Dagur - 23.02.1993, Side 14

Dagur - 23.02.1993, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 23. febrúar 1993 Vinningstölur laugardaginn VINNINGAR | viNNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af5 | . 1 2.296.127,- a n éL. 4af5®í O 133.027,- : 3.4af 5 4 74 9.302,- I 4. aafs I 2.719 590,- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.987.766.- M Æm BIRGIR UPPLÝSINGAH:SlMSVARl91 -681511 LUKKUllNA991002 INNING GLERÁRGÖTU 36 SÍMI 11500 A söluskrá: * Stapasíða: 4ra-5 herb. endaraðhús á tveimur hæðum um 130 fm. Eignin er í mjög góðu lagi. Mikil áhvílandi langtímalán. it Langahlíð: 3ja-4ra herb. raðhús ásamt bílskúr samtals um 132 fm. Eign í ágætu lagi. Skipti á minni eign koma til greina. + Þórunnarstræti: 5 herb. íbúð á jarðhæð í þrí- býli um 130 fm. Laus fljót- lega. * Greniiundur: Mjög fallegt parhús, 6-7 herb. ásamt bílskúr samtals um 285 fm. Skipti á minni eign á Akureyri eða á Reykjavíkursvæðinu koma til greina. + Múlasíða: Sem nýtt mjög fallegt 4ra herb. raðhús á tveimur hæð- um ásamt bílskúr samtals um 162 fm. Áhvílandi lang- tímalán um 6 millj. * Stapasíða: Sem nýtt 5 herb. raðhús á tveimur hæðum ásamt bíl- skúr samtals um 163 fm. Áhvílandi langtímalán um 3 millj. Skipti á minni eign á Brekkunni koma til greina. F&STÐGNA& M_ skmsiiuSSZ NORDURLANDS O Glerárgötu 36, sínii 11500 Opið virka daga frá kl. 10-12 og 13-17. Sölustjóri: Pótur Jósefsson Lögmaður: JB* Benedikt Ólafsson hdl. UMFERÐAR Iráð 4=- Stemgrmmr Eggertsson Fæddur 23. febrúar 1901 - Dáinn 13. febrúar 1993 Góðvinur okkar, Steingrímur Eggertsson, hefur hvatt þennan heim. Hann hefur fengið lang- þráða hvíld og er kominn upp á Höfða, eins og hann kallaði alltaf kirkjugarð Akureyringa. Við kynntumst Steingrími fyrir tólf árum er hann dvaldi á Reykjalundi sér til hressingar. Hann var skjólstæðingur minn í nokkrar vikur og góðvinur barna minna. Öllum þótti vænt um Steingrím, bæði starfsfólki og vistmönnum. Hann var hlýr og góður við alla. Lítillætið var hon- um í blóð borið. Það var sama hve Iítið var gert fyrir hann, alltaf var hann jafn þakklátur. Ég minnist sérstaklega áttræðis- afmælis Steingríms. Af tilviljun komumst við starfsfólkið á Reykjalundi að því að stórafmæli átti hann þennan dag. Sjálfur minntist hann ekkert á það. Steingrími var haldið smá kaffi- samsæti og var hann manna glað- astur og svo þakklátur fyrir það sem okkur hinum fannst lítilræði. Þennan vetur ákvað ég að fara út á landsbyggðina, bæði til starfa og ekki síður það að kynnast nýj- um staðháttum. Steingrímur fræddi mig um landsbyggðina og þar var Akureyri miðdepillinn í huga hans. Ekki stóð á heimboði ef við kynnum að flytja til bæjar- ins hans. Þangað fluttum við vor- ið 1981 og ekki var komið að tómum kofanum þar sem við átt- um Steingrím að. Norðan heiða blésu mótvindar og yfir marga þröskulda að stíga. Þá var það ævinlega vinur okkar, hann Steingrímur, sem við leituðum til og hvatti hann okkur með ráðum og dáðum. Hann varð brátt Steingrímur afi í huga barnanna og var mér sem besti faðir. Litla fjölskyldan stækkaði og fleiri börn bættust í hópinn. Yngri börnin kynntust einnig hlýjunni og vingjarnleg- heitunum hans Steingríms. En nú er komið að kveðju- stundinni. Steingrímur er kom- inn þangað sem hann þráði svo innilega að fara. í hans huga var dauðinn svo eðlilegur hluti af líf- inu. Hann vildi halda reisn sinni fram til síðasta dags og deyja með sæmd. Það gerði hann svo sannarlega. Við vitum að honum líður vel núna og fer sáttur til nýrra heima. Bestu þakkir fyrir sam- fylgdina, hlýjuna og góðvildina. Blessuð sé minning hans. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira. Drottinn minn gefi dauðum ró, en hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum) Bergþóra, Anna Linda, Bjarni Bærings, Sigurður Freyr og Lilja Ósk. ■j1 Stefán Páll Steinþórsson Fæddur 4. febrúar 1952 - Dáinn 15. febrúar 1993 „Dauðinn er lækur en lífið er strá, skjálfandi starir það straumfallið á. “ (M. Joch.) Hann Stebbi á Varðgjá er dáinn. Langt um aldur fram. Þvílík harmafregn. Hann sem var á besta aldri og átti svo mikið ógert. En vegir okkar mannanna eru ekki lagðir á auðveldan eða skýranlegan máta og næturstað- urinn verður stundum annar en Aðalfundur Akureyrardeildar KEA verður haldinn þriðjudaginn 2. mars kl. 20.00 að Hótel KEA. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættislns að Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, föstudaginn 26. febrúar 1993 ki. 10.00, á eftirfarandi eignum: Brekkugata 25, rishæð, Akureyri, þingl. eig. Gerður Þorvaldsdóttir og Hermann Traustason, gerðabeið- endur innheimtumaður ríkissjóðs og Kaffibrennsla Akureyrar. Brekkuhús 7, Hjalteyri, þingl. eig. Inga Guðmundsdóttir og Einar Helgason, gerðabeiðendur inn- heimtumaður ríkissjóðs og Vátrygg- ingafélag Islands. Garður, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Hallgrímur Aðalsteinsson, gerðar- beiðandi Búnaðarbanki fslands. Glerárgata 28a, austurhl. viðb. og aðalh. á 1. hæð, þingl. eig. Nýtt Norðurljós hf., gerðabeiðendur Landsbanki íslands og Lífeyrissjóð- ur rafiðnaðarmanna. Hafnargata 4, Árskógshr., þingl. eig. Auðbjörg sf., gerðabeiðendur innheimtumaður ríkissjóðs og Vá- tryggingafélag Islands hf. Hringtún 5, Dalvík, þingl. eig. Magnús I. Guðmundsson, gerðar- beiðandi sýslumaðurinn á Akureyri. Hvammshlið 2, neðri hæð, Akur- eyri, þingl. eig. Jón A. Pálmason, gerðarbeiðandi Varmi hf. Múlasíða 5f, Akureyri, þingl. eig. stjórn Verkamannabústaða gerða- beiðendur Búnaðarbanki (slands og Kaupfélag Eyfirðinga. Múlasíða 5h, Akureyri, þingl. eig. Hjördís Henriksen og Jóhann Jóhannsson, aerðarbeiðandi Vá- tryggingafélag íslands hf. Sandskeið 10-12, Dalvík, þingl. eig. Hallgrímur Antonsson, gerðarbeið- andi Sjóvá-Almennar hf. Sandskeið 16, Dalvík þingl. eig. Bergur Lundberg, gerðabeiðendur Húsnæðisstofnun ríkisins, og Viðar Valdimarsson. Seljahlíð 5a, Akureyri, þingl. eig. Valgeir Þórisson, gerðabeiðendur Búnaðarbanki fslands og Islands- banki hf. Stórholt 12, Akureyri, þingl. eig. Bergrós Ananíasdóttir, gerðarbeið- andi Tölvutæki-Bókval hf. Sunnuhlíð 12, Þ-hluti, Akureyri, þingl. eig. Skúli Torfason, gerðar- beiðandi Veðdeild Islandsbanka hf. Þórunnarstræti 127, Akureyri, þingl. eig. Stefán Tryggvason, gerðar- beiðandi Vátryggingafélag Islands. Sýslumaðurinn á Akureyri 22. febrúar 1993. gert var ráð fyrir. Ég kynntist þessum öðlings- manni þegar hann kom að Ytri- Varðgjá sem eiginmaður Sigríðar Harðardóttur, heimasætu þar á staðnum, dóttur Harðar Tryggva- sonar og Elínborgar Einarsdótt- ur, sem þar bjuggu þá og dvelja enn. Mín kynni af Ytri-Varðgjár- heimilinu hófust nokkru áður eða þegar ég tengdist þessari stóru fjölskyldu. Búendur á Ytri-Varðgjá hafa verið duglegt og vinnusamt fólk, annálað fyrir gestrisni og féll Stefán vel inn í þær aðstæður sem fyrir voru, enda einstakt prúð- menni og dugnaðarmaður. Stefán unni sveitinni og sveitastörfunum og má segja að hann hafi verið náttúrubarn. Það var því ekkert einsdæmi að hann væri einn á ferð á víðavangi að sinna ein- hverju hugðarefna sinna eða störfum að búsmala eða viðhaldi mannvirkja. Þannig var það þeg- ar kallið kom. Stefán var maður áhættunnar og hefur sjálfsagt ekki alltaf ætl- að sér af. Hans orrustuvöllur var hversdagslíf sveitarinnar með öll- um sínum fjölbreytileika. Hann er ekki sá fyrsti sem fellur í val- inn í þeim átökum og líklega ekki sá síðasti. Svona er lífið. Okkar forni, norræni átrúnaður gerði ráð fyrir því að þeir einir kæmust til Valhallar sem í orrustu féllu. Kannski var það Stefáni að skapi að svo skyldi vera. Kynnin við hann voru ljúf. Hann var þægilegur í viðmóti og umtalsgóður um allt og alla. Að Ytri-Varðgjá er ætíð gott að koma. Þar ræður ríkjum gestrisni og góðvild. Arfur íslenskrar sveitamenningar varðveittur um aldir. Stefán var hluti af þessum arfi. Nú, við þessi óvæntu leiðar- lok, finn ég sterka tilfinningu fyr- ir öllu sem var ósagt, ógert og ógreitt. En þannig er það ætíð. Stefán fæddist að Syðra-Hóli í Fnjóskadal og voru foreldrar hans Steinþór Stefánsson og Ilona Stefánsson. Stefán fór ung- ur að heiman og fór að vinna fyrir sér. Vann hann ýmis störf, sem til féllu á Svalbarðsströnd og víðar. 8. júní 1972 kvæntist Stefán Páll Sigríði Tryggvadóttur á Ytri- Varðgjá eins og áður er getið. Tók hann þar við búi og bjó þar til dauðadags. Stefán og Sigríður eignuðust tvö börn, Steinþór sem er 19 ára og Maríu sem er 17 ára. Bæði búa þau í foreldrahúsum. Minningar um samverustund- irnar sækja óhjákvæmilega fram í dagsljósið, misjafnlega skýrar. Því vil ég að lokum gera að mín- um orðum niðurlag kvæðis eftir skáldkonuna Björnsson: Halldóru B. „Hljóðlega sveimar minning ein og ein andvaka meðan sóley blundar rótt. Hálfnumdu líkast ljóði úr týndri bók, lesnu við opinn glugga um bjarta nótt. Hljóðlega sveimar minning ein og ein. Sumarkvöld gestur gisti þennan dal. Gullregn um efstu heiðartinda féll. Hérleynast töfrarenn um brekku og bæ, bjarmar afævintýri um hæð og fell. Sumarkvöld gestur gisti þennan dal. Þögninni einni segjum okkar sorg. Sungin vargleðin út í vind sem blés. Spor lágu brott úr dalnum annan dag, dögg féll afgreinum lítils reynitrés. Þögninni einni segjum okkar sorg. “ Blessuð sé minning Stefáns Páls Steinþórssonar. Eiginkonu, börnum, heimilisfólki og fjöl- skyldu hans allri votta ég dýpstu samúð. „Dauðinn er hafsjór en holdið er strá, en sálin er sundlétt og sökkva ei má. “ (M. Joch.) Snorri Bjarnason. Hann Stefán vinur minn er dáinn. Hann var svo góður við mig. Hann leyfði mér að vera hjá sér á sumrin og taka þátt í sveitastörf- unum. Hann kallaði mig vinnu- manninn sinn þó ég væri bara átta og níu ára. Það var mikil upphefð. Nú er hann farinn og ég sakna hans mikið. Guð blessi minningu hans. Ásgeir. Athugasemd við ófeðraða visu Vísnaþáttur góður! í einum af síðustu þáttunum fyrir jól var ófeðruð vísa. Hún hefur verið talin hér vestur frá eftir Jón Einarsson á Skárastöð- um (sá sem lenti í Skárastaða- málinu 1863). Jón bjó síðast í Hofsseli á Skaga. Svona höfum við vísuna: Geng ég lotinn grátt með hár græt mín brotin stóru. Burtu flotin æviár illa notuð vóru. Einar Daníelsson, Ásbyrgi, Hvammstanga.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.