Dagur - 19.03.1994, Síða 3
FRETTIR
Laugardagur 19. febrúar 1994 - DAGUR - 3
Bæjarráð Akureyrar um leikfímihús við Oddeyrarskóla:
- íþrótta- og tómstundaráð gagnrýnir fyrirhugaða byggingu harðlega
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
sl. fimmtudag að leggja til við
bæjarstjórn að hún staðfesti
bókun bygginganefndar leik-
fimihúss við Oddeyrarskóla
þess efnis að áfram verði unnið
að undirbúningi byggingafram-
kvæmda við húsið út frá fyrir-
liggjandi tillöguteikningum
hönnuða.
Eins og fram hefur komió í
Degi er að því stefnt að bygging
leikfimihúss við Oddeyrarskóla
verói boóin út í maí og miðast
áætlanir við það að framkvæmd-
um vcröi hraðað svo að hægt
verói að taka bygginguna í notkun
í byrjun næsta skólaárs. Um er að
ræóa 265 fermetra hús sem bæói
er ætlað að hýsa leikfimikennslu
og félagsaóstöðu nemenda. Þar af
er salur og tækjageymsla 195 lcr-
mctrar, stækkun tengiálmu 56 fer-
metrar og tengibygging 13,5 fcr-
metrar.
Forráðamenn Oddeyrarskóla
gera ráó fyrir aó fyrst um sinn
muni skólinn nýta húsið á bilinu
45-55 stundir á viku, þar af verði
íþróttakennsla um 20-30 stundir á
viku. Ef af einsetnum skóla verður
gera forráóamenn skólans ráð fyr-
ir mun meiri notkun af hálfu skól-
ans í húsinu.
Bygginganefnd hússins, sem í
eru Ingólfur Armannsson, skóla-
og menningarfulltrúi bæjarins,
Indriði Ulfsson, skólastjóri Odd-
cyrarskóla, og Jón Már Héóins-
Tap hjá Flugleiðum
Flugleiðir töpuðu 188 milljón-
um króna af rekstrinum á síð-
asta ári en árið 1992 varð 134
milljón króna tap af rekstri
Flugleiða. Helstu ástæður
versnandi afkomu eru
lækkandi fargjöld á öllum
mörkuóum og lægri sætanýt-
ing þrátt fyrir fjölgun farþcga.
Hörður Sigurgestsson, var
endurkjörinn formaður fyrir-
tækisins.
Prestur til þjón-
ustu í Gautaborg
Séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni,
sóknarpresti í Laugameskirkju
og prófasti í Reykjavíkurpró-
fastsdæmi vestra, hcfur verið
vcitt staða íslcnsks prcsts í
Gautaborg í Svíþjóð. Hann
mun annast sálgæslu og aðstoó
vió Islendinga sem bíöa líf-
færaflutnings á Sahlgrenska
sjúkrahúsinu í Gautaborg, auk
þcss sem hann annast þjónustu
við fjölmenna íslendinga-
byggð í Gautaborg og ná-
grenni og einnig sinna iíkum
störfum í Osló.
Margir vUja í stóla
seðlabankastjóra
Um 360 umsóknir bárust um
tvær stöóur bankastjóra í
Seðlabanka íslands og þar al'
um 330 samhljóða umsóknir
frá nemendum í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð. Þá
óskaði viðskiptaráðherra eftir
því vió bankaráó Seólabankans
aó það fjallaði auk þess um
þrjá aðra einslaklinga, Magnús
Pétursson, ráðuneytisstjóra og
Steingrím Hermannsson, al-
þingismann. Sá þriðji óskaði
nafnlcyndar. Var fallist á ósk
ráðherra á fundi bankaráðs í
vikunni.
son, sem á sæti í skólanefnd, leit-
aöi umsagnar íþrótta- og tóm-
stundaráðs um hugsanlega nýtingu
húsnæðisins utan hefóbundins
skólatíma auk ábendinga sem
þyrfti að taka miö af við hönnun
húsnæðisins.
Harðorð bókun íþrótta- og
tómstundaráðs
Iþrótta- og tómstundaráð fjallaði
um rnálið á fundi sínum 10. mars.
sl. og er óhætt að segja að bókun
ráðsins, sem var samþykkt sam-
hljóóa, sé afar harðorö. Atalið er
að ekki hafi verið haft samráö við
íþrótta- og tómstundaráð um l'yrir-
hugaða byggingu leikfimihússins.
Þrátt fyrir að húsið sé skilgreint
sem skólamannvirki komi fram-
kvæmdin inn á verksvið íþrótta-
og tómstundaráðs og varði bæói
íþrótta- og tómstundamál.
Tckið er fram í bókuninni að
íþrótta- og tómstundaráð fagni því
að loks hilli undir aö íbúar Odd-
eyrar fái félagsaðstöðu í hverfi
sitt. Ef einungis væri ætlunin að
byggja hús undir félagsstarf skól-
ans og hverfisins, „myndi ráðió
styója framkvæmdina af heilum
hug, þótt það hefói þá einnig kos-
ió aö fá að vera með í ráðum frá
upphafi.“
Iþrótta- og tómstundaráð lýsir
sig algerlega andvígt áformum um
að byggja leikfimihús af þessari
stærðargráðu. „Þaö er reyndar svo
smátt í sniðum, að með byggingu
þess telur I.T.A. að Akureyrarbær
sé að hverfa hálfa öld aftur í tím-
ann; til þeirra ára þegar tíðkaðist
að byggja íþróttahús, sem ekki
höfðu boðlega æfingavelli í nokk-
urri íþróttagrein (sbr. Iþróttahúsið
við Laugargötu).“
Iþrótta- og tómstundaráð bend-
ir á aó gólf leikfimisalarins verði
20,73 metrar að lengd og 9 að
breidd og það sé alltof lítill salur.
Lagt er til að lágmarksstærð salar-
ins verði 28x14 metrar. „Sú stærð
býður upp á mun meiri möguleika
til nýtingar hússins utan hefð-
bundins skólatíma og telst boðleg
æfingaaðstaða. Mcð því aö koma
jafnframt fyrir fimleikagryfju í
öörum enda salarins, cr hann orð-
inn mjög hcntug æfingaaðstaða
fimlcikafólks," segir orðrétt í bók-
un íþrótta- og tómstundaráðs.
Einnig er bcnt á að jafnframt
því að taka nefnt leikfimihús í
notkun sé sýnt að bæjarstjórn hafi
í hyggju aö loka Iþróttaskemm-
Námskeið í hattasaumi
Kvenlclag Húsavíkur stóð fyrir námskeiði í hatta-
saumi urn sl. helgi. Leiðbeinandi var Sigrún Ingibjörg
Arnardóttir, kennari við VMA, en hún hefur haldið
slík námskeió á ficiri stöðum í sýslunni. Konurnar
sem námskeiðið sóttu voru mjög ánægðar með fram-
takið. Hvcr þátttakandi gerói 1-2 hatta, en mikil fjöl-
breytni var í gerð þeirra og efnisvali.
Kvenfélagið hefur staðið fyrir ýmsum námskcið-
um síðustu misserin, og nýlega leiöbeindi Marentza
Poulsen um undirbúning veisluhalda. IM
Mánaðalöng deila um ráðningu byggingafulltrúa
rædd í Héraðsnefnd EyjaQarðar:
Bygginganefndimar skulu
ráða byggingafulltrúann
Héraðsnefnd Eyjafjarðar sam-
þykkti á fundi sínum á miðviku-
dag drög að nýjum samningi um
starf byggingafulltrúa Eyjafjarð-
ar. I>etta er gert í framhaldi af
starfi þriggja manna nefndar
sem falið var að endurskoða
samninginn eftir ágreining sem
upp kom í haust milli svæðis-
bygginganefndanna við fjörðinn
og Héraðsráðs. Sem kunnugt er
var auglýst eftir nýjum manni í
starfið sl. haust en umsóknir
endursendar þegar ágreiningur-
inn kom upp um hver ætti að
ráða í starfið.
Bygginganefndirnar töldu sig
samkvæmt lögum eiga að sjá um
ráðningu byggingafulltrúa en Hér-
aðsráð vitnaði til samnings sveitar-
félaganna og taldi ráðninguna eiga
að vera á borði ráðsins. Þegar leit-
að var til sveitarfélaganna við
fjörðinn kom í ljós að tvö þeirra
óskuðu endurskoðunar á samn-
ingnum um byggingafulltrúaemb-
ættið. í framhaldi af því voru end-
ursendar þær umsóknir um starfió
sem borist höfðu.
Endurskoóunin á samningnum
hefur nú farið fram og lá lyrir Hér-
aðsnefnd á miðvikudag. Með sam-
þykkt nefndarinnar er ljóst að
ráöning nýs byggingafulltrúa verð-
ur í höndum bygginganefndanna.
Hins vegar verður framkvæmda-
stjórn að öðru leyti í höndum Hér-
aðsráðs. Skýrt mun hafa komið
fram á fundi nefndarinnar að
standa skuli að ráðningu bygginga-
fulltrúans samkvæmt lögum, starf-
ið verði auglýst og ráðið í það
samkvæmt þeim kröfum sem gepð-
ar eru til byggingafulltrúa. JOH
Blönduós:
Ríkið verður opnað á miðvikudag
Ný útsala Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins á Blönduósi
verður opnuð stundvíslega kl.
11.30 nk. miðvikudag. Útsalan
verður að Aðalgötu 8, þar sem
Krútt-kökuhús var áður til
húsa.
Brynja Ingibersdóttir hefur ver-
ið ráóin útibússtjóri, en hún rekur
Efnalaugina Allt á hreinu að Hlíö-
arbraut 10. Sjálf fatahreinsunin
verður áfram í húsnæði fyrirtækis-
ins við Hlíðarbraut, en Brynja
mun taka á móti latnaði og af-
henda hann í Ríkinu við Aðalgötu.
Sanrkvæmt upplýsingum blaðs-
ins er nú unnið að því að finna
nýtt húsnæöi fyrir Krútt-kökuhús
og er stefnt aó því að það verði
starfrækt frá og með vordögum.
óþh
unni. Með fyrirhugaðri stærð Ieik-
fimisalarins muni „bæjaryfirvöld
kalla yfir sig hrikalegan skort á
tímum í íþróttahúsum bæjarins
eftir kl. 17 alla virka daga svo og
urn helgar. M.a. þarf þá aó vísa
300-400 einstaklingum, sem
„trimma“ sér til ánægju og heilsu-
bótar í Iþróttaskemmunni, út á
gaddinn og segja þeim að því
mióur geti Akureyrarbær ekki
boðið þeim tíma í íþróttahúsum
sínum á kvöldin og um helgar!
Viö teljum slíka framkomu við al-
menning ekki samboóna bæjarfé-
lagi af þessari stærðargráðu, á
tímum þegar íþróttaiðkun almenn-
ings er meiri en nokkru sinni fyrr.
Iþrótta- og tómstundaráð Akureyr-
ar getur ekki tekið þátt í slíku,“
segir orðrétt í bókun ráðsins.
I lok bókunarinnar segir að ef
bæjarstjórn kjósi, þrátt fyrir at-
hugasemdir íþrótta- og tómstunda-
ráðs, að halda sínu striki, leggi
ráöið til að rekstur leikfimihússins
verði alfarið í umsjá skólanefndar.
Jafnframt hvetur ráðió „eindregið
til að nauósynlegar endurbætur
verði þá gerðar á íþróttaskemm-
unni og hún fái að þjóna áfram því
hlutvcrki sem hún gegnir nú utan
hefðbundins skólatíma.“
Þessi bókun íþrótta- og tóm-
stundaráðs verður rædd á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar nk.
þriðjudag. óþh
Sauðárkrókur:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráði hefur borist erindi
firá Áningu hf. þar sem óskaó
er eftir lagfæringu á aðkomu
að Heimavist og tilboð um að
lána fé til framkvæmdanna.
Bæjarráó frestaói afgreiðslu
málsins.
■ A fundi bæjarráðs nýlega
voru iagóir fram undirskrifta-
listar um að komið verói upp
umfcrðarljósum á gatnamótum
Skaglirðingarbrautar, Hegra-
brautar og Sæmundarhlíöar.
Bæjanáð vísaói erindinu til
umferöamefndar.
■ Bæjarráð hefur í tilefni af
bréfi forstjóra Flugleiða til
samgönguráðherra nýlega,
ítrekaö þá beiöni sína að sér-
leyfið á fiugleiðinni milli
Reykjavíkur og Sauðárkróks
verói opnað fleiri aðilum en
Fluglciðum hf.
■ Bæjarráði hefur borist brcf
frá Kristianstad, varðandi vina-
bæjamót í júní nk. Bæjarráö
samþykkir að gefa hverju
framboði, sem sæti á í bæjar-
stjórn, kost á að sækja mótió.
■ Félagsmálaráð hefur sam-
þykkt að byggja vióbyggingu
við leikskólann Glaóheima
með 30-35 rýmuni, miðað vió
8 tíma vistun. Ráðið leggur
jafnframt til að leikskólancfnd
hafi umsjón meó byggingu
leikskólans.
■ íþrótta- og æskuiýðsráð hef-
ur samþykkt að veita björgun-
arsveitinni kr. 80.000,- vegna
unglingastarsenti, af óskiptu fé,
sem ráðið hefur yfir að ráða.
■ íþrótta- og æskulýðsráó
ítrekar fyrri bókun sína frá í
febrúar, þar sem farió er fram á
fjármagn til að kanna til hlítar
kostnað við yfirbyggingu og
nauðsynlegt viðhald við sund-