Dagur - 08.12.1994, Síða 15
Fimmtudagur 8. desember 1994 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
SÆVAR HREIÐARSSON
I
Frá ársþingi KSÍ
■ Tveir nýir menn voru kjömir
í stjóm Knattspymusambands
íslands á Akranesi um hclgina,
Halldór B. Jónsson, fyrrum
formaóur knattspyrnudeildar
Fram til fjölda ára og Róbert
Agnarsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar í
Mývatnssveit og fyrrverandi
bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Þeir
tóku sæti Sveins Sveinssonar
og Ágústar Inga Jónssonar,
sem ekki gáfu kost á sér til
endurkjörs.
■ Þá voru þeir Stefán Gunn-
laugsson, fyrrum formaöur
knattspymudeildar KA og Elí-
as Hergeirsson, gjaldkcri KSÍ,
endurkjömir í stjómina. Alls
sóttust sex menn eftir fjórum
sætum í stjóminni en þeir Páll
Bragason úr Stjörnunni og
Árni Þóröarson úr ÍR, náðu
ekki kjöri.
■ í Arsskýrslu KSÍ fyrir árió
1994 kemur fram aó sam-
kvæmt starfs- og kennslu-
skýrslum ÍSÍ á síöasta ári eru
20.395 skráöir iðkcndur í
knattspymu á landinu en
87.586 iðkendur cru skráðir í
öllum greinum. Þaó þýðir að
liðlega 23% íþróttafólks lands-
ins stundar knattspymu.
■ ísland hefur aldrci leikið
eins marga landsleiki í knatt-
spymu og í ár. Þeir voru alls
57 og fjölgaði um 9 frá fyrra
ári en auk þess lék karlalands-
liðið æFingaleik við japanska
félagsliðið Reysol í Japan.
Mikill meirihluti leikjanna fór
fram erlendis, eöa 40 leikir en
17 landslcikir vom háðir hér á
landi.
■ Velta KSÍ á árinu nam 141
milljón króna og jókst um 50
milljónir frá fyrra ári. Aðeins
einu sinni áöur hefur veltan
farið yfir 100 milljónir, en árió
1991 var veltan 109 milljónir.
Hagnaður KSÍ á árinu var rétt
rúmar 2 milljónir króna.
■ Tiilaga um að fækka t 1.
dcild kvenna náði ekki fram aö
ganga á ársþinginu. Fulltrúar
IBA lögðu fram breytingartil-
lögu en sú tillaga sem var sam-
þykkt, var lögð fram af leik-
reglnanefnd. Þar kemur m.a.
fram að 8 lið skulu lcika í 1.
deild og aldrei færri en það og
leikin tvöföld stigakeppní.
Neósta liö 1. deildar l'ellur í 2.
deild og efsta lið 2. deildar
flyst I 1. deild en liðið sem
hafnar í 7. sæti 1. deildar skal
lcika aukalciki um sæti í I.
deild á næsta ári, heima og
hciman, við lióió sem hafnar í
2. sæti í 2. deild.
■ Ársþing KSÍ saniþykkti
ályktun, þar sem skoraó er á
ríkisstjórn og sveitastjórnir aó
hefja nú þegar undirbúning að
byggingu knattspyrnuhúsa í
hverjum landshluta. Slík hús
em forsenda frantfara í íslcnskri
knattspymu og nauðsynleg til
þess að ísland eigi fullt erindi í
keppni á aiþjóða vettvangi. í
þessu sambandi skal bent á
frumkvæði Norðmanna í bygg-
ingu slíkra húsa og árangur
þeirra í alþjóðakcppni.
■ Tillögu um knattspymu-
minjasafn, frá Knattspyrnufé-
lagi ÍA, var vísað til stjómar
KSÍ. í tillögunni cr gcrt ráð
fyrir að minjasafniö verói
varðvcitt í Byggðasafninu að
Görðum á Akranesi. Munum,
myndum og ritum skal safnað
um allt land til varðveislu í
Knattspyrnuminjasafninu.
Handknattleikur - 2. deild karla:
Þór tapaði
með tveimur
- Blikarnir heim meö bæöi stigin
Sl. þriðjudagskvöld léku Þór og
Breiðablik í 2. deildinni í hand-
knattleik í íþróttahöllinni á Ak-
ureyri. Leikurinn var hnífjafn
allan tímann en í lokin voru það
gestirnir sem stóðu uppi sem sig-
urvegarar, 25:23, eftir að hafa
haft yfír í hálfleik 13:12.
Byrjun leiksins var frekar döp-
ur og greinilegt að Þórsarar hafa
lítið leikið undanfarinn mánuð.
Þórsarar komust í 2:0 en eftir það
fór sóknarleikurinn að ganga
brösulega og vörnin opnaðist oft
illa. Jafnt var á með lióunum
framan af l’yrri hálfleik en llest
mörk Þórsara komu úr vítaköst-
um. Seinni hluta hálfleiks sigu
gestirnir framúr og komust í
þriggja marka forustu en tvö mörk
frá Sævari Árnasyni minnkuðu
muninn niður í eitt mark fyrir hlé,
12:13.
Þórsarar jöfnuðu str'ax í upp-
hafi síðari hálfleiks og komust
fljótlega yfír, 18:16, en í kjölfarió
fylgdi slæmur kafli þar sem sókn-
arnýting heimamanna var slæm.
Blikarnir náðu tveggja marka for-
ustu, 22:20, en baráttuglaðir Þórs-
arar náðu að jafna, 22:22. Þrátt
fyrir að Hermann Karlsson næói
að verja vel í tvígang skoruðu
Blikarnir tvö mörk í röð og kom-
ust aftur yfir. Þórsarar flýttu sér
um of í sóknarleiknum og klúðr-
uðu færum sínum. Þegar 30 sek-
úndur voru eftir minnkaði Ingólf-
ur Samúelsson muninn í eitt mark,
23:24, en tíminn var of naumur til
að jafna og á síðustu sekúndunum
bættu gestirnir vió einu marki.
Atli Rúnarsson var besti maður
Þórsara í leiknum og Sævar Árna-
son lék einnig vel, sérstaklega í
fyrri hálfleik. Þaö er hins vegar
áhyggjuefni fyrir liðið hversu lítið
kom út úr horna- og línumönnum
liðsins í leiknum.
Mörk Þórs: Sævar Árnason 9/5, Atli
Már Rúnarsson 7, Páll Gíslason 4/1,
Samúel Árnason 2, Ingólfur Samúels-
son 1.
Mörk UBK: Sigurbjörn Narfason 7,
Guöjón Hauksson 4/2, Eyjólfur Einars-
son 4. Björgvin Björgvinsson 4, Dagur
Jónasson 3, Gunnar Sigurðsson 3.
innanhússknattspyrna:
A-lið HSÞ b sigraöi
á Laugamótinu
Fyrir skömmu var haldið hið ár-
lega Laugamót í innanhúss-
knattspyrnu. Þetta var í tólfta
skipti sem mótið er haldið og að
þessu sinni voru fímm lið skráð
til leiks í kvennaflokki en tólf í
karlaflokki. Flest liðin voru úr
Þingeyjarsýslu en einnig komu
lið frá Siglufirði og úr Eyjafírði,
þ.e. frá Dalvík, Árskógsströnd
og Grenivík.
Leikiö var í einum riðli í
kvennakeppninni og þar sigraði
lið KS b. I karlakeppninni var lið-
unum skipt í þrjá fjögurra liða
riðla og upp úr hverjum riðli kom-
ust tvö lið sem léku í tvcimur
milliriðlum. Liðin sem komust
áfram voru a- og b-lið HSÞ b, KS,
Völsungur a, Dalvík og Laugar a.
I undanúrslitum léku annars
vegar a-lið HSÞ b og Völsungs og
lið KS og Dalvíkur hinsvegar. KS
og HSÞ b sigruðu og komust í úr-
slitaleik en Dalvíkingar unnu síó-
an Völsunga í leik um þriðja sæt-
ið. I úrslitaleiknum milli HSÞ b og
KS var jafnt eftir venjulegan leik-
tíma og einnig eftir framlengingu.
Grípa þurfti til bráðabana og fór
svo að Þingeyingar uröu fyrri til
að skora en þettta cr í þriðja skipti
á fjórum árum sem þeir vinna
þetta mót. Mótið þótti takast vel
og vonast mótshaldarar til að sjá
sem flest lið að ári.
íþróttamaður
Norðurlands 1994
Nafn íþróttamanns: íþróttagrein:
1.
2.
3.
4.
5.
Nafn: Sími:
Heimilisfang:
Sendist til: íþróttamaður Norðurlands 1994
B.t. Dagur, Strandgötu 31,600 Akureyri
Skilafrestur er til 23. desember 1994
Atli Már Rúnarsson var bestur
Þórsara gegn UBK.
Aöalfundur K.R.A.:
Áskorun til
yfirvalda
Aðalfundur Knattspyrnuráðs
Akureyrar var haldinn 28.
nóvember sl. í stjórn voru
kosnir Jón Á. Aðalsteinsson
formaður, Birgir Kristbjörns-
son, Svcinn Æ. Stefánsson,
Árni Jóhannsson, Óskar
Hjaltalín, Hafþór Jónasson
og Eyþór Gunnþórsson.
Á fundinum var samin eftir-
farandi áskorun:
K.R.A. skorar á bæjaryílr-
völd á Akureyri að leggja nú
þegar Ijármuni í að bæta aö-
stöðu knattspymumanna í bæn-
um. Þaó má öllum Ijóst vera að
æfinga- og keppnisaóstaða ak-
urcyrskra knattspynumanna cr
með öllu óviðunandi og að úr-
bóta er þörf þegar í staó.
K.R.A. hefur þegar sent
íþrótta- og tómstundaráói Ak-
urcyrar tvö bréf mcö ábcnding-
um um úrbætur og með þessari
áskorun er það ítrekað að mál-
ið verði tekið af alvöru innan
bæjarkerfisins.
Körfuknattleikur:
Suöurnesja-
liðin erfiöust
Það er óhætt að segja að þetta
verði erfítt kvöld fyrir norðan-
liðin í körfuboltanum. Leikið
verður í átta liða úrslitum bikar-
keppni KKÍ þar sem Tindastóll
fær Keflavík í heimsókn og
Þórsarar fara til Grindavíkur og
leika þar við feiknarsterka
heimamenn.
Það cru sennilega flestir á því
að það veröi þrjú lið frá Suður-
nesjum í undanúrslitunum en auk
áðurgreindra leikja eigast vió
Njarðvíkingar og Skagamenn ann-
ars vegar og Valur og Haukar hins
vegar. Það er því undir leikmönn-
um „smáliðanna" komið aó hrista
duglcga upp í einokun Suður-
nesjarisanna.
Júdó:
Dómara-
skandall
Um síðustu helgi var keppt í
sveitakeppni karla og sveita-
keppni karla yngri en 21 árs í
júdó f LaugardalshöIIinni. KA-
menn stóðu í ströngu og sigruðu
í unglingakeppninni en þurftu
að sætta sig við annað sætið í
karlaflokknum.
Yfírburóirnir KA voru miklir í
unglingakeppninni. Sveitina skip-
uðu Rúnar Snæland, Sævar Sigur-
steinsson, Jónas Jónasson, Berg-
þór Björnsson og Þorvaldur Blön-
dal og hlutu þeir 90 tæknistig af
100 mögulcgum.
Þeir voru allir, utan Bergþórs,
einnig í fullorðinssveitinni en þar
bættust við þeir Freyr Gauti Sig-
mundsson, Vernharð Þorleifsson
og Jón Jakobsson. Leiðin í úrslit
var frekar létt og þar mættu þeir
Ármanni. KA-lióið er ungt og
breiddin ekki jafn mikil og hjá Ár-
manni og allt varð að ganga upp
til að sigur ynnist. Rúnar var
óheppinn að tapa fyrstu viðureign-
inni en Sævar vann næstu örugg-
lega. Jónas tapaði fyrir sterkum
andstæóingi og Freyr Gauti hafói
yfirhöndina í sinni glímu en and-
stæðingurinn komst hjá skori og
refsistigum, sem hann hefði með
réttu átt að fá. Jafntefli varð því
niðurstaðan. Þorvaldur var meidd-
ur og tapaði sinni glímu og var
staðan því orðin 3-1 fyrir Ármann.
Vernharó glímdi við Bjarna
Frióriksson, þar sem Vernharð
hafði alltaf frumkvæóió og tókst
cinu sinni aó kasta Bjarna, en
mjög slakur dómari dæmdi ekkert
og Bjarni náði aö hanga á jafn-
tefli. Það var því ljóst fyrir síðustu
glímuna að Ármann hafði sigur en
Jón sótti hart að sínum andstæð-
ingi, kastaði honum duglega en
dómarinn dæmdi ekkert og enn
eitt jafnteflið leit dagsins ljós. Eft-
ir glímuna viðurkcnndi dómarinn
að Jón heíði skoraó. Þaó er þó
hægt að skilja frammistöðu dóm-
arans ef haft er í huga aó á hliðar-
línunni stóó stjórn Júdósambands-
ins og landsliðsþjálfari og hvöttu
Ármenninga sem mest þcir máttu.
Handknattleikur:
KA-leiknum
frestað
Leik Vals og KA sem var á dag-
skrá í gærkvöld í 1. deildinni í
handknattleik var frestaó vegna
veóurs. KA-strákar komust ekki
suður með flugi vegna þess leið-
indaveðurs sem var á Norðurlandi
í gær. Næsti leikur KA verður á
föstudag, ef veóur leyfir, en þá er
fyrirhugaður leikur liósins við
IBV í Vestmannaeyjum í bikar-
keppninni.
Munið ódýru
morgun-
tímana
frá kl. 9-14
Aðeins kr. 270,-
Sólstofan Hamri
Sími 12080