Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 2

Dagur - 06.02.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 6. febrúar 1993 Fréttir Átaksverkefnið í Skútustaðahreppi: Stofimn Mývatnssafiis í undirbúningi Stol'nfundur Mývatnssafns verður haldinn 28. feb. nk. en einn hópanna á vegum Átaks- verkefnsins í Mývatnssveit hef- ur unnið að undirbúningi stofnfundarins. Sex af hópun- um níu eru enn starfandi, að sögn Huldu Harðardóttur starfsmanns átaksins. Hún sagði að sorglegt væri að hætta hefði þurft rekstri skólabúð- anna í Reynihlíð. Rekstur þeirra hefði gengið mjög vel fyrir áramótin en fjárveitingar ekki fengist frá ríkinu til áframhaldandi starfsemi. Skólabúðirnar voru verkefni eins starfshóps átaksverkefnis- ins. Skipulagsskrá fyrir Mývatns- safn hefur verið unnin af starfs- hópnum og verður hún borin upp á stofnfundinum. í henni segir m.a.: „Markmiðum safnsins skal ná með því að safna, varðveita og sýna gripi úr mývetnskri náttúru, muni sem tengjast nýtingu Mývatns, minjar og heimildir úr atvinnusögu Mývatnssveitar.“ Hulda sagði að markmið hóps- ins væri ekki að safna munum sem fyndust á hverju einasta byggðasafni á landinu, heldur munum sem tengdust sérstaklega sveitinni, t.d. veiðum í Mývatni og kísilgúrnáminu, fuglalífinu og jarðfræðinni, gömlum ljósmynd- um og fleiru tengdu sveitinni. „Markmiðið er að þetta sé sér- stakt fyrir sveitina og skarist sem minnst við hin söfnin í sýslunni.“ Hulda sagði að hópnum hefði ekki tekist að koma auga á hent- ugt húsnæði fyrir safnið, þó hefði aðeins verið horft til nýja skólans svona til að byrja með en ekkert væri ákveðið með það. Hún sagð- ist vona að strax eftir stofnfund safnsins yrði farið að athuga hverju ætti að halda til haga og finna geymslupláss fyrir muni. Hópurinn hefði ekki markað of ákveðna stefnu, heldur viljað leyfa viðtakandi stjórn safnsins að þróa hugmyndina. IM Hafnarstjóm Akureyrar hefur samþykkt rúmlega 16% lækkun á raforku til skipa. Mynd: Robyn Hafnarstjórn Akureyrar: Lækkun á raforkuverði til skipa Hafnarstjórn Akureyrar hefur samþykkt lækkun á raforku- verði til skipa um rúm 16% eða úr kr. 6.25 í kr. 5.20 á kwst. Nokkur umræða hefur verið um að skip keyri Ijósa- vélar sínar við bryggju, frekar en að kaupa raforku úr Iandi, þar sem það hefur verið talið ódýrara. I skýrslu sem unnin var á veg- um Iðnaðarráðuneytisins kemur fram að framleiðsluverð á Skíðastaðir í HlíðarflaHi: Dræm aðsókn þrátt fyrir úrvals aðstæður - „aðstæður verða sjaldan betri,“ segir forstöðumaður Skíðastaða Aðstæður til skíðaiðkunar í Iilíðarfjalli ofan Akureyrar eru nú eins og best verður á kosið og segir ívar Sigmunds- son, forstöðumaður Skíða- staða, að Ijóst megi vera að ekki þurfi að óttast vandræði vegna snjóleysis það sem eftir lifir vetrar. Aðsókn að skíða- svæðinu hefur þrátt fyrir þetta verið dræm og verði jafn lítil aðsókn á kvöldin eins og undanfarið þá er til athugunar að hætta að hafa opið eftir kl. 7 á kvöldin. „Á miðvikudag var hér t.d. sjö manna starfslið og um kl. 4 höfðu aðeins fjórir komið á skíði. Við höfum selt nálægt 300 árskort. þannig að ég velti því fyrir mér hvort fólk ætli sér ekki að nýta sér kortin og koma á skíði. Aðstæður verða sjaldan betri en einmitt núna þannig að þær ættu ekki að spilla fyrir,“ sagði ívar. Hann segist ekki kunna ein- hlíta skýringu á þessari dræmu aðsókn. Líkast til spili samt síð- ustu tveir snjóleysisvetur inn í þetta, sem og veðurfarið að undanförnu en það hefur verið mjög óstillt. Pá sé ekki ótrúlegt að fólk telji sig síður hafa efni á skíðaiðkuninni en áður enda hafi sýnt sig að margt fólk kom í Fjall- ið þegar aðgangur var ókeypis. JÓH raforku með díselvél í skipi sé nú kr. 5.20, eða það sama og sam- þykkt hefur verið að selja raforku í landi í Akureyrarhöfn. Pessi lækkun á raforku í landi er möguleg vegna samkomulags á milli Rafveitu Akureyrar og Akureyrarhafnar. „Ég vonast til þess að þeir aðil- ar sem keyrt hafa díselvélar við bryggju á Ákureyri, sjái sér hag í því að tengjast í framtíðinni við landrafmagn. Ég tel það hag- kvæmara fyrir alla aðila að skip tengist landrafmagni í höfn. Þar er allur búnaður fyrir hendi og um leið spara útgerðirnar keyrslu á ljósavélum, auk þess sem það er gjaldeyrissparandi að nota inn- lenda orku,“ sagði Guðmundur Sigurbjörnsson, hafnarstjóri á Akureyri í samtali við Dag. í áðurnefndri skýrslu er kynnt nýtt form á sölu raforku til skipa, svokölluð víkjandi orka. Þar virð- ast þó ýmsir annmarkar á enn sem komið er en Guðmundur segir að með því fyrirkomulagi sjái menn möguleika á enn frek- ari lækkun og vonast til að þessi ákvörðun hafnarstjórnar sé aðeins skref til enn frekari lækk- unar í framtíðinni. -KK Umhverfismál verða megin- efiii ráðimautafimdar - sem hefst í Reykjavík á þriðjudag Umhverfísmál munu setja svip á árlegan ráðunautafund Bún- aðarfélags íslands sem hefst á þriðjudag. Á fundinum verður sérstaklega fjallað um um- hverfísvæna ræktun jarðar og búfjár, mengun í íslenskum matvælum, gróður- og jarð- vegsvernd ásamt nýjum við- horfum í landgræðslumálum Akureyrarbær: Leitað tilboða í maJbikið Á fundi bæjarráðs Akureyrar í fyrradag var ákveðið að leita tilboða á næstunni í malbiks- kaup Akureyrarbæjar. Um er að ræða allt malbik sem bær- inn notar í ár, sem og það mal- bik sem bærinn er endursölu- aðili á. Samkvæmt upplýsingum frá tæknideild Akureyrarbæjar má gera á ráð fyrir að heildarmagn verði um 2500 tonn á þessu ári, eða svipað og undangengin ár. Sigurður J. Sigurðsson, formaður bæjarráðs, segir að leitað verði tilboða eins og gert hafi verið síð- ustu ár enda hafi bærinn góða reynslu af útboði á þessum þætti og hafi boðist malbik á hagstæðu verði. JÓH auk fjölda annarra mála er snerta þá þróun er nú þarf að eiga sér stað í landbúnaði. I frétt frá Búnaðarfélagi íslands segir að landbúnaðurinn sé einn af lykilþáttum í umhverf- ismálum hverrar þjóðar. Síðan er þeirri spurningu varpað fram hvar þessi atvinnugrein standi með tilliti til umhverfisins og hvort of miklum tíma hafi verið varið í beitarmálin á kostnað annarra umhverfisþátta. Ráðu- nautafundur er haldinn árlega á vegum Búnaðarfélagsins og Rannsóknarstofnunar landbún- aðarins, RALA. Á þessum ár- legu fundum hittast ráðunautar í landbúnaði og vísindamenn í landbúnaðarrannsóknum og fjalla um þau mál er efst eru á baugi í landbúnaði á hverjum tíma. Að þessu sinni er fundur- inn einkum helgaður umhverfis- þáttum landbúnaðarins, velferð jarðar og dýra og hreinleika land- búnaðarafurða. PI Neytendafélag Akureyrar og nágrennis: Hagsýni í heimilishaldi mikill áhugi á námskeiðinu Þrátt fyrir góðar aðstæður til skíðaiðkunar í Hlíðarfjalli hefur aðsókn verið frekar dræm. Akureyringar og nærsveita- menn virðast hafa mikinn áhuga á því aö koma heimilis- bókhaldinu í skikkanlegt horf. Neytendafélag Akureyrar og nágrennis boðaöi námskeið undir stjórn Sólrúnar Hall- dórsdóttur, rekstrarhagfræð- ings Neytendasamtakanna, og er nú vel bókað á tvö námskeið sem verða í íþróttahöllinni í dag. Fyrirhugað var að halda nám- skeið um síðustu helgi en vegna veðurs komst Sólrún ekki norður og námskeiðinu var frestað. Að sögn Vilhjálms Inga Árnasonar, formanns Neytendafélags Akur- eyrar og nágrennis, kom í ljós að áhugi fyrir námskeiðinu reyndist svo mikill að ákveðið var að halda tvö námskeið um hagsýni í heimilishaldi í íþróttahöllinni á Akureyri í dag kl. 12 og 15. Vilhjálmur Ingi sagði að stuðst væri við ritið Heimilisbókhald Neytendasamtakanna, sem hefði líkað mjög vel og hann nefndi dæmi af konu sem sagðist ekki geta án þess verið. Leiðbeint verður um notkun ritsins, sem er innifalið í námskeiðsgjaldinu, og auk þess sem farið verður í hefð- bundnar færslur í heimilisbók- haldi mun Sólrún skýra út vaxta- byrði lána og annað sem nauð- synlegt er að hafa á hreinu í rekstri heimilis. Að sögn Vilhjálms Inga var áðurnefnt rit uppselt hjá NAN og áhuginn á hagsýni í heimilishaldi greinilega mikill því fyrirspurnir hefðu borist frá verkalýðsfélög- um og sveitarfélögum í nágrenn- inu. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.