Dagur - 26.03.1993, Page 1
Loksins niðurstaða í Eyjaíjarðarferjumálimi:
Vegagerðin samdi við
Eystein Þ. Yngvason
Vegagerð ríkisins undirritaði í
gær samning við Eystein Yngva-
son um rekstur Eyjafjarðar-
ferjunnar en nokkur ágreining-
ur hefur verið uppi um rekstur
hennar. Eysteinn átti lægsta
tilboð í reksturinn þegar verk-
ið var boðið út og hugðist nota
fyrrum Breiðafjarðarferju,
Arnes, til verksins en í samn-
ingnum sem undirritaður var í
gær eru ákvæði um að notað
verði skipið Sæfari sem verið
hcfur í þessum rekstri en um
það verður gerður sérstakur
leigusamningur. Samningstím-
inn er 2 ár, frá 15. apríl 1993 til
14. apríl 1995.
Björn Ólafsson deildarstjóri
þjónustudeildar Vegagerðar
ríkisins segir að grunnurinn að
samningnum sé tilboð Eysteins í
Austur-Húnavatnssýsla:
Átaksverkefiiið Framtak
hættir 1. apríl
- virkni áfátt skv. skýrslu verkefnisstjóra
Vindhælishr., tóku sig saman um
„markaðssetningu stóðrétta“.
Þrátt fyrir áð ýmislegt hafi far-
ið af stað tengt átaksverkefninu,
er svo að sjá á skýrslunni að
Baldur telji ekki nógu skipulega
hafa verið staðið að málum og að
virkni sé ónóg, fólk bíði eftir
lausnum með hendur í skauti. sþ
Átaksverkefnið Framtak í A-
Hún., ásamt tveimur hreppum
í Skagafirði, mun Ijúka starf-
semi sinni 1. aprfl nk. og af því
tilefni hefur Baldur Valgeirs-
son framkvæmdastjóri Fram-
taks skilað skýrslu um árangur
verkefnisins. I skýrslunni kem-
ur m.a. fram að þó nokkur
árangur hafí orðið af starfsem-
inni, hafi vantað nokkuð á
þátttöku og virkni almennings.
Framtak er samstarfsverkefni
allra hreppa í A-Hún., auk
Seylu- og Lýtingsstaðahrepps í
Skagafirði. Það hóf starfsemi
sína árið 1991 og hefur nú starfað
í tvö ár. Framkvæmdastjóri verk-
efnisins er Baldur Valgeirsson og
er það kostað til helminga af
sveitarfélögunum og Byggða-
stofnun. í skýrslu Baldurs kemur
m.a. fram að engin „leitarráð-
stefna“ hafi verið haldin í upp-
hafi og því erfitt að setja sér
markmið fyrirfram. Menn vænti
e.t.v. of mikils af slíku átaksverk-
efni, en ekki sé nóg að standa og
horfa á. „Ekki má líta á átaks-
verkefni sem einhverja allsherj-
arlausn á atvinnumálum lands-
byggðarinnar. Heldur er þetta
þrotlaus vinna einstaklinga og
fyrirtækja ef árangur á að nást“,
segir í lokaorðum skýrslunnar.
Ýmiskonar starfsemi var reynd
í samvinnu við átaksverkefnið,
bæði á vegum einstaklinga og
með samstarfi. í A-Hún. fór af
stað átak í ferðamálum, svo og
smærri fyrirtæki eins og fata-
hreinsun á Blönduósi og skeifu-
verksmiðja í Svínavatnshreppi.
Vinnsla úr fjallagrösum er nú í
athugun, en það hófst einmitt í
tengslum við Framtak. Fleiri
smærri fyrirtæki tengjast Fram-
taki, m.a. vélaverkstæði í Lýt-
ingsstaðahr. og fyrirhuguð veit-
ingasala í Glaumbæ. í bæði A-
Hún. og Skagafirði fóru konur af
stað með námskeið og starfsemi í
handiðnum og nytjalist. Veiði-
félag Svartár var endurvakið og
tveir hreppar, Engihlíðar- og
rekstur Eyjafjarðarferjunnar en
síðan bætist ofan á það kostnaður
vegna þessara skipabreytinga en
upphæðin liggi milli lægsta og
næstlægsta tilboðsins. Tilboð
Eysteins hljóðaði upp á 59 millj-
ónir króna en það næstlægsta sem
kom frá Smára Thorarensen í
Hrísey hljóðaði upp á 77 milljón-
ir króna. „Við erum mjög ánægð-
ir með að samningar skulu nú
loks vera í höfn og vonum að allir
hlutaðeigandi aðilar séu ánægðir
en við höfum hlustað á rök allra
og viljað teygja okkur eins langt
og mögulegt er í samkomulags-
átt“ sagði Björn Ólafsson.
Jónas Vigfússon sveitarstjóri
segir þessa niðurstöðu ásættan-
lega en sett var á oddinn að Sæ-
fari yrði áfram í siglingum milli
Hríseyjar, Grímseyjar og lands.
„Við óskuðum eftir því að öllum
tilboðum yrði hafnað og þessi
mál yrðu skoðuð betur og gengið
frá lausum endum. Við vitum
ekki ennþá hverjir halda vinn-
unni en það koma a.m.k. skip-
stjóri og vélstjóri norður. Sæfari
verður leigður á 10 milljónir
króna og því er allur samanburð-
ur á tilboðunum óraunhæfur"
sagði Jónas Vigfússon. GG
Geiri Péturs ÞH við bryggju í Slippstöðinni á Akureyri.
Mynd: KK
Pórshöfn:
Ný vimislulína í Geira
Geiri Péturs ÞH-344 hefur
verið í slipp á Akureyri síð-
ustu daga. Verið er að skipta
um vinnslulínu fyrir rækju-
frystingu. Geiri er 182 tonna
togskip, búið frystivélum og
frystir allan rækjuafla um
borð, stærri rækjan fer á
Japansmarkað en mest af
annarri rækju hefur farið til
vinnslu hjá K. Jónsson.
„Þetta verður mikil breyting.
Það var sett upp vinnslulína í
upphafi til að prófa þetta, og nú
er búið að nota hana í fjögur ár.
Við erum að gera vinnuaðstöð-
una manneskjulegri,“ sagði
Sigurður V. Olgeirsson, skip-
stjóri á Geira P. Sigurður reikn-
ar með að vinnu við skipið verði
lokið nú um helgina, en auk
vinnslulínunnar er unnið að
smáviðhaldsverkefnum. Skipið
fer væntanlega til veiða á ný í
næstu viku. „Vonandi fer veðr-
áttan að breytast, en hún hefur
verið skelfilega Ieiðinleg frá því
um miðjan nóvember," sagði
Sigurður. IM
Skagstrendingur og Nýsir hf.:
Frekari samvinna við Namibíumenn
Ráðgjafarfyrirtækið Nýsir hf.
og Skagstrendingur hf. munu
halda áfram samstarfi við
Namibíumenn í útgerðarmál-
um. Þessi mál voru rædd á
fundum með fulltrúum
nýstofnaðs útgerðarfyrirtækis í
Namibíu og sendiherra Nami-
bíu í gær. Sveinn Ingólfsson
framkvæmdastjóri Skagstrend-
ings segir að næsta skrefið sé
að skipuleggja samvinnuna og
vinna að stofnun félags innan-
lands, hér sé um að ræða hags-
munamál fyrir íslendinga.
Þrír fulltrúar frá hinu nami-
Hippar á Sæluviku
Krakkarnir í 8.-10. bekk í Gaggó á Sauðárkróki sýndu hæfileika
sína á Sæluvikunni og engin spurning að þar komu fram margar
upprennandi stjörnur. A sýningunni voru karaoke-söngatriði
fyrirferðarmest þar sem Elvis Presley, Madonna, Supremcs og
margir fleiri komu fram í „eigin persónu“. Einnig var atriði frá
„blómaskeiðinu“ á 8. áratugnum, en tískan í dag er ekki ósvipuð
því sem þá var. Sæluvikunni lýkur á sunnudaginn. Hún hefur verið
vel sótt, ekki síst Heimiskvöld sl. þriðjudag. Þar voru fjölbreytt
atriði og stemmning eins og best gerist á Sæluviku að sögn. sþ
bíska útgerðarfyrirtæki, ásamt
sendiherra Namibíu hafa verið
hér á landi og átt viðræður við
fulltrúa Skagstrendings og Nýsis.
Að sögn Sveins hefur verið
ákveðið að byrja með útgerð
tveggja skipa og síðan fiskvinnslu
og munu íslendingar aðstoða við
það. Sveinn sagði að ákveðið
hefði verið að athuga um íslenskt
hlutafé inn í fyrirtækið. Einnig
sagði hann að fyrirtækið vantaði
fleiri skip, þar sem það fengi auk-
inn kvóta, en Namibíumenn eru
að auka afkastagetu sína úr 50
þús. tonnum í 120-200 þús. tonn í
veiðum á lýsingi. Sveinn sagði
fiskifræðinga telja að stórauka
megi veiðar á þessari tegund. Því
séu möguleikar á að Namibíu-
menn kaupi gömul íslensk skip.
„Það er reiknað með að við
vinnum okkar heimavinnu núna
og hittumst aftur seinnihlutann í
maí. Tíminn þangað til verður
notaður til að undirbúa stofnun á
einhverju félagi sem hugsanlega
yrði íslenski aðilinn í þessu máli.
Það fer eftir áhuga íslenskra
útgerðarmanna, iðnrekenda og
annarra sli'kra, hvernig til tekst“,
sagði Sveinn. „Við höfum áhuga
á nýjungum og við teljum að
þarna séu möguleikar, ekki bara
fyrir okkur, heldur fyrir íslend-
inga að selja sína þekkingu“,
sagði Sveinn um ástæðuna fyrir
áhuga Skagstrendings hf. á sam-
vinnu við Namibíumenn.
„Ég vil gjarnan að það komi
fram að LÍÚ styrkti ferð okkar til
Namibíu í nóvember s.l.. Mér
finnst líka mega koma fram að
Namibíumenn leita til íslendinga
vegna þess að þeir íslendingar
sem vinna þarna á vegum Þróun-
arsamvinnustofnunarinnar hafa
kynnt sig ákaflega vel og unnið
þarna gott starf“, sagði Sveinn að
lokum. sþ
Þjóðhátíðargjöf
Norðmanna:
Þrír styrkir
norður
Nemendur við Gagnfræða-
skóla Akureyrar, Ræktunar-
félag Norðurlands og nemend-
ur við Lundarskóla á Akureyri
voru meðal þeirra sem fengu
styrki úr sjóðnum Þjóðhátíðar-
gjöf Norðmanna, en tilkynnt
var um styrkúthlutun í gær.
Þrjátíu og tvær umsóknir bár-
ust sjóðsstjórn og auk þeirra
þriggja styrkja sem komu í hlut
Norðlendinga fengu fimm aðilar
styrki. Ráðstöfunarfé sjóðsins
var að þessu sinni rúm 800 þús-
und krónur.
Samkvæmt skipulagsskrá
sjóðsins skal ráðstöfunarfé ráð-
stafað til að styrkja hópferðir til
Noregs. óþh