Dagur - 27.03.1993, Síða 23

Dagur - 27.03.1993, Síða 23
í UPPÁHALDI „Langar í golfvöll og góða laxveiðiá“ - segir Kolbeinn Gíslason Kolbeinn Gíslason er framkvæmda- stjóri Sjallans á Akureyri en söng- leikurinn Evita er nú sýndur þar við miklar vin- sældir. Kolbeinn sagði ljóst að Evita myndi ganga út apríl þannig að hann kvaðst mjög ánægður með viðtökumar. Hann er líka mikill veiðidellu- karl og ætlar að vera með fluguþátt í Degi frá og með næsta laugardegi þar sem hann heimsækir valinkunna flugu- hnýtingarmenn og kynnir hand- verk þeirra. En nú eru það hugðarefni Kolbeins sem eru til umfjöllunar. Hvatí gerirBu helst ífrístundum? „Þær em nú ósköp fáar, en á vetuma sest ég niður og hnýti flugur og á sumrin veiði ég á flugumar og spila golf.“ HvaBa matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Ætli það sé ekki kalkúnninn hennar mömmu með sósunni hans pabba. Annars er ég mikill sælkeri.“ Uppáhaldsdrykkur? „Einfaldur „Kolli“ hefur alltaf verið f miklu uppáhaldi.“ Ertu hamhleypa til allra verka á heim- ilinu? „Nei, ég er afleitur í þeim störf- um. Ég ætla ekkert að ljúga neitt til um það.“ Kolbeinn Gíslason. SpáirSu mikiS í heilsusamlegt lífemi? „Allt of lítið. En það er auðvit- að ákaflega gott að vera úti í náttúmnni á sumrin, í golfinu og veiðinni.“ HvaSa blöS og tímarit kaupirSu? „Ég kaupi Dag og Morgunblað- ið og ég reyni að laumast í er- lend og íslensk veiðiblöð.“ HvaSa bók er á náttborSinu hjá þér? „Ef ég á að vera alveg hreins- kilinn þá em það þrjár fugla- bækur, Fuglar íslands og tvær erlendar fuglabækur, önnur er um fugla í Evrópu og hin um fugla í Ameríku. Síðan er ég með bók sem heitir Veðurfræði og loks er ég með allt Garfield- safnið (Grettir). Þetta liggur á náttborðinu og gólfinu.“ HvaBa hljómsveitltónlistarmaSur er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Ég hef alltaf átt mjög erfitt með að gera upp á milli Sting og Loga Einars." UppáhaldsíþróttamaSur? „Má ég ekki bara segja að það sé KA-liðið í fótbolta? Ég vil ekki taka neinn út úr.“ HvaS horflrSu helst á í sjónvarpi? „Ég reyni að horfa á íþrótta- þætti og fréttir.“ Á hvaSa stjórnmálamanni hefurSu mest álit? „Tja, ætli ég nefni ekki Davíð Oddsson og þá er málið leyst.“ Hvarálandinu vildirSu helstbúafyrir ulan heimahagana? „Við skulum segja Reykjavík. Ég þekki ágætlega til þar.“ HvaSa hlutlfasteign langar þig mest til aS eignast um þessar mundir? „Má það vera hvað sem er? Þá langar mig til að eignast golf- völl og góða laxveiðiá." Hvernig myndiröu eySa þriggja vikna vetrarfríi? „Ætli ég myndi ekki bæta upp margsvikin loforð við fjöl- skylduna og reyna að eyða frí- inu einhvem veginn með henni.“ HvaS œtlarSu aS gera um helgina? „Vinna. Því er fljótsvarað. Sjallinn verður minn staður unt helgina." SS Efst íhuga Halldór Arinbjarnarson Vetraríþróttir á Akureyri Akureyri hefur löngum verið auglýst sem vetraríþróttaparadís og þá eink- um horft til Hlíðarfjalls. Víst er um það að margir hafa skemmt sér á skíðum í brekkum Hlíðarfjalls í gegn- um árin þó aðsóknin hafi verið minni undanfarin ár en menn hafa átt að venjast. Snjóleysi var kennt um í fyrra og árið þar áður en svo virðist sem af einhverjum ástæðum sé minni áhugi á skíðamennskunni nú en áður. Par skiptir án efa mestu máli meira framboð af annars konar afþreyingu. Fram hjá því verður ekki horft aö það kostar meiri fyrirhöfn og dýrari útbúnað að stunda skíði held- ur en æfa handbolta eða júdó, svo dæmi sé tekið. Aðrir hlutir benda hins vegar í þá átt að áhugi fyrir skíðaíþróttum fari vaxandi og má í því sambandi benda á sífellt meiri vinsældir Andrésar Andar leikanna þar sem nú stefnir í metþátttöku. í næsta mánuði verður boðið upp á sannkallaða skíðaveislu á Akureyri sem hefst strax næsta miðvikudag með Skíðamóti íslands og síðan1 rekur hver stórviðburðurinn annan. Um þessa helgi halda Sigl- firðingar unglingameistaramótið svo með sanni má segja að Norðurland sé miðpunktur skíðafólks um þessar mundir. Með bættum samgöngum ættu að skapast aðstæður fyrir auk- inni samvinnu staðanna á Norður- landi í skíðamálum þar sem hægt væri aö tengja Húsavík, Akureyri, Dalvík, Ólafsfjörð og Siglufjörð sam- an í meira mæli en nú er gert. í þess- um málum eins og öðrum er sam- vinna betri en samkeppni. Um síðustu helgi tryggðu Akureyr- ingar sér íslandsmeistaratitilinn í íshokkí annað árið í röð. Áhugi fyrir skautaíþróttum hefur vaxið gífurlega á síðustu misserum og nú er lag fyrir þá sem bæta vilja aðstöðu til heil- brigðrar íþróttaiðkunnar. Þær frum- stæðu aðstæður sem skautafólki er gert að búa við eru broslegar í samanburði við nágranna okkar. Nú kann einhver að segja að þar sé svo miklu meiri áhugi og hefð fyrir þess- um hlutum. Það er vissulega rétt en það stafar af því eingöngu að þar hefur verið hugað að aðstöðunni. Fyrir um tveimur áratugum eða svo var mikill áhugi fyrir skautaíþrótt- um jafnt hér sem í nágrannalöndun- um. Þá hófu grannar okkar að byggja yfir svellin meðan hér var ekkert gert. Árangurinn lét ekki á sér standa. Skautahallir nýtast ekki bara sem slíkar heldur einnig sem alhliða íþrótta og sýningahús. HM f hand- bolta í Svíþjóð fór t.d. að mestu fram í skautahöllum. Yfirbyagt skautasvell á sama svæði og Tþróttahöllin á Akureyri og í tengslum við hana er mál sem að mínu mati mætti athuga gaumgæfilega. Algert lágmark er að taka höndum saman og koma þaki yfir svellið í Innbænum. Laugardagur 27. mars 1993 - DAGUR - 23 Kaffihlaðborð í KA-heimilinu sunnudaginn 28. mars fró kl. 15-17. Verð kr. 400 fyrir fullorðna og kr. 200 fyrir börn Foreldrafélag KA .......-.. ........................Á AKUREYRARB/€R Dagvistardeild Akureyrarbæjar Matráðskona Laust er til umsóknar starf við mötuneyti á Leik- skólanum Flúðum. Laun skv. kjarasamningi Einingar og Akureyrar- bæjar. Umsóknarfrestur er til 31. mars. Allar nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri að Flúðum í síma 26602. Fóstra 50% starf Fóstra eða starfsmaður með sambærilega menntun á sviði uppeldismála óskast til starfa, til að sinna leyfisveitingum og eftirliti með dag- mæðrum. Laun skv. kjarasamningi STAK og Akureyrarbæjar eða Launanefndar Sveitarfélaga og Fóstrufélags íslands. Umsóknarfrestur er til 5. apríl nk. Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri Dag- vistadeildar eða Hverfisfóstrur í síma 24600. Upplýsingar um kaup og kjör veitir starfsmanna- stjóri í síma 21000. Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Meirihluti starfsfólks dagvistardeildar eru konur. í samræmi við landslög og jafnréttisáætlun vill Akureyrarbær leitast við að jafna hlutföll kynjanna í sem flestum störfum og hvetur því karla jafnt sem konur til að sækja um störfin. Dagvistarfulltrúi. —I Hjartans þakkir til ykkar allra sem glödduð mig á sjötugs afmæli mínu þann 20. mars með heimsóknum, gjöfum og skeytum og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Bestu þakkir og lifið heil. SIGURÐUR EIÐSSON, Hreiðarstaðakoti. Kæru vinir, hugheilar þakkir sendi ég öllum sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, skeytum og sím- tölum á 70 ára afmæli mínu 14. mars sl. og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, frá Björgum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.