. Humarinn tekinn upp úr og skelflettur. Humarinn og rækjurnar eru sett saman við pastað. Sósan borin með ásamt ristuðu brauði eða hvítlauksbrauði. Skreytt með steinselju eða einhverju grænu kryddi. Þessi réttur er borinn fram sem aðalréttur segir Arndís Heiða og hún skorar á Rögnu Erlingsdóttur á Svalbarðseyri að gefa okkur eitthvað af sínum góðu uppskriftum í næsta Mat- arkrók. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.