Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 3

Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 3
Laugardagur 6. febrúar 1993 - DAGUR - 3 Fréttir Skagaprður: Sjúkrahúsinu færðar giaflr Nú fyrir jólin gaf Soroptimista- klúbbur Skagafjarðar töfl og ýmis konar spil á allar deildir Sjúkrahúss Skagfírðinga á Sauðárkróki. Þetta er í annað sinn sem konurnar í klúbbnum færa Sjúkrahúsinu gjöf. Soroptimistaklúbbur Skaga- fjarðar hefur nú starfað í um fjögur ár. Klúbburinn er deild í Soroptimistahreyfingunni, sem er alþjóðleg kvennahreyfing, samtök starfsgreindra þjónustu- klúbba. Er hreyfingin byggð upp svipað og Rotaryhreyfingin. I Soroptimistaklúbbi Skaga- fjarðar eru nú 23 konur víðsvegar úr sýslunni. Konurnar hittast yfirleitt einu sinni í mánuði og fá oft fyrirlesara á fundina. Núver- andi formaður klúbbsins er Signý Bjarnadóttir. Árið 1991 gaf klúbburinn neyðarhnapp til Heilsugæslustöðvarinnar á Sauð- árkróki og nú fyrir síðustu jól var öllum deildum Sjúkrahússins færð töfl og ýmis spil að gjöf, sjúklingum til dægradvalar. Klúbburinn aflar fjár með rekstri verslunarhorns á Sjúkrahúsinu. sþ Slökkviliðið á Akureyri: Viðurkenningar veittar Landssamband slökkviliðsmanna stóð fyrir teiknimyndasamkeppni um brunavarnarátak í fjölmörgum grunnskólum landsins í haust, fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Á Akureyri tóku nemendur í Oddeyr- arskóla og Barnaskóla Akureyrar þátt í samkeppninni og hlaut einn nemandi fyrstu verðlaun og tveir viðurkenningu fyrir góðar myndir. í vikunni fóru slökkviliðsmenn á Akureyri í heimsókn í skólana og veittu nemendunum viðurkenningar sínar. Á myndinni eru slökkvi- liðsmennirnir Jón Knudsen t.v. og Jósep Karlsson og nemendur í Oddeyrarskóla, t.h. María Hrund Stefánsdóttir, sem hlaut fyrstu verðlaun og Berglind Rós Einarsdóttir sem fékk viðurkenningu fyr- ir góða mynd. Á innfelldu myndinni er Anna Kristín Þórhallsdóttir, nemandi í Barnaskólanum, sem einnig fékk viðurkenningu fyrir góða mynd. Myndir: Robyn Giljahverfi á Akureyri: Byggingarsvæði úthlutað tíl þriggja aðila með samtals 139 Mðir Uhlutun byggingalóöa í Gilja- hverfí til verktaka er lokið aö sinni og þeir verktakar sem sóttu þar um lóðir fengu úrlausn sinna mála að lokum en ekki var hægt að verða við öllum þeim óskum sem settar voru fram í byrjun. Jón Geir Agústsson byggingafulltrúi Akureyrar segir að allir aðilar hafí fengið þokkalega úrslausn sinna mála. Þeir þrír aðilar sem sóttu um voru Húsnæðisnefndin sem fékk úthlutað sérstöku svæði sem þeir hyggjast svo gera sérstakar tillög- ur um skipulag á, Pan hf. og Fjölnir hf. Á svæði Húsnæðisnefndarinn- ar er gert ráð fyrir 72 íbúðum og er það í tveggja hæða fjölbýlis- húsum samkvæmt skipulagi en hugsanlegt er að nefndin leggi fram sínar eigin tillögur sem þá verða skoðaðar sérstaklega af byggingarnefnd Akureyrarbæjar og byggingafulltrúa. Pan hf. fær svæði fyrir 42 íbúðir og er gert ráð fyrir að þær verði í þriggja hæða fjölbýlishúsum og Fjölnir hf. fær alls 25 íbúðir en sam- kvæmt skipulagi skiptast þær þannig að 5 íbúðir verða í tveggja hæða raðhúsum, 8 íbúðir verða í tveggja hæða fjölbýlishúsi og 12 íbúðir verða í þriggja hæða fjöl- býlishúsi. Hugsanlegt er að for- svarsmenn Pans hf. og Fjölnis hf. muni óska eftir breytingu á þessu skipulagi. Akureyrarbær mun fara í að vinna svæðið þegar nær dregur vori og eiga framkvæmdir því að geta hafist að öllu forfalla- lausu á svæðinu í sumar. „Pað er fyrst og fremst Gilja- hverfið sem er til úthlutunar núna og síðan eru nokkrar ein- býlishúsalóðir í Síðuhverfi sem enn hefur ekki verið úthlutað en nýlega var veitt raðhúsalóð við Vestursíðu sem væntanlega verð- ur byggt á í sumar. Engar lóðir , eru til úthlutunar í Lundahverfi |og enn lengra er í úthlutun í Naustahverfinu," segir Jón Geir Ágústsson. „Einstaklingar eru svolítið að hugleiða bygginga- framkvæmdir og það eiga nokkrir hér samþykktar teikningar og aðrir hafa fengið úthlutað lóðum en hafa ekki sent inn teikningar til samþykktar. Pað hafa orðið merkjanlegar breytingar í þá veru að á sl. þremur árum að ein- staklingar séu í byggingahug- leiðingum en þar áður var það nánast ekki orðið neitt því heita mátti að allar íbúðahúsabygging- ar væru komnar í félagslega geir- ann og enn er hann eðlilega stærstur.“ GG Hlíðarijall: KA-mót í skíða- göngu í dag KA-mótið í skíðagöngu fer fram í Hlíðarfjalli í dag kl. 14.00 en ekki á morgun eins og missagt var í blaðinu í gær. Keppni hefst við Gönguhúsið og er keppt í öll- um flokkum frá 6 ára til sjötugs. Gengið verður með hefðbund- inni aðferð. Fríðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Svarfdæla, ásamt Ragnheiði Sigvaldadóttur, héraðsskjalaverði og Onnu Báru Hjaltadóttur sem situr við tölvu Bókasafns Dalvíkur. Mynd: -þh Dalvík: Skólar og söfti tölvuvæðast - Sparisjóður Svarfdæla hefur gefið á þriðja tug tölva sl. ár Sparisjóður Svarfdæla hefur verið iðinn við að tölvuvæða skólana á Dalvík og Húsa- bakka undanfarin ár. Á rúmu ári hefur hann gefíð grunn- skóladeild Dalvíkurskóla 9 tölvur, sjávarútvegsdeildinni 8 og einn geislaprentara og Húsabakkaskóli fékk tvær tölvur á sl. hausti. Nú er röðin komin að söfnun- um. Friðrik Friðriksson, spari- sjóðsstjóri, afhenti Héraðsskjala- safni Svarfdæla tölvu nú í byrjun vikunnar. Áður hafði hann Vöruskiptin við útlönd á síðasta ári: Vöruskiptajöfiiuðiiriim óhag- stæður um hálían milljarð - verðmæti útfluttra sjávarafurða 5% minna en árið áður í desember sl. voru fluttar út vörur fyrir 7.6 milljarða kr. fob. og inn fyrir 10,7 milljarða. Vöruskiptajöfnuðinn í des- ember var því óhagstæður um 3,1 milljarð kr. en í desember 1991 var hann óhagstæður um 0,3 milljarða kr. Allt árið 1992 voru fluttar út vörur fyrir 87,8 milljarða kr. en inn fyrir 88,3 milljarða kr. fob. Vöruskiptajöfnuðurinn á árinu var því óhagstæður um 0,5 millj- arða en árið áður var hann óhag- stæður um 3,3 milljarða á sama gengi. Árið 1992 var verðmæti vöru- útflutnings 4,5% minna á föstu gengi en á árinu 1991. Sjávar- afurðir voru um 80% alls útflutn- ings og var verðmæti þeirra um 5% minna en árið áður. Útflutn- ingur á áli var 1% minni og útflutningur kísiljárns 7% minni á föstu gengi en árið 1991. Útflutningsverðmæti annarrar vöru (að frátöldum skipum og flugvélum) var 4% minna á árinu 1992 en árið áður. Heildarverðmæti vöruinnflutn- ings fob árið 1992 var rösklega 7% minna á föstu gengi en á árinu 1991. Innflutningur sér- stakrar fjárfestingarvöru (skip, flugvélar, Landsvirkjun) var nær hinn sami og árið áður. Verð- mæti innflutnings til stóriðju var 14% minna en árið áður en verð- mæti olíuinnflutnings var um 5% minna en 1991. Þessir innflutn- ingsliðir eru jafnan breytilegir frá einu tímabili til annars en séu þeir frátaldir reynist annar inn- flutningur (78% af heildinni) hafa orðið nær 8% minni en á árinu 1991. afhent Bókasafni Dalvíkur sams- konar tölvu ásamt norskum hug- búnaði af gerðinn Micromarc en það er sérhannað forrit fyrir bókasöfn. Allar tölvurnar sem Sparisjóðurinn hefur gefið eru af gerðinni Victor. Að sögn Þórunnar Bergsdótt- ur, skólastjóra Dalvíkurskóla, er skólinn nú vel búinn tölvum. Sér- stök tölvustofa er í skólanum þar sem eru tíu tölvur af Victor-gerð ásamt prenturum og tilheyrandi. Þar er unglingunum kennt á tölvur, bæði ritinnsla og vélritun. Auk þess eru tölvur inni í öllum stofum 1.-7. bekkjar og er byrjað að kenna börnum á þær strax við sex ára aldur. í tölvunum eru sér- stök kennsluforrit, en einnig fá börnin leiðsögn við ritvinnslu og byrja snemma að vinna með texta. -ÞH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.