Dagur - 24.12.1993, Page 9

Dagur - 24.12.1993, Page 9
Föstudagur 24. desember 1993 - DAGUR - 9 Iitlu jólin bam- anna á Hlíðarbóli Síðustu dagarnir fyrir jól eru jafnan annasamir hjá þeim sem fullorðnir eru og kemur þar margt til: Sumir hafa óvenju- mikið að gera í vinnunni; flestir vilja hafa huggulegt í kringum sig yfir hátíðina og þurfa því að taka til hendinni heima fyrir; fólk þarf að ganga frá jólapökk- unum og senda jólakortin; enn aðrir vilja baka smákökur, skera út laufabrauð eða búa til konfekt - og þannig mætti lengi telja. Börnin taka að sjálfsögðu virk- an þátt í jólaundirbúningnum og sum fá meira aó segja að vaka lengur cn venjulega. Samt sem áð- ur reynist bióin eftir sjálfum jól- ununr mörgu barninu erfið og þá reynir sannarlega á þolinmæðina. Sú hefð að taka forskot á sæl- una og halda „lítil jól“ nokkrum dögurn fyrir jól er orðin mjög al- menn hér á landi. Börnin í lcik- skólunum láta ekki sitt eftir liggja og halda litlu jólin með blöndu af hátíðleika og glæsibrag. Robyn ljósmyndari heimsótti börnin á leikskólanunr Hlíðarbóli á Akureyri við slíkt tækifæri á dögunum og gerði tilraun til að festa stemmninguna, einlægni barnanna og gleói, á filmu... BB

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.