Dagur - 17.02.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 17. febrúar 1993
Fréttir
Þessi verklegi Toyota jeppi var á meðal tjölmargra bfla á bílasýningu hjá
Bflasölunni Stórholti um heigina en fyrirtækið er umboðsaðili Toyota á
Akureyri. Þar voru sýndir 9 sérútbúnir jeppar frá Toyota og einn óbreyttur
og vöktu þeir mikla athygli þeirra fjölmörgu gesta sem komu á sýninguna.
Auk þess voru sýndir fjölmargir aukahlutir fyrir slíka bfla, sem einnig vöktu
mikla athygli. Mynd: Robyn
Fokker 50 á íslandi í eitt ár
Mánudaginn 15. febrúar var
nákvæmlega eitt ár frá því
fyrsta Fokker 50 skrúfuþota
Flugleiða hf. kom til landsins
og var gefið nafnið Asdís á
Akureyrarflugvelli. Sjötíu þús-
und farþegar hafa flogið með
flugvélinni á árinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugleiðum hf. hefur Ásdís flogið
í meira en 1700 klukkustundir á
fyrsta aidursári sínu og lent ein-
um 2600 sinnum. „Ásdís og stall-
systur hennar, Freydís, Sigdís og
Valdís, mörkuðu tímamót í sögu
innanlandsflugs þegar þær komu
til landsins og hafa reynst hús-
bændum sínum einstaklega vel á
þessu fyrsta ári í þjónustu Flug-
leiða,“ sagði talsmaður Flugleiða
hf., Margrét H. Hauksdóttir. ój
Eyjaijörður:
Héraðsráð undirbýr stoftmn
byggðasamlags um sorpeyðingu
A næsta fundi Héraðsnefndar
Eyjafjarðar, sem verður vænt-
anlega í júní nk., er stefnt að
því að Héraðsráð Eyjafjarðar
leggi fram drög að samþykkt-
um fyrir væntanlegt byggða-
samlag um sorpeyðingu í Eyja-
firði, en eins og fram kom í
Degi sl. laugardag var sam-
þykkt á fundi Héraðsnefndar
að stefna að stofnun slíks
byggðasamlags. Að því er
stefnt að byggðasamlag hefji
rekstur á þessu ári.
„Ég held að sé alveg ljóst að
það mun gerast eitthvað mark-
vert í þessum hlutum á næstu
mánuðum, sem viðkemur úrbót-
um á urðunarstað á Glerárdal,
spilliefnum og væntanlega líka
úrvinnslu, sem snýr að pappír og
plasti. Það á eftir að ræða hversu
víðtækt byggðasamlagið verður
og hvaða þætti það tekur að sér,“
sagði Halldór Jónsson, formaður
Héraðsráðs Eyjafjarðar og
bæjarstjóri á Akureyri.
Urbætur eru aðkallandi varð-
andi þrjá þætti. í fyrsta lagi að
ganga betur frá umhverfi urðun-
arstaðar á Glerárdal, í öðru lagi
að undirbúa móttöku brota-
málma í Krossanesi við Akureyri
og í þriðja lagi að koma upp mót-
tökustöð fyrir spilliefni.
Varðandi frágang á urðunar-
stað á Glerárdal sagði Valdimar
Brynjólfsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar,
að þar væri af hálfu tæknideildar
Akureyrarbæjar unnið að undir-
búningi úrbóta. „Það þarf að
byrja á því að veita sigvatni úr
jarðveginum frá urðunarstaðn-
um. Síðan þarf að ganga frá
undirlagi og girða haugana af.
Það er mikilvægt að vinna þetta
vel, enda er talað um að urða
sorp þarna næstu árin,“ sagði
Valdimar.
Ákveðið er að hafa í framtíð-
inni tvo móttökustaði í Eyjafirði
fyrir brotamálma, annars vegar í
Olafsfirði og hins vegar í Krossa-
nesi við Akureyri. Valdimar segir
að töluverða jarðvinnu þurfi til
að ganga frá móttökusvæðinu í
Krossanesi. Skipta þurfi um jarð-
veg og malbika um 200 fermetra
Rússar til starfsþjálfunar í sjávarútvegi:
Dvelja í þrjá mánuði á vegum ýmissa sjávar-
útvegsfyrirtækja á Evjafjarðarsvæðmu
í dag koma til Akureyrar þrír
Rússar frá Murmansksvæðinu
að tilhlutan Atvinnumála-
nefndar Akureyrarbæjar sem
dvelja munu á Akureyri og
nágrenni næstu þrjá mánuði og
verða þeim fyrst og fremst
kynntar sem flestar hliðar
sjávarútvegsmála á íslandi.
Það er Iðnþróunarfélag Eyja-
fjarðar sem mun hafa veg og
vanda af gestunum fyrstu vik-
una en þá verða þeir á nám-
skeiði þar sem kynnt verður
atvinnulífið á Eyjafjarðar-
svæðinu og á það jafnt við um
iðnað, landbúnað og sjávar-
utveg.
Þá tekur við vikudvöl í
Háskólanum á Akureyri og mun
Stafnbúi, félag sjávarútvegsnema
við Háskólann, kynna þeim sjáv-
arútvegsmál. Að loknum þessum
hálfa mánuði hefst bein starfs-
þjálfun í ýmsu tengdu sjávar-
útvegi og er hugmyndin að þeir
dvelji í hálfa aðra viku hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa og
taki þar virkan þátt í vinnslu-
störfum. Síðan liggur leiðin til
Söltunarfélags Dalvíkur þar sem
þeir munu starfa við rækju-
vinnslu og þaðan liggur leiðin til
Niðursuðuverksmiðju K. Jóns-
0t$da
Síðustu dagar útsölunnar
Enn er hægt að gera dúndurkaup
Til dæmis:
Moon-Boots
st. 20-35, verð frá kr. 1.038,-
Skíða- og snjógallar
st. 8-14, verð kr. 4.560,-
Kuldaskór, leður
st. 30-45, verð frá kr. 2.754,-
Cosmo-körfuboltaskór
st. 36-45, verð kr. 2.100,-
IIIEYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
sonar & Co. á Akureyri. Áætlað
er að verja viku til að kynna
Rússunum ýmis þjónustustörf á
Akureyri, m.a. smábátaútgerð. í
fyrstu viku eftir páska tekur við
sjómennska en uppi eru áætlanir
um að senda þá miðin, bæði með
ísfisk- og frystitogara.
Það eru nokkur stór fyrirtæki
hér á Eyjafjarðarsvæðinu sem
bera hitann og þungann af starfs-
þjálfun rússnesku gestanna, en
það er hins vegar Atvinnumála-
nefnd Akureyrarbæjar sem hefur
umsjón með dagskránni. Þessi
fyrirtæki eru Iðnþróunarfélag
Éyjafjarðar, Háskólinn á Akur-
eyri, Útgerðarfélag Akureyringa,
K. Jónsson & Co., Samherji og
Slippstöðin Oddi, en síðastnefnda
fyrirtækið mun sjá um kynning-
una á þjónustu við sjávarútveg-
inn og verður víða leitað fanga af
því tilefni. GG
Félag nýrra íslend-
inga við Exjafjörð
- stofnfundur í húsnæði Háskólans á
Akureyri laugardaginn 20. febrúar
Hópur útlendinga sem búsettir
eru við Eyjafjörð vinna nú að
stofnun félags sem ber nafnið
Félag nýrra íslendinga við
Eyjafjörð. Fjölsóttir undirbún-
ingsfundir voru haldnir í des-
ember á sl. ári sem og í janúar
í ár. Þann 20. febrúar verður
stofnfundurinn haldinn í hús-
1 næði Háskólans á Akureyri við
Þórunnarstræti.
„Fimm manna undirbúnings-
nefnd hefur unnið að stofnun
félagsins og fyrirmyndin er sótt til
Reykjavíkur. Á undirbúnings-
fundunum hafa allt að fimmtíu
jmanns mætt þannig að áhuginn
er mikill. Þau eru mörg vanda-
málin sem útlendingar búsettir á
íslandi eiga við að glíma og
félagsskapur sem þessi, er við
ætlum að stofna, á að létta félags-
mönnum róðurinn auk þess sem
ýmislegt verður á dagskrá funda
til skemmtunar.
Stofnfundurinn verður laugar-
daginn 20. febrúar kl. 20,00 í
húsnæði Háskólans á Akureyri
við Þórunnarstræti og ég vil
hvetja allt erlent fólk við Eyja-
fjörð að mæta. Mikils er um vert
að heyra frá sem flestum, fólki
með mismunandi reynslu. Á
stofnfundinum mun Ólafur Odds-
son, heilsugæslulæknir, flytja
erindi er fjallar um réttindi
útlendinga til heilsugæslu á ís-
landi og Félagi nýrra íslendinga
við Eyjafjörð verður kosin
stjórn,“ segir Patrecía Turner,
sem á sæti í undirbúningsnefnd-
inni. ój
svæði.
Valdimar segir að hugmyndir
séu um að koma upp móttöku á
spillefnum á einum stað á Akur-
eyri. Nefnd um sorpmál í Eyja-
firði hafi sett fram þá hugmynd
að taka fyrst í stað á móti spilli-
efnum við áhaldahús bæjarins.
Síðar kæmi til greina að hafa
móttöku í tengslum við gáma-
svæði og endurvinnslu við
Réttarhvamm. Um þetta hafi þó
engin ákvörðun ennþá verið
tekin. óþh
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Umhverfisnefnd hefur
samþykkt að Skólagarðar
Akureyrar verði hér eftir í
umsjón forstöðumanns Ungl-
ingavinnu og að umhverfis-
stjóri breyti starfslýsingu tii
samræmis. Nefndin leggur
jafnframt til að staða forstöðu-
manns Unglingavinnu og
skólagarða verði auglýst laus
til umsóknar.
■ Atvinnumálanefnd hefur
borist tilboð frá Auglýsinga-
stofunni Auglit um endur-
prentun á bæklingi fyrir ferða-
menn, sem atvinnumálanefnd
hefur gefið út undanfarin ár.
Jafnframt var lagt fram tilboð
frá Finni Birgissyni um nýtt
kort i bæklinginn. Samþykkt
var að endurútgefa bæklinginn
á 5 tungumáium eins og síðast-
liðið sumar en hafna tilboði
Finns. Ómar Pétursson vék af
fundi undir þessum lið.
■ Kjaranefnd samþykkir að
framvegis verði færð sérstök
fundargerðarbók fyrir Fræðslu-
sjóð STAK og Akureyrarbæj-
ar. Afgreiðsiur stjórnar
Fræðslusjóðs verða ekki lagð-
ar fyrir bæjarstjórn, þar sem
afgreiðslur stjórnarinnar eru
endanlegar. Fundargerðabók-
in verði í vörslu Starfsmanna-
deildar Akureyrarbæjar.
■ Skólanefnd samþykkti á
fundi sínum nýlega, eftirfar-
andi tiliögu frá Kolbrúnu
Þormóðsdóttur, varðandi
akstur á skólalóðum: „Skóla-
nefnd beinir þeim tilmælum til
starfsmanna Akureyrarbæjar
og annarra að aka ekki vél-
knúnum ökutækjum utan
skipulagðra akstursieiða á
skólatíma nema með leyfi við-
komandi skólastjóra. Skóla-
r.efnd óskar eftir því við
tæknideild að sett verði upp
umferðarskiiti sem ákveða og
leiðbeina um lóð hvers skóla.“
■ Á fundi bæjarráðs nýlega
voru lagðir fram „minnis-
punktar" frá menningarfull-
trúa um ritun og útgáfu á sögu
Gagnfræðaskóla Akureyrar.
„Minnispunktarnir" eru teknir
saman í tilefni af erindi frá því
í nóvember sl. frá stjórnend-
um GA til skólanefndar, þar
sem leitað er stuðnings til rit-
unar og útgáfu á sögu skólans.
Bæjarráð getur ekki orðið við
erindinu eins og það liggur
fyrir.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að fela byggingadeild að láta
hanna tengibyggingu við
Bugöusíðu 1. Um er að ræða
tengingu íbúða aldraðra við
þjónustukjarna að Bugðusíðu
1.