Dagur


Dagur - 08.10.1994, Qupperneq 17

Dagur - 08.10.1994, Qupperneq 17
Laugardagur 8. október 1994 - DAGUR - 17 Vélsmiðjan framlciddi einnig sérstakar flagýtur á heimilisdráttarvélar. Vélsmiðja Steindórs vann töluvert við Blönduvirkjun og fyrirtækið smíðaði m.a. þessi handrið í starfsmannahús virkjunarinnar. steypumót og svonefnd kerfismót til uppsteypu á húsum og mann- virkjum. Fyrirtækið ekki orðið fyrir neinum áföllum Einn veigamesti þáttur starfsem- innar nú hin síðari ár er í tengslum við byggingariðnað, með smíði burðarvirkja og stálgrinda í hús, ásamt handriðum, hurðum og ýmsu járnverki sem til þess þarf. Einnig er mikið um viðgeróar- vinnu við vörubifreiðar og vinnu- vélar alls konar. Nú síðast hefur fyrirtækið komið sér upp tækja- kosti til smíóa úr blikki og fæst þar við smíði á loftræstikerfum ásamt allri venjulegri blikksmíði. Einnig hefur færst mjög í vöxt nú hin síðari ár, ýmis konar smíði úr ryðfríu stáli, bæði í matvælaiðnaði sem og listaverk ýmis konar. Starfsemi fyrirtækisins er á sviði járniðnaöar, sem þjónustu- fyrirtæki við viðgerðir og nýsmíði og nú síðast kom til starfa blikk- smiður hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið hefur ekki orðið fyr- ir neinum áföllum á þessum árum, s.s. slysum á mönnum og munum. Auk þess hefur fyrirtækið séð nokkrum fjölskyldum farborða og því má segja að reksturinn hafi verió farsæll fram að þessu. Fyrir- tækið hefur alla tíð byggt á hand- verkkunnáttu starfsmanna sinna og hefur haft þaö að leiðarljósi að láta vel unnin verk frá sér fara. VELSMIÐJA STEINDÓRS.HF Vélsmiðjan flutti í nýtt húsnæði að Frostagötu 6a árið 1981 og þar er starfsemin enn tii húsa. Á myndinni sem tekin var árið 1981 cru bræðurnir Sigurgeir og Steindór Steindórssynir en þeir tóku við rekstrinum árið 1977 af föður sín- um. Steindór Steindórsson, tók við rekstri vélsmiðjunnar árið 1949 þegar fyrirtækinu var breytt í hiutafélag og stýrði því til ársins 1977. Steindór byggði nýtt verkstæði að Kaldbaksgötu 2 og þar var starfscmin til húsa frá árinu 1929 til ársins 1981. Árið 1946 var húsakosturinn tvöfaldaður með viðbyggingu. Alls vinna um 10 manns hjá vélsmiðjunni og hér sést stærsti hluti hópsins. að það hafi verið grundvallarregla innan fyrirtækisins, að afla fjárins l'yrst og eyða því svo. Þctta hafi bjargað fyrirtækinu frá því að lenda í hremmingum, eins og margir aðrir hafa orðið fyrir í þessari grein. „Verkefnastaðan er þokkaleg í dag og þótt ég hafi aldrei haft góða tiifinningu fyrir framtíðinni, hafa hlutimir alltaf gengið upp, svo það er engin ástæða til svart- sýni og ég get ekki annað en verið þokkalega bjartsýnn á framtíðina. Það eru hins vegar árstíðasveiflur í þcssari grein og mun minna um að vera yfir vetrarmánuðina." Vélsmiðjan hefur ráðið tii sín Afkoma fyrirtækisins hefur ver- ið þokkalcg í gegnum tíðina, seg- ir framkvæmdastjórinn. blikksmiö og segir Sigurgeir að nú geti fyrirtækið boðið upp á enn fjölbreyttari þjónustu á sviði málmiðnaðar. Þekkingin er verðmæt og má aldrei glatast Fyrirtæki í jámiðnaði hafa átt erf- itt uppdráttar á síðustu árum og mörg þeirra lagt upp laupana. Sig- urgeir segist ekki eiga gott með aó dæma aðra en hluti skýringana geti verið offjárfesting og eins aó fyrirtækin hafi vaxið of ört. „Staðan á þessum markaði var mjög sterk hér á Akureyri í kring- urn 1970 og við njótum enn góós af því. Sú mikla þekking scm áunnist hefur í gegnum tíðina er mjög verðmæt og hún má aldrei glatast. Meó nýjum mönnum kem- ur ný þekking og þaó hef ég orðið var við í mínu fyrirtæki. Við höf- um verið heppin með starfsfólk og það skiptir miklu máli í rekstrin- um.“ Sigurgeir segist verða aðeins var við það að ungir menn vilji læra járnsmíði og komast á samn- ing. „Það hefur oróið mikil breyt- ing til batnaðar varöandi námið eftir að þessar verknámsdeildir voru settar á fót og menn koma mun betur undirbúnir út úr verk- námsskólunum. -Og það eru alltaf til ungir menn sem vilja leggja þessa iðngrein fyrir sig. Notið velvilja fjölmargra aðiia Það verður áfram þörf fyrir þessa starfsgrein. Allur þessi mikli vél- búnaður bæði til sjós og lands, krefst viðhalds og eftirlits og það verður stöðug vinna við slíkt. Þá er mikil vinna við loftræstikerfi í dag en hér áður var minna um að slík kerfi væru sett upp og oft lát- ið nægja að opna gluggann." Sigurgcir segir því að mióað við þær forsendur sem lagðar eru til grundvallar, ætti að vera bjart yfir grcininni en spurningin sé hins vegar hvemig tekst að spila úr hlutunum. Hann sagði að lokum að Vél- smiðja Steindórs hefði notió vel- vilja fjölmargra aðila í gegnum tíðina og fyrir það vildi hann þakka. „Við höfum fullan hug á því að halda áfram þessum rekstri og vonandi eigum við eftir að gera það um ókomna tíð.“ KK

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.