Dagur - 26.03.1993, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 26. mars 1993
HHHHHMHHHHMHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH
Fréttir
Þungur róðiu* en erbjartsýnn
- segir Bjarni Jónasson, framkvæmdastjóri íslensks skinnaiðnaðar hf.
. 11.-27. |
I mars l
H M
H H
H H
H H
HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH
Á aðalfundi íslensks skinna-
iðnaðar hf. (en hluthafar þess
eru Sambandið með 90% hlut
auk smærri hluta nokkurra
sláturleyfíshafa), sem haldinn
var sl. miðvikudag, kom fram
að tekjur hefðu dregist saman
um 4% á árinu og þær miklu
sviptingar sem urðu á gengis-
málum Evrópulanda síðari
hluta árs 1992 rýrðu tekjur
Á Norðlenskum dögum í
ij
Sprengitilboð
(Meðan birgðir endast)
Sunnudagur
Kjúklingarhlutar lausfr. 398 kr.kg
Lambahryggur 499 kr. kg
Kaffi 400g 49 kr.
vfnarbiti brúnn 199 kr.
Vanillustangirfrá Emmess 199 kr. pk.
P.S. Föstudag og laugardag
Vörukynningar og fl.
á Norðlenskum dögum
Opið: Mánudag til föstudag 12.00-18.30
Laugardag kl. 10.00-16.00
Sunnudag kl. 13.00-17.00
Sjáumst í
r,rT
fj Allra hagur
Óseyri 1
fyrirtækisins verulega en um
80% þeirra eru í ítölskum lír-
um og breskum pundum.
Bjarni Jónasson framkvæmda-
stjóri segir að stöðugt sé Ieitað
að nýjum mörkuðum og ekki
síst nú þegar gengi lírunnar og
pundsins séu jafn óhagstæð og
raun ber vitni og stöðugt sé
hugað að því að dreifa áhætt-
unni eins og kostur er.
„Líran hefur fallið um 16%
síðan í ágústmánuði 1992 en
pundið hefur verið meira í
umræðunni því það er sá gjald-
miðill sem þjóðarbúið skiptir
Iang mest við, sérstaklega í við-
skiptum með rækju. 60% af tekj-
um íslensks skinnaiðnaðar hafa
hins vegar verið í ítölskum lírum
og um 20% í pundurn," segir
Bjarni Jónasson
Sala á helstu útflutningsvörum
fyrirtækisins dróst saman um
6,6% á síðasta ári. En má alfarið
rekja þann samdrátt til erfiðrar
efnahagsstöðu í helstu viðskipta-
löndunum?
„Samdrátturinn er fyrst og
fremst á seinni hluta ársins en
hins vegar er það venjan á
undanförnum árum að söltutopp-
urinn sé um miðbik ársins en
minni sala í byrjun og lok alman-
aksársins, sem rekja má til þess
hvers konar vöru við erum að
framleiða. Okkar kaupendur
vilja fá vöruna um miðbik ársins
sem þeir sauma síðan flíkur úr og
senda í verslanir að hausti og
fram á vetur. Af þeirri ástæðu er
salan nokkuð sveiflukennd og
verður það einnig á þessu ári.“
Nú er rætt um aukna hagræð-
ingu í rekstri. í hverju eru hún
fólgin?
„Við erum alltaf að reyna að
gera hlutina betur og þá er fyrst
og fremst einblínt á gæðaþáttinn
og þá aðra þætti sem gætu orðið
tekjuaukandi og gjaldasparandi,
en frá árinu 1989 höfum við með
hagræðingu náð að bæta nýtingu
og auka gæði framleiðslunnar
sem gæti numið á síðasta ári um
100 milljónum króna. Það er hins
vegar svo stórar breytingar að
gerast í okkar ytra umhverfi að
við verðum að einhverju leyti að
breyta okkar áherslupunktum í
aukinni hagræðingu í rekstrinum.
Við sjáum fram á allt að 13%
skerðingu á tekjum eingöngu
vegna gengisskráningar og það
krefst mjög ítarlegrar skoðunar.“
Hefur fyrirtækið fengið nægj-
anlegt magn af gærum til vinnslu?
„Ef horft er til lengri tíma þá
er það okkur ákveðið áhyggju-
efni því framboð á gærum hefur
minnkað sem er eðlilegt miðað
við breytta búskaparhætti í land-
inu, en hingað til hafa endar náð
saman og við miðað okkar starf-
semi við það magn sem fáanlegt
er. Á síðasta voru fullunnin tæp-
lega 580 þúsund skinn en af hálfu
þessa fyrirtækis hefur ekki verið
mörkuð sú stefna að fullvinna
frekar þessa vöru, en við mund-
um taka þvf fagnandi ef einhver
innlendur aðili mundi fara út í
slíka framleiðslu. Hvort íslensk-
ur skinnaiðnaður hf. tæki þátt í
slíkri starfsemi með einhverjum
hætti er ekki hægt að svara, það
hefur ekki verið mörkuð nein
stefna í því máli. Af okkar fram-
leiðslu fer nánast ekkert á innan-
landsmarkað, en þrátt fyrir það
eru starfandi nokkrir aðilar við
fatasaum sem kaupa skinn frá
íslenskum skinnaiðnaði hf. og
einnig eru nokkrir aðilar að
sauma ýmsar smávörur eins og
lúffur, vettlinga og inniskó."
Ertu þokkalega bjartsýnn þrátt
fyrir 94 milljóna króna rekstrar-
tap á árinu 1992?
„Ég er alltaf bjartsýnn en hins
vegar er ljóst að róðurinn er
þungur og þetta er lakari útkoma
en maður vildi sjá og er gjörsam-
lega óviðunandi. Við sáum hvert
stefndi þegar komið var undir lok
síðasta árs, þegar áhrif gengis-
breytinganna voru ljós. Ég vil
aftur á móti benda á að hverfandi
aukning er á birgðum milli ára.
GG
Mun fleiri huga að skreiðarverkun á þessu vori en áður:
Allt að 300 tonn af skreið og
hausum til Nígeríu fyrir páska
Engin kaup hafa verið að
undanförnu hjá fískmiðlun
Norðurlands á svokölluðum
„Rússaþorski“ af rússneskum
togurum sem eru á veiðum í
Barentshafí, en töluverður
útflutningur hefur hins vegar
verið á skreið og þurrkuðum
hausum til Nígeríu og hafa ver-
ið tíðar afskipanir þangað að
undanförnu. Fyrir páska er
áætlað að senda þangað allt að
25 gáma og fara um 13 tonn í
gám þannig að hér um að ræða
liðlega 300 tonn víðs vegar af
landinu.
Stærsti hluti skreiðarinnar og
hausanna kemur frá Norðurlandi
enda er þetta jafnbesta svæði
landsins til þurrkunar. Vaxandi
líkur eru á að meira verði hengt
upp í hjalla nú í vor af fiski til
skreiðarverkunar en undanfarin
ár, enda fer eftirspurn eftir skreið
til Nigeríu stöðugt vaxandi en
heldur hefur verið þyngra fyrir
fæti með sölu á Ítalíumarkað. Þar
ræður mestu að Norðmenn hafa
verið með lægra verð en íslend-
ingar en ekki hefur verið um
aukningu á magni að ræða hjá
þeim. Afstaða bankanna undan-
farin ár hefur ráðið nokkru hér
um, en þeir hafa verið tregir að
veita afurðalán til skreiðarverk-
unar vegna sölutregðu sem
orsakast af ákveðinni markaðs-
mettun, en verið því mun viljugri
til að lána til verkunar á þorsk-
hausum. Verulegur verðmunur
er á þeirri skreið sem selst hefur
að undanförnu á Ítalíu annars
vegar og Nígeríu hins vegar, eða
allt að 50%. Fiskmiðlun Norður-
lands hf. hefur verið að selja
skreið m.a. til Ástralíu og
Bandaríkjanna ■ auk Ítalíu og
Nígeríu og segist Ásgeir Arn-
grímsson vera frekar bjartsýnn á
sölu þeirrar skreiðar sem kemur
úr skreiðarhjöllum á haustmán-
uðum.
Mjög lítið magn hefur verið á
fiskmarkaði Fiskmiðlunarinnar á
þessu ári en m.a. er verið að
athuga þann möguleika að út-
vega bátum kvóta og munu þeir
þá selja afla sinn á markaðinum.
Líkur eru á að fyrsti báturinn
sem þannig fær kvóta muni landa
á Húsavík um næstu helgi og
verður aflinn þá strax boðinn
upp. GG
Bílasala
Bílaskipti
2S»«
i K 4 D U
Toyota Fourrunner árg. 91.
Ekinn 25.000. Verð 2.400.000
Willys CJ 5 árg. 74. Upph. 35" dekk.
Jeppaskoðun o.fl. Verð 650.000
Ford Bronco XLT árg. 88.
Ekinn 70.000. Verð 1.350.000
Suzuki Fox árg. 85. Langur 410.
Ekinn 120.000. Verð 400.000 stgr.
Suzuki Samurai árg. 88.
Ekinn 75.000. Verð 740.000
Daihatsu Charede árg. 90.
Ekinn 40.000. Verð 530.000
MMC Lancer GLXI árg. 91.
Ekinn 32.000. Verð 900.000 stgr.
Mazda 323 GLXárg.9l.
Ekinn 21.000. Verð 950.000
Úrval af
vélsleðum
rÍIASALINN
Möldur hf.
BÍLASALA
við Hvannavelii
Símar 24119 og 24170