Dagur - 09.12.1993, Blaðsíða 8

Dagur - 09.12.1993, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 9. desember 1993 Háskóli Akureyrar býður nú upp á ferns konar nám: hjúkrunarfræði, rekstr- arfræði, sjávarúvegsfræði og kennararnám. Auk þess er nýlega farið að bjóða upp á eins árs nám í gæðastjórnun. Um 70 nemendur stunda nám í hjúkrunar- fræði sem er f jögurra ára nám, um 55 eru í rekstrarfræði sem er tvö ár og um 40 í sjávarútvegsfræði sem er fjögur ár. Þá bendir allt til þess að kennaradeild- in, sem hóf starfsemi sína í haust, verði langfjölmennasta deildin. Þar eru á fyrsta ári jafnmargir nemendur og í allri hjúkrunarfræðinni. Kennaranámið er þrjú ár. I gæðastjórnun eru 9 nemendur. I þessari grein verður fjallað um félagslíf stúdenta við Háskólann á Akur- eyri og aðstöðu þeirra til náms. Auk þess verður fjallað um stúdentagarðana, Utstein og Klettastíg, sem Félagsstofnun stúdenta á Akureyri á og rekur. Allir nemendur skólans eru aóilar að Fé- lagi stúdenta við Háskólann á Akureyri. Heiti félagsins cr skammstaf- að FSHA. Á aóalfundi sem hald- inn er á haustin cr kosin fintm manna stjórn til að sinna málefn- um stúdenta. Á fundinum er kosið í hinar ýmsu nefndir innan háskól- ans, svo sem íþróttanefndir karla og kvenna, tölvunefnd, bókasafns- nefnd og fleiri. AIls er kosið í 11 nefndir á að- alfundi. Hlutverk þessara nefnda er aó vinna að félags- og hags- munamálum stúdenta, hver á sínu afntarkaða sviói. Af námsgjöldun- um, sem hver nemandi greiðir ár- lega, renna þrjú þúsund krónur til FSHA. Hlutverk fulltrúanna í stjórn FSHA er meðal annars að útdeila þcssum peningum til deildarfélaganna. Hvert félag fær úthlutað upphæð í samræmi við fjölda nemcnda í hverri deild eóa átta hundruð krónum á hvern skólanum inn á við eru nýnema- kvöld sem félagið stendur fyrir á haustin eftir að deildarfélögin hafa haldið kynningarkvöld hvert í sinni deild. „Viö höfum hins veg- ar lítið starfað markvisst að kynn- ingum út á við.“ Vísindaferðirnar sem deildirnar fara tvisvar á ári eru þó liður í þessari kynningu. Áuk þess að standa fyrir kynn- ingum er hlutverk stjómarinnar að sjá til þess að nefndirnar, sem kosnar eru á aðalfundi, sinni hlut- verki sínu. Fulltrúarnir í stjórninni eru oftar en ekki tengiliðir stúd- enta við mcðlimi hinna ýmsu nefnda. Málefni sérskipaðra nefnda berast oft fyrst til einhvers fulltrúa félagsins, sem kemur því svo áleiðis til viðeigandi nefndar- fulltrúa. Þegar ný deild tekur til starfa við Háskólann, eins og í haust, er það hlutverk stjórnar FSHA að kynna félagsstarfsemina innan skólans. Það sama á við um starf- semina innan deildanna. Þau segja frá fyrirkomulaginu hjá eldri deildum og kynna þcim hlutverk nefnda og ráða innan deildanna og mjög spennandi að fá að vera með í að móta svo ungt félag sem FSHA er. „Við sem erum í stjórn núna getum haft heilmikil áhrif á það hvernig starfsemi félagsins þróast og hvert verður verkefna- sviö þess í framtíóinni.“ Virkir nemendur Helstu menningarviðburðir, sem stjóm FSHA stendur fyrir, eru ný- nemakvöld, jólaglögg og árshátíó. Þessar uppákomur eru opnar öll- um og allar mjög vel sóttar. Krist- ín telur að á árshátíðinni í fyrra hafi allir mætt. Stúdentar við Há- skólann á Akureyri virðast al- mennt vera mjög virkir í félags- og ncfndarstörfum innan skólans. Unnsteinn segir fundina á vegum FSHA ekkert síður vcl sótta en skemmtanimar. Þó nemendur berjist ekki um að fá að sitja í stjórn FSHA eða í hinum ýmsu nefndum þá hafa ekki komið upp vandamál vió að skipa sætin. Það er samt ekki algengt að sami nem- andi sitji í mörgum nefndum og ráóum skólans. Unnsteinn telur að óvíöa sé jafn hátt hlutfall nemenda Kennsla við Háskólann á Akureyri fer fram á þremur stöðtim í bænum. Þessi mynd er frá því í apríl sl. og sýnir tvo nema sjávarútvegsdeildar H.A. við örvcrurannsóknir. Mynd: GG. Háskólinn á Akureyri - vaxtarbroddur byggðarlagsins nemanda. Félögin nýta þessa pen- inga svo til ýntis konar félags- starfsemi innan sinnar deildar. Hlutverk fulltrúa nemenda er miklu víðtækara en að skipta ákveðnum sjóði eftir settum regl- urn á milli deildarfélaganna fjög- urra innan Háskóla Akureyrar. Stjórn félagsins hefur skrifstofu í kjallara Háskólahúsnæóisins við Þingvallastræti. Þar heldur hún fundi vikulega og geymir öll helstu gögn sem tengjast félaginu. Fulltrúarnir fimm cru í fullu námi með starfi sínu í FSHA. Skrifstofan er því sjaldnast opin og hefur heldur engan sérstakan opnunartíma. Hins vegar ciga nemendur auðvelt með að koma málefnum sínum á framfæri við hvern fulltrúanna sem er í gegnurn síma, því þau eru með símsvara á skrifstofunni. Fulltrúarnir koma líka úr öllunt deildum Háskólans svo það kemur ekki að sök þó starfsemin sé svona dreifð urn all- an bæ. Alls staðar er hægt að ná í einhvern stjórnarfulltrúann. Hagsmunafélag stúdentanna Til að fræðast betur um starfsemi FSHA mættu Unnsteinn Ingason, sem er forntaður félagsins, og Kristín Sólveig Bjarnadóttir, vara- formaður, til viðtals á Café Karó- línu. „Við lítum á okkur sem hags- munafélag stúdenta við Háskól- ann á Akureyri," segja þau Kristín og Unnsteinn. Meginhlutverk FSHA er aó kynna skólann út á við sem og inn á við. Sem dæmi um kynningu á hvetja til að nýjar deildir stofni sem fyrst sitt eigið félag. „Við aðstoðum stúdenta líka við aó koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Nýlega var til dæmis ákveóið aó kanna möguleikana á því að stofna kór við Háskólann á Akureyri. Við erum sennilega bú- in að fá stjórnanda. En það er spurning með húsnæði að ekki sé talað um fjármögnun. Senniiega fer þessi starfsemi af stað upp úr áramótum ef af verður á þessu ári. Við erum aó skoða það núna hvort einhver ráð séu til að fjármagna slíkan kór,“ sagði Unnsteinn. Stöðugt ný verkefni Hlutverk fulltrúa í stjórn FSHA er margþætt og í mörg horn að líta. Nýjar hugmyndir og aðstæður færa þeim stöðugt ný verkefni. í fyrra kom til dæmis upp hugmynd að atvinnumiðlun stúdenta. Slík atvinnumiðlun hcfur verið starfandi í Háskólanum í Reykja- vík um nokkurt skeið. í vetur er það meðal annars Háskólakór á Akureyri. Allt starf fulltrúanna cr unnið í sjálfboðavinnu með fullu námi. Unnsteinn og Kristín segja að lítið hafi borið á aö ætlast væri til að þau sinntu hagsmunum sam- stúdenta sinna á pólitískum vett- vangi. Þau töldu þó bæói að þess yrði ekki langt að bíða. „Háskólinn hér er svo ungur og við erum ekki nema 270 ennþá. Þaó breytir samt ekki því að við þurfum að taka afsöðu til margra hluta sem lúta að pólítík og ntjög líklega í auknunt mæli cftir því scm skólinn stækkar og cflist.“ Kristín segir að henni þyki það virkt í félagsstarfsemi innan skóla og í Háskólanum á Akureyri. Deildarfélögin Eir, Reki, Stafnbúi og Magister Vió Háskólann á Akureyri eru nú fjórar deildir: heilbrigðis-, rekstr- ar-, sjávarútvegs- og kennaradeild. Hver deild hefur sitt félag. Ohætt cr að segja að starf innan allra fé- laganna sé mjög blómlegt. Auk þess sent deildarfélögin standa að hefðbundnum skemmtunum svo sem kynningarkvöldum og þorra- Unnsteinn Ingason, formaður Fclags „Meginhlutverk félagsins cr að kynna blótum, skipuleggja þau ýmis hagnýt störf. Þar má nefna vís- indaferðir sem farnar eru tvisvar yfir veturinn; ein að hausti og önnur aó vori. Reki, félag rekstr- arfræðinema, hefur þó farið í fleiri því í haust hafa nentendur þegar heimsótt tvö fyrirtæki og fleiri heimsóknircru í bígeró. Mióað er að því að starfsemi stofnana, sem cru heimsóttir í slíkum feröum, tengist á einhvern hátt náminunt í viðkomandi deild. Þannig heimsækir hjúkrunarfræó- in alltaf eitthvert sjúkrahúsið á stúdenta við Háskólann á Akureyri: skólann út á við sem og inn á við.“ Mynd: R.S. landsbyggðinni; nú síðast sjúkra- húsiö í Stykkishólmi. Sjávarút- vegsfræðin fór síðastlióið vor og heimsótti öll helstu fiskvinnslufyr- irtækin á Austurlandi, næsta vor eru uppi áforrn um að fara til Vestmannacyja. Hvert scm stúd- entarnir hafa komið í slíkunt heimsóknum hefur þeim verið tekið mcð mikilli velvild og áhuga. Dcildarfélögin hafa líka fengið til sín gestalyrirlesara á cigin veg- um. í hjúkrunarfræðinni cr það lil dæmis nokkuð algengt. Stafnbúi, félag sjávarútvegsnema, hefur einnig aukið nám sitt meó uppá- komum sem félagið stendur fyrir. Árlega hefur það staóið fyrir fund- um í nálægum bæjarfélögum þar sem fjallaö cr um eitthvert eitt málefni tengt sjávarútveginum. Síðastlióinn vetur voru slíkir fundir haldnir á Dalvík og Sauðár- króki. Efnið var: „Framtíð sntá- bátaútgerðar á Islandi". Fundirnir hafa vcrió fjármagnaðir af bæjar- félögunum en Stafnbúi helur séð um að fá fyrirlesara til að fjalla um málefnið. Nýlega cr hafin blaðaútgáfa á vegum deildarfélaganna og reið Reki á vaðiö. Blaðið ber nafn fé- lagsins. I fyrsta blaóinu sem kont út haustið 1991 kcrnur l'ram að það er gefið út í 8000 cintökum og dreift í hvcrt hús á Akureyri og 2000 fyrirtæki landsins án endur- gjalds. Eintakafjöldinn hefur dreg- ist saman síðan í 2500. I haust hófu Stafnbúi og Eir, félag hjúkrunarfræöinema, líka blaðaútgáfu. Blöðin þrjú cru mjög glæsileg, bæði að útliti og inni- haldi. Ef sami metnaöur verður á útgáfu þessara blaða í framtíðinni

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.