Dagur - 23.02.1993, Page 9

Dagur - 23.02.1993, Page 9
Þriðjudagur 23. febrúar 1993 - DAGUR - 9 Halldór Arinbjarnarson Skíðaganga, íslandsgangan: Sigurður fljótastur í Skógargöngumii Hin árlega Skógarganga á Egilsstöðum var haldin um síð- ustu helgi. Alls voru milli 30 og 40 keppendur sem tóku þátt en aðeins 4 gengu fulla vegalengd sem er um 23 km. Mótið er hluti af íslandsgöngunni og hefur verið haldið árlega síðan 1985, með einni undantekn- lingu þegar snjóleysi gerði mönnum lífíð leitt. Veður var ágætt meðan á göngunni stóð og færi einnig þó það væri reyndar nokkuð hart. Gengnir eru 2 hringir í Egils- staðaskógi, sem eru um 23 krn. Flestir gengu þó skemmra, eða 10-15 km. Þeir 4 sem luku fullri vegalengd voru: Sigurður Aðal- steinsson sem sigraði í flokki 35- 50 ára á tímanum 1:23,54 og Jóhannes Kárason var annar á 1:28,07. í flokki 50 ára og eldri sigraði Þorlákur Sigurðsson á 1:35,37 og Rúnar Sigmundsson varð annar á 1:41,20. Sem fyrr segir voru þetta þeir einu sem gengu fulla vegalengd og eru þeir allir frá Akureyri. íslandsmót yngri flokka í íshokkí: Tókst mjög vel í aUa staði íslandsmót yngri flokka í íshokkí var haldið um helgina á skautasvellinu í Innbænum á Akureyri. Mótið var hið fyrsta sinnar tegundar og þótti takast mjög vel í alla staði. Til leiks voru mætt u.þ.b. 100 þátttak- endur frá þremur félögum. Keppt var í þremur aldurs- flokkum. Skautafélag Akur- eyrar bar sigur úr býtum í þremur þeirra og Isknattleiks- félagið Björninn í einum. Mótið þótti takast mjög vel og voru þátttakendur ánægðir að mótslokum. í flokki 9 ára og yngri sigraði SA og Skautafélag Reykljavíkur hafnaði í 2. sæti. Þar voru aðeins tvö lið skráð til leiks. Björninn var mjög sterkur í næsta flokki fyrir ofan, 10-12 ára og mætti þar með 2 lið. Björninn vann þennan flokk, SA varð í 2. sæti og SR í því 3. í flokki 13-16 ára vann SA sigur, Björninn varð í 2. sæti og SR í því 3. í flokki 16-17 ára voru bara 2 lið, frá SA og SR. Hart var barist en Akureyringar höfðu sigur að lokum og urðu því íslandsmeist- arar í þeim flokki. Sem fyrr segir var almenn ánægja með mótið. Tímasetning- ar stóðust og veður var eins og best gat verið. Aðstöðuleysi stendur þó mótshaldi sem þessu verulega fyrir þrifum þar sem ekki er viðunandi búningsað- staða á staðnum og ekki hægt að fara í sturtu að leik loknum. Vonandi er að hægt verði að bæta úr þessu við fyrsta tækifæri, nóg- ur er áhuginn fyrir þessari íþrótt. NK! U sigur á síðustu Stundu. Mynd: PIB s jafntefli á heimavelli Borussia Mönchengladbach vann mikilvægan sigur í botnbarátt- unni gegn Karlsruhe sem að sama skapi tapaði mikilvægum stigum í barátunni um meistaratitilinn. Strax á 1. mínútu náði Cries for- ystunni fyrir heimamenn og undir lok fyrri hálfleiks bætti Svíinn Dalin öðru marki við. Á 64. mín- útu gerði Cries sitt annað mark í vmna sem aftasti maður á miðjunni og hafði þau fyrirmæli að vera ekki að hætta mér inn í vítateig and- stæðinganna. Ég á von á að þegar Buchwald kemur aftur inn í liðið nk. laugardag leiki ég framar á vellinum og fái þá mun frjálsari hendur. Það fellur mér mun bet- ur í geð, en aðal atriðið er auðvit- að að fá að spila, hvar svo sem ég er á vellinum." Að lokum bætti Eyjólfur því við að vonir um að verja meistaratitilinn væru nú nánast úr sögunni. Nú væri aðal atriðið að tryggja sér öruggt sæti í Evrópukeppni félgasliða að ári, þ.e. að lenda í einu af 5 efstu sæt- unum. Arni Hermannsson, Þýskalandi. Eyjólfur Sverrisson leiknum, í þetta sinn úr víta- spyrnu og tveimur mínútum síðar skoraði Krike eina mark gest- anna í leiknum. Mathias Sammer fékk óska- byrjun með sínu nýja liði. Á 74. mínútu skoraði hann eina rnark Dortmund gegn botnliði Bochum með skoti af 20 m færi beint úr aukaspyrnu. Frankfurt fylgir Bayern fast eftir í toppbaráttunni og á laugar- daginn gerði liðið góða ferð til Dresden þar sem það nældi sér í þau stig sem þar voru í boði með 0:2 sigri. Mörk liðsins gerðu Schmidt og Okocha frá Nígeríu. Saarbrúcken vann góðan sigur á heimavelli gegn arfaslöku liði Leverkusen, 3:1. Mörk heima- manna gerðu Lust, Cristle og Spikroth en Andreas Thom svar- aði fyrir gestina. Werder Bremen virðist koma geysisterkt undan vetri með nýja upprennandi stórstjörnu innan- borðs, Hobsch, sem Otto Rehagel þjálfari Bremen náði í til Leipzig. Hann uppgötvaði einmitt Rudi Völler og Karl Heinz Ridle á sín- um tíma og menn hafa nú gert að því skóna að hér sé 3. „stór- centerinn“ kominn. Bremen tók Nurnberg í kennslustund á föstudagskvöldið. Nýsjálendingurinn Rudwer gerði fyrsta mark leiksins úr víti á 65. mínútu, austurríski snillingurinn Andreas Herzog bætti öðru marki við 4 mínútum síðar eftir glæsilegan einleik í gegnum vörn gestanna og á 82. nínútu lék hann varnarmenn Nurnberg aftur upp úr skónum, gaf fyrir og þar var Hobs mættur og sneiddi knöttinn glæsilega efst í markhornið fjær. Leikmenn Kölnar máttu þola stórt tap á heimavelli gegn frísku liði Kaiserslautern, 0:3. Leiðin- legasti leikur umferðarinnar fór síðan fram á heimavelli Watt- enscheid á föstudagskvöldið þar sem liðið gerði markalaust jafn- tefli við Schalke. Árni Hermannsson, Þýskalandi. '4*'**i£íí»** íslandsmcistar SA í flokki 16-17 ára. Neðri röð frá vinstri. Heiðar Ö. Ólafsson, Sigurður Á Jósepsson, Haraldur Vil- hjálmsson, Leó Júlíusson, Rúnar Rúnarsson og Elvar Jónsteinsson. Efri röð frá vinstri: Sigurður Sigurðsson, Ágúst Ásgrímsson, Heiðar G. Smárason, Eiríkur Magnússon, Örn Þorleifsson, Lýður Ólafsson, Oddur Árni Arnarsson og Pekka Santanen þjálfari. íslandsmeistarar SA í flokki 13-16 ára. Neðri röð frá vinstri: Daníel Gunnarsson, Haraldur Vilhjálmsson, Birgir Sveinsson, Rúnar Rúnarsson Víglundur Bjarnason og Jens Gíslason. Efri röð frá vinstri: Kristinn Harrysson, Þröst- ur Bjarnason, Elvar Jónsteinsson, Erlingur H. Sveinsson, Kjartan Kjartansson, Tryggvi Hallgrímsson, Jónas Ste- fánsson og Pekka Sanatanen þjálfari. Myndír: Benni HM í skíðagöngu Dapurt gengi okkar manna íFalun Gengi okkar manna á HM í Falun hefur ekki verið upp á það besta og hafa strákarnir mátt sætta sig við að vera fremur aftarlega á merinni það sem af er. Þeir hafa nú tekið þátt í tveimur keppnum. A laugardaginn var keppt í 30 krn göngu. Björn Dáhlie sigraði á tímanum 1:17,43 og Vegard Ulvang var annar. Sig- urgeir Svavarsson varð.79., tólf mínútum á eftir Dahlie og Haukur Eiríksson varð 86. f gær kepptu Haukur, Sig- urgeir og Daníel Jakobsson í 10 km göngu. Sigurvegari varð Norðmaðurinn Sigurd Sivert- sen og Smirnoff frá Rússlandi varð í 2. sæti. Daníel varð 84., Sigurgeir 92 og Haukur í 102. sæti. Keppendur voru alls 113. íslendingarnir keppa næst í 15 km göngu á morgun og taka þá með sér árangurinn úr 10 km göngunni. Þar á eftir verð- ur keppt í boðgöngu. ttspyrnan: iir farinn að rúlla

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.