Dagur - 17.02.1993, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 17. febrúar 1993
Kýr til sölu!
Til sölu tvær kýr, komnar að burði.
Uppl. í síma 21952.
íbúð tll leigu.
3ja herb. (búð til leigu á Akureyri.
Uppl. í síma 91 -675446 eða fax 91 -
672846.
Félagsvist Mánakórsins.
Fyrsta spilakvöldið af fjórum verður
í Freyjulundi laugardagskvöldið
20. febrúar kl. 21.00.
Kvöld- og heildarverðlaun.
Kaffiveitingar.
Seldir verða áritaðir pennar.
Mánakórinn.
Vinna - Leiga.
Gólfsögun, veggsögun, malbiks-
sögun, kjarnaborun, múrhamrar,
höggborvélar, loftpressur, vatns-
sugur, vatnsdælur, ryksugur, loft-
sugur, háþrýstidælur, haugsuga,
stíflulosanir, rafstöðvar, mini-grafa,
dráttarvél 4x4, pallaleiga, jarðvegs-
þjöppur, steypuhrærivélar, hefti-
byssur, pússikubbár, flísaskerar,
keðjusagir o.fl.
Ný símanúmer:
96-11172, 96-11162, 985-23762,
984-55062, símboði.
Til sölu Massey Ferguson dráttarvél
3060 FWD, Turbo árg. 1987, m/
snjótönn. Á sama stað ný snjótönn
1x3 m/vökvask. og nýr fjölplógur
fyrir dráttarvél eða gröfu.
Uppl. hjá Vélaverkstæðinu Árteigi,
sími 96-43500.
Tökum að okkur daglegar ræst-
ingar fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Ennfremur allar hreingerningar,
teppahreinsun og gluggaþvott.
Ný og fullkomin tæki.
Securitas, ræstingadeild, símar
26261 og 25603.
Hreingerningar, teppahreinsun,
þvottur á rimlagardínum, leysum
upp gamalt bón og bónum.
Tökum að okkur hreingerningar,
teppahreinsun og bón í heimahús-
um og fyrirtækjum.
Þvoum rimlagardínur, tökum niður
og setjum upp.
Fjölhreinsun, Fjölnisgötu 6c,
Inga Guðmundsdóttir,
heimasímar 25296 og 985-39710.
Gengið
Gengisskráning nr. 31
16. febrúar 1993
Kaup Sala
Dollarl 65,10000 65,24000
Sterlingsp. 93,07000 93,27000
Kanadadollar 51,90400 52,01500
Dönsk kr. 10,29430 10,31640
Norskkr. 9,27950 9,29940
Sænsk kr. 8,71170 8,73040
Finnskt mark 11,08840 11,11220
Fransk. franki 11,66670 11,69180
Belg. franki 1,91410 1,91830
Svissn. franki 42,52120 42,61270
Hollen. gyllinl 35,05180 35,12720
Þýskt mark 39,45340 39,53820
itölsk Ifra 0,04208 0,04217
Austurr. sch. 5,60840 5,62050
Port. escudo 0,43220 0,43320
Spá. peseti 0,55220 0,55340
Japanskt yen 0,54106 0,54222
írskt pund 96,26300 96,47000
SDR 89,20650 89,39840
ECU, evr.m. 76,59340 76,75810
1 '■ i 1 - .v'
Leikfélai! Akureyrar
Utlendingurinn
gamanleikur
eftir Larry Shue
Næstu sýningar:
Lau. 20. feb. kl. 20.30.
Síðasta sýning.
Miðasala er í Samkomuhúsinu,
Hafnarstærti 57, alla virka daga
nema mánudaga kl. 14 til 18 og
sýningardaga fram að sýningu.
Símsvari fyrir miðapantanir allan
sólarhringinn. Greiðslukortaþjónusta.
Sfmi f miðasölu: (96) 24073.
BORGARBÍÓ
KULNAHRIB
fiWl
N L E
Salur A
Miðvikudagur
Kl. 9.00 Rapid fire
Kl. 11.00 Raddir í myrkri
Fimmtudagur
Kl. 9.00 Rapid Fire
Kl. 11.00 Raddir i myrkri
Salur B
Miðvikudagur
Kl. 9.00 Kaliforníumaðurinn
Kl. 11.00 Stay tuned
Fimmtudagur
Kl. 9.00 Kaliforníumaðurinn
Kl. 11.00 Stay tuned
BORGARBÍÓ
© 23500
Saumavinna.
Tek að mér hverskonar saumaverk-
efni.
Verð í versluninni Pálínu, Sunnu-
hlíð, á miðvikudögum kl. 16-18.
Þórunn, sími 26838.
Til sölu:
Commodore AMIGA-500 tölva með
1Mb minni, stækkanlegt í 6Mb,
VGA/Multisync skjákorti og skjá. 50
forritadiskar fylgja. verð kr. 40.000.
Einnig til sölu 20Mb harðdiskur fyrir
AMIGA-500 tölvu. Verð kr. 10.000.
Uppl. í síma 96-22598 eftir kl. 17.
gerðinni
Til sölu þvottavél
Alda með þurrkara.
Hún er tíu ára gömul og hefur alla
tíð gengið eins og klukka.
Aldaferfyrir litið (8-10.000 krónur).
Upplýsingar í síma 96-22140.
Takið eftir!
Til leigu bílskúr með hita og raf-
magni.
Einnig til sölu Fiat Regata 70. Ekinn
64 þús., skoðaður ’94.
Arctic Cat Cheetah árg. ’88, rafstart
og bakkgír.
Antik billiardborð.
Varahlutir í VW Bjöllu.
Peugout 504 og 505. Colt ’81 árg.
Daihatsu '81. Skipti ath.
Símar 25344 og 24311 eftir kl. 16.
I.O.O.F. 2 = 1742198'/2 = 9 I
Spilakvöld Sjálfsbjargar.
Spilum félagsvist í
félagssal að Bjargi,
Bugðusíðu 1, fimmtu-
daginn 18. febrúar kl. 20.
Mætum stundvíslega.
Góð verðlaun.
Spilanefnd Sjálfsbjargar.
Bæna- og lofgjörðarstund verður í
Glerárkirkju miðvikudaginn 17.
febrúar kl. 20.30 og er hún til undir-
búnings fyrir Billy Graham sam-
komur er verða í Glerárkirkju 17.-
21. mars nk.
Allir velkomnir.
Nefndin.
Glerárkirkja.
Kyrrðarstund í dag kl. 12.00. Orgel-
leikur í 10 mínútur. Fyrirbænir, alt-
arisganga og léttur málsverður í
safnaðarheimilinu að stundinni Iok-
inni.
Sóknarprestur.
Hjálpræöisherinn.
Miðvikud. 17. feb. kl.
20.30 almenn samkoma.
Fimmtud. 18. feb. kl.
20.30 almenn samkoma.
Föstud. 19. feb. kl. 20.30 almenn
samkoma.
Guðfinna Jóhannesdóttir og Daníel
Óskarsson stjórna og tala.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Félagsmálaráðuneytinu falin
yfirstjóm bamavemdarmála
Hinn 1. janúar 1993 tóku gildi
ný Iög um vernd barna og ung-
menna, nr. 58/1992. Sam-
kvæmt þeim er félagsmála-
ráðuneytinu falin yfírsjón
barnaverndarmála í stað
menntamálaráðuneytis áður.
Á grundvelli nýju laganna
skipaði félagsmálaráðherra frá 1.
janúar 1993 til 1. janúar 1997
eftirtalda þrjá menn í barna-
verndarráð: Áðalmenn: Sigríður
Ingvarsdóttir, héraðsdómari, for-
maður; Jón R. Kristinsson, lækn-
ir og Guðfinna Eydal, sálfræðing-
ur. Varamenn: Ragnheiður
Thorlacius, lögmaður, varafor-
maður; Valgerður Baldursdóttir,
læknir og Vilhjálmur Árnason,
dósent.
Samkvæmt 9. gr. laga um
vernd barna og ungmenna er
hlutverk barnaverndarráðs að
fara með úrskurðarvald í þeim
málum sem skotið er til ráðsins,
sbr. nánar ákvæði þeirrá laga.
Samkvæmt 3. gr. sömu laga
skal félagsmálaráðuneytið hins
vegar m.a. eiga frumkvæði að
þróunarstarfi og rannsóknum á
sviði barnaverndar. Það skal
veita barnaverndarnefndum leið-
beiningar og ráðgjöf varðandi
fjölskylduvernd og úrlausn
barnaverndarmála. Þá skal ráðu-
neytið hafa eftirlit með störfum
allra barnaverndarnefnda á land-
inu, heimta frá þeim ársskýrslur
og gefa árlega út skýrslu um
starfsemi barnaverndaryfirvalda.
Ennfremur ber ráðuneytinu að
annast fræðslustarfsemi fyrir þá
sem starfa að barnaverndarmál-
um.
Nauðganir og önnur manii-
réttindabrot viðgangast enn
- í Bosníu-Herzegóvínu að sögn
Amnesty International
Mannréttindasamtökin Amnesty
Intemational hafa staðfest að
konur í Bosníu-Herzegóvínu
væru valdar sérstaklega út af
herjum í landinu til að þola
skelfilega valdbeitingu, nauðgan-
ir og aðrar kynferðislegar mis-
þyrmingar.
„Kynferðislegt ofbeldi er al-
gengt og oft framið eftir fyrirfram
ákveðnum áætlunum,“ segir í
Safnahúsið Hvoll, Dalvík.
Opið á sunnudögum frá kl. 14-17.
Náttúrugripasafnið, Hafnarstræti
81, sími 22983.
Opið sunnudaga frá kl. 13-16.
Stígamót, samtök kvenna gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi. Símatími til kl.
19.00 í síma 91-626868.
Frá Sálarrannsóknar-
félagi Akureyrar.
r-y íris Hall miðill starfar hjá
félaginu dagana 18.-26.
febrúar. Tímapantanir á
einkafundi fara fram miðvikudaginn
17. febrúar frá kl. 16-18 í símum
12147 og 27677.
Stjórnin.
Samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð verða með
fyrirlestur í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20.30.
Guðrún Sigbjörnsdóttir talar um
tryggingamál. Hver kannast ekki
við að villast í frumskógi trygging-
anna þegar hann ætlar að kanna
hver réttur hans er hjá almanna-
tryggingakerfinu, og sömuleiðis
hverjir, og hvenær maður á rétt á
bótum. Og hvar fær maður upplýs-
ingar?
Á fyrirlesturinn eru allir velkomnir.
Stjórnin.
annarri af tveimur nýjum skýrsl-
um samtakanna um Bosníu-
Herzegóvínu, sem út komu
nýlega. „Ofbeldið virðist fylgja
mynstri kynþáttaofsókna, sem
því miður hefur einkennt stríðið í
landinu, og konur hafa stundum
verið teknar til fanga af hermönn-
um sérstaklega til að nauðga
þeim.“
í skýrslunni eru nefnd dæmi
um konur sem hefur verið nauðg-
að á heimilum sínum, í fanga-
búðum eða á hótelum og öðrum
byggingum þar sem þær hafa ver-
ið í haldi. Hermenn allra aðila
stríðsins hafa gerst nauðgarar og
konur úr öllum stéttum og þjóð-
félagshópum hafa orðið fórnar-
lömb. Þó hafa múslímskar
konur, sem nauðgað hefur verið
af serbneskum hermönnum, vér-
ið í meirihluta.
í einu slíku tilviki hefur 17 ára
gömul múslímsk stúlka sagt lækni
frá því, hvernig Serbar tóku hana
ásamt fleiri konum úr þorpi
þeirra og fluttu þær í húskofa út í
skógi. Henni var haldið þar í þrjá
mánuði ásamt 23 öðrum konum.
Stúlkunni og 12 öðrum konum
var nauðgað hvað eftir annað,
fyrir framan hinar konurnar.
Þegar þær reyndu að koma fórn-
arlömbunum til bjargar voru þær
barðar niður af hermönnum.
Þó erfitt sé að fullyrða með
vissu að nauðganir séu meðvitað
notaðar af yfirmönnum herjanna
sem vopn í stríðinu, er augljóst
að foringjar herdeilda vita af
þeim og samþykkja þær.
„Almenningur víða um heim
hefur fengið nóg af ógnum þeim
sem viðgengist hafa í fangabúð-
um í Bosníu-Herzegóvínu, en
herirnir sjálfir halda áfram að
brjóta mannréttindi,“ segir í yfir-
lýsingu Amnesty International.
Nú er spurningin bara hvort ein-
hverjum, sem hefur vald til þess,
er nógu annt um fólkið í þessum
löndum til að stöðva mannrétt-
indabrotin?
Forsjárlausir foreldrar og
meðlagsgreiðendur Norðurlandi.
Fundur verður
haldinn á Akureyri fimmtudaginn 18. febrúar kl.
20.30 í Alþýðuhúsinu 4. hæð.
Stjórnin.