Dagur - 09.12.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 9. desember 1993
FRÉTTIR
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Á fundi bæjarráðs Akureyr-
ar sl. þriðjudag var lagt fram
uppkast að tveimur samningum
milli Akureyrarbæjar og Knatt-
spymufélags Akureyrar. Ann-
ars vegar er samningur um
tímaleiga fyrir Lundarskóla í
íþróttahúsi KA og hins vegar
samningur um fjárstuöning til
KA í eitt ár, frá 1. september
1993 til 31. ágúst 1994. Bæjar-
ráð samþykkti báóa samning-
ana. Fjárveitingu til greióslu
styrks á árinu 1993 var vísað
til endurskoðunar fjárhagsáætl-
unar.
■ Á sama fundi var tekið fyrir
aó nýju crindi frá Úrbótamönn-
um hf. þar sem spurst er fyrir
um hvernig bæjaryfirvöld
hyggist standa aó úthlutun
svæðis fyrir orlofshús við
Kjamaskóg; gerð gatna og hol-
ræsalagna, lagna veitustofnana,
sorphreinsun, snjómokstur o.fl.
á svæðinu. Á fundinum var
lögð fram álitsgerð frá tækni-
deild vegna erindisins. Bæjar-
ráð lýsti sig sammála því áliti
tæknideildar að svæóinu skuli
úthlutað í samræmi vió sam-
þykkta skipulags- og bygg-
ingaskilmála og er væntanleg-
um lóðarhöfum þar meó gert
aó sjá um og kosta allar fram-
kvæmdir á svæðinu.
■ Á bæjarráðsfundinum sl.
þriðjudag var lagt fram bréf frá
Höldi hf. þar sem sveitarfélög-
um er gert tilboó um aó njóta
sömu kjara í viðskiptum við
Bílaleigu Akureyrar og sámið
var um við Innkaupastofnun
ríkisins á sl. ári.
■ Með bréfi dagsettu 26. nóv-
ember sl. frá bifreiðaverkstæð-
inu Þórshamri hf. er þeim til-
mælum beint til bæjarstjómar
aó Akureyrarbær geri samning
við fyrinækið uni að það taki
að sér að sjá um allt vióhald
strætisvagna bæjarins svo ög
annarra tækja. Bæjarráð vísaðí
crindinu til tækjanefndar, scm
fyrirhugað cr að kjósa á næsta
fundi bæjarstjómar.
■ Bæjarráó hefur samþykkt
tillögu íþrótta- og tómstunda-
ráós um aó hækka tímaleigu
til skóla í íþróttahúsum og
sundlaugum um 2% frá og með
næstu áramótum, cn jafnframt
samþykkti bæjarráð aó hækk-
unin nái einnig til allra annarra
tímaleiga í íþróttahúsum.
Toyota Corolla Lift back árg.
1988, ekinn 32 þús. km. Sumar-
og vetrardekk. Verð kr. 680.000.
„Topp eintak“.
Einangrunarstöð svína í Hrísey nær tilbúin:
Gyltur koma frá Noregi eða
Finnlandi snemma næsta árs
Senn lýkur í Hrísey byggingu
einangrunarstöðvar fyrir svín.
Þessa dagana er unnið að undir-
búningi fyrir komu 10 gyltna er-
lendis frá og munu þær gjóta í
stöðinni á næsta ári. Einhver töf
hefur orðið á vali á stofni frá því
sem upphaflega var áætlað en
Valur Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Svínaræktarfé-
lags íslands, segir að það sé
fyrst og fremst vegna mjög
strangra heilbrigðiskrafna sem
þurfi að uppfylla þegar valinn
verður stofn.
Valur segir að horft sé til
svínastofna í Finnlandi og Noregi.
Frá Noregi veröi væntanlega tekin
landsvín en Yorkshire-kyn frá
Finnlandi. Líklegast er að á þess-
ari stundu verði einangrunarverk-
efnin því tvö, þ.e. að kynin verói
ekki í stöðinni á sama tíma.
Valur segir að gylturnar gætu
komið strax í janúar en svo geti
einnig farið aö það tefjist lengur.
Miðað er við að frá fyrsta goti
gyltanna líði um eitt og hálft ár
þar til komnir verða grísir sem
fluttir verða í land. En hvað er það
sem svínaræktendur eru að sækj-
ast eftir með nýjum stofnum?
„Við erum að sækjast eftir
meiri vaxtarhraða, meiri fóðurnýt-
ingu og meiri vöóvafyllingu í
skrokkunum, þ.e.a.s. aukin hag-
kvæmni í framleiðslunni. Markaö-
urinn kallar á lægra verð og meiri
vöðva þannig að við crum að
mæta markaðskröfum sem koma í
vaxandi mæli vegna hugmynda
manna um innfiutning og sam-
keppni erlendis frá,“ sagði Valur.
Kristinn Árnason hefur verið
ráöinn bústjóri í einangrunarstöð-
inni í Hrísey. JÓH
Bygg'ng einangrunarstöðvarinnar í Hrísey hefur gengið samkvæmt áætlun
Og StyttÍSt I að hún verði tekin í notkun. Dagsmynd: Páll Björgvinsson
Er hægt að stórgræða án þess að tapa fé eða taka áhættu?:
Peningakeðjubréf breiðast út á Akureyri
og í nágrenni eins og eldur í sinu
- „sé ekkert ólöglegt við þetta,“ segir fulltrúi sýslumanns
Segja má að alda peningakeðju-
bréfa ríði nú yfir, að minnsta
kosti á Akureyri. Samkvæmt
upplýsingum blaðins eru það
tvö keðjubréf sem eru í umferð
og annað þeirra á uppruna að
rekja til Þýskalands, þaðan sem
keðjunni er í raun stýrt. Rann-
sóknarlögreglan á Akureyri
staðfesti að fyrirspurnir hafi
borist til hennar um lögmæti
þessara keðja en hjá fulltrúa
sýslumanns fengust þær upplýs-
ingar að enga stoð sé að finna í
lögum sem hindrað geti þessar
keðjur. Fólk verði sjálft að gera
upp við sig hvort það taki þátt í
Ekkert Kreppulilboó Utyjuid lUK
. Pú Kjuplr pakkann. Boigii þcinl mjnnejk|u »«mU< þ*' ponnan Iia kr. 2.500... PakkJnn sem þu kaupli iiinihokJur. loiOboinlngar. alnaasla |ma0 10 nOlnum) og slna Ivlsun (tAa pAsllvlsun, kvluun al O- 2.500,-
iAa 0-GliA kvHlun) *r tkkl mtO. tr pakkinn vtiAlaus. vlsun tr annaAhvoil ivlsun úr lékkhelU tOa pAsUvlsun. Ptgar nolAar •u pósllvlsunir (D-GliA) grtiAi' viOkomandl 1 banka tAa pAslhusl og ankliwPAsihúsiA sendli ávlsunlna M viAkomandl. PA laalur þú O GIiA /iilun lylgja mtA pakkanum þcgar þú selur.
Pu ttndlr ávltun, aAa D QIfAkvllluil. Stllu ávlsunlna (soin þu ár tou tihhvaO úl úr d»mlnu P.t.a f. Iiann sllkur tkkl k jð|una ”•
Pú bitylii nalnallttanum. Nú lt>u< þu kslan mtA nAlnunum 13. Ilii lO þú lielui scnl ávisunina lil clsln inanns þá sliokai þú elsla ainiA úl. lesilr sAlla no. 21 lyrsia amllo og koii al kolll og aelur |illan þlg 1 10 aallO. SkiíIIA (eOa vðliilíO) nOlnln og lielmlllllAngin vel, g okkl akammalala þau. YllilaiAu ivlvegis aA 6« noin'ytu lAll kApeiuO. tilu vlta om aA þú hallr ekkl goil nelnn leii. . Btsl tf 10 nýlr mtAlimlf séú nánlr vinlr tði jl|ðiskfldu‘nnl. W að • >u;|a ao maoui geU l/kjsi in»A. ei nnau maíuríl &0|i3hnfkomlit 1 •gn svo njAII sem unnl ei. • '?*tlp8<3lVst" ’ '
. BúlO III IvO llrll al þessum ItlAbelnlngum, og Ivð elrll al ný|a alnallalanum (þar stm þú til no 10) og Ivnr ávlsanlr Irá þtr kr. 200 hvor, slNaOtr á tlala aAllann i llalanum (þar stm þú til no 10)
. Pú útbýrb Ivo pakkt atm Innllitldur:-! ávltun . slUuO á tlsla mann lAa D-GliA gitill 1 pAsihúsl tAa banka). alnn nalnaBsia (mtð 10 ðlnum, þár aem þú ert no 10) og þtssai leiAbeinlngir. Nuna áil þú Ivo akka Ið sðlu. .) 1 ■ Saldu hvom pakka lyilr tlg á kr. J.SOpilStmápahii kéýíjlir á ) 1,1 , tgolaaota Samijsu 5 000- N„u aAtam.i taHfiijílUiígtia s.Aan ombairilogUgþúhtlurgail. _ • T.^ÍHWE,9; . 1.200,* 1.200,- Í.SOC
ú helur hvoikl lapaA penlngum eða leklo:álitellu'|aHlb'j •; N">' blddu elili pðslinum.' MAgultlkíjnlJToSí ávlssnlr ■'.Ta,þlh. ^Samaa'agl. el alll gengur jlpyártfAa^plgtiltlkar kr. ' 4.950,- 5.000, Úlgjðld - Ttkjui
?
•■•.'• ' ‘i.v'•.'•Ý-.-fiy •S. EkW stlja nalnið þili. tða annaira stm’þú ptkWjoltr á Áslann. tAa breyla elnhveju sem ek
Tvö peningakeðjubrcf virðast helst í
umferð á Akureyri þessa dagana. I
því sem hér sést er boðað að þeir
sem taki þátt í keðjunni eigi
möguieika á miklum gróða mcð
Iítilli áhættu.
keðjuni af þessu tagi.
Blaóið hefur upplýsingar um
tilfelli þar sem aðilar hafa fengið
verulegar fjárhæðir út úr þessum
keðjum. Segja má að ef eitthvað
er þá sé eina atriðið sem varóað
geti lög aó fólki beri að telja fram
þær tekjur sem það hafi af þessum
„viðskiptum“, verði þær á annað
borð einhverjar.
Eyþór Þorbergsson, fulltrúi
sýslumanns á Akureyri, kannaðist
vió þennan keójubréfafaraldur cn
taldi lítið við honum að gera. „Það
er ekki verió að neyða fólk til að
taka þátt í þessu en ég get í fijótu
bragði ekki séó hvaó er ólöglegt
viö þetta,“ sagði Eyþór.
„Ekkcrt krepputilboð“ er yfir-
skrift annars keðjubréfsins og þar
er í stuttu máli fullyrt að með þátt-
töku í keðjunni taki einstaklingar
ekki áhættu né tapi peningum.
Þeir eigi hins vegar mögulcika á
að fá yfir 2000 ávísanir inn um
bréfalúguna upp á hartnær 2,5
milljónir króna samtals. Og loka-
orðin á blaðinu eru svo: „Vilt þú
kreppu eða bullandi uppsveifiu".
JÓH
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið:
íslenskum skipaiðnaði verði
gefinn kostur á að bjóða í verk
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
hefur sent bréf til samtaka út-
gerðarmanna, viðskiptabanka
og Fiskveiðasjóðs. Þar er bent á
að nokkuð hafi borið á því að
undanförnu, að nýsmíðar og
endurbætur á fiskiskipum hafi
verið framkvæmdar erlendis án
undangengins útboðs innan-
lands.
íslenskum skipasmíóastöðvum
hefur þannig ekki verið gcfinn
kostur á því að bjóða í viðkom-
andi verkefni og því hcfur ekki
verið Ijóst hvort þær hefðu vcrió
samkeppnisfærar. I bréll ráðu-
neytisins segir m.a. að þaó hljóti
aó vera kappsmál fyrir innlcnda
aðila, verkkaupendur cða verkselj-
endur, að það sé Ijóst hvort inn-
lendir aðilar hefðu getað boðið
hagstæðari skilmála.
Með hliðsjón af erfiðri stöðu
innlends skipaiðnaðar og útgerðar
og með hliðsjón af öðrum efna-
hagsþáttum, eru það eindrcgin til-
mæli ráðuneytisins að aóilar máls-
ins, þ.e.a.s. verkkaupendur slíkra
verkefna, útboósaóiíar og lána-
stofnanir gcfi innlendum skipaiðn-
aði a.m.k. tækifæri til jafns við er-
lenda aóila til að bjóóa í eóa semja
á annan hátt um nýsmíðar og end-
urbætur skipa.
Þá vill ráðuneytið benda á mik-
ilvægi þess að fullt tillit sé tekió
til alls þess viðbótarkostnaðar sem
af því hlýst að fara með verkefni á
sviði nýsmíða og eóa endurbóta úr
landi, þegar borin er saman hag-
kvæmni þcss að vinna vcrk innan-
lands eða erlendis. Þar er bent á
siglingu skipsins, laun áhafnar á
leið milli landa, fiugfargjöld og
uppihald, fjarskiptakostnað, stór-
aukin cftirlitskostnað útgerðar,
stóraukinn úttcktarkostnað, aukið
álag og fjarvera stjórnenda, kostn-
að vegna aukaverkcfna og loks
ýnisar lagfæringar þegar heim er
komið sem oft gerist.
Oft er því ekki nema hálf sagan
sögó þegar litið cr á crlendar út-
boðstölur cinar og sér og ofan-
greindir kostnaðarliðir und-
anskildir cða vanmetnir. KK
■■■■
<5£>
TOYOTA
Subaru Legacy Sedan 2200,
sjálfskiptur, ekinn 40 þús. km.
Verð kr. 1.670.000.
Nissa Patrol P/U m/kassa., diesel,
árg. 1987, ekinn 210 þús. km.
Kram gott. Þarfnast boddývið-
gerðar. Fæst á sanngjörnu verði.
Toyota Corolla 4WD, árg. 1989,
ekinn 78 þús. km. Verð kr.
940.000.
Bílasalan
$tórholt
Óseyri 4, Akureyri,
sími 96-23300, fax 96-11513.
Ath. skipti. Greiðsiukjör 24-36 mán.