Dagur - 08.12.1994, Blaðsíða 1
77. árg.
Akureyri, firaratudagur 8. desember 1994
236. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Tiiraunavinnslu KEA á ígulkerum hætt:
Öllum starfsmönnum sagt upp
o
llu starfsfólki ígulkera-
vinnslu Kaupfélags Eyfirð-
inga, alls um 18 manns, hefur
verið sagt upp störfum og verð-
ur fólkiö ekki endurráðið að
óbreyttum forsendum, þ.e. ef
verð á ígulkerum hækkar ekki.
Starfsemin hefur verið til húsa í
fiskhúsi KEA við smábátahöfn-
ina í Sandgerðisbót á Akureyri.
Ari Þorsteinsson, frystihúss-
stjóri í Hrísey, og væntanlegur
forstöðumaður sjávarútvegsdeild-
ar KEA, segir að verð á ígulkera-
hrognum hali verió í sögulegu
Akureyri:
Flæðir inn
í kjallara
- flug fellur niöur
Síðdegis í gær var Slökkvilið
Akureyrar kallað út til að
aðstoða húseigendur á Eyrinni á
Akureyri þar sem vatn hafði
flætt inn í kjallara húsa.
Slökviliðið fór á vettvang með
tvær vatnsdæiur. Um nokkur hús
var aó ræöa meóal annars Hús-
gagnaverslunina Augsýn viö
Strandgötu. Einnig ilæddi inn í
kjallara við Hríseyjargötu.
Að sögn Benjamíns í Augsýn
flæddi vatn inn í kjallara þar sem
lager verslunarinnar er og varó urn
5 cm vatnselgur á góliinu. Eitt-
hvert tjón hlaust af vatnsílóðinu
en Benjamín sagði ekki ljóst á
þessu stigi hve mikió þaó væri.
Slæmt veður var á Akureyri
síðdegis í gær, rigning, hvasst og
stórstreymt.
Vegaeftirlit Vegagerðar ríkis-
ins á Noróurlandi varaói vegfar-
endur vió hálku á vegum og aflýsa
varð flugi í gærdag.
Að sögn starfsmanna á Akur-
eyrarflugvelli kom ein vél til Ak-
ureyrar í gærntorgun á vegum
Gjafablað Dags
Idag kemur út Gjafablað
Dags í fyrsta skipti. Blaðið er
32 síður að stærð og prentað í
11 þúsund cintökum. Blaðið fer
inn á öll heimili í Skagafirði,
Eyjafjarðarsýslu, Suður-Þing-
eyjarsýslu og Norður-Þingeyjar-
sýslu. Auk þess fylgir það Degi
til allra áskrifenda utan áður-
nefnds svæðis.
Umsjónarmaður Gjafablaðs
Dags er Magnús Már Þorvalds-
son.
|j|
urniii
Flugleiða og athuga átti unt flug í
gærkvöld til Akureyrar. Einnig
átti aó fljúga í gærkvöld til Sauð-
árkróks og Húsavíkur. Flugfélag
Norðurlands aflýsti öllu flugi í
gær. Veðurstofan spáir ntun skap-
legra veðri í dag og er þessi hvell-
ur því sennilega genginn yfir. KLJ
lágmarki um tíma en í desember-
mánuði hefur verðið yfirleitt verið
stígandi, en það hefur ekki gengið
eftir nú.
Verðið hefur verið þaö lágt að
ekki hefur hafst upp í launakostn-
að og því var gripið til þess ráðs
að segja öllum upp störfum. Um
er aó ræða fólk sem var á atvinnu-
leysisskrá en ákveðið var að fara í
þessa tilraunavinnslu, m.a. til að
skapa störf og þjónusta þá smá-
báta sem eru í viðskiptum vió
fiskhús KEA.
„Framleiðslan hefur þótt mjög
góð en á heimsmárkaðinn hafa
verið að koma ígulkcr frá Amer-
íku sem er hrcin viðbót og því
hefur verðið farið niður, lækkað
til muna, í staö þess að fara upp á
þessum árstíma. Það er alveg
glórulaust að halda þessari til-
raunavinnslu áfram á þessum for-
sendum. Við munum fylgjast með
verðlaginu úti, en að óbreyttu
gengur þessi tilraunavinnsla ekki
upp. Við höfum hins vegar aflað
okkur dýrmætrar verkþekkingar,“
sagði Ari Þorsteinsson. GG
Þótt desember sé dimmur...
Mynd: Robyn.
Félagsmálaráð Akureyrarbæjar:
Minna ráðgert í fjárhagsaðstoð
- niðurstaða í „útivistarmálinu" væntanleg innan tíðar
Ifjárhagsáætlun Akureyrar-
bæjar fyrir næsta ár er gert
ráð fyrir að fjárhagsaðstoð
lækki um 2,2 milljónir miðað
við endurskoðaða fjárhagsáætl-
un þessa árs, en á þessu ári fara
tæpar 28 milljónir í þennan lið.
Við endurskoðun fjárhagsáætl-
unar á þessu ári þurfti að
hækka framlagið umtalsvert,
enda vissu menn að sú upphæð
sem gert var ráð fyrir var ekki
raunhæf.
Sigfríður Þorsteinsdóttir, for-
maður félagsmálaráðs, sagði
menn gera sér vonir um aó á
næsta ári yrói hægt að nýta pen-
ingana betur en á þessu ári, frekar
en að menn væru að gera ráð fyrir
að ástandið færi batnandi. „Þetta
er miðað við endurskoðaða fjár-
hagsáætlun og við teljum að við
séurn með raunhæfa tölu núna.“
Fyrr í vikunni var greint frá
deildum meiningum félagsmála-
ráðs og íþrótta- og tómstundaráðs
um útivistartíma unglinga um
helgar, en íþrótta- og tómstunda-
ráð sætti sig ekki við tillögu fé-
lagsmálaráðs í þessu efni og lagði
nýja tillögu fyrir bæjarráð. Það
hins vegar vísaði henni til félags-
málaráðs. Sigfríður sagði félags-
málaráð ekki vera búið að af-
greiða málið, en stefnt væri á aó
gera það sem allra fyrst svo fyrri
umræða geti farið fram á næsta
bæjarstjórnarfundi. „Þaö cr fyrir-
sjáanlegt að vió klárum þetta ekki
fyrir áramót, en seinni umræóa
getur vonandi farið fram á fyrri
fundi bæjarstjórnar í janúar, þann-
ig að við getum farið að
framfylgja nýjum rcglum strax í
febrúar.“
- Attu ekki von á að hægt verði
að ná einhverri lendingu í þessu
máli milli félagsmálaráðs og
íþrótta- og tómstundaráós?
„Jú, ég vona það. Við ætlum að
fá fulltrúa frá þeim á fund með
okkur til þess að ræða þetta og
vonandi næst samstaða um málið
þannig að við getum lokið því
sem fyrst.“ HA
Húsavík:
Ruslatunnurok
HV
8
[vassviðri var á Ilúsavík í
gærdag og fékk lögreglan
allmargar upphringingar vegna
dóts sem var að fjúka um bæ-
Kjaraviðræður á Akureyri í dag:
Vinnumálasambandið ræðir við Iðju
mn.
Bárujárnsplötur voru að rífa sig
lausar í hesthúsahverfinu, en lög-
regla stöðvaói frekara fok. Jeppa-
kerra lagði af stað og njörfa þurfti
hana niður. Auk þess voru rusla-
tunnur og rusl á ferðinni. Lögregl-
unni var ekki kunnugt um alvar-
legt tjón vegna veóursins. IM
Forsvarsmenn Vinnumála-
sambands samvinnufélag-
anna eru væntanlegir norður til
Akureyrar í dag til viðræðna við
samninganefnd Iðju - félags
verksmiðjufólks á Akureyri um
kjaramálin. Kristín Hjálmars-
dóttir, formaður Iðju á Akur-
eyri, segir að ætlunin sé að ræða
ýmis sérmál sem nauðsynlegt sé
að afgreiða áður en í heildarvið-
ræður verði farið.
Kristín segir að kröfur Iðju
liggi í stórum dráttum fyrir. „Þær
hljóöa fyrst og fremst upp á það
að tekið verði á lægstu launum.
Við leggjum til að það verði gert
áður en kemur til Iaunahækkana
yfir alla línuna, en maður reiknar
meó ákveðinni tölu eða prósentu
sem gangi upp allan launastigann.
Síðan höfum við mjög mikinn
áhuga á kjarabótum í gegnum
skattakerfið, sem miöa að því að
létta skattbyrðinni af fólki.“
Kristín sagöi að efnahagur
Iðjufólks hefði þrengst verulega á
þessu ári. Hún segir aó lægstu
laun sem greidd séu til launafólks
innan Iöju séu sem næst 50 þús-
und krónum. Þarna sé miðaó vió 8
tíma dagvinnu.
Vinnumálasamband samvinnu-
félaganna kemur aö kjarasamning-
um við stóran hluta Iðjufólks á
Akureyri. Þetta er starfsfólk í
Skinnaiðnaði hf. og ýmsum fyrir-
tækjum Kaupfélags Eyfirðinga,
t.d. Mjólkursamlagi, Kjötiðnaðar-
stöð og Sjöfn.
„Við höfum gert sérsantninga
við Vinnumálasambandið og við
viljum fá að ræða sérstaklega
breytingar á þeim,“ sagói Kristín.
Kristín sagðist telja að fram-
undan væri erfið kjarasamninga-
lota. „Svo virðist sent ákveónir
aðilar í þjóðfélaginu telji að ekki
sé möguleiki á neinuni Iauna-
hækkunum. Gott dæmi um þetta
er kjaradeila sjúkraliða við ríkið.
Maður átti von á því að menn
væru tilbúnir að koma til móts við
launafólk eftir alla þá biðlund sem
þaó hefur sýnt. Því miður viröist
það ekki vera,“ sagði Kristín
Hjálmarsdóttir. óþh
dagar