Dagur - 08.10.1994, Blaðsíða 23

Dagur - 08.10.1994, Blaðsíða 23
MANNLI F Laugardagur 8. október 1994 - DAGUR - 23 Frá vinstri: Eva Laufey Stefánsdóttir, MI. Faye frá Gambíu, hjónin Stefán Gunniaugsson og Hugrún Engilbertsdótt- ir og Selnia Dögg Sigurjónsdóttir. HEILSUQÆSLUSTÖÐIN A AKUREYRI Inflúensu- bólusetning Upp úr miðjum októbermánuði gefst almenningi kostur á inflúensubólusetningu við Heilsugæslu- stöðina á Akureyri. Fyrirkomulag verður með þeim hætti, að þeir sem bólusettir voru á síðastliðnu ári og óska eftir að svo verði einnig nú þurfa ekki að láta skrá sig, heldur veró- ur haft samband við þá með nokkurra daga fyrirvara. Einungis þeir, sem ekki voru bólusettir á síðasta ári, en óska eftir því að það verði gert nú, svo og þeir sem voru bólusettir sl. ár en vilja það ekki nú, eru beðnir að láta vita á Heilsugæslustöðina, í síma 22311. Heilsugæslustöðin á Akureyri. Bautafólk skemmtir sér Um síðustu helgi komu starfsmenn veitingastað- arins Bautans á Akureyri saman í húsakynnum Glerhússins hf. á Akur- eyri (þar sem Blómahús- ið var áöur til húsa) og héldu árshátíð. Auðvitað var þetta veisla eins og hún gerist best og það var létt yfir mannskapn- um. Robyn, ljósmyndari Dags, var á staönum og tók meófylgjandi myndir. óþh Eyjólfur Kristjánsson, tónlistarniaður, sem er hér lcngst til vinstri, var veislustjóri. Aðrir á myndinni eru Hreinn Skagfjörð, Gréta Björnsdóttir og Ingólfur Gíslason. Steinþór Sigurðsson (t.v.) og Auðjón Guðmundsson. Systurnar Svandís og Sæunn Guðmundsdætur í góðu formi. Nammi, namm. Um að gera að fá sér duglcga á diskinn. Frá vinstri: Örn Hansen, Ómar Garðarsson, mæðgurn- ar Alda Ómarsdóttir og Rannveig Benediktsdóttir og feðgarnir Baldvin Dagur Rúnarsson og Rúnar Þór Björnsson. Ritari óskast Þjónustufyrirtæki óskar eftir ritara í fullt starf. Góð tungumálakunnátta nauðsynleg. Upplýsingar um nafn, aldur, menntun og fyrri störf sendist á afgreiðslu Dags, Strandgötu 31, fyrir þriðjudaginn 11. október merkt: „Ritari". Yfirvélstjóri óskast á Sólrúnu EA-351 frá Árskógssandi. Upplýsingar í símum 96-61946, 96-61098, 985-22551. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR KRISTINSSON, fyrrverandi kennari, Lönguhlíð 6, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju, þriðjudaginn 11. október kl. 14.00. Kolbrún Eiríksdóttir, Hólmfríður Eiríksdóttir, Ólöf Eiríksdóttir, Kristján Ottersted, Birgir Eiríksson, Hólmfríður Ingvarsdóttir, Einar Eiríksson, Sigríður Ingvarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vió andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ERLENDAR BÓASAR FRIÐJÓNSSONAR. Guðlaug Erlendsdóttir, Pálmi Guðmundsson, Friðjón Erlendsson, Sigrún Magnúsdóttir, Björgvin Erlendsson, Isfold Helgadóttir, barnabörn og barnabarn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föóur okkar, tengdaföður og afa, KARLS EIRÍKS HRÓLFSSONAR, Áshlíð 15, Akureyri. Kristbjörg Runólfsdóttir, Jón R. Karlsson, Fríða Sigurðardóttir, Hrólfur Karlsson, Gerður Ólafsdóttir, Sigurður Karlsson, Lucía Óskarsdóttir, Magnús Karlsson, Heiða Reimarsdóttir, Vilborg Karlsdóttir, Jón Rúnar Rafnsson og barnabörn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.