Dagur - 08.12.1994, Síða 11
Fimmtudagur 8. desember 1994 - DAGUR - 11
Suður-Þingeyjarsýsla:
Bókþing, nýtt útgáfufyrirtæki
- §órða barnabók Atla Vigfússonar komin út
Myndskrcyting Hólmfríðar Bjartmarsdóttur úr hókinni.
- Hóbnfríður Bjartmarsdóttir myndskreytir
Núverandi formaður og fimm fyrrverandi formenn Völsungs: fremri röð
f.v.: Þormóður Jónsson, Sigurður Pétur Björnsson og Helgi Kristjánsson.
Aftari röð f.v.: Sigurður Hailmarsson, Vilhjálmur I’álsson og Ingólfur
Freysson. Myndir: IM
Fjósamúsin á afmæli
- gripið niður í upphaf bókarinnar
Það er mikið að gera hjá Rauð
risabola.
Hann hamast við að bóna nýja
bílinn sinn sem hann keypti í
haust. Þetta er stór kúatrukkur
með drif á öllum hjólum og sæti
fyrir marga farþega.
Rauður risaboli er himinlifandi
yfir bílnunt sent þýtur yfir ófærur
og öslar ár og vötn. Það er vegna
þess að trukkurinn er á tröllahjól-
um.
Aldrei hefur Rauður verió
svona ánægóur.
Hann hefur nægan tíma til þess
að hugsa um þetta fallega tæki og
nú hlustar hann á kúalög í útvarp-
inu sem fylgdi með í kaupunum.
Hann hlustar á kúarokk og
gömul kúadanslög. Bara eitthvað
nógu fjörugt.
Svo á hann líka sælgæti í bíln-
um. Það er kúasælgæti eins og t.d.
kúakögglar og graskögglar.
Og nú er hann niðursokkinn
við að þrífa trukkinn svo hann
verði sem glæsilegastur, enda ætl-
ar hann einhvern tíma að bjóöa
fallegum kúnt í sveitinni í bíltúr.
- Þetta er skemmtilegur dagur
hjá Rauð.
En allt í einu heyrist tíst.
Rauður risaboli heyrir scint
fyrir hávaðanum í tónlistinni enda
er hann hálfvegis byrjaður að
dansa kringunt kúatrukkinn.
„Ekki stíga á mig,“ tístir fjósa-
músin unt leið og hún krafsar í
annan afturfótinn á Rauö. „Ertu að
gera við bílinn, Rauður?“, segir
Rauður risaboli mcð bóntuskuna á
öðrum framfætinum og hættir að
dansa.
„Eg er fjósamúsin hér á Hóli“,
segir hún um lcið og hún klifrar
upp að framrúðunni á bílnunt til
þess að geta talað við Rauð risa-
bola jtannig að hún sjáist.
„Eg ætla að bjóóa þér í veislu í
kvöld. Eg ætla að bjóða mörgum
dýrum í veislu. Ég ætla að halda
risaveislu í fjóshlöðunni“.
„Bjóöa mér í veislu“, segir
Rauður og klórar sér í hausnum.
„Ég hef aldrei verió í veislu“.
„Já, og allir eiga að skemmta
sér því það er afntælið mitt. Það
verða mörg skemmtiatriói og síð-
an verður dansað frant undir
rnorgun". Fjósamúsin getur ekki
leynt tilhlökkun sinni og stekkur
niður og dansar hringinn í kring-
um afturfæturna á Rauð.
- Þetta er merkileg mús.
Rauður er rnjög undrandi yfir
þessu öllu, en fjósamúsin heldur
áfram aó bjóða í afmælið sitt.
Hún ætlar aö bjóða hestum,
hænsnum, kindum og kúnt. Svo
glöð er hún yfir afmælinu sínu.
Allir fyllast tilhlökkun yfir
þessu rausnarlega boði og það
verður baulaó, gaggað, galaó,
hneggjað, jarmað og tíst.
Rauður risaboli verður að flýta
sér að pússa bílinn því fjósamúsin
vill fá hann til þess að sækja dýr á
næstu bæi í veisluna.
Rauður notar tækifærið og
kannar hvort vélin gangi rétt því
allir veróa að koma tímanlega.
Síðan athugar hann hvort nokkuð
vanti í verkfæratöskuna ef eitt-
hvaó skyldi fara úrskeiðis.
Hann vill heldur ekki að finar
kýr úr sveitinni setjist í skítug sæt-
in og þess vegna hreinsar hann allt
hátt og lágt.
- Þetta verður eitthvað sögu-
legt.
Fjósamúsin á ajinœli greinir,
eins og nafnið bendir til, frá af-
mælisveislu músar. 1 sögunni
gegna kýr, hestar, hænsni og mýs
ntiklu hlutverki. Fleiri dýr úr
sveitinni koma vió sögu en í fyrri
bókum Atla, og myndirnar hennar
Hólmfríðar fullkomna svo ævin-
týrið. Ef við viljum velja íslenskt
og versla heima, þá cr hér komin
saga sem skrifuð er og ntynd-
skreytt í íslenskri sveit og bókaút-
gáfan er nýjasta aukabúgrein
bóndans. IM
Scx stofnfélagar voru viðstaddir: Sigtryggur Albertsson, Sören Ginarsson,
Hjálmar Thcodórsson, Martcinn Stcingrímsson, Valdimar Vigfússon og
Hclgi Kristjánsson.
Fjósamúsin á afmœli heitir nýj-
asta bók Atla Vigfússonar á
Laxamýri, sem nýtt útgáfufyrir-
tæki hans, Bókþing, gefur út.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
hefur myndskreytt bókina ríku-
lega.
Þetta er fjórða barnabókin sem
gefin er út í samvinnu þeirra Atla
og Hólmfríóar. Bókin er gullfalleg
og sagan skemmtileg sem hinar
fyrri. Þetta er ein þeirra bóka sem
ekki er hent eftirlitslaust í ungar
hendur, því það er freistandi að
lesa söguna með barninu, skoða
myndirnar og ræða málin. Bókin
er sjálfstætt framhald af tveim
fyrstu bókum Atla, þær heita:
Kaupstaðarferð dýranna og
Hænsnin á Hóli. Þriöja bók hans
heitir Ponni og fuglarnir.
Völsungur Húsavík:
Heiðrar stofnfélaga
Jólasveinarnir
eru komnir til byggða
Eftir mikinn barning tókst jólasveinum Vöruhúss KEA að
komast til byggða. Þeir lögðu mikið á sig til að geta hitt
ykkur - og munu koma fram við Vöruhús KEA
sunnudaginn 11. desember kl. 15.00.
Mætið öll og raulið með okkur
íþróttafélagið Völsungur hélt
kaffisamsæti sl. laugardag til
heiðurs stofnfélögum sínum, en
þrír þeirra urðu áttræðir á
þessu ári. Félagið er 67 ára og
níu stofnfélaganna eru á lífi.
Stofnendur Völsungs voru 23
piltar og sex þeirra voru viðstadd-
ir kaffisamsætið. Þeir sem áttræóir
urðu á árinu eru: Helgi Kristjáns-
spn, Valdimar Vigfússon og Sör-
en Einarsson. Einnig voru við-
staddir þeir Hjálmar Theódórsson,
Sigtryggur Albertsson og Mar-
teinn Steingrímsson. Þráinn Krist-
jánsson sá sér ekki fært að mæta.
Ingólfur Freysson afhenti stofnfé-
lögunum nýútkomna Kortabók yf-
ir Húsavíkurland í tilefni dagsins.
Tónlistarkennaramir Valmar
Váljaots og Leifur Vilhelm Bald-
ursson léku á fiðlu og gítar, við
hrifningu viðstaddra.
Fyrrvcrandi formönnum Völs-
ungs var boðið til samsætisins og
með Ingólfi voru samankomnir
sex menn sem gegnt hafa for-
mannsstarfi hjá félaginu. Fyrrver-
andi formennirnir voru: Helgi
Kristjánsson, Þormóóur Jónsson,
Sigurður Pétur Björnsson, Vil-
hjálmur Pálsson og Sigurður
Hallmarsson.
Ræóur og ávörp voru flutt und-
ir borðurn og fóru Völsungar á
kostum er þeir rifjuðu upp áratuga
og aldagamlar sögur af íþróttaaf-
rekum. Þeir sem tóku til máls voru
Hafliói Jósteinsson, Sigurjón Jó-
hannesson, Þormóður Jónsson og
Hjálmar Theodórsson, sem talaði
fyrir minni Völsungskvenna. IM
í haust bættist eistlcnskur tónlist-
arkcnnari, Valmar Váljaots, í raðir
húsvískra listamanna. A myndinni
eru Valmar og Leifur Vilhelm að
leika fyrir Völsunga í kaffisamsæt-
inu.