Dagur - 23.02.1993, Page 1
Kristjáni Jóhannssyni vel fagnað í Metropolitan-óperunni í New York:
Syngur í Covent Garden að ári
- „þetta lyftir mér í verðleikaskalanum,“ sagði Kristján
„Ég er mjög ánægður. Ég er
að þessu fyrst og fremst fyrir
Akureyri:
Félagimi stal
hluta innbúsins
Lögreglan á Akureyri hafði
mann í haldi aðfaranótt mánu-
dagsins, sem lét greipar sópa
hjá kunningja sínum aðfaranótt
sunnudagsins að afloknum
gleðskap.
„íbúðareigandinn sofnaði ölv-
unarsvefni í íbúð sinni ásamt
gestum að einum undanteknum.
Maðurinn sem ekki festi blund er
„kunningi“ lögreglunnar. Þegar
gestgjafinn vaknaði síðla dags
var heldur tómlegt um að litast í
stofunni. Búið var að stela sjón-
varpstækinu, hljómflutnings-
tækjunum og farsímanum. Grun-
ur féll strax á drykkjufélagann og
hann hefur játað verknaðinn,"
sagði talsmaður rannsóknarlög-
reglunnar á Akureyri. ój
Framkvæmdastjóri
Skrefsins á Skagaströnd:
Pétur Ingjaldur
Pétursson ráðinn
Pétur Ingj-
aldur Pét-
ursson var
um helgina
ráðinn fram-
kvæmda-
stjóri Skrefs-
ins hf., rek-
strarfélags
skóverksmiðju á Skagaströnd.
Átján sóttu um starfíð og var
bróðurpartur umsókna frá
Reykjavík.
Pétur Ingjaldur er þrítugur að
aldri og hefur verið búsettur í
Reykjavík hin síðari ár, en hann
er fæddur og uppalinn á Skaga-
strönd. Hann lauk námi í við-
skiptafræði frá Háskóla íslands
árið 1989 og hefur stundað sölu-
störf í Reykjavík, þar á meðal
hjá Kristni Benediktssyni og
Borgarhellu.
„Pað verður gaman að glíma
við þetta verkefni. Ég er að fara í
gegnum pappíra og skoða véla-
kost fyrirtækisins," sagði Pétur
Ingjaldur í gær, en þá var hann
staddur í húsakynnum skóverk-
smiðjunnar Striksins á Akureyri,
sem eins og kunnugt er var lýst
gjaldþrota á sl. sumri. „Við ger-
um ráð fyrir að starfsemin hefjist
eftir hálfan annan til tvo mánuði.
Til að byrja með verður starfs-
fólk verksmiðjunnar þjáifað á
vélarnar hér á Akureyri. Við
verðum mjög litlir til að byrja
með, en það fer síðan eftir söl-
unni hvernig þetta þróast. Við
trúum því að ósigrar nútímans
séu undirbúningur undir loka-
sigurinn," sagði Pétur Ingjaldur.
óþh
fólkið og það eru allir mjög
ánægðir. Þá er ég ánægðastur.
Þetta var stór áfangi og tók
töluvert á,“ sagði Kristján
Jóhannsson, óperusöngvari,
sem steig sín fyrstu skref á
sviði Metropolitan-óperunnar í
New York sl. laugardagskvöld,
þegar hann söng aðaltenór-
hlutverkið í II Trovatore eftir
Verdi. Sýningin þótti takast
afar vel og var Kristjáni vel
fagnað í sýningarlok.
Kristján sagði erfitt að bera
það saman að syngja annars veg-
ar í Metropolitan og hins vegar á
Scala á Ítalíu og í Vínaróper-
unni. „Aðalmunurinn liggur í
stærðinni. Þetta hús er nærri því
helmingi stærra en Scala og Vín-
aróperan. Hljómurinn í húsinu er
mjög góður, en hann krefst
mikillar einbeitingar. Sviðið er
óskaplega stórt og það lang-
stærsta í leikhúsi sem ég hef
sungið til þessa. Á bak við þetta
gríðarlega stóra svið, með járn-
slegnu tjaldi í milli, er jafnstórt
svið þar sem allt að því er hægt
að setja upp tvær óperur í fullri
stærð. Á sama tíma og ópera eins
og II Trovatore er á sviðinu, eru á
sama tíma tvær stórar óperur í
æfingu baksviðs."
Kristján sagði að „debútið" í
Metropolitan væri gríðarlega
mikilvægt skref fyrir sig. „Þetta
lyftir mér hærra í verðleika-
skalanum, enda eitthvað sem
alvöru listamenn með fullu viti
sækjast eftir.“
Með söngnum í Metropolitan á
Kristján eftir aðeins eitt af allra
frægustu óperuhúsum í heimi,
þ.e. Covent Garden í London.
Kristján upplýsti að hann væri
þegar búinn að gera samning við
það fræga óperuhús um söng í
febrúar og mars á næsta ári í
nýrri uppfærslu á Grímudansleik
Verdis.
Kristján syngur tvær sýningar í
viðbót í II Trovatore í Metro-
politan, annað kvöld og á laugar-
Á fundi stjórnar og trúnaö-
armannaráðs Verkalýðsfélags
Húsavíkur 19. febrúar sl. var
harðlega átalinn seinagangur í
samningaviðræðum. Minnt var
á að verkalýðshreyfíngin hefði
lagt mesta áherslu á að hraða
samningaviðræðum strax eftir
að kröfur hennar höfðu verið
lagðar fram.
Þrátt fyrir það hafi engar raun-
verulegar samningaviðræður far-
ið fram og svo virðis't vera að
hvorki atvinnurekendur né
stjórnvöld hafi nokkurn áhuga á
að hefja samningaviðræður segir
í bókun Verkalýðsfélags Húsa-
dagskvöld. í mars syngur Krist-
ján fjórar sýningar þar í einþátt-
ungnum Cavalleria Rusticana, en
í hinum einþáttungnum, Pag-
liacci, syngur sama kvöld ekki
Bakkus kom við sögu um helg-
ina í tveimur umferðaróhöpp-
um á Norðurlandi. Bíll lenti
utan vegar við Brunná sunnan
Akureyrar og harður árekstur
varð á Húsavík.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri var helgin róleg. Aðeins eitt
umferðaróhapp er á skrá. Ölvað-
ur ökumaður missti stjórn á
bifreið sinni við Brunná og bif-
víkur. Fundurinn telur óhjá-
kvæmilegt að leita eftir verkfalls-
heimild í lok vikunnar verði
samningaviðræður þá ekki enn
hafnar.
Framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasamband íslands, Þórarinn
V. Þórarinsson, hefur gagnrýnt
opinberlega áðurnefnda ályktun
Verkalýðsfélags Húsavíkur og
sagt að m.a. vegna fjarlægðar frá
höfuðborgarsvæðinu þá fylgdust
forráðamenn félagsins ekki nægi-
lega vel með því hver gangurinn
væri í samningaviðræðunum.
Sannleikurinn væri hins vegar sá
að mati Þórarins að gangur við-
ræðnanna væri alveg eðlilegur,
ófrægari tenór en Placido Dom-
ingo. Að loknum söng í Metro-
politan taka við uppfærslur í Bar-
celona á Spáni og París og Tou-
louse í Frakklandi. óþh
reiðin endaði för utan vegar á
hvolfi. Ökumaður, sem var ölv-
aður, var fluttur á slysavarðstofu
til skoðunar.
„Snemma á laugardagsmorg-
uninn varð harður árekstur á
Garðarsbraut. Bílarnir eru taldir
ónýtir og orsök slyssins er talin
ölvun við akstur. Ökumenn hlutu
skrámur, en engin alvarleg
rneiðsl," sagði talsmaður lögregl-
unnar á Húsavík. ój
því ýmiss undirbúningsvinna væri
vel á veg komin.
Kári Arnór Kárason formaður
Alþýðusambands Norðurlands
segir að það þrífist enn líf í þessu
landi utan Elliðaánna og að
Þórarinn hafi þarna talað gegn
betri vitund. Honum sé kunnugt
um að Kári sé fulltrúi í samninga-
nefnd Alþýðusambandsins og
eigi jafnframt sæti í ýmsum
nefndum Alþýðusambandsins og
hafi verið á vettvangi þessar tvær
vikur síðan viðræðurnar hófust.
„Það er ekki langt síðan við
sátum saman í herbergi þannig
að hann er að segja hluti sem eru
verulega á skjön við veruleikann.
Flugfélag Norðurlands:
Gott útlit
fyrir sumarið
„Ég held að ég muni ekki
efíir öðrum eins vetri í
sambandi við veðurlag fyrir
flug. Það er ýmist ófært eða
því spáð að það verði ófært
eða þá að skilyrði í lofti hafa
verið óhagstæð. Þetta hefur
kostað okkur töluverða
fjármuni,“ sagði Sigurður
Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags
Norðurlands, í samtali við
Dag.
Sigurður man tímana
tvenna f fluginu og hann segir
veðráttuna hafa verið einstak-
lega rysjótta á landinu í vetur
og innanlandsflug oft gengið
úr skorðum. Við þetta hafi
félagið tapað viðskiptum og
peningum. Á hinn bóginn hafi
allt gengið áfallalaust fyrir sig
og ýmis jákvæð teikn á lofti.
„Þetta ár lítur ágætlega út.
Við sjáum reyndar ekki mjög
langt fram í tímann en miðað
við það sem við höfum í hönd-
unum er bjartara framundan
en oft áður og það er mjög
gott útlit fyrir sumarið,11 sagði
Sigurður.
Twin Otter flugvélin sem
laskaöist á Ólafsfjarðarflug-
velli sl. sumar verður tilbúin
fyrir vorið en þeir hjá FN hafa
ekkert verið að tlýta sér að
gera viö hana enda nægur flug-
vélakostur yfir vetrarmánuð-
ina.
Eins og við höfum greint frá
tók Flugfélags Norðurlands að
sér áætlunarflug milli íslands
og Kulusuk á Grænlandi fyrir
Grönlandsfly og hefur það
gengið ágætlega að sögn
Sigurðar. Þessu verkefni lýkur
um mánaðamótin. Aö vanda
hefur FN líka verið með
leiguflug til Grænlands í gangi
og hefur það gengið vel, þótt
veðrið hafi líka sett þar strik í
reikninginn og dæmi um að
vélumhafi verið snúið við. SS
Við höfum verið að bíða eftir því
að Vinnuveitendasambandið
skipaði í vinnuhópa en ekki
gengið að undanteknum sjávar-
útvegshópnum sem haldið hefur
þrjá fundi. Okkur finnst fram-
koma Þórarins mjög storkandi og
öll viðbrögð hans verið tóm sýnd-
armennska. Ef Þórarinn hefur
séð miklar samningaviðræður í
gangi þá hefur hann verið sofandi
enda held ég að stjórn og trúnað-
armannaráð Verkalýðsfélags
Húsavíkur sé miklu betur upplýst
um gang viðræðnanna en fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins virðist vera,“ segir
Kári Arnór Kárason. GG
VSÍ hefiir visvítandi dregið
í neíhdir og tafíð sanmingaviðræður
- segir Kári Arnór Kárason formaður Alþýðusambands Norðurlands
£f
s *
■
Það var líf og fjör á skautasvellinu á Akureyri um helgina en þar var haldið
íslandsmót yngri ilokka í íshokkí. Um 100 krakkar mættu til leiks. Sjá nánar
á íþróttasíðu bls. 8-9. Mynd: Benni
Bakkus við stýrið í
tveimur umferðaróhöppum