Dagur - 17.02.1993, Síða 1
76. árgangur ■ Miðvikudagur 17. febrúar 1993 • 32. tölublað
Vel klæddur
í fötum frá
ernabudin
HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 BOX 397
BERNHARDT
7he Tuilor-I.iH)k
Tekist á við tuminn.
Mynd: -KK
Mikil svellalög víða:
Hætta á kalskeirnndiim fer
vaxandi með hverjum degi
- segir Bjarni E. Guðleifsson, ráðunautur
Listasafn Akureyrar:
Haraldur Ingi Har-
aldsson ráðinn
„Ég er afar
ánægður og
stoltur yfir því
að mér sé veitt
þetta traust.
Þetta er vissu-
lega mjög
spennandi
starf,“ sagði
Haraldur Ingi Haraldsson,
nýráðinn forstöðumaður Lista-
safns Akureyrar. Bæjarstjórn
Akureyrar samþykkti í gær að
ráða hann í stöðuna til næstu
fjögurra ára. Atkvæði féllu
þannig í leynilegri atkvæöa-
greiðslu að Haraldur Ingi fékk
6 atkvæði, Kristinn G. Jóhanns-
son 4 og Ásta Kristbergsdóttir
1 atkvæði.
Átta sóttu um stöðu forstöðu-
manns væntanlegs listasafns í
Grófargili. Menningarmálanefnd
bæjarins fjallaði um umsækjendur
á þrem fundum og féllu atkvæði
um þá þannig að Kristinn G.
Jóhannsson, myndlistarmaður á
Akureyri, hlaut 3 atkvæði, Harald-
ur Ingi 1 atkvæði og einn nefnd-
armaður greiddi ekki atkvæði.
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar kom fram það álit Sigfríðar
Porsteinsdóttur (B) að þær fjórar
konur sem sótt hefðu um stöðuna
væru fyllilega hæfar til að gegna
henni. Sigfríður lagði til að mál-
inu yrði aftur vísað til menning-
armálanefndar og bæjarstjóra og
jafnréttisfulltrúa falið að kynna
nefndarmönnum markmið jafn-
réttisáætlunar bæjarins. Auk Sig-
fríðar studdu Þórarinn E. Sveins-
son (B) og Jakob Björnsson (B)
þessa tillögu, en fimm voru á
móti. Þá var gengið til skriflegrar
atkvæðagreiðslu, að beiðni Þór-
arins E. Sveinssonar, og féllu
atkvæði eins og áður er getið.
Haraldur Ingi Haraldsson er
Akureyringur, en nú búsettur í
Reykjavík. Hann lauk námi frá
Myndlista- handíðaskólanum og
las jafnframt sagnfræði í HÍ utan-
skóla. Hann hélt síðan til Hollands
í framhaldsnám í listum. Haraldur
Ingi hefur haldið tíu einkasýning-
ar. Eiginkona hans er Kolbrún
Jónsdóttir, píanókennari. óþh
Viking Brugg:
Hófanna leitað á
Bretlandsmarkaði
Hætta á kali í túnum fer nú
vaxandi dag frá degi. Mikil
svellalög mynduðust víða í des-
embermánuði og jafnvel fyrr á
sumum stöðum þar sem snjó-
þungt er. Þrátt fyrir hlákur
undangengna daga hafa svell
ekki náð að eyðast og sumstað-
ar hafa þau jafnvel vaxið þar
sem snjór og hjarn hafa blotn-
að í þíðu en síðan runnið í svell
þegar fryst hefur aftur. Talið
er að jarðklaki sé aftur á móti
ekki meiri en venja er í meðal-
Boðinn hefur verið út annar
áfangi við viðbyggingu
Hvamms, dvalarheimilis aldr-
aðra á Húsavík. Um er að
ræða lokafrágang hússins, sem
nú er um það bil að verða
fokhelt. Verktaki við fyrri
áfanga er Jónas Gestsson.
Húsið á að afhendast fullbúið
vorið ’94. í húsinu eru 16 búsetu-
réttaríbúðir fyrir aldraða og þar
að auki sameiginlegt rými, sam-
komusalur og nýtt anddyri fyrir
Hvammsheimilið í heild. Heild-
arflatarmál byggingarinnar er
1900 fm, og er hún á þremur
hæðum. Tilboð í bygginguna
verða opnuð 5. mars. „Þetta eru
þjónustuíbúðir í búseturéttar-
kerfinu á tveimur efstu hæðun-
um, eins og dvalarheimilið hefur
verið með, en á neðstu hæð eru
íbúðir eins og í Hvammsheimil-
inu. Það er mikil eftirspurn eftir
íbúðunum og fá færri en vilja,“
árferði - meðal annars vegna
þeirra snjóa- og svellalaga sem
verið hafa.
Bjarni E. Guðleifsson, ráðu-
nautur, sagði í samtali við Dag að
vegna hinna miklu svellalaga sem
nú eru sé meiri hætta á kali en oft
áður. Ef svell liggi í meira en þrjá
mánuði samfleytt sé veruleg
hætta á að grös fari að kafna og
nú séu orðnir um tveir mánuðir
síðan megnið af svellalögunum
lagðist yfir. í snjóþyngri sveitum
sagði Egill Olgeirsson, stjórnar-
formaður Dvalarheimilis aldr-
aðra sf. í samtali við Dag. IM
„Niðurfelling á krókaleyfi og
línutvöföldun er ávísun á bull-
andi atvinnuieysi, fjölskyldu-
uppflosnun, gjaldþrot og
byggðaröskun. Ég vona að
Alþingi, sem við íslendingar
höfum kosið okkur til heilla, sé
ekki svo heillum horfíð að
samþykkja þá draumsýn for-
manns og hagfræðings LÍÚ,
að leggja beri af krókakerfið
og Iínutvöföldunina,“ segir
séu dæmi um að svellalög hafi
myndast í nóvember og jafnvel í
október. Því fari kalhættan nú
vaxandi dag frá degi og ef svellin
taki ekki upp á næstu vikum megi
búast við nokkrum eða jafnvel
verulegum kalskemmdum í vor.
Þó geti hættan verið minni vegna
þess hversu svellin lögðust
snemma yfir en gróður er ekki
eins viðkvæmur fyrir svellaiögum
á fyrri hluta vetrar og þegar
lengra líður.
Bjarni sagði að vegna góðrar
veðráttu undanfarna tvo vetur
hafi engar kalskemmdir orðið og
eldri skemmdir víðast hvar
grónar. Því hafi tún verið óvenju
falleg á síðasta sumri og veðrátt-
an næstu vikur geti ráðið úrslitum
um hvort land haldist óskemmt
vegna kals. Bjarni sagðist ekki
hafa mælt jarðklaka nú en kvaðst
telja að ekki væri um meiri klaka
í jörð en í venjulegu árferði að
ræða þar sem snjóa- og svellalög-
in hlífi jörðinni nokkuð fyrir
frosti. ÞI
Sigurður Gunnarsson, trillu-
karl á Húsavík.
Sigurður segir, að það kerfi
sem trillusjómenn eigi að búa við
verði að vera innan ákveðins
ramma og um þann ramma verði
að nást samkomulag. „í mínum
huga ætti slíkt að nást. Einfald-
lega þarf að ræða við smábáta-
sjómenn, en það hefur „tvíhöfða-
nefndin" látið ógert og hún hefur
ekki einu sinni rætt við sjávarút-
Forsvarsnienn bjórverksmiðj-
unnar Yiking Brugg á Akur-
eyri hafa síðustu vikur og mán-
uði unnið stíft að því að vinna
framleiðsluvörum fyrirtækisins
markað á erlendri grundu.
Fyrstu tilraunir til útflutnings
voru til Svíþjóðar en nú er
Bretlandsmarkaður í gaum-
gæfilegri athugun.
Magnús Þorsteinsson, markaðs-
stjóri hjá Viking Brugg, vildi
hvorki játa því né neita að fyrir-
tækið væri að leita hófanna á
Bretlandsmarkaði og kvaðst í
rauninni ekkert ætla að láta hafa
eftir sér fyrr en fyrsti gámurinn
væri farinn af stað, þannig að
vegsnefnd Alþingis, sem er
lögbrot, ef ég hef skilið rétt Matt-
hías Bjarnason alþingismann,“
segir Sigurður Gunnarsson.
Sigurður bendir á samþykkt
Fiskiþings, frá í haust, sem
útgangspunkt til lausnar. Þar var
rætt um að fjölga banndögum,
leyfa 180 veiðidaga á ári, þar af
92 daga í maí, júní og júlí.
„Fiskiþing var með fleiri hug-
myndir það er lýtur að smábáta-
þessar fregnir fengust ekki stað-
festar.
Samkvæmt heimildum Dags
eru samningaumleitanir um
dreifingu á talsverðu magni af
Viking-bjór á Bretlandsmarkaði
langt komnar og líklegt að fyrsta
sendingin fari af stað um næstu
mánaðamót. Auglýsingastofa í
Bretlandi mun vera að markaðs-
setja nýtt vörumerki því
„Viking“ hefur frekar ruddalega
ímynd í Bretlandi og er sennilega
ekki sú ímynd sem forsvarsmenn
Viking Brugg vilja leggja upp
með, en eins og áður segir vildi
Magnús ekkert láta hafa eftir sér
um málið. SS
útgerð og ég lít svo á að þingið
hafi kveðið upp úr með að trillu-
sjómaðurinn þarf 30 tonn hið
minnsta sér og sínum til lífsviður-
væris. íslenskir ráðamenn ættu
nú að taka mið af samþykktum
Ríó-ráðstefnunnar þar sem rík
áhersla var lögð á að efla smá-
bátaútgerð, því staðreyndin er
sú, að smábátaútgerð er hag-
kvæmasti útgerðarmátinn og að
auki vistvænn,“ segir Sigurður
Gunnarsson. ój
Húsavík:
Útboð hjá Dvalar-
heimili aldraðra
Afnám krókakerfis og línutvöfóldunar:
Ávísun á atvinnuleysi, gjaldþrot og byggðaröskun
- segir Sigurður Gunnarsson, trillukarl á Húsavík