Dagur - 17.02.1993, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 17. febrúar 1993
Vestfirðingakórinn á fullu „gasi“.
Konurnar í skemmtinefndinni taka lagið en þær eru Anna Guðrún Jónsdótt-
ir frá Enni í Strandasýslu, Inga Lára Backmann frá Patreksfirði og Þórunn
Jónsdóttir frá Veðrará í Önundarfirði. Framan við þær situr Sæmundur
Bjarnason, fyrrum skólastjóri í Hrísey og Þelamörk. Konuna í eldhúsdyrun-
um tókst hins vegar ekki að nafngreina. Myndir: gg
l||| Mývatnssveit
Föstudagur 19. febrúar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Hótel
Reynihlíð kl. 21. Viðtalstími verður í Seli sama dag
frá kl. 13-15.
Allir velkomnir.
Guðmundur Bjarnason, Valgerður Sverrisdóttir,
Jóhannes Geir Sigurgeirsson og Guðmundur
Stefánsson.
Framsóknarffokkurinn.
Aðalfundur
Aðalfundur Fullrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
verður haldinn í Kaupangi v/Mýrarveg fimmtu-
daginn 18. febrúar nk.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Halldór Blöndal, samgöngu-
og landbúnaðarráðherra.
Stjórn Fulltrúaráðs.
Veislustjórinn Pétur Pétursson fór
að vanda létt með að kitla hlátur-
taugar gestanna.
pönnukökur, kleinur, flatbrauð
o.fl.
Meðal skemmtiatriða var
spurningakeppni milli fulltrúa frá
þeim sýslum sem mynda Vest-
firðina og sigraði fulltrúi Norður-
ísfirðinga en spurningarnar voru
allar tengdar landafræði Vest-
og hefur á þessum þremur ára-
tugum haldið sólarkaffi fyrir
þá sem með einum eða öðrum
hætti rekja ættir sínar til Vest-
fjarða eða hafa tengst Vest-
firðingum.
Þátttaka hefur verið nokkuð
misjöfn gegnum tíðina en þegar
félagið bauð til sólarkaffis laugar-
daginn 6. febrúar sl. í Lóni á
Akureyri var húsfyllir og
skemmtu menn þar sér prýðilega
um leið og notið var hefðbund-
inna veitinga sem eru rjóma-
Hjónin Jónatan Ólafsson ættaður frá Bolungarvík og
Sigrún Halldórsdóttir sem ólst upp í Súðavík.
Friðrik Vagn Guðjónsson læknir þandi nikkuna þegar
lagið var tekið.
fjarða. Sérstakur kór söng en
hann hefur þá sérstöðu að æfing-
ar standa yfir í tiltölulega stuttan
tíma fyrir sólarkaffið og þannig
er tryggt að enginn verður leiður
á ströngum æfingum. Stjórnandi
er Gaflarinn og „tengdasonur
Patreksfjarðar“ Atli Guðlaugs-
son. Veislustjóri var Húnvetning-
urinn Pétur Pétursson en hans
betri helmingur er Bolvíkingur.
Hjónin Sigrún Halldórsdóttir,
sem er fæddur Súðvíkingur, og
Jónatan Ólafsson Bolvíkingur
fluttu til Akureyrar frá Bolungar-
vík 1971 og hafa í þessa tvo ára-
tugi sótt allar sólarkaffiskemmt-
anir. „Frá því að ég man eftir
hefur alla tíð verið haldið sér-
staklega upp á það að sæist til sól-
ar en það var 24. janúar ef bjart
var. Þess var ekki minnst með
neinni samkomu heldur hélt hver
og einn upp á það heima hjá sér
með því að baka pönnukökur og
þannig var það einnig í Súðavík.
Mér finnst að gegnum tíðina hafi
mest borið á Barðstrendingum og
Strandamönnum á sólarkaffinu
og það eru Patreksfirðingar öðr-
um fremur sem eiga heiðurinn að
kórnum sem er alveg ómissandi
hluti af sólarkaffinu,“ segir
Jónatan Ólafsson. „Mér finnst að
við Vestfirðingar getum verið
stoltir af uppruna okkar og ég
fullyrði að vestfirskir sjómenn
hafa oft á tíðum skarað fram úr
öðrum,“ segir Jónatan Ólafsson.
GG
í mörgum þröngum fjörðum I líða oft nokkrar vikur eða
og dölum landsins, einkum á mánuðir í skammdeginu svo að
Vestfjörðum og Austfjörðum, | sólin sést ekki yfir fjallabrúnir.
Þegar hún svo birtist aftur var
og er víða venja að halda upp á
það með kaffi og pönnukök-
um. Tímasetning var mjög
misjöfn eftir staðsetningu ein-
stakra bæja svo vart var um
sameiginlega hátíð að ræða í
heilu byggðarlagi. Á síðari
árum hafa hins vegar einstök
átthagafélög tekið upp þann
sið að hafa svokallað sólarkaffi
einhvern daginn í nánd við
endurkomu sólarinnar í þeirra
heimasveit. Vestfirðingafélag-
ið á Akureyri var stofnað 1964
Við þetta borð má m.a. sjá Dýrfirðing, Aðalvíking og Súðvíking.
Höndum krækt saman og sungið af hjartans lyst. F.v.: Ólafur Þórðarson,
Bjarncy Gísladóttir, Krístín Pálsdóttir, Alda Þorgrímsdóttir, Bragi Sigurðs-
son, Áslaug Kristinsdóttir og Þórhallur Matthíasson.
Raftækjaversl u n
Til sölu raftækjaverslun á Akureyri með góðum
umboðum og tryggum viðskiptavinum.
Möguleiki á sölu reksturs meö eða án húsnæöis á
mjög góðum staö í bænum.
Athugið sveigjanleg greiðslukjör.
Nánari upplýsingar veittar hjá fasteignasölunni.
Fasteignasalan hf.,
||3 Gránufélagsgötu 4, efri hæð
Sími 96-21878, fax nr.: 96-11878.
Opið frá kl. 10-12 og 13-17.
Traust þjónusta í 20 ár.
Sólarkaffi Vestfirðinga:
Æfingar Vestfirðingakórsins standa
það stutt að enginn verður leiður