Dagur - 26.03.1993, Blaðsíða 3

Dagur - 26.03.1993, Blaðsíða 3
Föstudagur 26. mars 1993 - DAGUR - 3 Fréttir SigluQörður: Bæjarmála- pmiktar ■ Á fundi bæjarráðs nýverið kom fram að aldrci áður hafa jafn margir nemendur stundað nám við Tónlistarskólann á Siglufirði, eða 120. Bæjarráð lýsti yfir vilja til að auka fjölda kennslustunda við skólann og fól bæjarstjóra og skólastjóra Tónlistarskólans að móta til- lögur þar um og leggja l'yrir bæjarráð. ■ Bæjarráð iiefur hafnað erindi frá Má sf. um notkun á byggðamerki bæjarins á minjagripi. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að gefa slysavarnadeildinni Vörn kr. 100.000 í afmælis- gjöf. ■ Framkvæmdaáætlun fyrir Siglufjarðarhöfn á þessu ári hljóðar upp á 4,5 milijónir króna. Þetta kemur fram í bréfi Jóns Levís Hilmarsson- ar, forstöðumanns tæknideild- ar, og Eyþórs Elíassonar, fjár- málastjóra Hafnamálastofn- unar, dagsettu 9. rnars sl., til bæjaryfirvalda. ■ Bæjarráð beinir því til bygginga- og skipulagsnefndar að kannaðir verði möguleikar á því að Eyrargötu verði breytt í botnlangagötu milli Túngötu og Hvanneyrarbraut- ar þegar nýi leikskólinn í bæn- um verður opnaöur í haust. Eyrargötu yrði þá lokað í vest- urenda hennar. ■ Á fundi skólanefndar 9. mars sl. var rætt brcf frá kenn- urum utn hugmyndir um starf og starfsumhverfi. í brcfinu er hvatt til þess að nýbygging fyr- ir skólann verði næsta stór- verkefni á eftir byggingu leik- skóla, sem tekinn verður í notkun í haust. I bréfinu er velt upp þrem möguleikum. 1. Nýtt skólahús byggt, t.d. í tengslum við skólahús við Hlíðarveg. 2. Endurbætur gerðar á báöuni skólahúsum, þau fullnægi kröfum tímans um aðbúnað og umhverfi skóla. 3. Byggt veröi og ofaná skólahús við Hlíðarveg. Þak hækkað og allt skólastarf fari þar fram. Miklar umræður uröu um málið og var eftirfar- andi tillaga samþykkt: „Skóla- nefnd samþykkir að leita heimildar bæjarstjórnar til þess að nú þegar verði fenginn sérfróður maður til að gera úttekt á skólahúsnæði á staðn- um og setja fram tillögur um úrbætur og framtíðaráform í málum þessum í samráði við heimamenn." ■ SigluQarðarkaupstaður fagn- ar 75 ára afmæli 20. maí nk. og af því tilefni hefur bæjarráð samþykkt að bjóða bæjarbú- um til kaffidrykkju á afmælis- daginn. Landssamband íslenskra útvegsmanna: Aíkomuhorfur útgerðar ekki verið vem síðan 1984 lAfkoma útgerðar hefur farið versnandi frá því síðasta spá Þjóðhagsstofnunar var birt í október síðastliðinn. Nú eru botnfiskveiðar reknar með 11,5% halla að meðaltali. Talið er að almennt fiskverð fari lækkandi þegar ástæður þessarar óhagstæðu þróunar eru ræddar. Verð á botnfiski á erlend- um mörkuðum hefur lækkað um Klappir vígðar Leikskólinn Klappir á Akur- eyri var formlega vígður sl. miðvikudag að viðstöddu fjöl- menni. Á leikskólanum eru 36 börn, en skólinn tók til starfa á liðnu ári. Klappir eru til húsa nyrst í Brekkugötunni og leik- skólastjóri er Aðalheiður Hreiðarsdóttir, sem er önnur frá hægri á myndinni. Lengst til hægri er Ingibjörg Eyfells, deildarstjóri dagvistardeildar Akureyrarbæjar, að bjóða vígslugesti velkomna. Aðr^r á myndinni eru starfsstúlkur og fóstrur á Klöppum. ój Félag forstöðumanna íþróttahúsa: Aðalsteiim kjörinn formaður Um síðastliðna helgi var stofn- að til Félags forstöðumanna íþróttahúsa. Stofnfundurinn var haldinn í Garðabæ þar sem Aðalsteinn Sigurgeirsson, for- stöðumaður íþróttahallarinnar á Akureyri, var kosinn for- maður. „Hér er ekki um stéttarfélag að ræða í þess orðs fyllstu merkingu. Félaginu er ekki ætlað að taka á launamálum þeirra er veita íþróttahúsum forstöðu, heldur auka samskipti og miðla upplýs- ingum um rekstrarlega þætti og Norðurland: Togarar lönduðu 5448 tonnum í febrúar Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands fyrir febrú- armánuð var aflamagn togara af Norðurlandi 5.448 tonn, þ.e. miðað við óslægðan fisk. Afla- magn febrúarmánaðar 1992 var 5.479 tonn. í liðnum mánuði var þorskur uppistaða þess afla sem barst frá togurum gerðum út frá Norður- landi. Til löndunar komu 3.471 tonn á móti 2.989 tonnum í febrúarmánuði 1992. Ýsuveiðin gekk einnig betur, sem og veiði á grálúðu og rækju. Hinsvegar greina aflatölur frá minni veiði á öðrum botnfisktegundum og mun- ar þar mestu um karfa og ufsa. í febrúar í fyrra lönduðu togar- arnir 918 tonnum af karfa, en í liðnum mánuði aðeins 568 tonnum. Ufsaveiðin í febrúar 1992 var 558 tonn, en aðeins 105 tonn nú. ój nýjungar. Miklar kröfur eru gerð-. ar í dag til íþróttamannvirkja og sérhver forstöðumaður er betur í stakk búinn að taka á málum hafi hann sem víðastan sjóndeildar- hring og reynsla þeirra sem lengst hafa verið í starfi er dýrmæt og því er rétt að hinir yngri fái að njóta hennar. Við erum 35 sem stöndum að félagsstofnuninni, forstöðumenn íþróttahúsa vítt og breitt af landinu. Til stofnfundar- ins mætti Reynir Karlsson, íþróttafulltrúi ríkisins, sem flutti fróðlegt erindi og að stofnfundi loknum nutum við kvöldverðar í boði bæjarstjórnar Garðabæjar," sagði Aðalsteinn Sigurgeirsson. Stjórn hins nýstofnaða Félags forstöðumanna íþróttahúsa skipa auk formannsins, Aðalsteins Sig- urgeirssonar, Árni Norðfjörð úr Garðabæ og Hafliði Halldórsson frá Reykjavík. ój 7% og frá áramótum má ætla að fiskverð hér innanlands hafi að meðaltali lækkað um 5%. Miðað við að botnfiskverð hafi lækkað að meðaltali um 5% frá síðustu spá Þjóðhagsstofnunar og að teknu tilliti til breytinga á ein- stökum rekstrarliðum er hallinn nú í veiðum tæp 7% af tekjum, að teknu tilliti til frystiskipa, en hann var áætlaður um 3,5% af tekjum í spá Þjóðhagsstofnunar í september. Afkomuhorfur útgerðar hafa ekki verið verri síðan 1983 og 1984. Sýnu verst er afkoma báta- flotans og ísfisktogara, eða um 12% halli. Afkoma stóru togar- anna er betri, um 2% hagnaður, en í hópi þeirra eru skip, sem sigla með allan sinn afla á mark- aði í Þýskalandi. „Afkoma frystiskipa hefur ver- ið í lagi fram til þessa, um 6% hagnaður, þrátt fyrir að afurða- verð hafi lækkað í SDR um 10,5%. Um 40% af framleiðslu þessara skipa er seld í yenum og vegur hækkun á gengi yensins upp þá lækkun, sem orðið hefur á pundinu. Þó eru blikur á lofti vegna sölutregðu á einstökum afurðarflokkum þessara skipa,“ segir talsmaður Landssambands íslenskra útvegsmanna. ój Fundarboð Fundur í Rafvirkjafélagi Norðurlands verður haldinn föstudaginn 26. mars 1993 kl. 20.30 á skrifstofu félagsins í Alþýðuhúsinu Skipa- götu 14, 3. hæð. Fundarefni: 1. Kosning 6 aðalfulltrúa og 6 varafulltrúa á 12. þing Rafiðnaðarsambands íslands sem fram fer í Reykjavík dagana 20. til 22. maí 1993. 2. Tillaga um borðfána. 3. Frumvarp að lögum Rafvirkjafélags Norðurlands. 4. Önnur mál. Veitingar. Stjórn Rafvirkjafélags Norðurlands. AUGLYSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1980-1 .fl. 15.04.93-15.04.94 kr. 332.215.70 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, mars 1993. SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.