Dagur - 09.12.1993, Síða 9
Fimmtudagur 9. desember 1993 - DAGUR - 9
veróa þau eflaust besta kynningin
fyrir Háskólann á Akureyri.
Magister, félag kennaranema,
var stofnaó í haust. Þaö er ungt fé-
lag í mótun. Gjaldkeri félagsins,
María Hjaltalín, segir aó starfsemi
félagsins sé öll á hugmyndastigi
ennþá.
Aðstaða stúdenta við
Háskólann á Akureyri
Kennsla vió Háskólann á Akur-
eyri fer fram á þremur stöðum í
bænum. Hjúkrunarfræóin er í hús-
næöi háskólans á horni Þingvalla-
strætis og Þórunnarstrætis. Þar er
líka bókasafn fyrir alla stúdenta
innan Háskólans, tölvu- og lcs-
stola. Sjávarútvegs- og rekstrar-
dcildin er úti í Glerárgötu 36. Þar
er einnig lcs- og tölvuherbergi auk
tveggja vinnuherbcrgja fyrir hópa.
Yngsta deildin innan Háskólans,
kennaradeildin, hefur aðstöðu í
húsnæöi KA í vetur.
Þingvallastrætið
Húsnæði hjúkrunarfræöinnar er
kallað Þingvallastræti í daglegu
tali nemenda. Húsió er á þremur
hæðum. I kjallara eru, auk skrif-
stofu FSHA, kaffistofa og bók-
sala. Bóksalan er í nánu samstarfi
vió Bóksölu stúdenta í Reykjavík
og allar pantanir fara í gegnum
hana. Þannig geta stúdcntar hér
notiö samninga sem Bóksala stúd-
enta fyrir sunnan hcfur náö í
gegnum margra ára viðskipti vió
sömu fyrirtæki erlendis. Bóksalan
í kjallara Þingvallastrætis er
inngangurinn er, er bókasafn sem
er opið frá klukkan 8 á morgnana
til 6 á kvöldin. Þar eru líka skrif-
stolur Háskólans og lesstofa fyrir
stúdenta.
Tölvustofa er á þrióju hæö. Þar
hafa stúdcntar aðgang að pc-tölv-
um meö margs konar hugbúnaði í
„windows-umhverfmu“ auk Ieysi-
prentara. Almennar kennslustofur
eru einnig á annarri og þriöju hæö.
A efstu hæó eru skrifstofur
kennara auk fundarsalar.
Glerárgatan
Húsnæði rekstrar- og sjávarút-
vegsdeildar er í Glerárgötunni og
er þaö líka á Ijórum hæöum. A
jaröhæð hafa sjávarútvegsfræöi-
ncmar aðgang að tilraunastofum
Rannsóknarstofnunar fiskiónaðar-
ins. Þar er ein kennslustofa.
Kaffistofa og aögangur að ljós-
ritunarvél er á annarri hæó auk
kcnnslustofa.
Skrifstofa og kennslustofur eru
á þrióju hæð einnig hafa nokkrir
kennarar aðstöóu sína þar.
Efst eru skrifstofur kennara,
tölvustofa, lestofa og tvö herbergi;
sem henta vel undir hópverkefni. I
stærra herberginu geta stúdcntar
auðveldlega komið sér upp að-
stöðu fyrir lokaverkefni.
Félagsstofnun stúdenta
A fjórðu hæð er líka starfsemi Fé-
lagstofnunar stúdcnta á Akureyri.
Framkvæmdastjóri Félagsstofnun-
ar stúdenta á Akureyri er Valtýr
Hreiöarsson, sem jafnframt er
Kristín S. Bjarnadóttir, varaformaður Félags stúdcnta við H.A.: „...Við að-
stoðuni stúdcnta líka við að koma hugmyndum sínum á framfæri.“
Mynd: R.S.
Rakel Sígurgeirsdóttir
erfædd 17. september 1961.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri
1984 og hefur stundaö nám x
íslensku og fjölmiölafræðí viö
Háskóla íslands sl. þxjú ár.
Hún er nú nemandi í hagnýtri
fjölmíölun viö sama skóla.
Undanfarin sumur hefur Rakel
unniö hjá Sparisjóðí vélstjóra í
___________Reykjavík.___________
vcnjulega bara opin fyrir hádcgi.
Eingöngu námsbækur eru þar í
boði. Þaó cr Félagsstofnun stúd-
cnta á Akureyri sem annast rekst-
ur bóksölunnar.
I kjallaranum er líka stol'a fyrir
verklega kennslu í hjúkrunarfræði.
A annarri hæð, eða þeiiri hæð sem
lektor við Háskólann. Félagsstofn-
un rekur kaffistofur skólans og
bóksöluna. I tillögum að skipu-
lagsskrá stofnunarinnar kemur
fram að megintilgangur hennar sé
að eiga og rcka námsmannaíbúðir.
Nú þegar hafa risið stúdentagaróar
á tveim stöðum í bænunt.
Við Skarðshlíð 46 er Útsteinn,
sem var tekinn í noktun haustið
1989. Útsteinn er blandaður garð-
ur. Onnur og þriója hæð er skipt
til helminga í einstaklingsherbergi
annars vegar og para- og tveggja
herbergja íbúðir hins vegar. A
hvorri hæð er sameiginlegt cldhús
fyrir einstaklingsherbergin og
setustofa. Nióri eru tvær stærri
íbúðir, leiksalur, geymslur,
þvottahús og skrifstofa húsvarðar.
Við Klettastíg cru þrjú hús fyrir
námsmenn. I tveim húsanna eru
misstórar íbúðir en í því þriðja eru
einstaklingsherbergi. I öllum hús-
unum eru sameiginleg þvottaher-
bcrgi auk leikhcrbergja nenia á
einstaklingsgörðunum cins og gef-
ur að skilja. Hjólreiða- og rusla-
geymslur eru í timburskúrum á
lóðinni.
A báðum stúdentagörðunum
cru 28 íbúðir og 26 einstaklings-
hcrbcrgi alls.
Allir sem stunda reglulegt nám
við Háskólann á Akureyri geta
sótt um garðvist. Umsóknarfrestur
er til 20. júní ár hvert. Ibúóunum
er úthlutað eftir sérstökum reglum
eða svokölluðu punktakerfi.
Starlsmaður Félagsstofnunar fer
yfir umsóknirnar og gefur um-
sækjendjum viðeigandi punkta-
fjölda. Úthlutunarnefnd, sem í sit-
ur einn fulltrúi frá hvorum garói,
einn skipaður af stúdentum og
starfsmaður Félagsstofnunar, sér
síðan um úthlutun.
Valtýr segir að starfsemi Fé-
lagsstofnunar stúdenta á Akureyri
sé svo lítil ennþá að ekkert mál sé
að sinna framkvæmdastjórastöð-
unni meö starfi lcktors. Svar hans
við spurningunni hvort stúdentar
hel'óu eitthvaó um störf hans sem
framkvæmdastjóra að segja cr á
þessa leið: „Eg hef umboð frá
stjórn Félagsstofnunar til að stýra
þessu fyrirtæki. Að sjálfsögðu ber
ég öll grundvallaratriði undir
hana. Stjórnin er skipuð tveim
fulltrúum stúdcnta, tveim frá Há-
skólanum og einum frá bænum.“
Einn íbúi garðanna segir: „Það
væri æskilegt að annar fulltrúi
stúdenta í stjórn væri jafnframt
íbúi garðanna." Hann segir að það
séu fyrst og fremst hagsmunamál
garðsbúa sem snúi að Félagsstofn-
un enn sem komiðér og því óeóli-
legt að þeir hafi ekki atkvæöisrétt
í stjórn hennar.
Almennt er aðstaóan í íbúðun-
um og húsunum góð þó alltaf
megi benda á eitthvað sem betur
megi fara. íbúarnir, sem teknir
voru tali, voru yfirleitt sammála
um að leigan væri há. Einn íbú-
anna benti á að skólafélagar henn-
ar, sem leigðu einstaklingsher-
bergi úti í bæ, borguðu mun lægri
lcigu en gerðist á görðunum.
Ibúar á Útsteini kvörtuóu und-
an fjarlægðinni í skólann. Enda er
Útsteinn úti í Þorpi en bæói hjúkr-
unarfræðin og kennarardeildin
uppi á Brekku og sjávarútvegs-
dcildin sunnan Glerár. Einn íbú-
anna bcnti á að þeim stúdcntum
sem væru nýfiuttir í bæinn og að
hefja nám við Háskólann veitti
ckkcrt af leiðbciningabæklingi um
Akureyri. I honum mætti koma
fram strætisvagnaáætlun, opnun-
artíma verslana og sitthvað fieira
scm bæði varðaði Háskólann og
það að búa á Akureyri.
Þýðing Háskólans fyrir
bæinn
Kristín Bjarnadóttir er á öðru ári í
hjúkrun. Þegar hún segir fólki
hvaða nám hún stundar, er ekki
óalgengt að heyra það segja: „Já,
já, er það kennt í Verkmennta-
skólanum?“ Hún segir að líka hafi
verið algengt að fólk héldi aö hún
þyrfti suður til að ljúka náminu.
Hvað varðar afstöðu cldra fólks
til þess að konur scm eru í sambúð
og/eóa með barn séu í námi, segir
Kristín að hún verði ekki vör við
nein leiðindi í því sambandi.
Margar cldri konur hafa aftur á
móti sagt að þær hefðu nýtt sér
þetta tækifæri til náms hefði það
verið fyrir hendi þegar þær voru
ungar.
Háskólinn kemur sér ekki bara
vel fyrir íbúana sem vilja stunda
þar nám. Fólk í nágrannabyggðun-
um og jafnvel lengra aö fiyst
hingað, sumt með tjölskyldur sín-
ar. Sumir setjast hér að til fram-
búóar. Fleiri íbúar þýða aukin um-
svif. Að minnsta kosti hafa bæst
við ýmsar verslanir og kaffihús á
allra síðustu árum, hver sem fram-
tíð þcirra vcrður...
Kristín og Unnsteinn segjast
bæói verða mjög mikið vör viö
velvilja fyrirtækja á Akureyri í
garð Háskólans sem stafaði ef til
vill af því að stjórnendu'r fyrir-
tækja skyldu best hve mikla þýð-
ingu Háskólinn á Akureyri hefur
fyrir byggðarlagið.
Rakel Sigurgeirsdóttir.
Höfundur er nemi í hugnýtri fjölmiólun vió Há-
skóla íslunds.
MARGT SMÁTT
GERIR EITT
STÓRT.
FRAMLAG ÞITT
ER MIKILS VIRÐI.
<Sír hjálparstofnun
\~\Tj KIRKJUNNAR
- með þinni hjálp
Starfsmannafélög
og félagasamtök
Föstudags- og laugardagskvöld
Hljómveit
Ceinmwdar Mýssonar
IMiðaverð kr. 900 • llúsið opnað kl. 23.30 laugardagskxöld
Snyrtilegur klæðnaður • 18 ára aldurstakmark • Nafnskírteini
iiiM M 'M MW ME
f Fimmtud., föstud. og laugardagur
Omar llhnsson trúbador
18 ára aldurstakmark - Nafnskírteini
i SmÍNN r
6/óda Æa/uan
á ö//u/? t tí/c//H
u/j/c á /f///'etjf//tíj(/
/yó/tíftíf/'S'fzv/u/
^ oj /étt 'SÁetíunt/cit/'/á~/ ?
?
?
íAoö/dj/uwntuifqyJ
20.30
?
?
?
?