Dagur - 23.02.1993, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 23. febrúar 1993
Fréttir
Veitustofnanir Akureyrar:
Kostnaður vegna virkjunar á Þelamörk 60 til 80 milljónir
Á fundi Veitustofnana Akur-
eyrar 10. febrúar sl. var m.a.
rætt um vatnsöflun Hitaveitu
Akureyrar, stööu þeirra mála
og horfur og farið yfír aðra
möguieika til vatnsöflunar en
þá sem vitað er um á núver-
andi vinnslusvæði og er þá sér-
staklega horft til Laugalands á
Þelamörk.
Franz Árnason veitustjóri segir
að húsnæði í bænum hafi aukist
það mikið að það hafi fullkom-
lega uppfyllt björtustu vonir
varðandi aukningu húsnæðis-
fjölda en gerð var áætlun um það
árið 1984 og virðist hún ætla að
ganga eftir. Samkvæmt þeirri
áætlun var gert ráð fyrir að aukn-
ing íbúafjölda á Akureyri yrði
um 2% á ársgrundvelli. Það þýðir
að vandræði gætu farið að skap-
ast í köldustu vetrarmánuðunum
á árinu 1994 en Hitaveitan á
reyndar mikið varaafl fólgið í
olíukatli í kyndistöðinni við Þór-
unnarstræti en ódýrasta lausnin
er auðvitað vatn upp úr jörðinni.
Að Laugalandi á Þelamörk hefur
verið dælt upp verulegu vatns-
Tilboð í flutninga Eyjafjarðarfeijunnar Sæfara:
Eysteinn Ingvason lægstur
Eysteinn Ingvason í Reykja-
vík, rekstraraðili Árness
(gamli flóabáturinn Baldur),
var með lægstu tilboðin í flutn-
ing Eyjafjarðarferjunnar Sæ-
fara, en tilboð voru opnuð í
gær. Gert er ráð fyrir að nýr
rekstraraðili taki við 1. apríl
nk. og voru tilboðin miðuð við
þessa flutninga næstu tvö árin.
Auk Eysteins bárust tilboð frá
Hríseyjarhreppi, Smára Thorar-
ensen í Hrísey, Gylfa Baldvins-
syni á Árskógsströnd og Bæjar-
sjóði Dalvíkur.
Allir þessir fimm aðilar sendu
inn þrjú tilboð og var hvert þeirra
miðað við ákveðna tilhögun á
áætlun. Tilboð Eysteins hljóðaði
Sprengidagurinn er í dag og þá
munu landsmcnn raða í sig saltkjöti
og baunum í stórum stfl. Á mynd-
inni er Sævar Hallgrímsson hjá
Bautabúrinu með vænan saltkjöts-
bita. Mynd: Robyn
upp á 55.828.000 kr, 59.732.000
kr. og 54.268.000 kr. Næstlægstur
var Smári Thorarensen. Tilboð
hans voru 76.522.094 kr.,
77.317.624 kr. og 74.972.912 kr.
Tilboð Hríseyjarhrepps voru
83.550.000 kr., 83.555.000 kr. og
82.280.000 kr.. Tilboð Bæjar-
sjóðs Dalvíkur var 83.982.648
kr., 89.812.586 kr. og 79.799.544
kr. og loks hljóðaði tilboð Gylfa
Baldvinssonar upp á 92.033.680
kr., 96.015.920 kr. og 89.027.840
kr.
Ekki náðist í Eystein í gær, en
eftir því sem næst verður komist
miðast tilboð hans við að nota
Árnes í þessa flutninga. Allir hin-
ir fjórir tilboðsgjafar reikna með
því í tilboðum sínum að leigja
Sæfara til áframhaldandi flutn-
inga. óþh
magni sfðustu þrjá mánuði til
prófunar á holunni þar og þeirri
dælingu verður haldið áfram en
það vatn rennur út í Hörgá. Ef
niðurstöður þeirrar prófunar
verða jákvæðar er spurningin
aðeins hvenær í framkvæmdina
verður ráðist. Kostnaðaráætlun
vegna Iagnar á leiðslu frá borhol-
unni að Laugalandi að Þelamörk
og til Akureyrar liggur á bilinu 60
til 80 milljónir króna og er um
helmingur þess kostnaðar efnis-
kostnaður.
Veitustjórn ræddi einnig mögu-
leika á niðurdælingu á virkjunar-
svæðum Hitaveitunnar en það
yrði með þeim hætti að bakrásar-
vatni yrði dælt niður í einhverja
holu sem ekki er verið að dæla
upp úr. Gerð var tilraun á þessu
árið 1990 og fyrstu niðurstöður
hennar bentu til þess að hér gæti
verið um mjög arðbæra fram-
kvæmd að ræða til að auka það
vatnsmagn sem Hitaveitan hefur
til afnota.
Þegar til lengri tíma er litið
verður farið að skoða önnur
möguleg virkjunarsvæði fyrir
Hitaveitu Akureyrar og enn eru
til laugar í Eyjafirði þar sem heitt
vatn rennur á yfirborðinu þrátt
fyrir það að verið sé með 200
metra niðurdrátt í borholum.
Fyrst og fremst er verið að horfa
tií þeirra lauga sem eru í landi
Kristness annars vegar og hins
vegar í landi Botns en frekari
rannsóknir þarf að gera áður en
ráðist verður í boranir á þessum
svæðum. Jafnframt má minna á
það að Hitaveita Akureyrar á
jarðhitarétt að Reykjum í
Fnjóskadal en það er ekki fýsi-
legur kostur að sinni vegna
mikillar fjarlægðar og yfir heiði
að fara.
Ólafur Flóvenz, Grímur
Björnsson og Guðni Axelsson
hjá Orkustofnun hafa verið að
vinna að greinargerð um vatns-
öflun fyrir Hitaveitu Akureyrar
og má gera ráð fyrir að fýsi-
legustu kostirnir sem tíundaðir
eru í þeirri skýrslu verði nýttir í
nánustu framtíð. í lokafrágangi
skýrslunnar verða settar fram
niðurstöður kostnaðar á orkuein-
ingu. GG
Arkitektarnir Páll Tómasson og Gísli Kristinsson tilnefndir til menningarverðlauna DV:
„Arkitektar á Akureyri eru að
gera það jafti gott og aðrir“
Arkitektarnir Gísli Kristinsson
og Páli Tómasson á Arkitekta-
stofunni í Grófargili á Akur-
eyri eru tilnefndir til menning-
arverðlauna DV í ár fyrir bygg-
ingarlist. Tilnefninguna hljóta
þeir fyrir hönnun nýbyggingar
Hjólbarðaþjónustunnar við
Undirhlíð 2 á Akureyri. Þor-
valdur Þorsteinsson, fjöllista-
maður frá Akureyri, er til-
nefndur til menningarverð-
launanna í bæði myndlist og
bókmenntum.
Fimm hús voru tilnefnd til
menningarverðlaunanna í ár,
sem verða afhent á Hótel Holti í
Reykjavík nk. fimmtudag. Auk
nýbyggingar Hjólbarðaþjónust-
unnar stendur valið um hönnun
Ráðhúss Reykjavíkur, sjálfseign-
aríbúða á SÍéttuvegi 11-13 í
Reykjavík, skólahúss Breiðdals-
hrepps á Breiðdalsvík og útsölu
fíAHNSOKfí/A S TOFNUN
HÁSKÓLANS ,
Á AKUREYR/ /
I G/erérgótu 36
/S-600Akureyri
S/m/ 96- /7780
Fax 96- //799
Rannsóknarstofnun
Háskólans á Akureyri
Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra
Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri.
Umsækjandi skal hafa háskólapróf, reynslu af rann-
sóknar-, þróunar- og stjórnunarstörfum og víðtæka
þekkingu á atvinnulífinu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Félags há-
skólakennara á Akureyri.
Umsókn skal fylgja rækileg skýrsla um vísindastörf,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og önnur
störf.
Upplýsingar um starfið gefur formaður stjórnar
Rannsóknastofnunar, Kristján Kristjánsson, í síma
96-11770.
Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri
fyrir 15. mars nk.
Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri.
Áfengis- og tóbaksverslunar
rfkisins við Austurstræti.
í umsögn dómnefndar, sem í
eiga sæti Guðjón Bjarnason, Jes
Einar Þorsteinsson og Pétrún
Pétursdóttir, um nýbyggingu
Hjólbarðaþjónustunnar á Akur-
eyri segir: „Þetta verk er gott
dæmi um metnaðarfullt framtak
einkafyrirtækis til að skapa hóg-
væra byggingu sem þó upphefur
umhverfi sitt. Mjög opin glerjun
skála gegnt nálægu hringtorgi
gefur ríka hrynjandi og boga-
dregnar svalir í forrými hússins
mynda skemmtilegt mótvægi við
stallaða framhliðina. Aðstaða
starfsfólks er björt og aðlaðandi
og lóðarfrágangur til fyrirmynd-
ar. Efnisuppbygging er skýr og
einföld.“
Páll Tómasson, arkitekt, sagði
að þeir félagarnir væru að vonum
mjög ánægðir með þessa viður-
kenningu. „Ég tel að þetta sýni
að arkitektar hér á Akureyri eru
að gera það jafn gott og aðrir.
Þetta er til marks um það að
menn þurfa ekki alltaf að leita
yfir lækinn,“ sagði Páll.
Byggingarlist á Akureyri hefur
áður komið við sögu við úthlutun
menningarverðlauna DV. Fyrir
nokkrum árum hlutu þau arkitekt-
arnir Finnur Birgisson á Akur-
eyri og Hjörleifur Stefánsson í
Reykjavík fyrir skipulag Innbæj-
arins á Akureyri.
Fleiri Akureyringar verða í
sviðsljósinu við úthlutun menn-
ingarverðlauna DV á fimmtudag.
Akureyringurinn Þorvaldur Þor-
steinsson kemur heldur betur við
sögu því hann hefur bæði verið
tilnefndur til menningarverð-
launanna í myndlist (fyrir fram-
lag sitt til nýsköpunar í myndlist
á árinu) og bókmennta (fyrir
bókina Éngill meðal áhorfenda).
Þorvaldur brýtur blað í sögu út-
hlutunar menningarverðlauna
DV því aldrei áður hefur sami
maðurinn fengið tilnefningu fyrir
tvær listgreinar sama árið. óþh
Arkitektarnir Páll Tómasson og Gísli Kristinsson við hugverk sitt, nýbygg-
ingu Hjólbarðaþjónustunnar við Undirhlíð 2 á Akureyri. Þess má geta að
Glerárkirkja á Ákureyri, sem Svanur Eiríksson, arkitckt á Akureyri, teikn-
aði, var á meðal þeirra fjölmörgu húsa sem komu til álita þegar dómnefnd
ákvað hvaða fimm hús skyldu hljóta tilnefningar til menningarverðlauna DV
í byggingarlist. Mynd: Robyn