Dagur


Dagur - 27.03.1993, Qupperneq 24

Dagur - 27.03.1993, Qupperneq 24
Góð rauðmagaveiði í upphafi vertíðar: Gefiir fyrirheit um góða grásleppuvertíð Grásleppuveiði er að hefjast fyrir Norðausturlandi, á svæð- inu frá Siglufiröi til Vopna- fjarðar. Grásleppukarlar eru búnir að leggja, en hafa vart dregið enn. Rauðmagaveiði hefur hinsvegar verið góð, sem gefur fyrirheit um góða grá- sleppuvcrtíð. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands smábátaeigenda, segir, að létt sé yfir grásleppu- körlum sérstaklega í Ijósi þess að nú gefst kostur að verka grásleppuhrogn eftir nýrri aðferð, sem gefur afurð er selst á mun hærra verði en fyrri framleiðsla. Að sögn Arnar hefur Lands- samband smábátaeigenda unnið að því í þrjú ár í samvinnu við Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins, með styrk frá rannsóknaráði ríkisins og grásleppukörlum, að þróa nýja afurð úr hrognum grá- sleppunnar. „Á síðustu vertíð fengum við mann til íslands, sem er sér- fræðingur í styrjukavíarhrogn- um, til að vinna með sérfræðing- um Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins. Útkoma þeirrar Verðfall á þorski en meðal- verð á karfa stöðugra - Kolbeinsey ÞH selur í Þýskalandi 2. apríl í kjölfar mikils þorskafla í Barentshafi féll verð á þorski úr 158 kr/kg í febrúar í fyrra í 113 kr/kg í febrúar í ár í Eng- landi. A fiskmörkuðum hér innanlands féll verðið úr 103 kr/kg í febrúar í fyrra í 88 kr/kg í febrúar í ár. Verð á ýsu féll einnig í Eng- landi, en á íslenskum mörkuðum hélst verðið svo til óbreytt þ.e. 114 kr/kg í febrúar í fyrra á móti 113 kr/kg í febrúar síðastliðnum. Verð á ufsa lækkaði úr 50 kr/kg á mörkuðum innanlands í febrúar í fyrra í 35 kr/kg í febrúar í ár. Það hélst hins vegar svo til óbreytt í Þýskalandi. Meðalverð á karfa hélst óbreytt, 111 kr/kg, og reyndist stöðugra en framan af vetri. Tal- ið er að stöðugleika verðsina beri helst að þakka rýrri karfaveiði Færeyinga. Vitað er um eina viku sem þeir náðu að koma einhverju magni af karfaflökum til Pýska- lands og var meðalverð okkar á karfa í þeirri viku 95 kr/kg á móti um 115 kr/kg í vikunum fyrr og síðar. Kolbeinsey ÞH er sá togarinn af Norðausturlandi sem siglir næst á Þýskaland. Togarinn hefur verið að karfaveiðum í Rósa- garðinum og aflað vel. Er síðast fréttist var aflinn kominn í 150 tonn og selt verður þann 2. apríl nk. ój vinnu er sú, að menn duttu niður á snjalla uppskrift. Fersk grá- sleppuhrogn þarf til framleiðsl- unnar og strax og vart varð grá- sleppu í lok febrúar fyrir Suður- landi var hafin framleiðsla eftir nýju uppskriftinni. Skemmst er frá því að segja að verkun heppn- aðist sem best verður á kosið, já, það vel að okkur þótti ástæða til að kynna afurðina á sjávarút- vegssýningunni í Boston nú nýverið. Viðtökur voru með þeim hætti að ljóst er að nýja framleiðslan er tilbúin til mark- aðssetningar. Menn voru á einu máli um, að kavíarinn nýi væri einn sá besti sem boðið er uppá á heimsmarkaðinum í dag,“ segir Örn Pálsson. ój Þér bregst ekki PÁSKATiLBOÐ' bökunarlistiti meðAKRA AKRA-smjörlíki er unnið úr úrvals jurtaolíum og pví ómissandi í metnaðarfullan bakstur. mts SMJÖRLÍKISGERÐ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.