Dagur - 17.02.1993, Side 5
Miðvikudagur 17. febrúar 1993 - DAGUR - 5
Breytingarnar á togaranum Harðbaki EA-303:
Sú ákvörðun að yinna verkið í
Póllandi sparaði ÚA 40 milljónir
- svar frá Gunnari Larsen, tæknistjóra Útgerðarfélags
Akureyringa, við lesendabréfi
ónir króna. í frávikatilboðinu var
gert ráð fyrir að verkið yrði unnið
á öðrum tíma en fram var tekið í
útboðslýsingu, tíma sem ekki
hentaði Útgerðarfélaginu.
í september 1992 samþykkti
stjórn félagsins að ganga til
samninga við pólsku skipasmíða-
stöðina Nauta. Þessi samþykkt
var gerð á grundvelli kostnaðar-
áætlunar, sem hljóðaði upp á
91,2 milljónir króna. Sambæri-
legur kostnaður ef verkið hefði
verið unnið hér heima var áætl-
Þar sem að kostnaður vegna
breytinga á togaranum Harðbaki
EA-303 hefur verið mikið í
umræðunni að undanförnu og
ekki alltaf farið rétt með stað-
reyndir í þeirri umræðu, ætla ég
að rekja gang mála hér á eftir.
Tilboð pólsku stöðvarinnar
„Nauta“ hljóðaði upp á um 37
milljónir kr. (676.070,- $). Tilboð
Slippstöðvarinnar hljóðaði upp á
66,6 milljónir króna, auk þess
skilaði Slippstöðin frávikatilboði
sem hljóðaði upp á um 63 millj-
aður 119 milljónir króna, það er
munur upp á um 28 milljónir
króna.
Ráðgert var að sandblása skip-
ið á þessu ári (þ.e. 1993), en eftir
að ljóst var að skipið færi til Pól-
lands var ákveðið að láta sand-
blása það strax. Kostnaður við
sandblástur í Póllandi er um 576
kr./m (9$/m ), en hér heima ekki
undir 2.400 kr./m! þ.e. um fjór-
faldur munur.
Endanleg kostnaðaráætlun var
því svohljóðandi:
Roy S. Shannon:
Morðvopn á nokkur hundruð og níu krónur
Það datt bæklingur frá leikfanga-
verslun inn um bréfalúguna heima
hjá mér í morgun. Hann er í öll-
um regnbogans litum og prentaður
á góðan pappír. En það var samt
tvennt sem stakk mig svo illilega
að ég gat ekki stillt mig um að
taka mér penna í hönd.
í fyrsta lagi er gert ótrúlega lít-
ið úr okkur sem ætlast er til að
verslum upp úr þessum bæklingi,
það enda nefnilega öll verð á 9
krónum!! Heldur kaupmaðurinn
virkilega að við séum svona for-
áttuvitlaus að við skynjum ekki
verð sem endar á 9? Heldur hann
að við höldum að 199 krónur séu
bara rúmur hundrað kall en að tvö
hundruð og ein sé þá hátt í þrjú
hundruð? Eða er þetta bara svona
skemmtileg tilviljun að þegar búið
er að reikna verðið út samkvæmt
fyrirfram ákveðinni aðferð þá
standi öll verð á þessari einu tölu?
Getur ekki einhver reiknifróður
sagt mér hverjar líkumar eru til
þess að 236 útreiknaðar tölur endi
allar á „9“? Ég veit mætavel að
þetta er aðferð sem virkar ágæt-
lega á ýmsar erlendar þjóðir, til
dæmis Bandaríkjamenn, en ég vil
bara vona að við séum ennþá á
hærra plani en þeir í sambandi við
auglýsingaskrum og blekkingar
við kúnnann.
Hitt sem ég má til að fá útrás á,
er að enn er verið að selja bömum
vopn. Það er alltaf verið að tala
um afvopnun. Þá sjáum við fyrir
okkur að verið sé að eyða tröll-
vöxnum eldflaugum með kjam-
orkusprengjur. En hvar á að byrja
afvopnunina? Væri ekki nær að
byrja á byrjuninni og afvopna
bömin? Við íslendingar erum oft
að monta okkur af því að við eig-
um ekki her og höfum aldrei lent í
styrjöld við nokkra þjóð. Til hvers
eiga bömin okkar þá að vera með
vopnaskak með byssum og alls
kyns fleiri útrýmingarvopnum
sem eru upprunnin úr þjóðfélög-
lýsinganna, að þekkja hismið frá
kjamanum og eigum við þó að
vera orðin nógu þroskuð til að
velja og hafna. En blessuð böm-
in, hvemig eigum við að útskýra
fyrir þeim að við eigum ekki að
kaupa viðbjóð eins og enskuböl-
vandi electróníska herriffla þó
þeir séu auglýstir eins og ýmislegt
Myndin úr bæklingnum sem greinarhöfundur gerir að umtalsefni.
um þar sem hermennska og
vopnaburður er sjálfsagður hlutur?
Hvers eiga forráðamenn bama að
gjalda að borið er inn í hús til
þeirra snepill eins og þessi þar
sem stórar litmyndir eru af alls-
konar morðvopnum í höndum
smákrakka?
Auglýsingar eru til þess gerðar
að láta þann sem þær sér og heyrir
finnast að það sem auglýst er, sé
ómissandi og nauðsynlegt hverj-
um þeim sem til er höfðað. Nógu
illa gengur okkur fullorðna fólk-
inu að þræða í gegnum skóg aug-
sem við getum illa verið án? Og
kostar ekki nema nokkur hundruð
og níu krónur, ha? Og hvemig
eigum við að útskýra fyrir þeim
að þetta er bara til þess að kaup-
maðurinn græði soldið meira,
hvaða aðferðum sem þarf að beita
til þess.
Nei, nú er mál að stinga við
fótum og ganga til liðs við ýmis
félög sem hafa það meðal annars á
stefnuskrá sinni að afvopna heim-
ilin. A skal að ósi stemma.
Roy S. Shannon.
Höfundur býr á Akureyri.
Brynjólfur Brynjólfsson:
Skrýtin viðbrögð
- athugasemd vegna pistilsins Krafan er
í helgarblaði Dags
Eins og lesendur Dags hafa séð,
hef ég skrifað greinar í Dag um
ýmislegt sem hefur vakið athygli
mína í umhverfinu. Ég hef ekki
ætlast til eða reiknað með nein-
um sérstökum viðbrögðum blaðs-
ins af því tilefni. Nú hefur það
gerst í tvígang, með ekki löngu
millibili, að ég fæ viðbrögð, sem
mér finnst vera háð, í tilefni þess-
ara skrifa.
Ég veit ekki og hef ekki kynnt
mér hver skrifar pistil með yfir-
skriftinni “Krafan er“. Ef þetta á
að vera spaug, þá er eitthvað að,
annað hvort ræður blaðamaður-
inn ekki við þetta vandasama
form eða ég er svona skyni
skroppinn. Ég hef það þó mér til
málsbóta, að ég hef lesið flest
það sem Kristinn G. Jóhannsson,
skólastjóri, hefur skrifað í blaðið
og haft af því ánægju en hann
ræður greinilega við þetta form.
Ég hitti mann á förnum vegi
fyrir löngu. Hann sagði mér að á
Degi starfaði maður, sem ætti að
hafa með höndum rannsóknar-
blaðamennsku og sér sýndist ég
geta lent í því að ögra þessum
manni í starfi óvart. Ef tilgáta
mannsins, sem ég hitti, er rétt, þá
þykir mér það slæmt, því það var
ekki tilgangurinn með þessari
áráttu minni að skrifa. Ég ætla
ekki að láta blaðamann á Degi
hrekja mig af ritvellinum, enda
er það trúlega eitthvað annað
sem honum er ætlað þarna á
blaðinu. Hvort þessi pistill er dul-
argervi hans til þess að ná til
þeirra sem hann langar til, veit ég
ekki en mér fyndist ástæða til að
leggja þennan pistil niður því
hann laðar trúlega ekki fólk að til
að skrifa.
Ég hef komið töluvert á skrif-
stofur blaðsins í sambandi við
þessi skrif mín og átt þar mjög
góðu að mæta bæði hjá Braga
Bergmann ritstjóra og starfs-
mönnum hans. Þetta fólk laðar
mann að sér með góðri og alúð-
legri framkomu. Ég hef fengið
ýmislegt að heyra vegna þessara
skrifa minna eins og við var að
búast og tek ég því vel, en þetta
finnst mér ekki passa.
Brynjólfur Brynjólfsson.
Höfundur er matreiöslumeistari á Akur-
eyri.
Harðbakur EA-303.
Liður 1: Tilboðsverð var 37
millj., aukaverk voru áætluð
15% af tilboðsverði. Aukaverk
eru ýmis smærri verk sem ekki
eru unnin innan tilboðs heldur
Samkvæmt samningi skyldi
verkinu lokið þann 8. janúar og
stöðin greiða 0,5% af samnings-
upphæð í dagsektir fyrir hvern
dag sem afhending dragist talið
Liður 1. Tilboðsverð + áætluð viðbótarverk (15%) 42,4 millj. (779.000-$)
Liður2. Sandblástur (hlutur Nauta) 3,7 millj. (67.400-$)
Liður3. Sandblástur (hlutur ÚA, málning) 3,5 millj.
Liður4. Annar kostnaður ÚA 48,8 millj.
Samtals: 98,4 millj.
samkvæmt reikningi eða eining-
arverði.
Liður 4: Allur kostnaður ÚA
sem ekki er innan tilboðs svo sem
hönnunarkostnaður, ferða- og
eftirlitskostnaður, vinna eigin
verkstæða svo og allt efni, tæki
og búnaður sem ÚA leggur til
vegna verksins. Vegur þar þyngst
spilkerfi upp á 25 milljónir
króna.
Eins og áður hefur komið fram
stóðst þessi áætlun.
frá og með 12 janúar.
Það má gera ráð fyrir að þegar
allt er talið hafi sú ákvörðun að
vinna verkið í Póllandi sparað
félaginu um 40 milljónir króna.
Þarna var því tekin rétt ákvörð-
un, sem styrkir stöðu félagsins og
stuðlar að því að tryggja atvinnu-
öryggi þeirra 450 starfsmanna,
sem hjá félaginu starfa.
Gunnar Larsen,
tæknistjóri Útgerðarfélags
Akureyringa.
LETTIB
h
Árshátíð
Hestamannafélagsins Léttis
verður í Laugarborg, laugardaginn 20. febrúar
og hefst kl. 21.00 stundvíslega.
Matur ★ Skemmtiatriði ★ Dans.
Miðasala í Hestasporti, Helgamagrastræti 30.
Takið miða tímanlega.
Takið með ykkur gesti og skemmtum
okkur saman eina kvöldstund.
Skemmtinefnd.
Nýársleikur L
Radíónausts INf.O
Spennandi leikur um góðar vörur á frábæru verði
NíesIu Ivœr viÉur verðum við með stórkostlegt vörutilðoð sem stendur yfir vifa í senn
tfimmtud.-fimmtud.).
Ef þú kemur og faupir fressar tilfaðsvörur, jpá lendir nafn þitt í lukfapotti.
Föstudaginn 5. mars kl. 17.00 verður dregið u'í að viðstöddu fjölmenni í verslun okfar eitt
nafn og fcer viðkomandi endurgreidda l>á vöru sem keypt var á einhverju ftessara vörutilboða.
INNO-HIT RR 6450 LW
Tilboðsverð kr. 19.800
eða kr. 2.612,- á mánuði í 8
mánuði*
✓ Ferðatæki með
geislaspilara, útvarpi og
tvöföldu segulbandi
✓ Geislaspilari með lagavali
✓ Útvarp með AM, FM, LW
✓ Hraðupptaka milli kasetta
• vextir og lántökukostnaður ekki inni í verðinu
ELECTROLUX RYKSUGA LITE 1630
Tilboðsverð kr. 9.900 “‘r
✓ 1000 wött
✓ Stiglaus stillanlegursogkrafur
✓ Inndraganleg snúra
✓ Mjög létt
✓ lnnbyggðir fylgihlutir
Mundu eftir því að dregið verður úr lukkupottinum föstudaginn 5. mars kl. 17.00
Þú gætir fengið endurgreitt
____rK__
grelðslu- RdDIONAIIST
kjör Geislagötu 14 • Sími 21300