Dagur - 08.10.1994, Side 19
Laugardagur b. október 1994 - DAGUR - 19
SÆVAR HREIÐARSSON
Meryl Streep réði lítið við bátinn sinn.
Milli lífs og dauda
Það er ekki hættulaust að vera leikari og oft leggja þeir sig í mikla hættu
við tökur á myndum. Óskarsverðlaunahafinn Meryl Streep var hætt komin
við tökur á nýjustu mynd sinni, The River Wild, en leikkonan dróst tíu
metra undir vatni eftir að hafa lent í straumröst og hvolft báti sínum. Hún
hafði sagt leikstjóranum að hún væri of þreytt til að taka þetta áhættuatriði
en samþykkti loks að róa einu sinni enn niður The Gauntlet, hættulegasta
hluta flúðanna í Montana-ánni. Hún missti alla stjórn og gúmmíbáturinn
valt með þeim afleiðingum að hún stakkst á bólakaf. Eftir að ósköpin voru
afstaðin var leikkonan fegin því að vera enn í lifanda tölu. „Ég trúi ekki enn
hvað gerðist, ég hefði getað dáið. Ég hélt að ég mundi aldrei ná yfirborð-
inu á ný,“ sagði leikkonan og var greinilega miður sín yfir atburðinum.
ÆVAREIDUR
í FANGELSI
Leikkonan undurfagra Robin Givens er stolt
af líkama sínum og fer ekki leynt með
hann. Nýlega sat hún fyrir nakin hjá karla-
ritinu Playboy og í meðfylgjandi texta lét
Ijún svívirðingum rigna yfir fyrr-
um eiginmann sinn, Mike
Tyson. Hann situr nú í
fangelsi fyrir nauðgun
og hún kallar hai
yfirgangssegg og
heigul. Hún
yfirgaf
hann
eftir
að
hann fékk bræðiskast og barði á henni.
„Þetta var ekki harðasta högg hans en þetta
var það hrikalegasta því andlegu áhrifin
voru varanleg," sagði leikkonan, sem lék
m.a. í myndinni Boomerang á móti
Eddie Murphy. Boxarinn er
sagður ævareiður yfir
þessum ummælum
og ekki síst yfir
því að hún skuli
sýna öðrum
dýrðina, sem
hann bjó við á
meðan þau
voru gift.
UTAN LANPSTEINANNA
ERFIfl
A TOPPINN
Grínistinn og gamanleikarinn Jim Carrey kitlar
nú hláturtaugar íslendinga með leik sínum í
myndinni Mask. Litlu munaði þó að þessL,
geðþekki leikari kæmist aldrei á toppinn,
þar sem hann var áður forfallinn eiturlyfja-
neytandi og töldu félagar hans að hann yrði
ekki langlífur. Carrey, sem nú er 32 ára, var
lítt þekktur grínisti í næturklúbbum í Los Angel
es áður en hann sló í gegn í kvikmyndaheimin-
um og var vanur að neyta mikils magns af
kókaíni áður en hann steig á svið. Besti félagi
hans á þessum árum var maður að nafni
Wayne Flemming og hann segir þá hafa
verið hætt komna. „Við vorum báðir dóp-
istar og að öllu eðlilegu ættum við að
vera dauðir í dag,“ sagði Flemming við
blaðamenn fyrir skömmu. Þeir voru
æskufélagar í Toronto í Kanada og
fóru saman íjeit að frægð og frama í
Hollywood. „Á þessum tíma var þetta
bara eðlilegur hlutur og við hugsuðum
ekki út í hættuna sem við vorum í.
Síðar fengum við vitið og hættum
þessari vitleysu. í dag er hann heilsufrík
og smakkar varla áfengi nema með mat,“
sagði Flemming. Carrey skaust upp á
stjörnuhimininn með leik sínum í mynd-
inni Ace Ventura, The Pet Detective og
næsta verkefni kappans er að leika í þriðju
Batman-myndinni. Það má segja að hann
hafi séð frægðina fyrir, því fyrir átta árum
skrifaði hann ávísun upp á 10 milljónir
dollara og lofaði að hann ætlaði að vera
búinn að vinna fyrir henni um jólin 1994.
Hann geymir ávísunina enn í veskinu
og ætti að geta leyst hana út eftir
afrek sín á hvíta tjaldinu.
NIÐURLÆQINQ
Stjörnurnar í Hollywood há nú
harða baráttu við kvikmyndafram-
leiðendur sem fara æ oftar fram á
að þær taki lyfjapróf áður en þær
fá hlutverk í myndum þeirra.
Þetta þykir mjög niðurlægjandi
fyrir þessar stóru stjörnur en
framleiðendurnir vilja vita hvort
þær séu hraustar og neyti ekki
lyfja.
Hjónakornin Bruce Willis og
Demi Moore eru meðal þeirra
sem hafa þurft að gefa þvag- og
blóðsýni fyrir framleiðendur til að
fá úr þessu skorið og Bruce var
ekki alveg sáttur við þessar aðfar-
ir. „Það eru mörg ár síðan ég
bragðaði áfengi og það er öruggt
að ég nota ekki eiturlyf," sagði
leikarinn argur. Þessar hertu regl-
ur koma í kjölfar dauða River
Phoenix, sem dó úr ofneyslu
vímuefna, og John Candy, sem
fékk hjartaáfall á meðan á mynda-
tökum stóð. Tryggingarfélög eru
hætt að vilja tryggja myndir nema
fá sönnun um að aðalleikendur
geti klárað myndina.
Bruce Willis og Demi Moore þurftu að sanna sig.
Charlie Sheen lætur engan vaða yfir
sig.
SLAGSMÁL ÚT
AFENGU
Leikarinn kjaftfori Charlie Sheen er
þekktur fyrir að lenda í vandræð-
um hvar sem hann fer. Fyrir
skömmu skrapp hann inn á póst-
hús ásamt föður sínum, Martin
Sheen, og var eitthvað ósáttur við
lífið og tilveruna. Hann lét fúkyróin
dynja yfir afgreiðslufólkið og lenti
að lokum í handalögmálum við
einn starfsmann. Svo virðist sem
hann hafi ekki verió ánægður með
þegar starfsmaóurinn neitaði aó
kveikja í sígarettu kappans en
reykingar voru bannaðar í húsinu.
Að lokum þurfti pabbi gamli að
draga soninn út úr húsinu. Þetta
mun ekki vera í fyrsta sinn sem
hann lendir í slagsmálum út af
smámunum en hann lítur á sig
sem stórstjörnu og vill að aðrir
meðhöndli hann sem því hæfir.