Dagur - 29.12.1993, Síða 3
FRETTIR
Miðvikudagur 29. desember 1993 - DAGUR - 3
Ekkert upp
í kröfur
Ekkert fékkst upp í lýstar
kröfur f þrotabú Reynis hf. á
Akureyri, en þær námu um
12,5 milljónum króna auk
áfallinna vaxta og kostnað-
ar.
Einar ráðinn
Einar Hjörleifsson, IfffræÓ-
ingur, hefur veriö ráöinn í
stööu fiskifræöings viö úti-
bú Hafrannsóknastofnunar
á Akureyri. Einar er Norö-
firöingur, sonur Hjörleifs al-
þingismanns Guttormsson-
ar og Kristínar Guttorms-
son, læknis. Einar útskrifaö-
ist frá Menntaskólanum á
Akureyri árið 1978.
Sól og snyrt-
ing gjaldþrota
Fyrirtækið Sói og snyrting
hf. á Dalvík hefur veriö tek-
lö til gjaldþrotaskfpta. Árni
Pálsson hrl. á Akureyri hef-
ur veriö skipaður skipta-
stjóri og veröur fyrsti
skiptafundur í þrotabúinu
haldinn 31. mars nk.
92,2% íþjóö-
kirkjunni
Á síöasta ári voru 92,2%
þjóöarinnar í þjóðkirkjunni. i
þrem fríkirkjum, í Reykjavík
og Hafnarfiröi, voru 3,1%
landsmanna, eöa um 8200
manns. f öörum trúfélögum
voru um 8700 manns. Þar
af voru um 2400 manns f
Kaþólsku kirkjunni, um 780
aöventistar, tæplega 1100
manns i Hvítasunnusöfnuö-
inum, um 50 manns í Sjón-
arhæöarsöfnuöinum, um
540 Vottar Jehóva, 380 Ba-
háíar, um 120 Ásatrúar-
menn, um 320 f Krossinum,
um 160 i Kirkju Jesú Krists
h.s.d.h., um 650 i Veginum
og 28 f Oröi lífsins. Utan
trúfélaga voru tæplega
3600 manns á síöasta ári.
Miðstöð fólks
í atvinnuleit:
Opið hús í dag
Miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit
verður með opið hús í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju f dag,
miðvikudag, milli kl. 15.00 og
18.00. Gestir á þessari síðustu
samverustund ársins verða Guð-
ný Björk Eydal og Tómas
Bjarnason, sem stödd eru hér um
hátíðarnar, en þau eru bæði í
doktorsnámi í féiagsfræði við há-
skólann f Gautaborg í Svíþjóð.
Guðný Björk hefur lokið mast-
erritgerð um þjónustu við atvinnu-
lausa á íslandi og Tómas hefur
meðal annars borið saman at-
vinnuleysistryggingar á Norður-
löndum. Þau munu segja frá þess-
um störfum sínum og kynna
hvernig að þessum málum er stað-
ió hjá nágrönnum okkar, þar hefur
atvinnuleysi sumstaðar lengi verið
viðvarandi, til dæmis í Danmörku.
Ymsar upplýsingar liggja
frammi að vanda og veitingar
verða á boðstólum þátttakendum
aö kostnaðarlausu. Allir sem misst
hafa vinnu eða standa frammi fyr-
ir atvinnuleysi, eru hvattir til að
mæta. ÞI
Steingrímur J. Sigfússon í umræðum á Alþingi um atvinnumál á Akureyri:
Akureyrarbær getur ekki endur-
reist iðngreinar í þágu landsmanna
- tvær skýrslur um skipasmíðaiðnaðinn væntanlegar
Sighvatur Björgvinsson, iðnað-
arráðherra, sagði á Alþingi fyrir
jól að mjög fljótlega verði lagð-
ar frani tillögur í ríkisstjórn um
aðgerðir til bjargar skipasmíða-
iðnaðinum.
Þetta kom fram í máli iðnaðar-
ráðherra í umræóum utan dagskrár
um stöðuna í atvinnumálum á Ak-
ureyri og viðbrögð ríkisstjórnar-
innar við þeim, en Steingrímur J.
Sigfússon (G-Ne) óskaði eftir
þein-i umræðu.
I máli þeirra þingmanna sem
tóku til máls komu fram áhyggjur
vegna stöðu Slippstöðvarinnar-
Odda hf. og skipasmíðaiðnaðarins
í heild. Iðnaðarráðherra sagði að
innan fárra daga væri að vænta
skýrslu um verkefnastöóu skipa-
smíðaiðnaðarins og um miðjan
janúar yrði væntanlega lögð fram
skýrsla nefndar, sem m.a. var falið
að gera tillögur um að bæta eigin-
fjárstöðu skipasmíðaiönaðarins og
meta möguleikann á hagræðingu í
greininni.
Jöfnunargjaldið
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
sagði í þessari umræðu aó hann
væri ekki tilbúinn til að taka af-
stöðu til þess að setja á jöfnunar-
gjald til vemdar íslenskum skipa-
smíöaiónaói, en þaó væri kostur
sem væri verió aó skoða. Iðnaðar-
ráðherra sagði að jöfnunargjald
væri til skoðunar í fjármálaráóu-
neytinu. Ráðherra sagði að sam-
kvæmt alþjóðasamþykktum væri
heimilt aó taka upp jöfnunargjald í
skipasmíðaiónaði, en til þessa hafi
ekkert ríki tckið það upp. Hann
sagði að jöfnunargjald væri ekkert
einfalt mál, m.a. þyrfti að skil-
greina hvert væri heimsmarkaðs-
verð á skipasmíðum.
Flestir þingmanna Norðurlands
eystra tóku til máls í þessari um-
ræðu. Jóhannes Gcir Sigurgeirs-
son (B) hvatti forsætisráðherra til
þess að standa við aó taka upp
jöfnunargjald á skipasmíðaiðnað-
inn.
Tómas Ingi Olrich (D) sagðist
fagna afstöðu forsætisráðherra til
jöfnunargjalds, en það eitt og sér
myndi ekki duga. Skipasmíðaiðn-
aðurinn þyrfti á fjármagni að
halda og í því sambandi væri helst
horft til lífeyrissjóðanna.
Sigbjörn Gunnarsson (A) Iýsti
áhyggjum yfir atvinnuástandinu á
Akureyri um þessar mundir. Hann
sagði aó mikilvægast væri að bæta
stöðu fyrirtækja eins og gert hafí
verið með vaxtalækkunum og
skattabreytingum. Auk þess væri
hið opinbera að beita sér fyrir
ýmsum framkvæmdum á næstu
árum á Akureyri og nefndi Sig-
bjöm viðbyggingu við FSA, nýtt
skólahús við MA, viðbyggingu
við flugstöðina og lramkvæmdir
við Heilsugæslustöðina.
Guðmundur Bjamason (B)
sagði að þessa stundina væri brýn-
ast hjá ríkisstjórninni aö grípa til
aðgerða til þess að halda skipa-
smíðaiðnaðinum gangandi.
Ekki ótakmarkað svigrúm
Akureyrarbæjar
Halldór Blöndal, landbúnaðarráð-
herra (D), sagói að sýndarráðstaf-
anir þávcrandi ríkisstjómar á ár-
unum 1988 til 1991 hafi reynst
Akureyringum mjög þungar í
skauti. Hann sagði að því miður
hafi verið látið undir höfuð
leggjast aó hyggja aó skipasmíða-
iðnaðinum, en einnig væru erfið-
leikar í „niðursuðuiónaðinum fyrir
noróan“.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
aó Akureyrarbær hefói ekki burði
til þess að endurreisa óteljandi
fjölda fyrirtækja. „Og það liggur í
hlutarins eðli aó Akureyrarbær
getur ekki einn axlað þær byrðar
trekk í trekk aö endurreisa hvert
fyrirtæki á fætur öðru og endur-
reisa jafnvel heilar iðngreinar í
þágu landsmanna allra ef hann fær
ekki til þess neinn stuóning frá
stjómvöldum. Akureyrarbær hefur
á undanfömum árum lagt stór-
fellda fjármuni í formi hlutafjár-
og ábyrgða inn í endurreisn ullar-
iönaöarins, endurreisn skinnaiðn-
aðarins, inn í varðstöðu um skipa-
smíóaiðnaðinn og svo mætti lengi
telja. Bærinn hefur ekki bolmagn
til þess að gera slíkt endalaust
einn og óstuddur og það þjónar
líka takmörkuðum tilgangi eins og
t.d. í skipasmíðaiðnaðinum ef ekki
er skapaóur starfsgrundvöllur fyrir
atvinnugreinina,“ sagði Stein-
grímur. óþh
Nýtt - OstQVGÍSld - Tilbúin á borðið
/
Ostameistari Islands, Oddgeir Sigurjónsson, leiðbeinir um val á
ostum úr ostaborðinu okkar milli kl. 16 og 19 í dag, miðvikudag
Sunnuhlíð
Veisluþjónusta
m
Akureyringar - Nærsveitamenn
Flugeldasýning
okkar verður við Lund
(austan við Möl og sand)
í kvöld 29. desember kl. 20.00
HJALPARSVEIT SKATA AKUREYRI
Sölustaðir opnir 29.-30. desember frá kl. 10.00-22.00
og 31. desember frá kl. 9.00-16.00.