Dagur - 24.12.1993, Síða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 24. desember 1993
Fíimn kynslóðir kennara í
Menntaskólanum á Akureyri
Fimm kynslóðir kennara á kennarastofunni í Menntaskólanum á Akureyri. Sitjandi eru Þórir Haraldsson (t.v.) og
Ásmundur Jónsson. Standandi eru (frá vinstri) Þórgnýr Dýrfjörð, Þorlákur Axel Jónsson og Bragi Guðmundsson.
Mynd: Robyn.
Menntaskólinn á Akureyri er
þekktur fyrir að halda í gamlar
hefðir, formfestu og stöðugleika.
Einn þáttur í þessum stöðug-
leika er löng starfsævi kennar-
anna. Litlar breytingar verða ár
frá ári á kennaraliði skólans og
sem dæmi má nefna að í 120 ára
sögu hans hafa um 30 kennarar
kennt um og yfir aldarþriðjung!
Margir kennaranna lærðu sjálf-
ir í skólanum og svo skemmti-
lega vill til að nú eru starfandi
við hann fimm „kynslóðir“
kennara þannig að sá elsti
kenndi þeim næsta og svo koll
af kolli...
Asmundur Jónsson, ensku-
kennari, hóf störf 1965 og kenndi
Þóri Haraldssyni, líffræóikennara,
sem aftur kenndi Braga Guð-
mundssyni, sögukennara. Bragi
kenndi síðan Þorláki Axel Jóns-
syni, sögukennara, sem kenndi
Þórgný Dýrfjörð, heimspekikenn-
ara.
En hverjir skyldu vera kostir
þess og gallar að kennarar hafi
sjálfir verið við nám í skólanum
og kennt þar lengi. Er hætta á að
kennsluaóferðir og vinnubrögð
staðni eða leiðir þetta til betri
kennslu?
Fjölskylduyfirbragð
Þórgnýr Dýrfjöró hóf kennslu við
MA um síðustu áramót og er því
sá kennari af þessum fimm kyn-
slóðum sem styst hefur starfað.
Hann telur þaó ekki hafa bein
áhrif á kennslu þó hver hafi lært af
öðrum, þar sem þeir séu ekki allir
að kenna sömu námsgrein. Hann
segir að hins vegar eigi þetta þátt í
að skapa mikinn fjölskylduanda
innan skólans.
„Þaö myndast mjög sérstök
tengsl milli nemenda og MA.
Skólinn hefur fjölskylduyfirbragð,
nemendur verða fyrir áhrifum af
foreldrum og eldri systkinum sem
hafa verið í skólanum og verið
ánægð með hann. Ein aðalástæðan
fyrir því er vafalaust sú aó hér er
bekkjakerfi. Fólk kynnist því
mjög vel og skólinn verður eins
og margar litlar fjölskyldur.
Það hafði ótvíræða kosti fyrir
mig þegar ég byrjaói aö kenna að
hafa verið við nám hér og þekkja
þennan kjarna. Það var eins og ég
hefði verið lengi í burtu og væri
að koma heim á æskuslóðir til afa
og ömmu. Þar sem ég þekkti flesta
kennarana vel átti ég auðvelt með
að leita ráða hjá þeim því þessi
fjölskylduandi ríkir einnig á kenn-
arastofunni. Það hafði ég aldrei
hugsað út í áður.“
Marta Eínarsdóttír
er fædd 24. júní 1967. Hún er
Norðfirðingur en þó fædd á Ak-
ureyd og telur sig hálfan Þingey-
íng þar sem móðir hennar ólst
upp í Ystu-Vík í Grýtubakka-
hreppi.
Síðustu 10 ár hefur Marta
verið búsett á höfuðborgarsvæð-
inu og stundað þar nám og ýmis
störf. Hún lauk B.A.-próft í sálar-
fræði frá Háskóla íslands í febrú-
ar sl. og er nú nemandí í hag-
nýtri fjölmíðlun við sama skóla.
„Þaðlsem hefur reynst vel í
kennslu má vel berast
áfram“
Ásmundur Jónsson er aftur á móti
sá kennaranna fimm sem lengsta
starfsreynslu hefur. Hann telur
það hafa kosti að menn snúi aftur
til starfa sem kennarar, „ef þeir
sem fyrir voru höfðu eitthvaó að
kenna á annað borð og þeir sem
aftur snúa hafa samanburð við þaó
sem þeir hafa séð annars staðar.
Það sem hefur reynst vel í kennslu
má vel berast áfram. Góð kennslu-
aðferó veróur ekki endilega úrtelt
þó að hún sé notuð í tuttugu ár.“
Tryggvi Gíslason skólameistari
telur það hafa mikla kosti að
áhugasamir kennarar kenni lengi.
„Það eru gömul sannindi að eftir
því sem þú vinnur starf lengur
þeim mun betri starfsmaður verð-
ur þú.“
Fastheldnir á það sem er
gamalt og gott
Þórgnýr, Ásmundur og Tryggvi
viðurkenna allir aó einhver hætta
sé á stöónun þegar hver taki við af
öðrum og lítil endurnýjun verði á
fólki. „Sumir telja slæmt aö stofn-
un endurnýi sig sjálf. Það væri til
að mynda slæmt ef allir kennarar
skólans hefðu lært hér og þekktu
ekkert annað en þaó sem hér fer
fram en svo er sem betur fer ekki.
Vió erum íhaldssamir hér eða
a.m.k. fastheldnir á það sem er
gamalt og gott. En þrátt fyrir það
fylgjumst við vel með nýjungum
og því sem er að gerast annars
staðar, a.m.k. viljum við trúa því,“
segir Tryggvi að lokum.
Marta Einarsdóttir.
Höfundur er nemi í hagnýtri fjölmiólun viö Há-
skóla Islands.
MATARKRÓKUR
Aðeins öðruvísi réttir
M Lindu Ragnarsdóttur
Matarkrókur vikunnar að
þessu sinni er Linda Ragn-
arsdóttir. Hún sagðist hafa
ákveðið að koma með að-
eins öðruvísi rétti að þessu
sinni en fólk er vant, en
samt eitthvað sem lítið mál
vœri að elda. Þeir réttir
sem hún býður uppá eru
að hennar sögn gjarnan
eldaðir á hennar heimili
og líka vel.
Um er að rœða tvœr
tegundir af pottréttum,
nautakjöts og kjúklinga og
í eftirrétt er tilvalið að
hafa bananatertuna sem
einnig fylgir. Hún er borin
fram volg með þeyttum
rjóma og að sögn Lindu er
mjög gott að treysta á
hana. En þá eru það bara
uppskriftirnar og pottrétt-
irnir fyrst.
Öðruvísi kjúklingapottréttur
2 stórir kjúklingar
Aprikósutnarmelaði, ca. 450 gr
1 pk. lauksúpa (helst tœr)
1 flaska Fransk Dressing (Hei-
delberg)
Sesan all (Mc. Cormic)
Kjúklingarnir eru hlutaðir smátt,
settir í steikarpott og kryddaðir.
Öllu öðru blandað saman og hellt
yfir kjötió. Steikt í eina klst. við ca.
200 hita.
Með þessu eru borin fram löng
hrísgrjón ög brauó.
Nautakjötspottréttur
200 gr smjörlíki sett í pott, 3 sax-
aðir laukar settir útí og kraumaðir.
Engifer, negull, múskat, selleri-
salt, 3ja kryddið, paprika, pipar og
karrí hrært saman og sett útí pott-
inn. Tómatsósa, Relix, og einn peli
rjómi allt sett saman við, ásamt
góðu nautakjöti í strimlum. Látið
malla í ca. 15 mín.
Með þessu eru höfð hrísgrjón
og brauð.
Bananaterta
Botn:
50 grsykur
50 gr kókosmjöl
60 gr hveiti
1 egg
'A tsk. ger
Egg og sykur þeytt saman og hinu
bætt útí. Sett í lausbotna form.
Fylling:
V/i epli
1 banani
50 gr súkkulaði
100 gr döðlur
30 gr sykur
10-15 gr kókosmjöl
Allt brytjað, hrært saman og sett á
botninn. Bakað við 150-175 C.
Tertan er borin fram volg með
þeyttum rjóma.
Síðan er bara að vona að les-
endur prófi þessar ágætu uppskrift-
ir og verði gott af. Linda skoraði á
vinkonu sína Ólöfu Matthíasdóttur,
sem aö hennar sögn er frábær
kokkur. HA