Dagur - 26.03.1993, Qupperneq 12
Leikhúsgestir
Nú leika Vínartónar u m Smiðjuna
Akureyri, föstudagur 26. mars 1993
„ V í n a r d ú e 11"
Marineraður skelfiskur á íssalati m. ristuðu brauði
„Dónártónar"
Nauta- og grísalund m. bakaðri kartöflu og rauðvínssósu
Kaffi og konfekt
Verð kr. 2100
Hópar 10 og fleiri kr. 1900
Erum byrjaðir að taka niður
pantanir
er slysagildra"
Þær slöllur Ragnheiöur Guðmundsdóttir (t.v.) og Rannveig Kristjáns-
dóttir viö Andapollinn á Akureyri. Fjær sést hólminn þar sem telpan var
í sjálfheldu. Mynd: Rohyn
Menntaskólinn á Akureyri:
Útlit fyrir færri nem
endur á næsta ári
„Þetta
„Við viljum fyrst og fremst
vekja athygli foreldra og for-
ráðamanna barna á því að
ísinn á Andapollinum getur
verið mjög varhugaverður,
eins og kom í Ijós á þriðju-
daginn,‘( sögðu þær Ragn-
heiður Guðmundsdóttir og
Rannveig Kristjánsdóttir,
sem komu lítilli telpu til
bjargar sl. þriðjudag þar sem |
hún var blaut og köld í sjálf-
heldu úti í hólmanum á
Andapollinum.
Þær Ragnheiður og Rann-
veig, sem báðar eru á fimm-
tánda ári og stunda nám við
Gagnfræðaskólann á Akureyri,
voru á leið í kennslusund í
Sundlaug Akureyrar þegar þær
heyrðu hróp og köll barna við
Andapollinn. Þær brugðu skjótt
við og í ljós kom að lítil telpa
hafði farið á þunnum ís út í
hólmann á Andapollinum og
ísinn brotnað undan henni rétt
við hólmann. Ragnheiður sagði
að telpan hafi verið rennblaut
og köld og mjög hrædd og því
hafi hún ákveðið strax að freista
þess að ná henni til baka. Hún
komst út í hólmann, en vegna
þunga þeirra beggja brotnaði
ísinn undan þeim á leið til lands
Mikil eftirspurn er eftir leigu-
íbúðum í eigu Akureyrarbæj-
ar, en bærinn á um 110 íbúðir.
Fyrr í þessum mánuði var út-
hlutað fimm íbúðum, þar af
tveim nýjum fjögurra herbergja
íbúðum í Vestursíðu. Um þessar
fimm íbúðir bárust 44 umsóknir.
Guðrún Sigurðardóttir, hjá
Félagsmálastofnun Akureyrar-
bæjar, segir að þessi fjöldi
umsókna sé ekkert einsdæmi,
alltaf sé jafn mikil eftirspurn eftir
leiguíbúðum.
Guðrún segir að allskonar fólk
sæki um þessar íbúðir, ekki síst
fólk sem ekki ræður við að greiða
húsaleigu á almennum markaði.
„Astæðurnar eru margvíslegar.
Oft er um að ræða lágar tekjur og
miklar skuldir,“ sagði Guðrún.
Hún sagði að í mörgum tilfellum
væri um að ræða ungt fólk, fólk
með stórar fjölskyldur eða fólk
sem orðið hafi fyrir fjárhagsleg-
© VEÐRIÐ
Búist er við stormi á norðvest-
ur- og norðausturmiðum og
kólnandi veðri á láði og legi.
Suðvestan skúrir og síðan
slydduél með morgninum á
Norðvesturlandi en hæg
breytileg og norðlæg átt og
slydda er líða tekur á daginn.
Hæg breytileg átt og slydda
verður í dag á Norðaustur-
landi.
og sagði Ragnheiður að mun
dýpra væri við hólmann en hún
hefði ímyndað sér og stórhættu-
legt litlum krökkum.
Rannveig kom stöllu sinni til
hjálpar og í sameiningu tókst
þeim að ná telpunni upp úr
um skakkaföllum.
Leiga fyrir þessar íbúðir eru
lágar. Mánaðarleiga fyrir tveggja
herbergja íbúð er um 11 þúsund
ísköldu vatninu og fékk björg-
unarleiðangurinn því farsælan
endi. Eftir stendur, að mati
þeirra Ragnheiðar og Rann-
veigar, að þarna er slysagildra,
sem fuli ástæða sé Ail að vara
við. óþh
krónur, um 13 þúsund krónur
fyrir þriggja herbergja íbúð og
um 16 þúsund krónur fyrir fjög-
urra herbergja íbúð. óþh
Útlit er fyrir að færri nemend
ur hefji nám við Menntaskól
ann á Akureyri næsta haust en
eru í skólanum á yfirstandandi
skólaári. Árgangurinn sem út-
skrifast úr grunnskólum á
Norðurlandi eystra í vor er
fámennari en síðustu árgangar
en hins vegar er von á fjöl-
mennum árgangi 1995 og aftur
árið 2000. Vonast er til að hluti
af nýbyggingu við MA verði
tekinn í notkun haustið 1995
og þar með ætti að vera hægt
aö mæta vaxandi eftirspurn
eftir skólavist.
Sem kunnugt er hefur Mennta-
skólinn á Akureyri búið við
þröngan húsakost mörg undan-
farin ár og af þeim sökum hefur
ekki verið hægt að taka inn alla
þá nýnema sem sótt hafa um
skólavist þótt þeir hafi uppfyllt
þau skilyrði sem sett eru.
Að sögn Valdimars Gunnars-
sonar, aðstoðarskólameistara
MA, eru um 635 nemendur í
skólanum á yfirstandandi skóla-
ári en útlit er fyrir að þeir verði
um 620 næsta haust. Nýnemar
verða þá um 150 í stað 165 sem
þýðir að það fækkar um eina
bekkjardeild á fyrsta ári.
„Undanfarin ár hafa verið
teknir inn 190-200 nýnemar
þannig að við stöndum uppi með
stóra hópa í efri bekkjunum og
með sama áframhaldi hefðum við
sprengt allt utan af okkur. Þetta
sveiflast dálítið eftir fæðingar-
árgöngum og ég vona að aðsókn-
in minnki eitthvað svo ekki þurfi
að vísa fleiri nemendum frá en
hefur þurft,“ sagði Valdimar.
Hann sagði að á næstunni yrði
hugur efstubekkinga í grunnskól-
um til framhaldsnáms kannaður
og þá yrði frekar hægt að meta
það hvað búast megi við mörgum
umsóknum í júníbyrjun. Stærstur
hluti nemenda í MA kemur frá
Norðurlandi eystra og því ræður
stærð útskriftarárgangs í grunn-
skólum þar mestu um nemenda-
fjöldann, svo og húsrýmið í
Menntaskólanum. SS
Hönnun nýs leikskóla
á Akureyri:
Ákveðið að
ræða við
Pál og Gísla
Félagsmálaráð Akureyrarbæj-
ar samþykkti á fundi sínum sl.
miðvikudag að gengið verði til
viðræðna við Arkitektastofuna
í Grófargili, þ.e. arkitektana
Pál Tómasson og Gísla Krist-
insson, um hönnun nýs leik-
skóla á Akureyri.
Félagsmálaráð hafði óskað eft-
ir verðhugmyndum um fullnaðar-
hönnun (bæði verkfræði- og
arkitektateikningar) að byggingu
650 fermetra leikskóla í Gilja-
hverfi og var gengið út frá því að
byggingarkostnaður yrði ekki
hærri en 95 þúsund krónur á
ferm. Auk Arkitektastofunnar í
Grófargili bárust verðhugmyndir
frá Teiknistofunni Formi hf.,
Arkitekta- og verkfræðistofu
Hauks hf., Arkitektastofu Finns
Birgissonar og Arkitektastofu
Svans Eiríkssonar.
Náist samningar við Arkitekta-
stofuna í Grófargili er við það
miðað að hönnun verði lokið eigi
síðar en 1. júlí nk. og fyrsti
áfangi fari því í útboð í sumar.
óþh
Úrvinnslan hf.:
Nýtt fyrirtæki stofiiað á Akureyri
Nýtt atvinnufyrirtæki var
stofnað á Akureyri í gær.
Nefnist það Úrvinnslan hf. og
verður megin verkefni þess í
fyrstu að endurvinna úrgang
úr plasti og pappír en síðar
verður einnig hugað að
endurvinnslu úr fleiri tegund-
um úrgangs. Fyrirtækið mun í
upphafi framleiða kubba til
notkunar í vörubretti, en síð-
ar er stefnt að fleiri vöruteg-
undum svo sem lektum, kant-
staurum, skrautgirðingum I
garða og brennslukubbum.
Það eru Úrbótamenn hf.,
sem unnið hafa að undirbún-
ingi stofnunar þessa fyrirtæk-
is og notið til þess samstarfs
við Iðnþróunarfélag Eyja-
fjarðar og fleiri aðila. Yfir 20
aðilar hafa skráð sig fyrir
hlutafé í hinu nýja fyrirtæki
að upphæð 15 milljónir króna
og stefnt er að því að hlutafé
verið um 20 milljónir króna.
Úrvinnslan hf. verður stað-
sett að Réttarhvammi 3 við
Akureyri og hefur Fram-
kvæmdasjóður Akureyrarbæjar
lagt andvirði húsnæðisins fram
sem hlutafé. Heildar kostnaður
við stofnun fyrirtækisins er um
23 milljónir króna í fyrsta
starfsáfanga og af því eru um 18
milljónir vegna kaupa á véla-
samstæðu til framleiðslunnar.
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir við húsnæði hins nýja
fyrirtækis hefjist í næsta mánuði
en áformað er að reisa stórt
tjald vestan húsnæðisins við
Rétarhvamm til að geyma hrá-
efnið - plast- og pappírsúrgang
á meðan hann býður endur-
vinnslu. Vélasamstæða til fram-
leiðslunnar er væntanleg til
landsins í maí. Mun hún þá
strax verða sett niður og áætlan-
ir byggja á að vinnsla hefjist fyr-
ir lok júnímánaðar.
Með stofnun hins nýja fyrir-
tækis er verið að slá tvær flugur
í einu höggi. Mjög brýnt er orð-
ið að draga úr umfangi úrgangs
og auka endurnýtingu og endur-
vinnslu margvíslegra efna. Með
stofnuninni er einnig verið að
Frá stofnfundinum á Akureyri í gær.
styrkja atvinnulífið hér á Akur-
eyri. Þótt aðeins sé gert ráð fyr-
ir að fjórir einstaklingar starfi
við það í fyrstu hyggja stofn-
endur þess á að færa út kvíarnar
þegar reynsla er fengin af fyrstu
framleiðslunni eftir því sem
markaðsaðstæður leyfa. í stjórn
hins nýja fyrirtækis verða Ás-
geir Magnússon, framkvæmda-
Mynd: PI
stjóri Iðnþróunarfélags Eyja-
fjarðar, formaður, Þórarinn
Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Gúmmívinnslunnar og
Benóný Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Gámaþjónust-
unnar í Reykjavík. Fram-
kvæmdastjóri verður Valdimar
Gunnarsson, umbúðatækni-
fræðingur. ÞI
Félagsmálastofnun Akureyrar:
Mikil eftirspum
eftir leiguíbúðuin
- á annað hundrað slíkar íbúðir í eigu bæjarins