Dagur - 17.02.1993, Síða 12
Starfsmenn K. Jónssonar & Co. funduðu
með verkalýðsfélaginu:
Laun um 7,5% lægri en
atvinnuleysisbætur
- eftir uppsögn kaupaukasamninga
Snjóbros!
Mynd: -KK
Menntamálaráðuneytið:
Mælt með Guðríði Sigurðardóttur
sem ráðuneytisstjóra
- skólameistararnir Jón Hjartarson og Tryggvi Gíslason
meðal umsækjenda
Verkalýðsfélagið Eining á
Akureyri boðaði þá starfs-
menn Niðursuðuverksmiðju
K. Jónssonar & Co. á Akur-
eyri sem eru í Einingu til fund-
ar síðdegis í fyrradag í Alþýðu-
húsinu. Þar var rædd uppsögn
fyrirtækisins á kaupaukasamn-
Prentsmiðjan Ásprent:
Vill heildar-
stefiiu varðandi
útboð á vegum
bæjarms
Prentsmiðjan Ásprent á Akur-
eyri hefur sent bréf til bæjar-
yfirvalda á Akureyri þar sem
bent er á nauðsyn þess að
Akureyrarbær móti heildar-
stefnu varðandi útboð á vegum
bæjarins og hlutdeild fyrir-
tækja á Akureyri í þeim. Rósa
Guðmundsdóttir hjá Ásprenti
segir að þessu erindi hafi verið
tekið vel.
„í þessu bréfi bendum við til
dæmis á verk eins og ársskýrslu
Akureyrarbæjar, sem við höfum
verið að rífast út af í mörg ár.
Við bendum á að Akureyrarbær
semur við auglýsingastofur um
umsjón verks og þar með er verk-
ið algjörlega komið úr umsjón
bæjarins. Ekkert er fylgst með
því t.d. hvar verkið er prentað og
í mörgum tilfellum fá prentsmiðj-
ur hérna í bænum ekki tækifæri
til að gera tilboð í verkið. Okkur
finnst eðlilegt að við höfum tæki-
færi til þess eins og prentsmiðjur
utan Akureyrar að senda inn
tilboð. Þannig væri allrar sann-
girni gætt,“ sagði Rósa Guð-
mundsdóttir.
Hún sagði að dæmi væri um
fleiri nýleg verk sem aðilar á
Akureyri hafi látið vinna en
prentsmiðjur á Akureyri ekki
fengið að bjóða í. Nærtækt dæmi
væri dagatal Kaupfélags Eyfirð-
inga fyrir 1993. „Það kom fram í
athugasemd frá markaðsdeild
KEA í þessu sambandi að verð-
tilboð héðan í þetta verk hafi ver-
ið allt að 40% hærri en frá prent-
smiðjum í Reykjavík. Ég spyr
bara hvernig hægt sé að fullyrða
svona þegar prentsmiðjum hér í
bænum var ekki gefið tækifæri til
að bjóða í verkið,“ sagði Rósa.
óþh
Maður fannst látinn
Maður sem leit var hafin að
frá Akureyri síðdegis á
mánudag fannst látinn þá
um kvöldið.
Mannsins var saknað á
mánudag og var leit fljótlega
hafin. Sem fyrr segir bar leitin
árangur á mánudagskvöld og
var maðurinn þá látinn.
ingi við Einingarfélaga, en
með uppsögn hans lækka laun
starfsmanna frá 17% og allt
upp í 25%. Stjóm K. Jónssonar
& Co. var að loknum fundin-
um send ályktun vegna þessa
máls en stjórnarformaður
félagsins vildi ekki tjá sig um
efni ályktunarinnar, taldi það
ekki mál fjölmiðla. Verkalýðs-
félaginu hefði hins vegar verið
sent svar í gærmorgun um efni
ályktunarinnar.
Milli 60 og 70 Einingarfélagar
starfa hjá niðursuðuverksmiðj-
unni en heildarstarfsmannafjöldi
mun vera um 80 manns. Á fund-
inum í Alþýðuhúsinu kom fram
að starfsmenn sýna skilning á því
að nú steðji vissir rekstrarörðug-
leikar að fyrirtækinu en margir
líta svo á að kynna hefði átt fleiri
leiðir til úrbóta samhliða upp-
sögn kaupaukasamningsins. Það
kom hins vegar fram mikil
óánægja með að kaupaukasamn-
ingnum skyldi sagt upp en upp-
sögnin tekur gildi hálfum mánuði
eftir formlega tilkynningu.
Til samanburðar má geta þess
að atvinnuleysisbætur í dag fyrir
þann sem hefur á sl. 12 mánuðum
skilað a.m.k. 1700 vinnustundum
eru kr. 2.140,64 á dag og teljast
vinnudagar 21,67 sem gera kr.
46.388 á mánaðartímabili. Við
það geta bæst barnabætur sem
nema kr. 85,63 á dag fyrir hvert
barn undir 18 ára aldri. Byrjunar-
laun samkvæmt kauptaxta eru kr.
248,75 sem þýðir kr. 43.123 á
mánuði eða 7,5% lægri laun en
atvinnuleysisbæturnar. Eftir
þriggja ára starf eru greiddar kr.
258,69 eða kr. 44.847 sem ekki
nær heldur heildarupphæð
atvinnuleysisbóta. GG
Fyrri umræða um fjárhags-
áætlun Dalvíkurbæjar fyrir
árið 1993 fór fram í gær. Skatt-
tekjur bæjarins eru áætlaðar
149 milljónir króna, og þar af
eru útsvör 91 milljón króna,
aðstöðugjöld 29 milljónir og
fasteignaskattar 21,3 milljónir
króna og er hér um nettótölur
að ræða. Aðrir skatttekjur eru
Iægri en úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga koma 7,7 milljón-
ir króna.
Skatttekjur Dalvíkurbæjar
lækka milli ára en því veldur fyrst
og fremst Iækkun útsvarprósent-
unnar úr 7,5% í 7% sem veldur 6
til 8 milljóna króna lægri tekjum
hjá bæjarsjóði, en einnig lækka
skatttekjur vegna aðstöðugjalds.
Rekstrargjöldin lækka hins vegar
líka, eða um 7 milljónir króna
milli ára, þannig að það kemur
nokkuð á móti lækkandi skatt-
tekjum.
Álmenn rekstrargjöld eru áætl-
Umsóknarfrestur um embætti
ráðuneytisstjóra í menntamála-
ráðuneytinu rann út mánudag-
inn 15. febrúar. Fjórtán
umsóknir bárust þar á meðal
frá Jóni Hjartarsyni, skóla-
meistara Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðár-
króki og Tryggva Gíslasyni,
skólameistara Menntaskólans
á Akureyri. Menntamálaráð-
herra, Ólafur G. Einarsson,
hefur Iagt til við forseta Islands
að Guðríður Sigurðardóttir,
M.Ed., verði skipuð ráðuneyt-
isstjóri.
uð 170,6 milljónir, tekjur ýmissa
málaflokka 59,6 milljónir þannig
að nettórekstragjöld nema 111
milljónum króna. Greiðslubyrði
lána hjá Bæjarsjóði Dalvíkur
verður nettó 2,1 milljón þannig
að til ráðstöfunar verða eftir fjár-
magnsliði 37 milljónir. Gjald-
færðar fjarfestingar hjá Dalvík-
urbæ eru að upphæð 28,6 millj-
ónir og eignfærðar fjárfestingar
62,8 milljónir og á móti koma
tekjur að upphæð 10 milljónir.
Fjárfesting alls á árinu 1993 hjá
bæjarsjóði verður því að upphæð
81,5 milljónir króna.
Fjárvöntun sem nemur 44
milljónum króna er mætt með
tekjum að upphæð 14,5 milljón-
um sem samanstendur af stofn-
framlagi úr Jöfnunarsjóði, upp-
gjörssamningum og breytingum á
skammtímakröfum sem greiðast
munu á árinu. Jafnframt verður
fjárvöntuninni mætt með 30
milljóna króna lántöku. Heildar-
Samkvæmt upplýsingum frá
Ólafi Arnarsyni, aðstoðarmanni
menntamálaráðherra voru
umsækjendur þessir: Árni Gunn-
arsson, skrifstofustjóri í mennta-
málaráðuneyti, Bessí Jóhanns-
dóttir, framkvæmdastjóri, Bjarni
Daníelsson, skólastjóri Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands,
Dögg Pálsdóttir, skrifstofustjóri í
heilbrigðisráðuneyti, Erlingur
Bertelsson, lögfræðingur í
menntamálaráðuneyti, Guðríður
Sigurðardóttir, ráðunautur
menntamálaráðherra í skólamál-
um, Hörður Lárusson, deildar-
stjóri í menntamálaráðuneyti,
tekjur bæjarsjóðs, vatnsveitu,
hitaveitu og hafnarsjóðs eru áætl-
aðar 200 milljónir króna og til
ráðstöfunar á vegum þeirra eru
58,5 milljónir eftir fjármagnsliði
og er ráðgert að fjárfesta fyrir
100,7 milljónir á vegum allra
þessara stofnana Dalvíkurbæjar.
Stærsta fjárfestingin verður
áframhald byggingar sundlaugar
en til þeirrar framkvæmdar fara
43 milljónir en hún verður vænt-
anlega tekin á notkun á árinu
1994. Til götu- og holræsagerðar
verður varið 11 milljónum og til
hafnarinnar 8,5 milljónum en til-
laga til ráðstöfunar á þeirri fjár-
hæð liggur enn ekki fyrir. Fyrir
dyrum standa stórframkvæmdir
vegna endurnýjunar á aðveitu-
æðinni frá Hamri og hafa þegar
verið keypt rör til framkvæmdar-
innar en gert er ráð fyrir að um
helmingur aðveituæðarinnar
verði lagður á komandi sumri.
Aðrar einstaka framkvæmdir
verða minni í sniðum. GG
Jón Hjartarson, skólameistari
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki, Reynir
Karlsson, íþróttafulltrúi ríkisins,
Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri
í menntamálaráðuneyti, Tryggvi
Gíslason, skólameistari Mennta-
skólans á Akureyri, Þórunn Haf-
stein, deildarstjóri í menntamála-
ráðuneyti. Auk þessara umsækj-
anda sóttu tveir sem óskuðu
nafnleyndar.
Menntamálaráðherra hefur
ákveðið að leggja til við forseta
íslands að Guðríður Sigurðar-
dóttir, M.Ed., verði skipuð ráð-
uneytisstjóri í menntamálaráðu-
neytinu frá 1. mars 1993 að telja.
Guðríður hefur meistarapróf
frá Harvardháskóla í Bandaríkj-
unum, B.A. próf frá Háskóla
íslands og kennarapróf frá
Kennaraskóla íslands. Hún hefur
kennt á grunn- og framhalds-
skólastigi og við Háskóla íslands.
Þá hefur Guðríður unnið að
rannsóknum á sviði uppeldis- og
menntamála. Síðastliðið ár hefur
hún verið ráðunautur mennta-
málaráðherra í skólamálum. ój
Akureyri:
Árekstur á
Strandgötu
Árekstur varð á mótum Hjalt-
eyrargötu og Strandgötu á
mánudagskvöld. Fólk hlaut
skrámur en ekki var um alvar-
leg meiðs) að ræða.
Tvær bifreiðar rákust á á mót-
um Hjalteyrargötu og Strandgötu
um klukkan 20.30 á mánudags-
kvöld. Fólk var flutt á slysadeild
með skrámur en að sögn lögregl-
unnar á Akureyri er ekki talið að
um nein alvarleg meiðsl hafi ver-
ið að ræða. Talsverðar skemmdir
urðu á ökutækjum.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar:
Skatttekjur 149 mUljónir króna
- sem er 6-8 milljóna króna lækkun milli ára