Dagur - 17.02.1993, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 17. febrúar 1993 - DAGUR - 11
ÍÞRÓTTIR
Halldór Arinbjarnarson
Þýska knattspyrnan:
Eyjólfur Sverrisson talinn
eiga fast sæti í liðinu
- keppnin í úrvalsdeildinni hefst um helgina
Keppni hefst að nýju í þýsku
úrvalsdeildinni um næstu helgi
og þá leika Eyjólfur Sverrisson
og félagar í Stuttgart við
Hamburger. Ekkert hefur ver-
ið leikið í úrvalsdeildinni sl. 2
mánuði en tíminn notaður til
ælinga. Eyjólfur Sverrisson
skoraði 3 mörk í 2 æfingaleikj-
um í Portúgal fyrir stuttu og
virðist eiga tryggt sæti í liðinu.
Eyjólfur hefur verið að festa
sig í sessi sem einn af betri miðju-
mönnum Evrópu og að undan-
förnu hefur hann leikið vinstra
megin á miðjunni. Stuttgart er nú
í 7. sæti deildarinnar og hefur
frammistaða liðsins valdið nokkr-
um vonbrigðum, en liðið er þýskur
meistari sem kunnugt er. Bayern
Múnchen er í efsta sæti með 25
stig, 6 stigum á undan Stuttgart.
Bocciamót á Húsavík:
Fjáröfluimi gekk
vonum framar
Kristbjörn Óskarsson fór fremstur í
flokki boccialiðs Völsungs.
Akureyrarmót í
svigi og stórsvigi
Um helgina var haldið boccia-
mót á Húsavík. Mótið var
haldið í samvinnu útskriftar-
árgangs Framhaldsskólans og
bocciadeildar Völsungs og var
ijáröflunarleið þessara aðila.
Mótið stóð yfir frá 10 á laugar-
dagsmorgni og lauk seinni
partinn.
Fjáröflunin gekk mjög vel og
mótið ekki síður. Keppnisfyrir-
komulag var þannig að útskrift-
arnemar og meðlimir boccia-
deildar kepptu innbyrðis og inn á
milli var skotið viðureignum milli
tveggja fyrirtækja. Úrslit urðu
þau að bocciadeildin sigraði
samanlagt í viðureignum sínum
við útskriftarárganginn. Leikar
fóru 17:15. Úrslit í viðureignum
fyrirtækja og stofnana urðu þessi:
Bæjarstjóri-Sýslumaður 6:3
Kiwanis-Sambýli starfsf. 4:9
Landsbanki-íslandsbanki 7:3
Lögregla-Slökkvilið 11:7
Íþróttakennarar-Útskriftarnemar 8:7
Foreldarar-Boccialið 6:5
Kiwanis-Sambýli starfsf. 11:2
Eldri borgarar-Boccialið 8:4
Dagur-Víkurblaðið 5:2
Eyjólfur Sverrisson á fullri ferð í leik með Stuttgart. Hann var á skotskónum
í Portúgal fyrir skömmu.
í frétt af Akureyrarmóti í svigi
og stórsvigi í gær féllu niður
nöfn þeirra sem höfnuðu í
þremur efstu sætunum í svigi
12 ára drengja.
Þetta voru þeir Jóhann Þór-
hallsson sem varð fyrstur á tíman-
um 1:04,23, Ólafur Ragnar Sig-
urðsson varð annar á 1:18,13 og í
3. sæti varð Erlingur Óðinsson á
tímanum 1:40,99.
Aukin samvinna aðildarfélaga UMSE framan Akureyrar:
Stoftiiui íþróttadeildar í burðarliðnum
Aðildarfélög UMSE hyggja nú
á aukna samvinnu á íþrótta-
sviðinu. í bígerð er að stofna
sérstaka íþróttadeild nokkurra
félaga. Ekki er endilega talið
að þessi aukna samvinna sé
fyrirboði sameiningar félag-
anna, heldur telja menn hyggi-
Landsliðið í handknattleik:
Þorbergur velur hópinn
sem fer til Frakklands
- fyrsti leikur á fimmtudag
Bjarki Sigurðsson, hornamaðurinn snjalli, kemur nú á ný inn í landsliðið eft-
ir langvinn meiðsl.
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik,
hefur valið 16 leikmenn sem
fara með landsliðinu til Frakk-
lands og taka þátt í Tournoi de
France, fjögurra landa móti í
borginni Becancon.
Hópurinn er skipaður eftir-
töldum leikmönnum:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val.
Bergsveinn Bergsveinsson, FH.
Sigmar Þ. Óskarsson, ÍBV.
Konráð Olavson, Dortmund.
Gunnar Beinteinsson, FH.
Gústaf Bjarnason, Selfossi.
Geir Sveinsson, Val.
Bjarki Sigurðsson, Víkingi.
Héðinn Gilsson, Dússeldorf.
Einar G. Sigurðsson, Selfossi.
Patrekur Jóhannesson, Stjörnunni.
Júlíus Jónasson, Paris SG.
Gunnar Gunnarsson, Víkingi.
Guðjón Árnason, FH.
Sigurður Bjarnason, Grosswaldst.
Sigurður Sveinsson, Selfossi.
Fyrsti leikur íslendinga verður
nk. fimmtudag 18. febrúar kl.
18.30 að íslenskum tíma. Þá
verður leikið gegn Tékkum. Dag-
inn eftir kl. 18 verða andstæðing-
arnir Svisslendingar og á sunnu-
daginn kl. 14.30 mætast Frakkar
og íslendingar.
legra að sameina krafta sína og
nýta betur þjálfara og annað.
Félögin sem hér um ræðir eru
Vorboðinn, Framtíðin, Árroðinn
og Æskan á Svalbarðsströnd.
Reyndar munu margir úr Vor-
boðanum þegar hafa gengið yfir í
Framtíðina. íþróttadeildin sem
þessi félög ætla að stofna, á að
hafa sjálfstæðan fjárhag en verð-
ur að sjálfsögðu styrkt af félögun-
um sjálfum. Til að þetta gangi í
gegn þarf að samþykkja stofnun
deildarinnar á aðalfundum hvers
félags og síðan leggja hana undir
ársþing UMSE, sem að þessu
sinni verður 27. febrúar nk.
Sum félögin hafa þegar gefið
samþykki sitt. Sú var t.d. raunin
á aðalfundi Framtíðarinnar sl.
sunnudag. Bragi Konráðsson,
fráfarandi formaður félagsins,
sagðist telja næsta víst að af
stofnun íþróttadeildarinnar yrði
og einnig taldi hann stjórn
UMSE ekki vera málinu afhuga.
Fyrirhugað er að æfingar verði til
skiptis á Svalbarðsströnd, Hrafna-
gili og jafnvel víðar, til að ferða-
kostnaður dreifist jafnar niður.
Körfubolti, drengjaflokkur:
þór keppti í
Vestmaimaejium
Um sl. helgi var haldið fjölliða-
mót í drengjaflokki í Vest-
mannaeyjum. Týr sá um mót-
ið, sem var í C-riðli, en til þess
voru mætt lið frá IR, Val og
Þór Akureyri.
Þórsurum gekk ekki sérlega
veð að þessu sinni. Þeir unnu
Val-b 59:48 en töpuðu 61:66 fyrir
ÍR og 55:78 fyrir Tý. Eiður
Pálmason var stigahæstur Þórs-
ara með 50 stig, Þórður Stein-
dórsson skoraði 43, Haukur
Kjartansson 27, Guðbrandur
Þorkelsson 23, Jón Guðnason 14,
Elvar Óskarsson 14 og Hermann
Rúnarsson 4.
Blönduós:
Uppsveifla í
öflu íþróttalífl
Mikil uppsveifla hefur orðið í
íþróttalífi Blönduósinga og
nágrannabyggða með tilkomu
íþróttahússins á Blönduósi.
Skemmst er að minnast Iands-
leiksins sem þar fór fram um
áramótin og hyggja menn jafn-
vel á frekari landvinninga í
þeim efnum.
Um næstu helgi verður nýbak-
aður íslandsmeistari í badminton,
Broddi Kristjánsson, staddur á
Blönduósi og mun þá verða með
æfingar í íþróttahúsinu bæði á
sunnudag og laugardag. Eftir
helgina er síðan von á Torfa
Magnússyni, landsliðsþjálfara í
körfuknattleik, í svipuðum
erindagjörðum.
Vitað er að forráðamenn
íþróttamála á Blönduósi hafa hug
á að kanna möguleika þess að fá
leiki og jafnvel heilan riðil, í HM
í handknattleik 1995. Sú vinna
mun þó vera á algeru frumstigi
enn sem komið er.