Dagur - 26.03.1993, Blaðsíða 11

Dagur - 26.03.1993, Blaðsíða 11
Föstudagur 26. mars 1993 - DAGUR - 11 Iþróttir Halldór Arinbj' arnarson Úrslitakeppnin í blaki: Nú er að duga eða drepast Eins og fram kemur hér annars staðar á síðunni þá töpuðu bæði lið KA fyrstu leikjum sín- um í úrslitakeppni 1. deildar í blaki. Reglur úrslitakeppninn- ar eru þær að það lið sem fyrr vinnur 2 leiki heldur áfram. Næsta umferð fer fram á Akureyri í kvöld og á morgun íþróttir helgarinnar BLAK: Föstudagur: Úrslitakeppni karla: KA-HK kl. 20 Laugardagur: Úrslitakeppni kvenna: KA-ÍS kl. 18 (gæti breyst) KRAFTLYFTINGAR: Meistaramót í Baldurshaga LYFTINGAR: Meistaramót í Borgarnesi SKÍÐI: Siglufjörður: Unglingameistaramót föstud,- sunnud. Akureyri: Brynjumót í stórsvigi 7-12 ára á laug- ardag og þá er að duga eða drepast fyrir liðin ef þau ætla sér áframhaldandi þátttöku. Karlalið KA og HK eigast við í kvöld kl. 20 í KA-húsinu. „Vandamálið við leiki okkar hef- ur verið andlega hliðin. Menn virðast einfaldlega ekki hafa trú á sjálfum sér, okkur vantar m.ö.o. sjálfstraust. Liðin eru svipuð að Lyftingar - kraftlyftingar: Meistaramót um helgina Nú um helgina verða meistara- mót Islands í kraftlyftingum og lyftingum haldin, en óvenju- legt er að þau beri upp á sömu helgi. Kraftlyftingamenn eigast við í Garðaskóla á laugardag og þar mun Flosi Jónsson keppa í 90 kg flokki og búast má við harðri keppni. Lyftingamenn halda sitt mót í Borgarnesi og þangað munu a.m.k 4 keppendur frá LFA fara. getu og við eigum auðveldlega að geta sigrað og það ætlum við okk- ur í kvöld með góðum stuðningi áhorfenda", sagði Stefán Jóhann- esson þjálfari KA. Stelpurnar eiga að leika á morgun og sem stendur hefur leikurinn verið settur á kl. 18 en það gæti hugsanlega breyst. „Pað er auðvitað ljóst að við verðum að vinna ef við ætlum okkur að spila meira í vetur. Við höfum alla getu til vinna þetta lið, ég lield að það sé engin spurning. Við höfum mjög sterkum ein- staklingum á að skipa þó breidd- in hjá þeim sé e.t.v. meiri. Þetta er fyrst og fremst spurning um rétta hugarfarið", sagði Halla Halldórsdóttir fyrirliði KA. Ililllli liiiifjn) i'jiiii Hiiu/alia Spurningin er hvort Gunnari Svanbergssyni tekst að vinna tvöfalt um helgina því hann þjálfar stelpurnar og spilar með strákunum. Mynd: Robyn Körfubolti, úrslitakeppni um úrvalsdeildarsæti: Tindastóll burstaði ÍR Lirslitakcppni um sæti í úrvals- deildinni að ári hófst á Sauðár- króki á miðvikudagskvöldið með leik Tindastóls og ÍR. Tindastóll hafnaði í næst Blak, úrslitakeppni 1. deildar kvenna: Stúdínur með tak á KA - höfðu betur í 1. leik liðanna í Hagaskóla Fyrsti leikur KA og ÍS í úrslita- keppni 1. deildar kvenna í blaki fór fram á miðvikudags- kvöldið. Svo virðist sem IS- stelpur hati ákveðið tak á KA því enn hefur KA ekki tekist að vinna IS á Islandsmótinu í vetur en KA hafði betur í bikar- viðureign liðanna. Þess má geta að 3 viðureignir liðanna í vetur hafa endað 3:2. KA-stelpur slaka byrjun áttu einstaklega á miðvikudags- kvöldið. ÍS komst í 11:1 og svo virtist sem blakkunnátta KA- stelpna hefði orðið eftir fyrir norðan. En liðið fór á endanum í gang og þá var ekki að sökum að spyrja. Þær jöfnuðu leikinn á skammri stundu í 11:11 og unnu hrinuna 15:13. Síðan hrökk allt í baklás og ÍS vann 2. hrinu 15:9. Næsta hrina var mjög jöfn en aft- ur náði ÍS að vinna 15:13 og í síð- ustu hrinunni gekk ekkert upp hjá KA og ÍS vann auðveldan sig- , ur 15:3. Enn einu sinni var það Handbolti, íslandsmót 7. flokkur: Þórsstrákar stóðu sig vel Um síðustu helgi fóru strákar úr 7. flokki Þórs til Reykjavík- ur og kepptu í úrslitum á íslandsmótinu í handknattleik. Strákarnir stóðu sig mjög vel og voru hársbreidd frá því að keppa um 3. sæti mótsins. Þeir unnu Fjölni 9:7, töpuðu 9:0 fyrir FH og gerðu jafntefli við Hauka 8:8. Þeir hlutu jafn mörg stig og Haukar en höfðu óhag- stæðara markahlutfall og kepptu því um 5.-6. sætið. Þar var leikið við Gróttu sem vann 9:4. Sig- tryggur Guðlaugs, þjálfari liðsins, kvaðst vera mjög ánægð- ur með ferðina og að strákarnir hafi staðið sig vel. Markahæstur var Daði Kristjánsson með 8 mörk, Árni Þór Sigtryggsson skoraði 6, Bernharð Sveinsson 4 og Páll Indriðason 3. Það voru þreyttir en ánægðir Þórsarar sem stilltu sér upp fyrir myndatöku við heimkoinuna. Aftast stendur Sigtryggur þjálfari en í aftari röð frá vinstri eru: Páll Indriðason, Helgi Jósepsson, Árni Þór Sigtryggsson, Sigurgeir Valsson, Vilberg Brynjarsson, Daði Kristjánsson og Stefán Ó. Vignisson. Fremri röð frá vinstri: Fannar Jens Ragnarsson, Adam Þór Eyþórsson og Bernharð Sveinsson. Mynd: -kk rétta hugarfarið sem skorti hjá KA en liðin eru jöfn að getu. neösta sæti úrvalsdeildar í vet- ur en ÍR í 2. sæti 1. deildar. Munurinn á deildunum er augljóslega mikill og var sigur Tindastóls aldrei í hættu. Ljóst var þegar í upphafi að ÍR-ingar áttu við ofurefli að etja. Tindastóll réði hraðanum allan leikinn og þrátt fyrir slaka kafla heimamanna náðu ÍR-ingar aldrei að ógna þeim. Staðan á hálfleik var 58:36 og lokatölur 114:65. Tindastóll sigraði því með 49 stiga mun. ÍR-ingar börðust mjög vel all- an leikinn en það dugði einfald- lega ekki til og ekkert nema stórslys getur komið í veg fyrir að Tindastóll leiki í úrvalsdeildinni á næsta keppnistíambili. Leikið verður uns annað lið hefur unnið 2 leiki og eigast þau við að nýju í kvöld í Seljaskóla. Ef til 3. leiks kemur verður hann á Sauðár- króki á sunnudag. GBS Slig Tindastóls: Raymond Foster 28, Páll Kolbeinsson 17, Pétur Vopni Sigurðsson 14, Valur Ingimundarson 13, Karl Jóns- son 12, Ingvar Ormarsson 10, Ingi Þór Rúnarsson 9, Björgvin Reynisson 5, Hinrik Gunnarsson 4 og Kristinn B. 2. Blak, úrslitakeppni 1. deildar karla: HK-menn voru sterkari - sigruðu KA 3:0 í baráttuleik Bikar- og deildarmcistarar HK tóku á móti KA-mönnum í 1. umferð úrslitakeppni karla í blaki á miðvikudagskvöldið. HK vann leikinn 3:0 sem þó segir alls ekki alla söguna um gang leiksins. Hann tók alls einn og hálfan tíma og einkenndist af mikilli baráttu og taugatitr- ingi. KA menn byrjuðu leikinn illa og lentu undir 14:8 strax í 1. lotu. Þá loks hrökk liðið í gang og náði með mikilli baráttu að minnka muninn í 14:13 og hafði tækifæri til að jafna. Það tókst ekki og HK skoraði 15. stigið. Greinilegt var að spennan var mikil og það var gríðarlegt áfall fyrir KA að missa hrinuna út úr höndunum á sér eftir svo góðan sprett. í næstu hrinu hafði HK einnig undirtökin frá byrjun og sigraði 15:9. Þriðja hrina var á hinn bóg- inn mjög jöfn og jafnt á nær öll- um tölum. Greinilegt var að KA ætlaði sér sigur en tak HK var sterkt og eftir að staðan var 12:12 náðu Kópavogsmenn að skora 3 stig og þar með tryggja sér sigur UFA 5 ára: Afinælishátíð og aðalfimdur Fimm ára afmælishátíð UFA verður haldin sunnudaginn 28. mars í félagsmiðstöðinni Lundar- skóla og hefst kl. 18.00. Á undan verður aðalfundur félagsins hald- inn á sama stað og hefst kl. 17. Eru félagar hvattir til að mæta. Fréttatilkynning frá stjórn UFA 3:0 í leiknum. Stefán Jóhannesson þjálfari KA var að sjálfsögðu ekki ánægður með úrslitin. „HK- menn voru mjög ákveðnir í þess- um leik en við byrjuðum hins vegar illa. Við hefum þurft að vinna 1. hrinuna og í næsta leik þurfum við að mæta afslappaðri heldur en í kvöld.“ SV Blak, 1. deild karla og kvenna: Bjami stigahæstur - Jasna í 2. sæti hjá stelpunum Bjarni Þórhallsson KA var stigahæsti leikmaður 1. deildar karla í blaki á þessu keppnis- tímabili og Jasna Popovich KA náði 2. sæti hjá stelpun- um. Stigatalning hjá leikmönn- um var nýjung sem gerð var til- raun með á þessu tímabili. Þó svo að framkvæmdin í leikj- um hafi ekki ætíð tekist sem best má vænta þess að framhald verði á næsta vetur. En þá er það list- inn og síðari talan merkir leiknar hrinur. Bjarni Þórhallsson, KA 146/85 Þorvarður Sigfússon, ÍS 144/80 Bjarni Þórhallsson. Vignir Hlöðversson, HK 128/72 Gottskálk Gizurarson, Stjaman 121/76 Stefán I>. Sigurðsson, HK 120/80 Einar Þ. Ásgeirsson, HK 114/75 Einar Sigurðsson, Stjarnan 104/73 Magnús Aðalsteinsson, KA 101/85 Oddný Erlendsdóttir, Víkingur 132/61 Jasna Popovich, KA 130/66 Þórey Haraldsdóttir, ÍS 116/64 Jóhanna Kristjánsdóttir, Víkingur 111/61 Elva Rut Helgadóttir, HK 96/63 Jóna H. Viggósdóttir, Þrótti N/ÍS 92/46 Hrefna Brynjólfsdóttir, KA 84/66 Særún Jóhannsdóttir, Víkingur 71/61 Jasna Popovich.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.