Dagur - 17.02.1993, Page 7
Miðvikudagur 17. febrúar 1993 - DAGUR - 7
Heimahlynning einstaklinga með krabbamein:
Um tíma hefur farið fram sam-
starf milli starfsfólks Fjórð-
ungssjúkrahússins og Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri
um hjúkrun í heimahúsum sem
felst í aðhlynningu krabba-
meinssjúklinga sem eru með
sjúkdóminn á ólæknandi stigi.
Það er blandaður hópur sem
sinnir þessu málefni, þ.m.t.
hjúkrunarfræðingar, læknar,
geðlæknar, prestar og sjúkra-
liðar. Upphaf þessa samstarfs
er kynning um líknarfræðslu
og heimahlynningu á vegum
Heimahlynningar í Reykjavík
á árinu 1989 og hefur þessi
hópur sem áður er getið sinnt
sjúklingum sl. þrjú ár í litlum
mæli og stuðlað að fræðslu er
tengist líknarmeðferð, svo sem
verkjameðferð, sorg, hug-
myndarfræði Hospice (líknar-
meðferð) o.fl.
Hugmyndafræði Hospice er
ákveðið hugtak yfir meðferð
sjúklinga þar sem lækning ákveð-
ins sjúkdóms er ekki lengur
möguleg og hjá hópnum á Akur-
eyri er sérstaklega verið að hugsa
um aðhlynningu krabbameins-
sjúklinga þótt fleiri glími við
ólæknandi sjúkdóma. Segja má
að þetta starf hafi farið hægt af
stað en hafi verið smám saman að
vinda upp á sig, en ekki er gott að
gera sér hugmyndir um hvernig
það þróast og hvort aðhlynningin
muni í framtíðinni beinast að
fleirum en krabbameinssjúkling-
um.
arar til þessa starfs og í framhaldi
af því myndað sér skoðanir og
gert sér grein fyrir því hvernig
hægt væri með sem hagkvæm-
asta hætti að sinna þessu starfi
sjúklingar eða aðstandendur
þeirra snúið sér ef þeir vilja leita
aðstoðar?
Þær stöllur telja nauðsynlegt
að starfsemin geti verið það víð-
ustu en vart hefur orðið við það
að fólk hefur ekki vitað hvert eigi
að leita í þessum tilfellum. Þær
upplýsingar er að fá hjá læknum
og hjúkrunarfólki Heilsugæslu-
skyldur eru lagðar þeim á herðar
til þess að sjúklingurinn geti ver-
ið sem lengst heima meðal ást-
vina sinna. Áríðandi er að bæði
sjúklingur og aðstandendur geri
sér ljóst að þrátt fyrir þessa líkn-
arhjúkrun þá lokast engar leiðir
til þess að sjúklingur geti lagst
inn á sjúkrahús og fengið þá
meðferð sem þar er veitt. Heima-
hlynningin er sjúklingnum algjör-
lega að kostnaðarlausu. Oft
finnst sjúklingi að hann sé að
leggja óþarflega miklar byrðar og
skyldur á sína nánustu ættingja
með því að vera heima. Með
stuðningi heimahlynningar er
það í flestum tilfellum léttara fyr-
ir hann að taka þá ákvörðun að
vera heima.
Ekki er hægt að ætlast til að
sjúklingur eða aðstandendur hafi
þá þekkingu eða aðstæður til að
hafa frumkvæði og framkvæmd á
eigin meðferð og því þurfa að
vera tiltækar upplýsingar um
meðferð þannig að hægt sé að
finna viðunandi lausn fyrir sjúkl-
inginn. Sjúklingi og aðstandend-
um er kennt að gera það sem þeir
geta af umönnun og meðferð og
hjálpar það oft fólki til að losna
við kvíða og ótta eftir því sem
mögulegt er. Það er oft vandamál
hvernig á að umgangast og tala
við sjúkling með ólæknandi sjúk-
dóm og oft einangrar sjúklingur-
inn sig og vill ekki vera byrði á
aðstandendum.
Hjúkrunarfræðingarnir Valgerður Jónsdóttir, Vigdís Steinþórsdóttir og Elísabet Hjörleifsdóttir hafa haft frum-
kvæði að því að blönduðum hópi sem sinnir málefnum krabbameinssjúklinga hefur verið komið á fót. Mynd: gg
Geftir fólki möguleika á lengri
dvöl heima með Qölskyldunni
Hjúkrunarfræðingarnir Val-
gerður Jónsdóttir, Vigdís Stein-
þórsdóttir og Elísabet Hjörleifs-
dóttir segja að þær hafi verið að
kynnast viðhorfum hverrar ann-
þannig að það kæmi krabbameins-
sjúklingunum og aðstandendum
þeirra að sem bestum notum.
En hvert geta krabbameins-
feðmin að allir þeir sem eru með
ólæknandi krabbamein og vilja
dvelja sem lengst heima hjá ætt-
ingjum geti notið þessarar þjón-
Hljómsveitin Herramenn:
Skemmtir Islendingum í Stuttgart
Skagfirska hljómsveitin
Herramenn er nú á förum til
Þýskalands tO að spila á þorra-
blóti Islendingafélagsins í
Stuttgart. Þeir félagar hafa
annars nóg að gera við að
spila og segjast uppteknir all-
ar helgar.
Blaðamaður leit við á æfingu
hjá Herramönnum nýverið.
Þeir voru að æfa fyrir utan-
landsferðina, en kváðust annars
á leið suður þar sem þeir verða
við upptökur á sumarsmellun-
um. Þeir halda svo til Þýska-
lands á fimmtudag til að
skemmta á þorrablóti íslend-
ingafélagsins í Stuttgart nk.
laugardagskvöld. Einnig munu
þeir koma fram í klúbbi þar í
borg á sunnudagskvöldið.
Að sögn þeirra félaga bauðst
þeim einnig að fara til Svíþjóð-
ar að skemmta á þorrablóti þar
eins og þeir gerðu í fyrra. Þeir
ætla þó að láta Stuttgart nægja
þetta árið, enda slíkar ferðir
meira til tilbreytingar en sem
gróðavegur.
Hljómsveitina Herramenn
skipa þeir Arnar Kjartansson,
Birkir L. Guðmundsson, Hörð-
ur G. Ólafsson, Kristján Gísla-
son og Svavar B. Sigurðsson.
sþ
Herramenn: Ætla að láta Stuttgart nægja þetta árið utan lands.
stöðvarinnar og einnig hjá lækn-
um og hjúkrunarfólki Fjórðungs-
sjúkrahússins. Þar sem heima-
hjúkrunin getur enn ekki boðið
upp á sólarhringsþjónustu þá
kemur heimahlynningin þar til
skjalanna og brúar það bil sem
skapast t.d. á kvöldin og nóttunni
ýmist með vitjunum eða bak-
vöktum. Þeir læknar eða hjúkr-
unarfræðingar sem hafa haft við-
komandi sjúkling í meðferð geta
bent sjúklingnum á hvert skuli
leita sé óskað eftir þjónustunni.
Viðbót við
heilbrigðisþjónustuna
Þess ber að geta að heimahlynn-
ing er hrein viðbót við þá þjón-
ustu sem krabbameinssjúklingar
njóta hjá heilbigðisþjónustunni
eins og t.d. hjá heimahjúkrun
Heilsugæslustöðvarinnar eða
Fjórðungssjúkrahúsinu og það
gerir þeim kleyft að vera lengur
heima og jafnframt veikari
heima. Það er hins vegar lykilatr-
iði í þjónustu heimahlynningar
að fjölskylda sjúklingsins taki
virkan þátt í aðhlynningunni t.d.
með því að vera þess fullkomlega
meðvituð í hverju aðhlynningin
felst því augljóst má vera að ekki
er hægt að dvelja allan sólar-
hringinn hjá sjúklingnum. Bak-
vaktir tryggja að möguleikar eru
á að leita strax hjálpar ef nauðsyn
krefur og auðvelt er að ná sam-
bandi því hún er með símboða-
kerfi.
Skyldur aðstandenda
Eitt hið fyrsta sem gert er þegar
beðið er um aðhlynningu er
að sest er niður með aðstandend-
um og þeim gert ljóst hvaða
Lengri dvöl í heimahúsum
Þessi aðstoð þýðir í raun að
sjúklingurinn getur verið heima
um tíma en getur þurft að fara á
sjúkrahús tímabundið og síðan
aftur heim. Þá þarf sú hugsun
ekki að eiga sér stað að ef farið er
á sjúkrahús þá eigi sjúklingurinn
ekki þaðan afturkvæmt því með
umræddri aðstoð er þeim mögu-
leika alltaf haldið opnum og í
sumum tilfellum deyr hann
heima. Það er ekki eingöngu
meðferð sjúklingsins sem höfð er
í heiðri heldur er einnig verið að
fyrirbyggja alvarleg áföll hjá
maka og fjölskyldu sjúklingsins.
Jafnframt er að nokkru leyti kom-
ið í veg fyrir að upp komi sú sekt-
arkennd hjá ættingjunum að
kannski hefði verið hægt að gera
meira til að koma til móts við
óskir sjúklingsins. Allir vita
hversu dýrmætt það getur verið í
minningunni að hafa átt sameig-
inlega jólahátíð, páska eða aðrar
gleðistundir í fjölskyldunni.
Ekki er vitað hversu margir
eru í þörf fyrir þessa þjónustu en
nú þegar hægt verður að bjóða
upp á örugga sólarhringsþjónustu
þá skýrast nokkuð línur. Það er
enn allóljóst í hugum margra
hvað felst í heimahlynningu
krabbameinssjúklinga og jafnvel
óljóst hverjir eigi þess kost að
njóta hennar. í Reykjavík hefur
sams konar starfsemi verið síðan
1987 og er mjög vaxandi og þykir
orðið sjálfsagður hlutur í heildar-
meðferð á krabbameinssjúkling-
um. Segja má að krabbameins-
sjúkdómurinn spyrji ekki um ald-
ur og því leitar fólk á ýmsum
aldri eftir þessari aðstoð, ekki
síst fólk á miðjum aldri sem vill
vera heima og hafa hönd í bagga
með fjölskyldulífinu eins lengi og
mögulegt er. GG