Dagur - 24.12.1993, Side 16
Y
Ástarljóð
Davíðs
Davíð Stefánsson er eitt af önd-
vegisskáldum íslensku þjóðarinn-
ar og hafa ljóð hans í gegnum tíð-
ina notið mikilla vinsælda hjá
henni, - ekki síst ástarljóð hans. í
bókina Astarljóð Davíðs sem
Vaka-Helgafell sendir nú frá sér
hefur verið safnað saman yfir
þrjátíu ljóðum Davíðs Stefánsson-
ar frá Fagraskógi um ástina.
Ljóðin í bókinni sýna breiddina í
skáldskap hans um þetta marg-
slungna fyrirbæri mannlífsins.
I formála bókarinnar segir Pét-
ur Már Ólafsson meðal annars:
„Davíð Stefánsson var eitt vinsæl-
asta skáld síns tíma, elskaður og
dáður, ekki síst fyrir ástarljóð sín,
enda sló hann með þeim nýjan
hljóm í íslenskum skáldskap.
Hann var töfrarinn og trúbadorinn,
hjartasöngvarinn. Davíð nýtur enn
hylli þjóðar sinnar; ljóð hans eru
lesin, lögin við þau sungin á góðri
stund; nýjar kynslóðir vaxa upp
með skáldskap hans. Mörg þeirra
ljóða sem birtast í bókinni Astar-
Ijóð Davíðs eru meðal þekktustu
ljóða lians - og þar með íslensku
þjóðarinnar."
G. Ben. prentstofa annaðist
prentvinnslu bókarinnar.
Dagnætur
- ljóðabók eftir
Eystein Björnsson
Dagnœtur heitir nýútkomin ljóða-
bók eftir Eystein Björnsson.
Bókin inniheldur 50 ljóð í
þremur köflum. Fyrsta ljóðið,
Sumarnótt, vísar í heiti bókarinnar
og tekur höfundurinn upp þennan
þráð og spinnur í fleiri ljóðum í
fyrsta hlutanum, Andvara. í öðr-
um og þriðja hluta, Sólfari og
Blikum, slær höfundur á aðra
strengi og endurspeglar heiti kafl-
anna þær breytingar sem verða á
einum sólarhring, hið ytra og hið
innra.
Eysteinn er fæddur á Stöðvar-
firði 1942 og er Dagnœtur fyrsta
ljóðabók hans. Eftir hann liggur
skáldsagan Bergnuminn, sem kom
út 1989. Hann hefur einnig samið
smásögur og var ein þeirra flutt í
Ríkisútvarpinu í byrjun þessa árs.
Dagnœtur er 70 blaðsíður að
stærð. Bókaútgáfan Norðurljós
gefur út. Bókin kostar 1.820 kr.
Fríða fram-
hleypna á
flumbrugangi
Bókaútgáfan Skjaldborg hefur
sent frá sér bama- og unglinga-
Næsta blað
kemur út þriðjudaginn 28.
desember.
Auglýsingar í það þurfa
að berast fyrir kl. 11.00
máuudaginn 27. desember.
bókin „Fríða framhleypna á
flumbrugangi“.
I frétt frá útgefanda segir m.a.:
„ Þetta er sjöunda bókin um Fríðu
framhleypnu. Bækumar hafa hlot-
ið feikimiklar vinsældir. Lesendur
verða ekki fyrir vonbrigðum með
þessa nýju bók, Fríða framhleypna
er kannski óforbetranleg en um-
fram allt óviðjafnanleg - og uppá-
tækin, ólýsanleg..."
Bókin er 90 blaðsíður og kostar
994 kr.
Draumar
Einsteins
Vaka-Helgafell hefur gefið út
skáldsöguna Draumar Einsteins
eftir Alan Lightman í þýðingu
Sverris Hólmarssonar.
Sagan segir frá Albeil Einstein
og draumum hans þegar hann
vann á einkaleyfaskrifstofu í Sviss
í upphafi aldarinnar og lét sig
dreyma urn tímann og tilveruna.
Einstein á að hafa sagt að það sem
hann hefði í raun mestan áhuga á,
væri hvort Guð hefði átt einhverra
kosta völ, þegar hann skapaði
heiminn. Lightman hefur í bók
sinni skrifað um það hvernig Guð
hefði getað kosið að koma hlutun-
um fyrir - hefði hann haft eitthvert
val!
Draumar Einsteins er fyrsta
skáldsaga Alans Lightmans,
Bandaríkjamanns sem fæddur er í
Memphis í Tennessee árið 1948.
Lightman kenndi stjömufræði og
eðlisfræði við Harvardháskóla frá
1976-1988 en er nú prófessor við
MIT-háskólann í Massachusetts
þar sem hann kennir eðlisfræði og
ritlist - svo ólíkar sem þær greinar
nú eru!
Draumar Einsteins er 184
blaðsíður að lengd. Hún er unnin í
Prentsmiðju Áma Valdemarsson-
ar.
arsee
fypip ánae.0julegt saMs\aA
i viðskipti a ápinu /
oma
Kaupfélag Eyfirðinga
Akureyri